Morgunblaðið - 02.12.2020, Qupperneq 23
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Mikilvægt Fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar
Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur eftir að Berglind kom
boltanum í netið í gær. Reyndist það eina mark leiksins.
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020
Heimsmeistarinn og ökuþórinn
Lewis Hamilton er með kórónuveiruna
og mun því ekki geta tekið þátt í Grand
Prix-keppninni í Barein um helgina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Formúlu 1-kappakstrinum.Segir í til-
kynningunni að Hamilton sé í ein-
angrun og yfirstjórn keppninnar muni
tryggja að áhrifa veikindanna muni
ekki gæta á keppni helgarinnar.
Sara Björk Gunnarsdóttir, lands-
liðsfyrirliði Íslands í knattspyrnu, kem-
ur til greina í lið ársins hjá UEFA,
Knattspyrnusambandi Evrópu. Sara
átti afar gott ár og varð m.a. Evr-
ópumeistari með franska liðinu Lyon
eftir að hún gekk í raðir þess frá
Wolfsburg. Sara er ein af fimmtán
miðjumönnum sem koma til greina en
kosningin fer fram á heimasíðu UEFA.
Sara vann þýsku deildina og bikarinn
með Wolfsburg og hjálpaði liðinu að
komast í úrslitaleik Meistaradeild-
arinnar en skoraði svo gegn því í úr-
slitaleiknum með Lyon. Hægt er að
kjósa Söru með því að fara inn á vef
UEFA.
Handknattleikssamband Íslands og
Körfuknattleikssambandið tilkynntu í
gær að ekki verði leikið á Íslandsmót-
unum í greinunum á nýjan leik fyrr en
á næsta ári vegna þeirra aðgerða sem
í gangi eru í baráttunni við kórónuveir-
una. Nánari dagsetningar verða til-
kynntar síðar.
Ásmundur Haraldsson hefur verið
ráðinn þjálfari Kára á Akranesi sem
leikur í c-deild Íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Gunnar Einarsson gegndi
starfinu í sumar en réð sig til Víkings í
Ólafsvík eins og greint var frá á dög-
unum. Þá hefur KV tryggt sér starfs-
krafta Sigurvins Ólafssonar áfram
sem þjálfara liðsins sem einnig verður
í c-deild á næsta ári.
Keflvíkingurinn Thelma Dís Ágústs-
dóttir var atkvæðamest hjá Ball State
Cardinals er liðið mátti þola 49:73-tap
fyrir IUPUI í bandaríska háskólabolt-
anum. Annan leikinn í röð var Thelma
besti leikmaður Ball State og skoraði
10 stig, tók 10 fráköst, gaf þrjár stoð-
sendingar og stal einum bolta.Thelma
er 22 ára og lék sína fyrstu leiki með
Keflavík aðeins 15 ára gömul. Varð hún
einu sinni Íslandsmeistari með Kefla-
vík og tvisvar bikarmeistari. Þá var
hún valin besti leikmaður Dominos-
deildarinnar árið 2017.
Kolbeinn Sigþórsson er á förum frá
knattspyrnufélaginu AIK í sænsku úr-
valsdeildinni þegar leiktímabilinu þar í
landi lýkur. Kolbeinn samdi við AIK í
mars árið 2019 og átti sá samningur
að gilda út tímabilið 2021. Samkvæmt
sænska dagblaðinu Expressen var
frammistöðuákvæði í samningnum
þar sem AIK er gert kleift að rifta
samningnum fyrr og hefur liðið ákveð-
ið að nýta sér ákvæðið. Kolbeinn getur
því nú þegar hafið leit að nýju liði og
samið við það frá og með janúar á
næsta ári. Kolbeinn hefur spilað 18
leiki í sænsku úrvalsdeildinni á tíma-
bilinu, flesta eftir að hafa komið inn á
sem varamað-
ur, og ekki enn
náð að skora.
Á síðasta
tímabili skoraði
hann þrjú mörk í 17
leikjum.
Tíma-
bilinu í
sænsku úr-
valsdeildinni lýkur
um næstu helgi.
Eitt
ogannað
UNDANKEPPNI EM
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
„Þetta er bara geggjuð tilfinning.
Þessi undankeppni er búin að taka
sinn tíma. Eftir leikinn í dag hefði
verið skemmtilegt að fagna en við
þurftum að bíða í nokkra tíma þannig
að við fögnum í kvöld.“
Þetta sagði Sara Björk Gunnars-
dóttir, fyrirliði íslenska kvennalands-
liðsins í knattspyrnu, eftir að það var
orðið ljóst í gærkvöldi að liðið færi á
sitt fjórða Evrópumót í röð.
Sara Björk hefur tekið þátt í öllum
þremur Evrópumótunum til þessa og
vill gera betur á því fjórða. „Við erum
búnar að fara þrisvar áður á EM og í
þetta skiptið viljum við ná ein-
hverjum alvörumarkmiðum og gera
eitthvað almennilegt á mótinu,“ sagði
hún og bætti því við að þau markmið
væru ekki endanlega orðin ljós. Farið
yrði yfir þau í góðu tómi en að nú yrði
fagnað.
EM kvenna á Englandi var frestað
um eitt ár vegna kórónuveirufarald-
ursins og fer því fram sumarið 2022.
Sara Björk sagði að leikmenn lands-
liðsins settu það ekki fyrir sig.
„Það er löng bið en þetta eru bara
kringumstæðurnar í heiminum í dag.
Ég tel að við höfum verið með ótrú-
lega sterkan hóp í þessari undan-
keppni og við tökum næsta ár í góðan
undirbúning.“
Hún sagði leikmenn mjög spennta
fyrir mótinu á Englandi og það væri
spennandi tilhugsun að spila á sögu-
frægum leikvöngum á Englandi. „Ég
held að þetta verði geggjað mót,“
sagði Sara Björk að lokum.
Erfiður leikur
Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri
bakvörður landsliðsins, var ánægð
með sigurinn sem varð á endanum til
þess að liðið tryggði sér sæti á EM.
„Ég er rosalega glöð með það að
við náðum að sækja þessi stig af því
að þær gerðu okkur erfitt fyrir,“
sagði hún að leiknum loknum.
„Þær voru rosalega agaðar og
skipulagðar, vörðust mjög vel og við
þurftum alltaf að vera á tánum. Það
var erfitt að brjóta þær á bak aftur.
Svo hittum við greinilega ekki alveg á
okkar besta dag þannig að ég er
mjög sátt með að við skyldum vinna
þennan leik. Það var það sem við
lögðum upp með,“ sagði Hallbera
einnig.
Vilja ná alvörumarkmiðum
Sara Björk á leið á sitt fjórða Evrópumót Góður tími til undirbúnings
Liverpool er komið áfram í 16-liða
úrslit Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu karla eftir 1:0-sigur
gegn Ajax á Anfield í gær. Eina
mark leiksins skoraði hinn 19 ára
gamli Curtis Jones á 58. mínútu
leiksins. Sigurinn þýðir að Liver-
pool er búið að vinna D-riðil Meist-
aradeildarinnar þegar einni um-
ferð er ólokið.
Sigursælasta lið í sögu keppn-
innar, Real Madríd, þarf að hafa
fyrir því að komast áfram en liðið
tapaði í gær í annað sinn fyrir
Shakhtar Donetsk.
Liverpool áfram
í 16-liða úrslitin
AFP
Efnilegur Curtis Jones skorar eina
markið í leiknum í gærkvöldi.
Mikael Anderson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, lék allan leikinn með
Midtjylland þegar danska liðið náði
flottum úrslitum í Meistaradeild
Evrópu á Ítalíu í gærkvöld.
Midtjylland gerði 1:1-jafntefli
gegn Atalanta í D-riðli keppninnar
og náði í sitt fyrsta stig í keppninni
en ein umferð af sex er eftir í riðla-
keppninni.
Alexander Scholz, fyrrverandi
leikmaður Stjörnunnar, kom Midt-
jylland yfir á 13. mínútu en Cristian
Romero jafnaði fyrir Atalanta á 79.
mínútu. kris@mbl.is
Merkileg reynsla
fyrir Mikael
AFP
Á Ítalíu Þessari skemmtilegu mynd
af Mikael í leiknum náði AFP.