Morgunblaðið - 02.12.2020, Síða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020
✝ Óskar ÞorgeirÞorgeirsson
Kemp fæddist í
Vestmannaeyjum
12. september
1926, hann lést á
Hrafnistu Sléttu-
vegi, Reykjavík,
23. október 2020.
Foreldrar Ósk-
ars voru Ragnhild-
ur Bjarnadóttir,
fædd 18. apríl
1893, dáin 9. nóvember 1986 og
Þorgeir Daníel Lúðvíksson
Kemp, fæddur 27. júlí 1900,
dáinn 3. mars 1967.
1985 og Ariel Pétursson, f.
1987. 2) Kolbrún Ósk Ósk-
arsdóttir píanókennari, f. 24.
desember 1953, dóttir hennar
er Ásrún Hildur Kolbrún-
ardóttir, f. 1981. 3) Sigurbjörg
Ása Óskarsdóttir fjármálastjóri,
f. 20. febrúar 1958, gift Krist-
mundi Rafnssyni bifvélavirkja,
sonur þeirra er Baldur Már
Kristmundsson, f. 1980.
Í barnæsku bjó Óskar á Sela-
læk og síðar í Höfnum, en flutti
síðan til Reykjavíkur árið 1939
þar sem hann bjó eftir það.
Hann stundaði nám við Héraðs-
skólann á Laugarvatni.
Hann starfaði við verslunar-
og sölustörf lengi og var m.a.
verslunarstjóri hjá Mál og
menningu. Óskar var með heild-
verslun og flutti inn timbur síð-
ustu 35 ár starfsævinnar.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Óskar átti 10
systkini.
Óskar giftist Ás-
björgu Helgadóttur
Kemp, fulltrúa hjá
TR, 31. maí 1952.
Ásbjörg er fædd
23. ágúst 1932.
Dætur þeirra eru:
1) Helga Ragnheið-
ur Óskarsdóttir
fiðlukennari, f. 26.
október 1951, börn
hennar eru Jóhanna Dögg Pét-
ursdóttir, f. 1970, Búi Baldvins-
son, f. 1975, Ragnar Pétursson,
f. 1983, Gunnar Pétursson, f.
Ásbjörg frænka mín og vinkona
fór að vinna í fyrirtæki Ásbjarnar
Ólafssonar þegar hún var 16 ára.
Þar var margt ungt fólk, meðal
annars unnu þrír ungir menn í
húsgagnaversluninni á Hverfis-
götu og kom ég nokkrum sinnum
með henni þangað. Þeir voru kátir
og skemmtilegir og ég vissi að hún
var skotin í einhverjum þeirra, en
trúði mér ekki fyrir hver það væri.
Það kom þó í ljós ári seinna þegar
Óskar flutti inn á heimili þeirra. Þá
kynntist ég Óskari og ég er þakk-
lát fyrir að hafa átt hann að vini í
70 ár. Óskar var fyrst og fremst
góður maður sem vildi öllum vel og
mátti ekkert aumt sjá. Hann hafði
orðið fyrir lífsreynslu sem hlýtur
að hafa haft mikil áhrif á hann.
Hann horfði á húsið sem hann átti
heima í brenna, móður hans var
bjargað út en stjúpi hans og systir
brunnu inni, ekki tókst að bjarga
þeim.
Allt sem Óskar gerði gerði hann
vel, hann hafði gott verksvit og gat
sagt manni hvernig væri best að
standa að hverju verki. Hann
kunni á mörgu góð skil, var vel að
sér í bókmenntum, sögu og tækni,
en tónlist var þó aðaláhugamál
hans og hann spilaði á píanó.
Hann sagði manni hvernig mörg
verk gömlu meistaranna urðu til
og gat sagt sögur af þeim.
Ásbjörg og Óskar bjuggu á
heimili foreldra hennar í sex eða
sjö ár og þar fæddust þeim þrjár
efnilegar dætur, Helga Ragnheið-
ur, Kolbrún Ósk og Sigurbjörg
Ása. Þær hlutu allar útgeislun
pabba síns og eru hver annarri
yndislegri. Ein af mínum kæru
minningum er þegar Ásbjörg og
Óskar giftu sig og létu jafnframt
skíra Helgu Ragnheiði. Ég fór
með þeim heim til séra Jakobs
Jónssonar á laugardaginn fyrir
hvítasunnu árið 1952 og passaði
Helgu meðan þau voru gefin sam-
an. Þetta var mjög yndisleg stund
sem ég er þakklát fyrir. Það var
Óskari mikils virði að þær syst-
urnar fóru allar í tónlistarnám og
tvær af þeim höfðu tónlist að ævi-
starfi.
Ásbjörg og Óskar ferðuðust
mikið um landið og eftir að þau
eignuðust Land Rover-jeppa
eyddu þau öllum fríum í óbyggð-
um og notuðu þjóðvegina sem
minnst. Þegar þau heimsóttu mig
til Húsavíkur komu þau yfir há-
lendið, enda höfðu þau enga
ánægju af að ferðast í ryki og um-
ferð. Þessar heimsóknir fjölskyld-
unnar voru mjög ánægjulegar og
ég man sérstaklega eftir hvað ég
var montin af þessum frænkum
mínum þegar systurnar fóru í
gönguferð um bæinn.
Söknuður Ásbjargar eftir 70
ára samleið hlýtur að vera sár og
dæturnar misstu mikið við fráfall
föður síns.
Ég sendi þeim innilegar sam-
úðarkveðjur. Blessuð sé minning
Óskars Þorgeirs.
Helga Karlsdóttir.
Kæra fjölskylda. Það er sárt að
sitja hérna megin hnattar og geta
ekki verið með ykkur að kveðja
hann elsku Óskar afa, en ég get þó
huggað mig við að við lifum á
þannig tímum að ég get verið með
ykkur, þó ekki sé nema á skjánum
og í anda. Ég man eftir gráhærð-
um kolli, þykkum gleraugum og
vinalegum róm í hvert skipti sem
ég hitti afa. Þétt faðmlag tók alltaf
á móti mér og ekkert nema góð-
mennskan sem hann sýndi okkur
barnabörnunum. Ótal stundir í
Goðheimum og síðar meir í Sól-
túninu, og núna síðast á Landa-
kotsspítala þegar ég kvaddi hann
í síðasta skipti sitja eftir í minn-
ingunni, og alltaf er það brosið
hans sem ljómaði í hvert skipti
sem ég sá hann. Þannig þekkti ég
afa, og þannig mun ég alltaf muna
eftir honum.
Það skrýtna við að vera barna-
barn einhvers er að maður þekkir
ekki alltaf manneskjuna í þaula,
en einhvern veginn var hann alltaf
það sem ég ímyndaði mér að afi
gæti verið. Hlýlegur, fullur af alls
konar fróðleik og lífreynslusög-
um, og umfram allt bara góður
kall við mig og bræðurna. Þannig
vil ég muna eftir honum, og þann-
ig mun ég halda áfram að lýsa
honum fyrir mínum eigin börnum.
Afa á ég margt að þakka, og þá
sérstaklega fyrir mömmu – því án
hans hlutverks í að búa hana til
hefðum við systkinin aldrei orðið.
Það er því partur af afa í mér og
mínum börnum, og sá partur mun
halda áfram um ókomna tíð.
Elsku afi, ég er svo þakklátur
fyrir að hafa náð að kveðja þig í
janúar, og ég er svo þakklátur
fyrir lífið sem þú lifðir. Í dag er
sorgardagur, en jafnframt á sama
tíma lít ég á þetta sem tilefni til að
fagna þér og lífinu.
Eða eins og Alfaðirinn mælti:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Takk fyrir allt elsku afi minn,
hvar sem þú ert.
Gunnar Pétursson,
Björn Tómas, Chiara
Ingibjörg og Bianca,
Sydney, Ástralíu.
Óskar Þorgeirsson
Kemp
✝ Rakel Ólafs-dóttir fæddist í
Arnarfirði 29. maí
1936. Hún lést á
Landspítalanum 23.
október 2020. For-
eldrar hennar voru
Berta Björnsdóttir,
f. 23.04. 1929, d.
01.03. 1996, og Ólaf-
ur Jónsson, f. 03.07.
1908, d. 06.07.2000.
Systkini Rakelar
eru Gunnhildur, Sjöfn, Ólöf,
Kjartan og Edda sem er látin og
tvær hálfsystur, Jónína og Lára.
Rakel giftist Ásgeiri Magn-
ússyni, f. 22.09. 1933, d. 11.05.
2007. Börn þeirra eru: 1) Bertha
Kolbrún, f. 09.03. 1955, 2) Magn-
ús Ómar, f. 11.08. 1957, 3) Ólafur
Hrafn, f. 03.09. 1962 og 4) Ásgeir
Brynjar, f. 15.03. 1969. Barna-
börnin eru 14 og barna-
barnabörnin 15.
Rakel átti heima á Patreks-
firði til fimm ára aldurs. Fjöl-
skyldan flutti þá til Reykjavíkur
og gekk hún í Laug-
arnesskóla til 15
ára aldurs en þá
fluttu þau í Álfsnes
á Kjalarnesi og
gekk þá Rakel í
Skógarskóla.
Rakel kynntist
Ásgeiri manni sín-
um þegar hún var
17 ára gömul og
hófu þau búskap
sinn í Reykjavík.
Árið 1970 flutti fjölskyldan til
Svíþjóðar. Rakel fór þar í nám og
lærði hjúkrun og svo síðar meir
lærði hún fótaaðgerðafræði og
setti upp sína eigin stofu. Rakel
flutti svo aftur til Íslands árið
2004.
Rakel var virk í eldriborg-
arastarfi og stundaði línudans og
lærði útskurð. Einnig var hún í
leikfélagi eldri borgara, Snúði og
Snældu.
Útför Rakelar fór fram 6. nóv-
ember, frá Fossvogskapellu, í
kyrrþey.
Elsku mamma.
Mikið er erfitt að horfa á eftir
þér þar sem þú varst okkar stoð
og stytta, sama hvað bjátaði á. Nú
er gott að staldra við og hugsa um
okkar dýrmætu stundir saman.
Þú gafst okkur gott veganesti
inn í lífið enda mikil fyrirmynd.
Þú tókst alltaf hagsmuni annarra
fram yfir þína og vildir hjálpa
þeim sem minna mega sín. Þú
varst mikil húsmóðir, snillingur í
eldhúsinu og sérstaklega hand-
lagin.
Allt var heimasaumað hvort
sem það voru fermingarföt eða
skátabúningar. Fyrir nokkrum
árum ákvaðst þú að læra útskurð
og gerðir það auðvitað með glæsi-
brag. Þú skarst út fallegar gesta-
bækur sem þú gafst okkur ásamt
mörgum öðrum fallegum hlutum
og er það mjög dýrmætt að eiga
það núna. Þú varst mikil fé-
lagsvera og tókst upp á því, á
gamals aldri, að ganga í leikfélag
eldri borgara og taka þátt í leik-
sýningu.
Þú elskaðir að dansa og var það
línudansinn sem heillaði þig síð-
ustu árin.
Þú varst sterkur karakter og
sagðir svo skemmtilega frá, þeir
sem kynntust þér gleyma þér
aldrei.
Þú varðir ófáum stundum með
barnabörnunum og munu þau
sakna skemmtilegu, fínu, flottu og
síungu ömmu sinnar.
Elsku mamma okkar, við sökn-
um þín sárt en minning þín mun
ávallt lifa í hjörtum okkar.
Bertha, Magnús, Ólafur
og Ásgeir.
Rakel og ég vorum systradæt-
ur og varð hún mín allra besta vin-
kona við sex ára aldur.
Rakel var glæsileg, hjartahlý
og dugleg. Þessir mannkostir
Rakelar einkenndu allt hennar líf.
Þegar kveðjustundin er komin er
mér efst í huga þakklæti fyrir vin-
skap og trygglyndi Rakelar. Vin-
átta sem gerði líf mitt betra og
auðugra.
Börnum Rakelar og öðrum að-
standendum bið ég og fjölskylda
mín blessunar guðs. Ég veit að
minning um góða móður og elsku-
lega konu lifir áfram í hjörtum
allra þeirra sem kynntust henni.
Anna Sigríður Valgasdóttir.
Við kveðjum nú góða vinkonu
og viljum þakka henni fyrir góðan
vinskap sem hefur haldist síðan
upp úr 1960 þegar báðar fjöl-
skyldurnar bjuggu í vesturbæ
Kópavogs og einnig síðar þegar
þær fluttu báðar árið 1970 til Sví-
þjóðar, á sömu götu í Malmö.
Rakel og Geiri urðu áfram í Sví-
þjóð þegar við fluttum heim aftur
en gott samband hélst öll þessi ár.
Rakel kaus að búa á Íslandi eftir
að Geiri féll frá og hafði hún Óla
son sinn sér til halds og trausts
hér á landi. Rakel var glæsileg
kona og góð. Hún var alltaf vel til-
höfð. Hún var mjög heiðarleg og
vildi aldrei skulda neinum neitt og
gat verið svolítið föst á sínu hvað
það varðaði en var svo innilega
þakklát þegar henni var greiði
gerður. Hún var ung í anda og
gaman að tala við hana um nánast
allt enda fylgdist hún mjög vel
með öllu sem var í gangi á hverj-
um tíma og hafði sínar skoðanir
en hún þoldi illa óréttlæti.
Hún var mjög listræn, hafði
gaman af útskurði og gerði fallega
hluti, sem dæmi má nefna klukk-
ur og gestabækur sem prýða nú
veggi hjá afkomendum. Hún hafði
gaman af að tala um andleg mál-
efni enda mjög næm og maður gat
alveg gleymt sér í þeirri umræðu
við hana. Rakel og Geiri skilja eft-
ir sig stóran og fallegan afkom-
endahóp bæði hér heima og í Sví-
þjóð.
Elsku Berta, Maggi, Óli, Ás-
geir, makar og afkomendur, við
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur.
Megi minning um góða konu
lifa.
Þórir, Álfheiður, Gerður
og Brynjólfur.
Rakel Ólafsdóttir
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNHILDUR ANDRÉSDÓTTIR,
Ystu-Görðum,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
8. nóvember. Útförin fer fram föstudaginn
4. desember klukkan 14 frá Borgarneskirkju að viðstöddum
nánustu aðstandendum. Streymt verður frá útförinni á slóðinni:
http://kvikborg.is.
Sérstakar þakkir til HERU og líknardeildar fyrir hlýju og góða
umönnun.
Ölver Benjamínsson
Óskar Ölversson Þórunn Sigríður Þorsteinsd.
Benjamín Ölversson
Andrés Ölversson Þóra Sif Kópsdóttir
Björk Ben Ölversdóttir
Björgvin Ölversson Margrét Kolbeinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
HELGA PÁLSDÓTTIR,
Snorrabraut 56B,
eitt sinn búsett í Birkilundi
í Biskupstungum,
lést 12. nóvember og fer útförin fram í Dómkirkjunni í Reykjavík
4. desember klukkan 15. Vegna aðstæðna verður einungis
nánasta fjölskylda viðstödd. Athöfnin verður í streymi á
beint.is/streymi/helgapalsdottir sem og á www.mbl.is/andlat.
Aðstandendur vilja þakka starfsfólki Landspítalans fyrir hlýja og
góða umönnun.
Gunnlaugur Ingvarsson Guðrún Edda Andradóttir
Auður Ingvarsdóttir
Mímir Ingvarsson Erna Bára Magnúsdóttir
Kjartan Ingvarsson Nathalie Simon
Sigurður Óli Ingvarsson
Ólöf Vala Ingvarsdóttir Helgi Áss Grétarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur
og bróðir,
ÞORMAR VIGNIR GUNNARSSON,
húsasmiður og ljósmyndari,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
12. nóvember. Útför fer fram frá
Langholtskirkju 3. desember klukkan 15.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir.
Útför verður streymt á
https://www.youtube.com/channel/UCUsCZTV81rk5AYsiZd1C
xxg.
Helena Benjamínsdóttir
Sólrún Líf Guðrún Von
Telma Rut Mikael Bjarki
Gunnar Þórisson Vilborg Þorgeirsdóttir
Þórir Gunnarsson
Okkar kæri
SIGURGEIR HÖSKULDSSON,
Selfossi II, Selfossi,
lést 22. nóvember á Landspítalanum við
Hringbraut. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 4. desember klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir
viðstaddir en athöfninni verður streymt á selfosskirkja.is.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknarfélög.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Kirkjuhvols og 13G Landspítala
fyrir einstaklega hlýlegt viðmót og frábæra umönnun.
Ragnheiður, Arna Viktoría og Valdís
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
HELGI JÓHANNESSON
Lautarvegi 16, Reykjavík
varð bráðkvaddur föstudaginn
27. nóvember.
Jóhannes Ingimundarson Silvia Bök
Marta María Jónasdóttir Páll Winkel
Fanney Jóhannesdóttir Hreinn Bergs
Kolbeinn Ari Jóhannesson
Guðný Kristín Winkel
Katrín Pála Winkel