Morgunblaðið - 02.12.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 02.12.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 Nú getur þú keypt gjafabréf á Hótel Örk í netverslun okkar Kynntu þér málið á hotelork.is NOTALEG SAMVERA Jón Magnússon hæstaréttar-lögmaður skrifaði í gær, á fullveldisdaginn, um nýfallinn dóm Mannréttindadómstólsins svokallaða, MDE. Hann segir að frá því að Ísland fékk fullveldi hafi það kosið að deila fullveldinu mismikið með öðr- um þjóðum og með- al annars „sam- þykkt að fara eftir niðurstöðu Mann- réttindadómstóls- ins í raun“. MDE hafi kveðið upp þann dóm að ráð- herra og Alþingi hefðu brotið gróflega af sér við skipun dómara Landsréttar.    Jón skrifar: „Það er dapurlegtþegar þjóð sem telur sig vera frjálsa og fullvalda telur sig þurfa að hlíta valdboði frá Strassborg í máli, þar sem íslensk stjórnvöld fóru að öllum lýðræðislegum reglum, máli, sem fékk nákvæma skoðun og ekki var hallað neinum lýðræðislegum rétti, mannrétt- indum eða pólitísku öryggi borg- aranna. Þá er gjörsamlega fráleitt að skipun dómaranna í Landsrétti hafi getað leitt til þess að mann- réttindi annarra en þeirra sem ekki fengu skipun væru hugsan- lega brotin. Með þessum dómi reynir Mann- réttindadómstóll Evrópu að taka sér vald sem er óeðlilegt þegar í raun engin mannréttindi eru brot- in, þó ekki væri farið í einu og öllu að niðurstöðu valnefndar eins og hún væri staðgengill Guðs á jörð- inni. Þetta er enn sérstakara þegar fyrir liggur að ábyrgð á skipun dómara er hjá ráðherra og Al- þingi en ekki hjá valnefndinni.    Það er sjálfsagt kominn tími tilað íslenska þjóðin taki nú undir með forföður sínum Jóni Loftssyni Oddaverja og segi: „Heyra má ég erkibiskups dóm, en ráðinn er ég í að hafa hann að engu.““ Jón Magnússon Að engu hafandi STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ ASK Arkitektar ehf. hafa sent fyrirspurn til Reykjavíkurborgar þess efnis hvort leyfð verði starfsemi sem felur í sér þróun og framleiðslu trefjabáta í húsinu á lóð nr. 11 við Geirsgötu. Beiðninni var vísað til umsagnar verkefnis- stjóra skipulagsfulltrúa. Umrætt hús hefur verið í fréttum undanfarið vegna áforma malasíska auðkýfingsins Vincents Tans, eiganda Geirsgötu 11, um að byggja rúm- lega 33 þúsund fermetra byggingu með hóteli á Miðbakka hafnarinnar. Borgaryfirvöld höfnuðu sem kunnugt er beiðni Tans. Fram kemur í bréfi ASK að Rafnar ehf., fé- lag sem þróar og framleiðir trefjabáta, hafi hug á að vera með hluta framleiðslu sinnar í Geirs- götu 11. Framleiðslan sé í lokuðu kerfi og lítil sem engin lykt eða önnur mengun af hennar völdum. Um er að ræða hluta hússins, eða 1.500 fer- metra framleiðslurými og 200 fermetra skrif- stofur. Tekið er fram að húsnæðið sé til útleigu til skemmti tíma (3-5 ár) á meðan framtíðarnýt- ing lóðarinnar verði skoðuð. sisi@mbl.is Bátar smíðaðir í húsi Tans?  Rafnar vill framleiða trefjabáta í Geirsgötu 11 Morgunblaðið/sisi Geirsgata 11 Hefst þar smíði trefjabáta? Verkefnið Vorviður er að hefjast. Um er að ræða styrki til skógræktar á vegum félaga og félagasamtaka. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Markmiðið með Vorviði er að efla samstarf Skógræktarinnar og ým- issa félaga. Þannig geta þau bundið kolefni með skógrækt. „Það er miðað við að þetta séu ekki félög sem fást sérstaklega við skógrækt heldur t.d. félagasamtök eða félög sem vilja kolefnisjafna starfsemi sína. Það gætu þess vegna verið kórar, kvenfélög eða golf- klúbbar,“ segir Sæmundur Kr. Þor- valdsson skógræktarráðgjafi. Um níu milljónir króna verða settar í verkefnið. Það getur nægt fyrir 60- 90 þúsund plöntum, eftir því hvað keyptar eru dýrar plöntur. Miðað við 2.000 plöntur á hektara gæti skógurinn orðið alls 30-45 hektarar. Þau skilyrði eru sett að plönturn- ar séu ræktaðar í ræktunarstöð og telst það kostur ef hún er í heima- héraði. Styrkurinn er þó ekki til eig- in plöntuframleiðslu. Eingöngu verður um að ræða endurgreiðslu kostnaðar við plöntukaup. Félög sækja um styrkinn til Skógrækt- arinnar og verður gerður samningur við hana um hvert verkefni. Félög sem ætla að planta í land sem þegar er á skipulögðu skóg- ræktarlandi munu njóta forgangs. Sæmundur segir að það borgi sig fyrir félög sem hyggjast sækja um styrk að afla sér fyrst formlegs leyf- is landeiganda fyrir plöntuninni. Það geti t.d. verið á landi sveitarfélags, ríkisins, bænda eða annarra landeig- enda þar sem gert er ráð fyrir skóg- rækt. gudni@mbl.is Styrkja félög til skógræktar  Vorviður er nýtt verkefni sem styrkir plöntun trjáplantna Ljósmynd/skogur.is Gróðursetning Félagasamtök geta sótt um styrki til trjáplöntukaupa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.