Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Síða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.11. 2020 Þ að var boðið upp á kaffi og vín- arbrauð einn fallegan sunnudags- eftirmiðdag heima hjá Bethsaidu Cisneros Arnarson, oftast kölluð Beth. Þar var einnig stödd föður- systir hennar, Maria Evangeline Bjarnason, sem hún lítur á sem aðra móður sína. Sonur Beth, Sveinn Arnar Hafsteinsson, er einnig mættur, fulltrúi ungu kynslóðarinnar og sá eini sem fæddur er á Íslandi, en hann á ís- lenskan föður. Konurnar tvær fluttu til Íslands fyrir um þrjátíu árum; fyrst Maria og nokkrum árum síðar Beth. Báðar giftust þær íslenskum mönnum og hafa unað hag sínum vel á Íslandi alla tíð síðan. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvað varð til þess að þær rifu sig upp frá lífinu á Filippseyjum og fluttu nánast eins langt og hægt var frá heimalandinu, alla leið til norður til Akureyrar. Bréfaskriftir milli heimsálfa „Ég kom til Íslands árið 1990 og hef því verið hér í þrjátíu ár. Ég hafði kynnst manni, en frænka mín og vinkona sem bjuggu hér komu mér í samband við hann. Hann var bóndi og átti engin börn,“ segir hún en maðurinn sem um ræðir heitir Sveinn Bjarnason, bóndi á Brúarlandi í Eyjafirði. „Við byrjuðum því bréfaskriftir á milli Íslands og Filippseyja. Hann kunni ekki ensku en maður vinkonu minnar þýddi fyrir hann bréfin frá mér,“ segir Maria og segir að á þeim tíma hafi ekki verið hægt að hafa samband á annan hátt en með gamaldags sendibréfum. „Ég var þá 39 ára gagnfræðaskólakennari á Filippseyjum en hann 59 ára. Við skrif- uðumst á í sex mánuði. Ég hélt þessu fyrst leyndu. En svo talaði ég við stjórnendur skól- ans og sagði þeim að ég væri að fara til Ís- lands,“ segir hún en Sveinn hafði þá boðið henni að koma. „Hér á Íslandi voru þá fyrir nokkrar konur frá Filippseyjum sem voru giftar íslenskum mönnum. Ein þeirra fór norður að skoða manninn fyrir mig, til að athuga hvort hann væri í lagi,“ segir hún og hlær. „Hann bauð mér svo að koma í heimsókn til Íslands því hann gat ekki farið til Filippseyja því það var svo mikið að gera hjá honum og hann með skepnur,“ segir hún og segist hafa fengið senda mynd af honum. Varstu búin að ákveða fyrirfram að giftast honum? „Ég hugsaði bara, hver eru mín örlög? Ég ákvað að treysta bara á örlögin. Ég hitti hann ekki strax því ég var fyrst hjá vinkonu minni. En svo hitti ég hann og við kynntumst svo smám saman. Ég sá fljótt að þetta var góður maður og ég treysti honum. Mér leist ágætlega á hann. Hann var dæmigerður bóndi og svolítið sveitalegur,“ segir hún og brosir. „Hann hafði sagt fólki að hann ætti vinkonu á Filippseyjum sem ætlaði að koma og heim- sækja sig og það trúði honum enginn. Hann sendi mér svo farmiða. En þremur vikum áður en ég fór til Íslands dó bróðir minn, en hann er faðir Beth,“ segir hún en þá var Beth ekki orð- in tvítug. Bað mömmu um leyfi Beth grípur orðið og segist hafa á þessum tíma verið að vinna í apóteki í Maníla, höfuðborg- inni. Þegar Mariu var á leið til Íslands hittust þær í borginni. „Hún lofaði þá að hjálpa mér af því ég var nýbúin að missa pabba. Við erum sjö systkini og ég er næstelst, en fólk á Filippseyjum hjálpast mikið að,“ segir Beth. Þremur árum seinna var hún líka flutt til Ís- lands, en við komum að því síðar. Við þurfum fyrst að heyra meira frá Mariu, en hún fór ekki aftur heim til Filippseyja og ákvað að setjast að á Íslandi og giftast Sveini. „Ég hafði sagt við minn yfirmann að ég myndi þurfa þriggja mánaða frí,“ segir hún en eftir þrjár vikur ákváðu þau Sveinn að gifta sig. „Við vorum auðvitað búin að kynnast í gegn- um bréfin. Ég spurði hann hvort hér væri kaþólsk kirkja, því ég er kaþólsk. Og það var kaþólsk kapella hér og við giftum okkur þar,“ segir María en þau búa á Brúarlandi hinum megin við fjörðinn með útsýni yfir bæinn. „En ég skrifaði fyrst bréf til mömmu til að biðja um leyfi til að giftast. Hún sagði að ég mætti bara ráða þessu, enda orðin fullorðin,“ segir hún og hlær. „Við búum þar enn. Við erum líka búin að byggja þar nokkur hús. Sveinn var áður með kartöflurækt, en ekki lengur. Hann er að verða níræður á næsta ári en hann er tuttugu árum aldri en ég. Hann er svo góður við fjöl- skyldu mína.“ Töluðu saman með hjálp orðabókar Hvernig var það fyrir þig að koma frá Filippseyjum og setjast að uppi í sveit? „Það var rosaleg breyting og ég þurfti að venjast en úr sveitinni er útsýni og mikil nátt- úra. Ég var svo hrifin af fjöllum með snjó og fyrst þegar ég kom sá ég bara kindur og bóndabæi. Það var ekki mjög kalt þegar ég kom, enda sumar. Ég hjálpaði til á bóndabæn- um en fékk svo strax vinnu í súkkulaðiverk- smiðjunni Lindu, en hætti þegar lokað var hjá þeim. Það er erfitt fyrir mig að vera kennari hér þar sem tungumálið var erfitt og ég treysti mér ekki til þess.“ Hvernig gátuð þið talað saman í byrjun, þú og Sveinn? „Ég var með orðabók. Og presturinn sem gifti okkur, faðir Róbert, prentaði út lista af orðum sem ég gat notað. Hann hjálpaði mér. En svo horfði ég mikið á sjónvarpið og hlustaði og las textann og þannig lærði ég mikið. Svo lærði ég íslensku bara af Íslendingum en ég var ekki feimin við að tala og þetta kom smátt og smátt,“ segir Maria sem nú er hætt að vinna og komin á eftirlaun. Lenti í snarvitlausu veðri Víkur þá sögunni að Beth. Mariu langaði mikið að hjálpa frænku sinni og þremur árum eftir komuna fékk hún Beth til Íslands, árið 1993. „Ég fór til Reykjavíkur og fór í Útlendinga- stofnun til að spyrjast fyrir um hvernig ég gæti fengið frænku mína til landsins til að hjálpa til við kartöfluræktina. En það endaði með að hún kom hingað á þriggja mánaða ferðamannaáritun,“ segir Maria. Maria hefur nánast verið eins og önnur móð- ir Beth, en móðir Beth hafði sent Mariu bréf og beðið hana að hugsa vel um ungu konuna og ganga henni í móðurstað. „Ég sagðist myndu gera það. Ég var líka bú- in að fylgjast með henni frá því hún var lítil,“ segir Maria. Beth tekur til máls. „Þau keyptu fyrir mig farmiðann og ég ákvað að koma og sjá til hvernig myndi ganga og ætlaði að athuga hvort það væri hægt að framlengja dvalarleyfið. Svo var það ein vinkona Mariu sem átti vinkonu sem átti ein- hleypan bróður sem langaði svo mikið að kynnast asískri konu, en hann var búinn að sjá mynd af mér,“ segir hún og hlær. „Þegar ég kom var snarvitlaust veður, þann tólfta janúar,“ segir hún og skellir upp úr. „Ég lenti í Keflavík alein. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór í flugvél, ég hafði aldrei farið til útlanda og aldrei í flugvél. Alveg satt! Þetta var rosalegt ævintýri. Í Keflavík skipti ég um flugvél en það var flogið beint frá Keflavík til Akureyrar í pínulítilli vél í vondu veðri,“ segir hún og segir að snjór hafi verið yfir öllu. „Ég hafði aldrei áður séð snjó og skórnir sem ég var í voru ekki gerðir fyrir snjó. Ég steig út úr flugvélinni og flaug beint á rassinn. Ég var í sumarjakka og mér var ískalt og ég var svo lítil, ekki nema 45 kíló. Það var einhver maður sem hjálpaði mér því ég kunni ekki að labba í snjónum,“ segir hún og hlær að minn- ingunni. Þegar Beth kom norður var þar kalt, dimmt og allt á kafi í snjó. „Maria var búin að vara mig við, að þetta væri mjög ólíkt Filippseyjum. Í Maníla er mik- il traffík og margt fólk,“ segir hún. „Og svo var rosalega kalt. Ég klæddi mig í fernar buxur, mér var svo kalt,“ segir Beth sem ætlaði í upphafi bara að koma í heimsókn og hjálpa Mariu á bóndabænum og sjá svo til með framhaldið. Hélt að hann væri hættur við Hvenær hittir þú svo þennan einhleypa mann sem frænka þín var búin að plotta að þú mynd- ir hitta? Beth skellihlær. „Það var svona tveimur vikum seinna. Ég var alveg skíthrædd. Og hann líka. Hann kom í heimsókn. Hann hafði hringt á undan sér og boðað komu sína,“ segir hún en maðurinn reyndist vera Hafsteinn Arnarson, þá 29 ára kranamaður í slippnum. Og hvernig leist þér á hann þegar hann kom í heimsókn? „Heyrðu, mér leist strax vel á hann,“ segir hún og hlær. „Ég varð strax hrifin af honum. Og hann af mér. Svo kom hann alltaf að heimsækja mig á kvöldin eftir vinnu, nokkrum sinnum í viku. Ég man að eitt sinn átti hann að koma en kom ekki. Og tengdapabbi Mariu varð alveg brjál- aður. Við skildum þetta ekki. Ég var líka alveg hissa, því þetta var ekki líkt honum. Ég var alltaf að kíkja út um gluggann og fylgjast með bílljósum. En það kom skýring; amma hans í Skagafirði var að deyja og hann gat ekkert hringt. Það voru engir farsímar og bara ein- hver sveitasími hjá ömmu hans,“ segir hún. „Dvalarleyfið mitt átti að renna út 13. apríl. Hafsteinn hafði stungið upp á að við myndum gifta okkur 3. apríl. En þegar hann kom ekki þarna var ég svo hrædd um að hann væri hætt- ur við.“ Hafsteinn var síður en svo hættur við. Hann kom til baka og stuttu síðar var hann mættur með blóm og trúlofunarhring. Alveg himinglöð Beth og Hafsteinn gátu talað saman á ensku og náðu að kynnast nokkuð, en þau giftu sig í kaþólsku kirkjunni. „Ég flutti svo inn til hans eftir brúðkaupið,“ segir hún. Hvað fannst fjölskyldu þinni á Filippseyjum um að þú værir flutt til Íslands og gift íslensk- um manni? „Alveg himinglöð. Það var alltaf mín ósk frá því að ég var lítil að giftast útlendingi. Ég hafði oft skrifað það í dagbækur og líka þegar ég var beðin um að segja hvers maður óskaði fyrir framtíðina. Þá skrifaði ég alltaf; að giftast út- lendingi. Alveg sama hvaðan,“ segir hún og skellihlær. Lenti á Íslandi í snarvitlausu veðri Um þúsund Filippseyingar búa á Íslandi og þar af eru margir þeirra á Akureyri. Morgunblaðið skrapp norður í land og náði tali af Filippseyingum af þremur kynslóðum; ættmóðurinni Mariu, mömmunni Beth og syninum Sveini. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Sveinn, Beth og ættmóðirin Maria eru þrjár kynslóðir Fil- ippseyinga, en konurnar komu hingað fyrir um þrjátíu árum og eru giftar íslenskum mönnum. Þær hafa aðlagast vel samfélag- inu; kuldanum og fámenninu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.