Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Page 29
1969-75. Áttunda
og síðasta eigin-
kona hans var
Jan Chamberlin
og dugði það
samband frá
1978 til 2012, að
þau skildu að
borði og sæng.
Mickey Roo-
ney féll frá 2014,
93 ára að aldri.
Fékk
taugaáfall
Lana Turner og
Artie Shaw
höfðu aðeins farið á eitt stefnumót
þegar þau ákváðu að skella sér þráð-
beint til Las Vegas og láta pússa sig
saman snemma árs 1940, hún var
nítján ára en hann 28. Hjónabandið
dugði aðeins í fjóra mánuði. Turner
sagði síðar að Shaw hefði komið fram
við sig eins og „heimska og villta
ljósku“ og ekkert verið að fela það.
Það hafði djúpstæð áhrif á leikkon-
una sem fékk taugaáfall.
Næst gekk Turner að eiga leik-
arann og veitingamanninn Steve
Crane árið 1942 en lét ógilda hjóna-
bandið þegar hún komst að því að
Crane átti aðra konu fyrir. Það varð
til þess að hann losaði sig með lög-
formlegum hætti við þá konu og þau
Tuner giftu sig aftur 1943. Það
hjónaband dugði fram á árið 1944.
Næst var hún gift Bob nokkrum
Topping frá 1948 til 1952 og Tarzan-
ígildinu Lex Barker frá 1953 til 1957.
Fred May spreytti sig á því að vera
giftur henni frá 1960 til 1962 og Ro-
bert Eaton frá 1965 til 1969. Loks
kom röðin að dáleiðandanum og
svikahrappinum Ronald Pellar en
þau deildu sæng frá 1969 til 1972.
Raunar var sambandinu lokið strax
1970 eftir að Turner komst að því að
Pellar hafði stolið
af henni fé.
Eftir þá
reynslu gafst hún
upp á karlpen-
ingnum og gerðist
skírlíf. „Markmið
mitt var eignast
mann og sjö börn
en þegar upp var
staðið var það
þveröfugt,“ sagði
Turner á gamals-
aldri en einka-
dóttir hennar er
Cheryl Crane,
sem á sinni ævi
hefur meðal annars lagt stund á rit-
störf, fyrirsetu og fasteignaviðskipti.
Lana Turner lést árið 1995. Bana-
mein hennar var krabbamein.
„Erfiður maður“
Klarínettuleikarinn, hljómsveitar-
stjórinn, rithöfundurinn og leikarinn
Artie Shaw fæddist árið 1910. Einu
sinni lýsti hann því sjálfur yfir að
hann væri „erfiður maður“ og hjóna-
bandssaga hans rennir stoðum undir
þá fullyrðingu. Af átta hjónaböndum
hans voru tvö lýst ógild og hinum sex
lauk með skilnaði.
Lítum snöggvast á ártölin: Jane
Cairns (1932-33); Margaret Allen
(1934-37); Lana okkar Turner (1940);
Betty Kern, dóttir tónskáldsins Jero-
mes Kerns (1942-43); Ava okkar Gar-
dner (1945-46); rithöfundurinn Kat-
hleen Winsor (1946-48); leikkonan
Doris Dowling (1952-56) og leik-
konan Evelyn Keyes (1957-85).
Þess utan á hann að hafa slegið sér
upp með leikkonunum Betty Grable
og Judy Garland og sumar heimildir
herma að sama máli gegni um Lenu
Horne.
Artie Shaw lést árið 2004, 94 ára
að aldri.
Artie Shaw: Átta
eiginkonur.
Wikipedia
Mickey Rooney: Átta eiginkonur.
AFP
22.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
LOKSINS Enska leikkonan Emma
Corrin hefur verið að fá prýðilega
dóma fyrir hlutverk sitt sem Díana
prinsessa af Wales í nýjustu serí-
unni af sjónvarpsþáttunum The
Crown sem sýndir eru á Netflix.
Það sætir tíðindum en fyrri til-
raunir til að gera prinsessunni skil
á hvíta tjaldinu og skjánum hafa
þótt misheppnaðar, að því er
breska blaðið The Independent
bendir á. „Það var tími til kominn,“
segir blaðið en margoft hefur verið
reynt frá því Díana dó árið 1997.
Loksins frambærileg Díana
Emma Corrin fékk stóra tækifærið.
AFP
BÓKSALA 11.-17. NÓVEMBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson
2 Þagnarmúr Arnaldur Indriðason
3 Bráðin Yrsa Sigurðardóttir
4 Kóngsríkið Jo Nesbø
5 Gata mæðranna Kristín Marja Baldursdóttir
6
Orri óstöðvandi – bókin
hennar Möggu Messi
Bjarni Fritzson
7 Vetrarmein Ragnar Jónasson
8 Dýralíf Auður Ava Ólafsdóttir
9 Una, prjónabók Sjöfn Kristjánsd./Salka Sól
10 Vertu þú! Ingileif Friðriksd./María Rut
1
Orri óstöðvandi – bókin
hennar Möggu Messi
Bjarni Fritzson
2 Vertu þú! Ingileif Friðriksd./María Rut
3
Fíasól og furðusaga
um krakka
Kristín Helga Gunnarsdóttir
4 Lára fer í leikhús Birgitta Haukdal
5 Lára lærir að lesa Birgitta Haukdal
6
Dagbók Kidda klaufa 13
– snjóstríðið
Jeff Kinney
7 Krakkalögin okkar Jón Ólafsson/Úlfur Logason
8 Þín eigin undirdjúp Ævar Þór Benediktsson
9 Ofurhetjan Hjalti Halldórsson
10 Íslandsdætur Nína Björk Jónsdóttir
Allar bækur
Barnabækur
Líklega það eina jákvæða við lokun
bókasafna er það að athygli mín
beindist loks að öllum hinum láns-
bókunum á heimilinu, þeim sem
vinir og vandamenn
hafa gaukað að mér.
Af þeim sökum tók
ég til við að lesa all-
ar þær bráðvönduðu
Smásögur heimsins
sem Bjartur hefur
gefið út undanfarin
ár. Lesturinn víkkaði
lesdeildarhringinn umtalsvert, það
var áhugavert að kynnast svona
mörgum fjölbreyttum rithöf-
undum – og þýðendum – á einu
bretti.
Annars hefur mér verið ljúft og
skylt að halda mig
við kunnuglega höf-
unda og sögusvið.
Lila er þriðja bók
Marilynne Robinson
sem gerist í banda-
ríska smábænum
Gilead. Ég vissi að
fenginni reynslu af lestri hinna
fyrri, Gilead og Heima, að það að
halda skynsamleg fjarlægð-
artakmörk við sögu-
persónur Robinson
yrði ómögulegt.
Bækurnar leiða les-
andann í djúpa hug-
leiðingu um kærleik-
ann, kristna trú,
áhrif hennar – og
áhrifaleysi á banda-
rískt samfélag og
einstaklinginn. Það
eru samt sögu-
persónurnar sem
draga mig á mesta
dýpið, en Robinson
nær að skapa þær af
einstakri samkennd
og skilningi á því að
þótt fortíðin móti einstaklinginn
þurfi það ekki að vera endapunkt-
ur, því að í nútíðinni geti falist náð-
argjöf breytinga og sátta.
Skoski rithöfundurinn Ali Smith
skrifar einnig um fortíðina í Árs-
tíðakvartett sínum, en tæklar í
leiðinni breskan samtíma rækilega.
Ég er hálfnuð með Winter, Aut-
umn er að baki. Ég
hafði hugsað mér
að treina mér bæk-
urnar í takt við árs-
tíðirnar en þær eru
þvílíkt góðgæti að
sjálfsstjórnin dugði
skammt. Smith
leikur sér að orðum
í ljóðrænni skrifgleði sem unun er
að njóta, en þó að hún slái upp
sjónrænni veislu hef-
ur hún þó ekki
gleymt að blanda
inn dökkum litum í
skugga og útlínur.
Þessar skáldsögur
fjalla um tímann
sem fyrirbæri út frá
sem flestum sjónar-
hornum. Einn gagnrýnandi hefur
lýst útkomunni sem kúbísku mál-
verki á bókarformi, sem er við
hæfi, sérstaklega þar sem myndlist
er einn af fjölmörgum þráðum
kvartettsins. Eins lítinn áhuga og
ég hef á morðgátum finnast mér
lífsráðgátur þær sem í bókunum
birtast heillandi. Ég hugsa að ég
gefist upp á því að lesa sérhverja
bók á viðeigandi árstíð og gleypi
þær bara allar í mig fyrir jól. Ég hef
einmitt smátíma aflögu til að lesa
þær, en nákvæmlega engan tíma til
að bíða með það.
SIGURBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR ER AÐ LESA
Víkkaði lesdeildarhringinn
Sigurbjörg
Magnúsdóttir
er áhugamann-
eskja.