Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Blaðsíða 10
K nattspyrnusamband Íslands (KSÍ) heldur spilunum þétt að sér enn sem komið er varðandi ráðningu á næsta landsliðsþjálf- ara karla en á sparkspekingum, sérfróðum og sjálfskipuðum, er að heyra að líklegra sé að Íslendingur en útlendingur verði ráðinn að hirðinni að þessu sinni. Bent er í því sambandi á árangur Heimis Hallgrímssonar sem fyrstur manna kom landsliðinu í loka- keppni heimsmeistaramótsins, í Rússlandi árið 2018. Fyrir vikið þurfi ekki að sækja vatnið yf- ir lækinn. Nú, nema téður Heimir verði þá sóttur á ný en hann er nú til húsa í Doha, Kat- ar. Fáum þykir það þó sennilegasta niður- staðan enda hafi Heimir gefið verkefnið frá sér eftir HM. Hér heima er helst rætt um gömlu félagana úr KR, Rúnar Kristinsson og Heimi Guðjóns- son. Báðir hafa þeir notið velgengni sem þjálf- arar; Heimir hefur sjö sinnum gert lið að Ís- landsmeistara, nú síðast Val á þessu ári, og Rúnar þrisvar, seinast í fyrra. Báðir hafa þjálf- að erlendis, Rúnar í Noregi og Belgíu og Heimir í Færeyjum. Það vegur þó ekki þungt í þessu sambandi enda árangur Rúnars ytra ekki eins góður og hér heima og færeyska deildin ekki í hópi þeirra sterkustu í Evrópu. Sumir benda á, að árangur Heimis á Evrópu- mótum sé betri en Rúnars. Báðir hafa þeir reynsluna en Rúnar þekkir landsliðið auðvitað mun betur, verandi lands- leikjahæsti karl Íslandssögunnar. Hafa ber þó í huga að ekki truflaði það Heimi Hallgrímsson sérstaklega að hafa aldrei leikið landsleik. Heimir Hallgrímsson hóf sinn feril með landsliðinu sem aðstoðarþjálfari Svíans Lars Lagerbäcks, líkt og Freyr Alexandersson hjá Erik Hamrén. Fáir sem greinarhöfundur hef- ur heyrt hljóðið í reikna hins vegar með því að Freyr fái stöðuhækkun núna; hann kæmi frek- ar til álita sem aðstoðarþjálfari áfram. Það veltur þó allt á því hver hreppir hnossið. Fimmta nafnið sem borið hefur á góma er Arnar Þór Viðarsson, sem að öllum líkindum hefur komið landsliði skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri í lokakeppni Evrópumótsins næsta sumar. Hann þykir þó ekki eins líklegur og Rúnar og Heimir en gæti á hinn bóginn komið til álita sem aðstoðarlandsliðsþjálfari í þessari lotu. Eiður Smári Guðjohnsen hefur aðstoðað Arnar Þór en menn vilja sjá hann koma sér upp meiri reynslu hjá FH áður en þeir fara að máta hann við starf landsliðsþjálf- ara eða aðstoðarlandsliðsþjálfara, þó svo ein leiðin væri hugsanlega að ýta þeim félögum saman upp á við. Komdu, Sámur fóstri! Fáir erlendir þjálfarar eru í umræðunni á þessu stigi málsins. Einn viðmælenda minna henti þó áhugaverðu nafni inn í hringinn: Eng- lendingnum Sam Allardyce. Hann hafi margt til brunns að bera; svo sem mikla reynslu og sterkan karakter auk þess sem hann er á lausu. Þá er sem kunnugt er afar kært með Allardyce og Guðna Bergssyni, formanni KSÍ, eftir að þeir voru saman hjá Bolton Wander- ers. Allardyce stýrði enska landsliðinu sem frægt er í korter árið 2016 en á annars alfarið eftir að reyna sig á þeim vettvangi. Norðmaðurinn Ståle Solbakken, sem hætti hjá FC Kaupmannahöfn á dögunum, hefur einnig skotið upp kollinum við bakdyr umræð- unnar en það þykir jafnvel langsóttara að hann fái starfið en Allardyce. Eftir að Heimir Hallgrímsson lét af störfum fyrir hálfu þriðja ári stakk höfundur þessarar greinar upp á Frakkanum Arsène Wenger, mögulega í hálfkæringi en þó ekki. Er slíkur maður fyrir ofan greiðslugetu KSÍ? Yrði hann ekki bara himinlifandi að komast aftur út á æf- ingavöll og léti sér kaupið í léttu rúmi liggja? Wenger er næstum því eins laus nú og þá. Flestum þykir æskilegt að KSÍ gangi hratt og örugglega í málið, klári það helst fyrir ára- mót, ekki síst ef ráða á starfandi þjálfara hér heima, þannig að viðkomandi lið geti þá brugð- ist við í tæka tíð fyrir Íslandsmótið 2021. Ekki er talið sennilegt að lið myndu setja sínum þjálfara stólinn fyrir dyrnar, jafnvel þó KR standi í deilum við KSÍ vegna loka Íslands- mótsins í ár og einhverjir Valsarar myndu ugglaust kunna Guðna Bergssyni litlar þakkir fyrir að taka þjálfarann af sér. Landsliðið er einfaldlega landsliðið. En jæja, snúum okkur þá frá orðrómi og óábyrgum vangaveltum að sérfræðingunum en Sunnudagsblaðið fékk Sigmund Ó. Stein- arsson, blaðamann og rithöfund, sem skráð hefur sögu landsliðanna og Íslandsmótsins í knattspyrnu, og Ólaf Inga Skúlason, spilandi aðstoðarþjálfara Fylkis og fyrrverandi lands- liðsmann, til að rýna í Hamrén-skeiðið og velta næstu skrefum hjá „gamla bandinu“ fyrir sér. Skilaði sínu verki Ólafur Ingi segir árangur Hamréns með landsliðið ágætan ef Þjóðadeildin er tekin út fyrir sviga. „Hefði okkur fyrirfram verið boð- inn hreinn úrslitaleikur við Ungverja um sæti á EM þá hefðum við örugglega þegið það með þökkum. Hamrén skilaði sínu verki en eftir mörg góð ár þá lenti hann í talsvert meiri hremmingum og þurfti að eiga við meiri áföll en forverar hans, Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson, meðal annars vegna tíðra meiðsla lykilmanna. Af þeim sökum voru menn ekki í sama formi og áður og þegar komið er á þetta getustig í fótbolta þá getur reynst erfitt að ná árangri ef allir eru ekki 100% heilir. Þess vegna á Hamrén hrós skilið fyrir að koma okk- ur þó þetta langt; það munaði bara örfáum mínútum að við kæmumst á EM,“ segir hann. Ólafur Ingi segir ekkert annað í stöðunni en að virða ákvörðun Hamréns um að hætta með liðið; hann hljóti að meta það svo að hann hafi Guðlaugur Victor Pálsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson hafa ekki sungið sitt síðasta. Morgunblaðið/Eggert Og bandið spilaði áfram Þrátt fyrir að hafa skriplað á skötu á ögurstundu í Ungverjalandi liggur fyrir að „gamla bandið“, eins og íslenska karlalands- liðið í knattspyrnu kallast á þessum kóvíðu tímum, ætlar að spila áfram saman. Það vantar bara nýjan hljómsveitarstjóra áður en talið verður í á næsta balli hjá Alþjóðdansafélaginu en Erik Hamrén er á heimleið eftir rúm tvö ár með sprotann í hendi. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Erik Hamrén getur gengið nokkuð beinn frá borði. Morgunblaðið/Eggert ’ Flestum þykir æskilegt aðKSÍ gangi hratt og örugglegaí málið, klári það helst fyrir áramót, ekki síst ef ráða á starfandi þjálfara hér heima. KNATTSPYRNA 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.11. 2020

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.