Morgunblaðið - 02.12.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 02.12.2020, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2. D E S E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  284. tölublað  108. árgangur  22 dagartil jóla Sendu jólakveðju á jolamjolk.is HEFUR LESIÐ INN 500 BÆKUR ÖRVA ÞARF ERLENDA FJÁRFESTINGU VÉLVÆDDIR VIÐAR- SKÚLPTÚRAR VIÐSKIPTAMOGGINN UNNDÓR Í KLING & BANG 24VIÐURKENNING 10 Spá 11,3 milljarða halla  Ætla í 175 milljarða fjárfestingar á næstu þremur árum  Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýnir skuldasöfnun í góðærinu hafði orð á því þegar hann mælti fyr- ir fjárhagsáætluninni í borgarstjórn í gær, að stórauknar fjárfestingar borgarinnar á næstu árum skæru sig úr í samanburði við fjárfestingar- áform nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur. Í umræðum um málið sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins, að borgin hefði safn- að skuldum í góðærinu, það gerði verkefnið sem nú blasti við miklu erf- iðara en ella. Á borgarstjórnarfund- inum í gær lögðu fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins fram tillögu um að 2,8 milljarða króna arðgreiðslum Orku- veitu Reykjavíkur yrði ráðstafað til lækkunar útsvars. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Áhrif kórónuveirufaraldursins rista djúpt í fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar fyrir næsta ár. Borgin gerir ráð fyrir 11,3 millj- arða króna rekstrarhalla á A-hluta á næsta ári en borgaryfirvöld ætla samt sem áður að ráðast í 175 millj- arða fjárfestingar á næstu þremur árum. Fjárfestingarnar felast m.a. í íbúðauppbyggingu og byggingu íþróttamannvirkja. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Spá fyrir næsta ár » Rekstrartekjur borgarinnar verða tæpir 134 milljarðar » Gjöld verða 137 milljarðar » Rekstrarniðurstaða sam- stæðu borgarinnar verður því neikvæð um 2,7 milljarða MTaka á 51,8 milljarða að láni … »2 Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér í gær sæti á Evrópumótinu sem fer fram á Englandi sumarið 2022. Þetta verður fjórða lokamót EM sem Ísland kemst á í röð. Ísland sigraði Ungverjaland 1:0 í gær og skoraði Berglind Björg Þorvaldsdóttir sigurmarkið með fallegu skoti um miðj- an seinni hálfleik leiksins. Ekki varð ljóst fyrr en eftir leiki gærkvöldsins að sætið væri tryggt en Ísland var eitt þriggja liða með bestan árangur í 2. sæti undankeppninnar og slapp því við umspil. »22-23 Ljósmynd/Szilvia Micheller Ísland komið á EM í fjórða skiptið í röð  Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra kynnti í gær nýtt frumvarp um há- lendisþjóðgarð. Hann kveðst í sam- tali við Morgunblaðið í dag vera bjartsýnn á að það verði samþykkt. Ekki er þó að heyra á samherjum hans í ríkisstjórn að þar ríki eintóm hamingja með frumvarpið. Sig- urður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins birti í gær fjölmarga og ítarlega fyrirvara í sjö meginliðum, sem eru svo veiga- miklir að frumvarpið þarf að taka miklum breytingum eigi Framsókn að styðja það. Sjálfstæðismenn gera einnig sína fyrirvara. Þingmenn sem Morgunblaðið ræddi við segja málið flókið og óútrætt, en ekki hjálpi upp á að það sé seint fram komið á síðasta þing- vetri. »10 Hálendisþjóðgarður ennþá óútrætt mál

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.