Morgunblaðið - 02.12.2020, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 02.12.2020, Qupperneq 13
» Líkt og aðrir þing- menn verð ég að taka afstöðu til mála. Ég get ekki stuðst við annað en þann leiðarvísi sem sannfæring og sjálfstæðisstefnan gefa. Rétturinn til að ráða sínu eigin lífi en um leið virða rétt annarra til hins sama er horn- steinn í hugmynda- fræði sem ég hef alla tíð aðhyllst og barist fyrir. Frjálshyggja? Örugglega. Hægri- stefna? Án nokkurs efa. Íhaldssemi? Lík- lega. En í einfaldleika sínum er þetta hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins. Í setningar- ræðu landsfundar fyrir rúmum tveimur árum orðaði Bjarni Bene- diktsson formaður flokksins þetta með einföldum hætti: „Við höfum byggt allt okkar starf á trúnni á frelsi einstaklingins.“ Forystumenn og áhrifamiklir hugsjónamenn Sjálfstæðisflokksins hafa á rúmum 90 árum meitlað grunnhugsjónina um mannhelgi og að andlegt og efnahagslegt frelsi sé frumréttur hvers og eins. Forsenda þess að einstaklingar geti notið hæfileika sinna er að þeir hafi frelsi til athafna. Markmiðið er að tryggja „frelsi fyrir alla, ekki frelsi fyrir fáa, stóra og sterka, sem nota afl sitt og auð til að troða miskunnarlaust á öðrum“, eins og Davíð Oddsson sagði í ræðu í tilefni af 75 ára afmæli flokksins. Á grunni þessarar hugmynda- fræði hef ég mótað af- stöðu til einstakra mála, reynt að standa við loforð Sjálfstæðis- flokksins um að gefa einstaklingum svigrúm til að móta sína fram- tíð, hvetja og styðja við framtakssemi fólks út um allt land. Færa valdið til fólksins en hrifsa það ekki frá því. Tryggja valddreifingu og koma í veg fyrir miðstýringu. Gegn sjálfsstjórn og frelsi Þess vegna get ég aldrei stutt að völdin séu tekin af íbúum sveitar- félaga og þeir sviptir forræði yfir eigin málum. Að skipa sveitarfélagi með lögum til að sameinast öðru gengur gegn hugmyndum um sjálf- ræði íbúa og sjálfstæði sveitar- félaga. Sú lögþvingun sem boðuð er í stjórnarfrumvarpi sem lagt var fram á mánudag byggir á hugmyndafræði valdboðs og gengur gegn hug- myndafræði sjálfsstjórnar og frelsis sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur byggt á. Hér ættu menn að minnast orða Bjarna Benediktssonar eldri, um að þjóðfélagi verði „ekki stjórnað með oflæti eða orðaskaki“. Um það verður ekki deilt hér að sameining og fækkun sveitarfélaga getur verið ákjósanleg og skynsam- leg fyrir íbúana. Markmiðið er hins vegar ekki að fækka sveitarfélögum heldur að styrkja og efla þjónustu við borgarana. Og sveitarfélögum hefur fækkað hressilega. Árið 1990 voru þau 204 talsins en eru nú 69. Víða eru viðræður um sameiningu. Þær viðræður eru á forsendum íbú- anna sjálfra og þeir einir taka ákvörðun. Embættismenn í Reykja- vík stjórna ekki ferðinni. Hugmyndafræði valdboðsins sem liggur að baki lögþvingaðri samein- ingu er ekki aðeins ógeðfelld heldur byggist hún á misskilningi og/eða vísvitandi blekkingum. Hagkvæmni sveitarfélaga og gæði þjónustu við íbúanna er ekki í réttu hlutfalli við íbúafjölda. Fjárhagsleg staða ræðst miklu fremur af hæfileikum sveitar- stjórnarmanna og hvernig þeim tekst að uppfylla skyldur sínar en fjölda íbúa. Og það skal endurtekið sem ég skrifaði á síður þessa blaðs í ágúst á liðnu ári: „Enginn hagfræðingur, viðskipta- fræðingur eða fjármálaverkfræð- ingur er þess umkominn að skera úr um hver sé hagkvæmasta stærð sveitarfélaga. Enginn sveitarstjórn- armaður, þingmaður eða ráðherra hefur forsendur til að ákveða hver skuli vera lágmarksfjöldi íbúa í hverju sveitarfélagi svo íbúarnir fái notið þeirrar þjónustu sem þeir gera kröfu til og eiga rétt á samkvæmt lögum.“ Röksemdin um stærðar- hagkvæmni sveitarfélaga fýkur út í veður og vind um leið og farið er yfir fjárhagsstöðu og rekstur stærsta sveitarfélags landsins. Í þessum efnum eins og í flestum öðrum er farsælast að halda valdinu í heimabyggð. Lofa íbúum að taka ákvarðanir um hvernig þeir telja best að halda á málum. Valdið sogið úr heimabyggð Ég hef haldið því fram að náttúru- vernd geti verið ágætlega arðbær auk þess sem við berum siðferðilega skyldu til að skila landinu til næstu kynslóðar í ekki verra ástandi en við tókum við því. Við Íslendingar eigum flest undir náttúrunni og sjálfbærri nýtingu hennar. Náttúruvernd og nýting auðlinda fara vel saman þegar vel tekst til eins og fiskveiðistjórn- unarkerfið sannar. Ferðaþjónusta á allt sitt undir náttúruvernd. Í flestu er hugmyndin um miðhá- lendisþjóðgarð heillandi. Forsendan er að skipulagsvald sveitarfélaga sé virt og umráða- og nýtingaréttur íbúanna, sem í gegnum aldirnar hafa verið gæslumenn náttúrunnar, hald- ist. Einkaframtakið og eignarréttur- inn hafa verið mikilvæg vörn fyrir náttúruna. Ég mun því styðja hugmyndina um miðhálendisþjóðgarð sé hún byggð á skynsamlegri nýtingu auð- linda hálendisins, frjálsri för al- mennings, virðingu fyrir eignarrétt- inum, frumkvöðlarétti og sjálfs- stjórn sveitarfélaga í skipulags- málum. Með öðrum orðum: Hugmynda- fræði stjórnlyndis og miðstýringar má ekki ráða för þegar og ef miðhá- lendisþjóðgarði verður komið á fót í samræmi við stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar. Löngunin til að stýra öllu frá 101-Reykjavík er sterk. Hætta er sú að valdið sogist úr heimabyggð til örfárra einstaklinga sem neita að skilja hvernig hægt er að lifa í sátt við náttúruna, verja hana og nýta auðlindir á sama tíma. Á komandi vikum verð ég, líkt og aðrir þingmenn, að taka afstöðu til margvíslegra mála. Ég get ekki stuðst við annað en þann leiðarvísi sem sannfæring og sjálfstæðis- stefnan gefa. Oft þarf ég að sveigja eitthvað af leið en ákveðin grunn- prinsipp verða ekki brotin. Ekki þegar kemur að þvingunaraðgerðum gagnvart sveitarfélögum, ekki við stofnun miðhálendisþjóðgarðs, fjöl- miðlafrumvarpi og ekki við endur- skoðun sóttvarnalaga. Listinn er (óþægilega) langur. Eftir Óla Björn Kárason Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Gegn valdboði og miðstýringu 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 Máninn Tunglið varð fullt síðasta dag nóvembermánaðar og því hefur verið stórstreymt. Sjófarendur og eigendur báta við bryggjur hafa verið varaðir við hárri sjávarstöðu. Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.