Morgunblaðið - 02.12.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.12.2020, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 Undankeppni EM kvenna E-RIÐILL: Ungverjaland – Ísland..............................0:1 Slóvakía – Svíþjóð .....................................0:6 Lokastaðan: Svíþjóð 22 stig, Ísland 19, Sló- vakía 10, Ungverjaland 7, Lettland 0. A-RIÐILL: Tyrkland – Rússland................................ 1:2 Slóvenía – Eistland................................... 2:0 Holland – Kósóvó ..................................... 6:0 Staðan: Holland 30, Rússland 24, Slóvenía 15, Kósóvó 10, Tyrkland 5, Eist- land 1. B-RIÐILL: Georgía – Bosnía ...................................... 0:3 Ísrael – Malta............................................ 0:2 Danmörk – Ítalía ...................................... 0:0 Staðan: Danmörk 28 stig, Ítalía 22, Bosnía 18, Malta 10, Ísrael 7, Georgía 0. C-RIÐILL: N-Írland – Færeyjar ............................... 5:1 Wales – Hvíta-Rússland ......................... 3:0 Staðan: Noregur 18 stig, N-Írland 14 stig, Wales 14 stig, Hvíta-Rússland 6 stig, Fær- eyjar 0 stig. D-RIÐILL: Tékkland – Moldóva................................. 7:0 Staðan: Spánn 16 stig, Tékkland 16, Pól- land 14, Moldóva 3, Azerbaijan 0. E-RIÐILL: Portúgal – Albanía ................................... 1:0 Skotland – Finnland................................. 0:1 Staðan: Finnland 16 stig, Portúgal 16 stig, Skotland 9 stig, Albanía 6 stig, Kýpur 0 stig. G-RIÐILL: Austurríki – Serbía .................................. 1:0 Frakkland – Kasakstan ......................... 12:0 Lokastaðan: Frakkland 22 stig, Austurríki 19 stig, Serbía 12 stig, N-Makedónía 6 stig, Kasakstan 0 stig. H-RIÐILL: Belgía – Sviss ............................................ 4:0 Staðan: Belgía 21 stig, Sviss 19 stig, Rúm- enía 9 stig, Króatiá 7 stig, Litháen 0 stig. I-RIÐILL: Írland – Þýskaland................................... 1:3 Úkraína – Svartfjallaland........................ 2:1 Staðan: Þýskaland 24 stig, Úkraína 15 stig, Írland 13 stig, Grikkland 7 stig, Svartfjalla- land 0 stig. Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Lokomotiv Moskva – RB Salzburg......... 1:3 Atlético Madríd – Bayern München....... 1:1 Staðan: Bayern München 13 stig, Atlético Madríd 6 stig, Salzburg 4 stig, Lokomotiv Moskva 3 stig. B-RIÐILL: Shakhtar Donetsk – Real Madríd........... 2:0 Gladbach – Inter........................................ 23 Staðan: Gladbach 8 stig, Shakhtar Donetsk 7 stig, Real Madríd 7 stig, Inter 5 stig. C-RIÐILL: Marseille – Olympiacos........................... 0:1  Ögmundur Kristinssson var ekki í leik- mannahóp Olympiacos. Portó – Manchester City ......................... 0:0 Staðan: Manchester City 13 stig, Portó 10 stig, Olympiacos 3 stig, Marseille 3 stig., D-RIÐILL: Atalanta – Midtjylland............................ 1:1  Mikael Anderson lék allan leikinn með Midtjylland. Liverpool – Ajax ....................................... 1:0 Staðan: Liverpool 12 stig, Atalanta 8 stig, Ajax 7 stig, Midtjylland 1 stig. England C-deild: Blackpool – Portsmouth......................... 1:0  Daníel Leó Grétarsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Blackpool.  Evrópudeild karla Kristianstad – Presov ......................... 32:25  Teitur Örn Einarsson skoraði fimm mörk og gaf sjö stoðsendingar fyrir Kristi- anstad, Ólafur Andrés Guðmundsson var ekki í hóp. Montpellier – Alingsås.........................32:21  Aron Dagur Pálsson skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar fyrirAlingsås. Nexe – Magdeburg.............................. 24:32  Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk, gaf fimm stoðsendingar og stal tveimur boltum fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk. Danmörk Skanderborg – Skjern ........................ 27:29  Elvar Örn Jónsson gaf tvær stoðsend- ingar fyrir Skjern.   Evrópudeildin Barcelona – Valencia ........................ 90:100  Martin Hermannsson meiddist strax á 4. mínútu og skoraði ekki fyrir Valencia.   UNDANKEPPNI EM Kristján Jónsson kris@mbl.is Ísland lauk keppni í undankeppni EM kvenna í knattspyrnu með 1:0- sigri í Ungverjalandi í gær og ár- angur liðsins tryggir því keppnisrétt í lokakeppni EM. Ísland keppir á EM sumarið 2022 en lokakeppninni var frestað um eitt ár þegar dagskrá Knattspyrnusambands Evrópu tók að riðlast vegna heimsfaraldursins. Ísland komst í lokakeppnina í fyrsta skipti árið 2009 og hefur fylgt því eftir þrívegis því Ísland var einnig með 2013 og 2017. Svíþjóð vann F- riðil Íslands í undankeppninni en Ís- land hafnaði í 2. sæti og rakaði sam- an 19 stigum í átta leikjum. Þau lið sem unnu sína riðla fara beint í loka- keppnina og þrjú þeirra liða sem höfnuðu í 2. sæti. Þegar árangur þeirra níu liða sem hafna eða geta hafnað í 2. sæti í riðlakeppninni er borinn saman er öruggt að Ísland er eitt þriggja liða með bestan árangur. Skagamaðurinn Jón Þór Hauks- son hefur lent í alls kyns mótvindi eftir að hann tók við starfi landsliðs- þjálfara en þó sérstaklega vegna kórónuveirunnar. Hann stóðst próf- ið og skilar liðinu í lokakeppnina en með brotinn fingur og mögulega há- an blóðþrýsting vegna spennunnar á hliðarlínunni. Jón Þór sýndi vissan kjark þegar hann setti unga leik- menn í byrjunarliðið í haust. Með þessu hugsaði hann ef til vill ein- hverja leiki fram í tímann því nú er eitt og hálft ár í lokakeppnina. Á þeim tíma geta leikmenn í kringum tvítugt tekið miklum framförum. Leikmennirnir úr Breiðabliki voru til dæmis frekar litlar í sér gegn París St. Germain fyrir ári en hafa styrkt sig töluvert líkamlega á einu ári. Hversu góðar verða Sveindís, Alexandra, Agla María, Hlín, Karól- ína Lea og fleiri orðnar eftir eitt og hálft ár? Íslenska landsliðið gerði það sem þurfti til að vinna leikinn í Ung- verjalandi í gær en leikurinn reynd- ist ekki auðveldur fyrir íslenska lið- ið. Lið Íslands er sannarlega sterkara en lið Ungverjalands en ungverska liðið nálgaðist leikinn skynsamlega. Liðið var agað og skipulagið nokkuð gott sem gerði það að verkum að íslenska liðið þurfti að hafa verulega fyrir því að skora. Hafa þurfti fyrir sigrinum Íslenska landsliðið hefur verið í þeirri stöðu í rúman áratug að vera fyrir fram sterkari aðilinn í leikjum sem þessum, þar sem andstæðing- urinn er í lægri styrkleikaflokki. Leikir þar sem til þess er ætlast að Ísland vinni. Takist það ekki er strembið að komast í lokakeppni EM eins og liðið hefur ítrekað gert. Stundum er bara meira en að segja það að landa sigri í slíkum leikjum og leikurinn í gær var dæmi um það. Þar spilar sjálfsagt margt inn í. Leikmenn á Íslandi hafa ekki getað æft með eða spilað í langan tíma ef frá er talin tímabundin undanþága sem Valur fékk. Leikið var í miklum kulda í gær sem gæti hafa haft áhrif en svo hefur spennan sagt til sín þar sem úrslitin í riðlakeppninni voru um það bil að ráðast. Við þessar að- stæður er ágætt að geta teflt fram leikmönnum úr sömu liðunum. Leik- menn sem þekkjast það vel að það vegur aðeins upp á móti skorti á leikæfingu. Fjórar úr Blikum tóku þátt í leiknum og fimm úr Val auk þess sem Berglind Björg lék með þeim í Breiðabliki fyrr í sumar. Markið létti pressunni Íslenska liðið hefur oft leikið betri knattspyrnu en að þessu sinni. Um það verður örugglega ekki deilt en liðið hafði þó völdin á vellinum. Þeg- ar fyrsta markið lét bíða eftir sér fannst manni örla á óþolinmæði og taugaspenna jókst. Ekki hafði svo sem gripið um sig örvænting en maður gat lesið út úr látbragði leik- manna að pirringurinn var að aukast. Við þær aðstæður var af- skaplega gott að fá mark frá Berg- lindi Björgu og það létti pressunni mjög af leikmönnum Íslands sem sumar hverjar eru ekki mjög sjóað- ar í alþjóðlegum keppnum. Berglind afgreiddi boltann í netið af fagmennsku. Boltinn barst óvænt til hennar. Þegar boltinn skoppaði fyrir framan hana er ég nokkuð viss um að Berglind hafi í fyrstu ætlað að taka hann á lofti og hamra á markið. En með varnarmann í sér tók hún boltann þess í stað niður og skoraði með góðu skoti. Berglind hefur víkkað sjóndeild- arhringinn sem knattspyrnukona og leikið á Ítalíu og í Frakklandi. Mun það örugglega koma sér vel fyrir landsliðið. Þegar hún var hjá AC Milan síðasta vetur bárust af því fréttir með vorinu að hún hefði æft í bílakjallara í fjölbýlishúsinu þar sem hún bjó á meðan útgöngubann var í landinu. Eigum við ekki bara að segja að stífar æfingar Berglindar í bílakjallara í Mílanó hafi skilað sér fyrir Ísland í gær? Sæti á EM tryggt í fjórða sinn  Berglind Björg skoraði sigurmarkið gegn Ungverjalandi  Ísland eitt þeirra þriggja liða í 2. sæti sem komust áfram Martin Hermannsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, gat lítið beitt sér gegn stórliði Barcelona í ACB-deildinni spænsku í gær. Hann fór úr lið á fingri strax á fjórðu mínútu leiksins. Martin kom ekki meira við sögu en gat þó fagnað frábærum úrslitum með liðs- félögum sínum því Valencia vann 100:90 en leikurinn var í Barcelona. Martin reyndi að hita aftur upp í hálfleik en ljóst var að hann var ekki leikfær. Er þetta í þriðja skipti sem sami fingurinn fer úr lið hjá Martin. kris@mbl.is Martin fór úr lið gegn stórliðinu Morgunblaðið/Hari Úr lið Martin var seinheppinn í gær og engin áhætta var tekin. Selfyssingurinn Teitur Örn Ein- arsson átti mjög góðan leik þegar lið hans, Kristianstad, lagði hið slóvakíska Tatran Presov í Evrópu- deildinni í handknattleik karla í gær. Teitur Örn skoraði fimm mörk úr skyttustöðunni hægra megin og gaf sjö stoðsendingar á samherja sína í öruggum 32:25-sigri. Eftir sigurinn er Kristianstad í öðru sæti B-riðils Evrópudeild- arinnar með sex stig eftir fimm leiki, en hefur þó spilað fleiri leiki en öll hin liðin í riðlinum til þessa. gunnaregill@mbl.is Teitur átti þátt í tólf mörkum Ljósmynd/Kristianstad Atkvæðamikill Teitur Örn Einarsson átti góðan leik. UNGVERJALAND – ÍSLAND 0:1 0:1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 65. Ungverjaland: (4-3-3) Mark: Réka Szöcs. Vörn: Barbara Tóth (Virág Nagy 86), Boglárka Horti, Hanna Németh, Evelin Mosdóczi. Miðja: Petra Kocsán, Diána Csányi (Sára Pusztai 65), Anna Csiki. Sókn: Fanni Vágó, Bernadett Zagor. Ísland: (4-5-1) Mark: Sandra Sigurðardóttir. Vörn: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja: Agla María Albertsdóttir (Svava Rós Guðmundsdóttir 61, Hlín Eiríksdóttir 77), Sara Björk Gunnarsdóttir, Elín Metta Jensen (Rakel Hönnudóttir 61), Alex- andra Jóhannsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir (Barbára Sól Gísladóttir 90). Sókn: Berglind Björg Þorvaldsdóttir. M Sandra Sigurðardóttir Glódís Perla Viggósdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Alexandra Jóhannsdóttir Sveindís Jane Jónsdóttir Berglind Björg Þorvaldsdóttir Rautt spjald: Engin. Dómari: Iuliana Demetrescu, Rúmen- íu. Áhorfendur: Ekki leyfðir.  Barbára Sól Gísladóttir, leikmaður Selfoss, lék sinn fyrsta A-landsleik í gær þegar hún kom inn á sem vara- maður seint í leiknum.  Berglind Björg Þorvaldsdóttir skor- aði sjötta mark sitt fyrir A-landsliðið í gær en hún hefur leikið 48 A-lands- leiki.  Frekari staðreyndir um leikinn – sjá mbl.is/sport/fotbolti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.