Morgunblaðið - 02.12.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Að minnsta kosti fjórir létust þegar
bíl var ekið í gegnum mannþröng á
fjölfarinni verslunargötu í borginni
Trier í suðvesturhluta Þýskalands
um eftirmiðdaginn í gær. Náði bíll-
inn að keyra á ofsahraða um eins
kílómetra leið áður en lögreglan gat
neytt hann til að stöðva. Ökumaður
bílsins var handtekinn á staðnum, en
hann er sagður 51 árs gamall Þjóð-
verji sem búi í nágrenni borgarinnar.
Staðarfjölmiðlar í Trier greindu
frá því í gær að a.m.k. 15 hefðu slas-
ast, en lögreglan sagði einungis að
„fjölmargir“ hefðu slasast og
„nokkrir“ látist við ofsaaksturinn.
Þá taldi lögreglan ekki hægt að
segja að svo komnu máli hvort um
hryðjuverk hefði verið að ræða, en
heimildarmenn AFP-fréttastofunn-
ar töldu ólíklegt að stjórnmálaskoð-
anir lægju að baki ódæðinu og ná-
granni mannsins sagði að hann hefði
átt við geðræn vandamál að stríða.
Að sögn lögreglunnar var maður-
inn einn í bíl sínum, silfurgráum
jepplingi, og hættan væri liðin hjá.
Engu að síður var fólk hvatt til þess
að halda sig fjarri miðborginni, en
þar var lögregla enn að störfum við
rannsókn málsins.
Lítil stúlka meðal fórnarlamba
Wolfram Leibe, borgarstjóri
Trier, sagði hins vegar að svo virtist
sem hinn grunaði hefði ákveðið að
ganga berserksgang. Leibe táraðist
á blaðamannafundi sínum. Hann
staðfesti að barnung stúlka hefði
verið á meðal hinna látnu og sjónar-
vottar sögðu að bílnum hefði meðal
annars verið ekið á barnavagn, sem
hefði henst í loft upp. „Þetta er hryll-
ingur,“ sagði Leibe um atvikið og
bætti við að margir hefðu orðið vitni
að því og bæru nú ör á sálinni vegna
þessa. Stúlkan var níu mánaða.
Steffen Seibert, talsmaður Angelu
Merkel Þýskalandskanslara, sagði
að atvikið væri hræðilegt og þjóðin
öll hugsaði nú til ættingja hinna
látnu, þeirra mörgu sem slösuðust
og til þeirra sem væru að sinna þeim.
Malu Dreyer, forsætisráðherra
sambandslandsins Rínarlands-Pfalz,
sagði við fjölmiðla að þetta væri
hræðilegur dagur, ekki síst vegna
ungbarnsins sem hefði látist í hinni
grimmilegu árás.
Mildi að ekki voru fleiri á ferð
Sjónarvottar sögðu við AFP-
fréttastofuna að tiltölulega margir
hefðu verið á ferli í miðborginni að
sinna fyrstu jólainnkaupum sínum,
en þó hefðu mun færri verið á ferð-
inni en búast hefði mátt við vegna
kórónuveirunnar. Þannig hefði
formlegum jólamarkaði verið lokað
vegna sóttvarna og mætti það teljast
mikil mildi.
AFP
Hryllileg aðkoma Að minnsta kosti tveir létust þegar bíl var ekið niður fjölfarna verslunargötu í borginni Trier.
„Þetta er hryllingur“
Að minnsta kosti fjórir látnir og fimmtán slasaðir eftir að bíl var ekið í gegnum
mannþröng í Trier Talið ólíklegt að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða
Grimmdarverk Lögreglan í Trier hafði í ýmsu að snúast á vettvangi.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandaríski lyfjarisinn Pfizer og
þýska líftæknifyrirtæknið BioNTech
tilkynntu í gær að þau hefðu sótt um
leyfi hjá Evrópusambandinu fyrir
bóluefni sínu, og mun heilbrigðis-
stofnun sambandsins taka afstöðu til
umsóknarinnar fyrir 29. desember
næstkomandi. Stofnunin hyggst
taka afstöðu til bóluefnis Moderna,
og verður það gert fyrir 12. janúar.
Samþykki stofnunin notkun bólu-
efnanna þykir víst að framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins muni
heimila dreifingu þeirra svo fljótt
sem auðið er.
Frönsk stjórnvöld greindu frá því
í gær að þau stefndu að almennu
bólusetningarátaki frá og með næsta
apríl, eða eftir að búið væri að bólu-
setja viðkvæmustu hópana fyrir kór-
ónuveirunni.
Bóluefnin glæða vonir
Í gær var liðið ár frá fyrsta stað-
festa tilfelli Covid-19, veikinnar sem
kórónuveiran veldur, en á þeim tíma
hafa rúmlega 63,4 milljónir manna
smitast af henni og um 1,47 milljónir
manna látist af völdum hennar. Þá
eru ekki meðtalin þau efnahagslegu
áhrif sem veikin og sóttvarna-
ráðstafanir gegn henni hafa valdið.
Hin væntanlegu bóluefni hafa hins
vegar glætt vonir um að heimurinn
sjái senn á bak faraldrinum, og til-
kynnti OECD í gær að líklegt væri
að hagkerfi heimsins myndi aftur ná
fyrri styrk fyrir lok næsta árs. Hag-
vöxtur gæti þó orðið sveiflukenndur.
Sagði Laurence Boone, aðalhag-
fræðingur OECD, að leiðin fram
undan væri bjartari en áður, en að
hún væri sömuleiðis þrungin áskor-
unum fyrir ríki heims.
Efnið samþykkt
fyrir árslok?
OECD segir bjartara fram undan
AFP
Bóluefni Tilvonandi bóluefni hefur
glætt vonir um horfur næsta árs.
Twitter tilkynnti í gærmorgun að
fyrirtækið hygðist ekki fjarlægja
sviðsetta ljósmynd, sem talsmaður
kínverska utanríkisráðuneytisins
setti á embættissíðu sína, þar sem
veist var að Áströlum vegna
meintra stríðsglæpa sem ástralskir
hermenn eru sagðir hafa framið í
Afganistan á árunum 2005-2006.
Ákvað Twitter að setja viðvör-
unarmerki við myndina um að þar
væri um „viðkvæmt efni“ að ræða,
en sagði að pólitískar deilur væru
almennt ekki í trássi við reglur
samfélagsmiðilsins. Frakkar og
Nýsjálendingar höfðu einnig for-
dæmt myndbirtingu Kínverja, en
þeir sögðu í gær enga ástæðu til að
fjarlægja myndina.
ÁSTRALÍA
AFP
Twitter Myndbirtingin hefur valdið
hneykslan í Ástralíu og víðar.
Twitter hyggst ekki
fjarlægja tístið
Scott Atlas, einn
af helstu ráð-
gjöfum Donalds
Trumps Banda-
ríkjaforseta í
kórónuveiru-
faraldrinum,
sagði af sér í
fyrrinótt. Atlas
hefur verið um-
deildur, en hann
hefur m.a. lagst
hart gegn því að fólki verði gert
skylt að nota andlitsgrímu.
Samkvæmt Fox-fréttastöðinni
átti ráðningarsamningur Atlas að
renna út í næstu viku, en ólíklegt
þótti að Joe Biden, verðandi forseti,
hefði viljað endurnýja hann. Þakk-
aði Atlas í uppsagnarbréfi sínu
Trump fyrir heiðurinn og óskaði
Biden góðs gengis í baráttunni við
heimsfaraldurinn.
BANDARÍKIN
Umdeildur Atlas
lætur af störfum
Scott
Atlas