Morgunblaðið - 02.12.2020, Blaðsíða 13
» Líkt og aðrir þing-
menn verð ég að
taka afstöðu til mála.
Ég get ekki stuðst við
annað en þann leiðarvísi
sem sannfæring og
sjálfstæðisstefnan gefa.
Rétturinn til að ráða
sínu eigin lífi en um
leið virða rétt annarra
til hins sama er horn-
steinn í hugmynda-
fræði sem ég hef alla
tíð aðhyllst og barist
fyrir. Frjálshyggja?
Örugglega. Hægri-
stefna? Án nokkurs
efa. Íhaldssemi? Lík-
lega. En í einfaldleika
sínum er þetta hugmyndafræði
Sjálfstæðisflokksins. Í setningar-
ræðu landsfundar fyrir rúmum
tveimur árum orðaði Bjarni Bene-
diktsson formaður flokksins þetta
með einföldum hætti: „Við höfum
byggt allt okkar starf á trúnni á
frelsi einstaklingins.“
Forystumenn og áhrifamiklir
hugsjónamenn Sjálfstæðisflokksins
hafa á rúmum 90 árum meitlað
grunnhugsjónina um mannhelgi og
að andlegt og efnahagslegt frelsi sé
frumréttur hvers og eins. Forsenda
þess að einstaklingar geti notið
hæfileika sinna er að þeir hafi frelsi
til athafna. Markmiðið er að tryggja
„frelsi fyrir alla, ekki frelsi fyrir fáa,
stóra og sterka, sem nota afl sitt og
auð til að troða miskunnarlaust á
öðrum“, eins og Davíð Oddsson
sagði í ræðu í tilefni af 75 ára afmæli
flokksins.
Á grunni þessarar hugmynda-
fræði hef ég mótað af-
stöðu til einstakra
mála, reynt að standa
við loforð Sjálfstæðis-
flokksins um að gefa
einstaklingum svigrúm
til að móta sína fram-
tíð, hvetja og styðja við
framtakssemi fólks út
um allt land. Færa
valdið til fólksins en
hrifsa það ekki frá því.
Tryggja valddreifingu
og koma í veg fyrir
miðstýringu.
Gegn sjálfsstjórn og frelsi
Þess vegna get ég aldrei stutt að
völdin séu tekin af íbúum sveitar-
félaga og þeir sviptir forræði yfir
eigin málum. Að skipa sveitarfélagi
með lögum til að sameinast öðru
gengur gegn hugmyndum um sjálf-
ræði íbúa og sjálfstæði sveitar-
félaga. Sú lögþvingun sem boðuð er í
stjórnarfrumvarpi sem lagt var fram
á mánudag byggir á hugmyndafræði
valdboðs og gengur gegn hug-
myndafræði sjálfsstjórnar og frelsis
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
byggt á. Hér ættu menn að minnast
orða Bjarna Benediktssonar eldri,
um að þjóðfélagi verði „ekki stjórnað
með oflæti eða orðaskaki“.
Um það verður ekki deilt hér að
sameining og fækkun sveitarfélaga
getur verið ákjósanleg og skynsam-
leg fyrir íbúana. Markmiðið er hins
vegar ekki að fækka sveitarfélögum
heldur að styrkja og efla þjónustu
við borgarana. Og sveitarfélögum
hefur fækkað hressilega. Árið 1990
voru þau 204 talsins en eru nú 69.
Víða eru viðræður um sameiningu.
Þær viðræður eru á forsendum íbú-
anna sjálfra og þeir einir taka
ákvörðun. Embættismenn í Reykja-
vík stjórna ekki ferðinni.
Hugmyndafræði valdboðsins sem
liggur að baki lögþvingaðri samein-
ingu er ekki aðeins ógeðfelld heldur
byggist hún á misskilningi og/eða
vísvitandi blekkingum. Hagkvæmni
sveitarfélaga og gæði þjónustu við
íbúanna er ekki í réttu hlutfalli við
íbúafjölda. Fjárhagsleg staða ræðst
miklu fremur af hæfileikum sveitar-
stjórnarmanna og hvernig þeim
tekst að uppfylla skyldur sínar en
fjölda íbúa. Og það skal endurtekið
sem ég skrifaði á síður þessa blaðs í
ágúst á liðnu ári:
„Enginn hagfræðingur, viðskipta-
fræðingur eða fjármálaverkfræð-
ingur er þess umkominn að skera úr
um hver sé hagkvæmasta stærð
sveitarfélaga. Enginn sveitarstjórn-
armaður, þingmaður eða ráðherra
hefur forsendur til að ákveða hver
skuli vera lágmarksfjöldi íbúa í
hverju sveitarfélagi svo íbúarnir fái
notið þeirrar þjónustu sem þeir gera
kröfu til og eiga rétt á samkvæmt
lögum.“
Röksemdin um stærðar-
hagkvæmni sveitarfélaga fýkur út í
veður og vind um leið og farið er yfir
fjárhagsstöðu og rekstur stærsta
sveitarfélags landsins.
Í þessum efnum eins og í flestum
öðrum er farsælast að halda valdinu í
heimabyggð. Lofa íbúum að taka
ákvarðanir um hvernig þeir telja
best að halda á málum.
Valdið sogið úr heimabyggð
Ég hef haldið því fram að náttúru-
vernd geti verið ágætlega arðbær
auk þess sem við berum siðferðilega
skyldu til að skila landinu til næstu
kynslóðar í ekki verra ástandi en við
tókum við því. Við Íslendingar eigum
flest undir náttúrunni og sjálfbærri
nýtingu hennar. Náttúruvernd og
nýting auðlinda fara vel saman þegar
vel tekst til eins og fiskveiðistjórn-
unarkerfið sannar. Ferðaþjónusta á
allt sitt undir náttúruvernd.
Í flestu er hugmyndin um miðhá-
lendisþjóðgarð heillandi. Forsendan
er að skipulagsvald sveitarfélaga sé
virt og umráða- og nýtingaréttur
íbúanna, sem í gegnum aldirnar hafa
verið gæslumenn náttúrunnar, hald-
ist. Einkaframtakið og eignarréttur-
inn hafa verið mikilvæg vörn fyrir
náttúruna.
Ég mun því styðja hugmyndina
um miðhálendisþjóðgarð sé hún
byggð á skynsamlegri nýtingu auð-
linda hálendisins, frjálsri för al-
mennings, virðingu fyrir eignarrétt-
inum, frumkvöðlarétti og sjálfs-
stjórn sveitarfélaga í skipulags-
málum.
Með öðrum orðum: Hugmynda-
fræði stjórnlyndis og miðstýringar
má ekki ráða för þegar og ef miðhá-
lendisþjóðgarði verður komið á fót í
samræmi við stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar. Löngunin til að stýra
öllu frá 101-Reykjavík er sterk.
Hætta er sú að valdið sogist úr
heimabyggð til örfárra einstaklinga
sem neita að skilja hvernig hægt er
að lifa í sátt við náttúruna, verja
hana og nýta auðlindir á sama tíma.
Á komandi vikum verð ég, líkt og
aðrir þingmenn, að taka afstöðu til
margvíslegra mála. Ég get ekki
stuðst við annað en þann leiðarvísi
sem sannfæring og sjálfstæðis-
stefnan gefa. Oft þarf ég að sveigja
eitthvað af leið en ákveðin grunn-
prinsipp verða ekki brotin. Ekki
þegar kemur að þvingunaraðgerðum
gagnvart sveitarfélögum, ekki við
stofnun miðhálendisþjóðgarðs, fjöl-
miðlafrumvarpi og ekki við endur-
skoðun sóttvarnalaga. Listinn er
(óþægilega) langur.
Eftir Óla Björn
Kárason
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Gegn valdboði og miðstýringu
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020
Máninn Tunglið varð fullt síðasta dag nóvembermánaðar og því hefur verið stórstreymt. Sjófarendur og eigendur báta við bryggjur hafa verið varaðir við hárri sjávarstöðu.
Eggert