Morgunblaðið - 02.12.2020, Side 25

Morgunblaðið - 02.12.2020, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is 71% SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. HÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐI Á SANNRI SÖGU. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SPLÚNKUNÝ GR ÍNMYND Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur í gær og voru að venju veittar viðurkenningar velunnurum íslenskrar tónlistar. Afhendingin fór fram í Iðnó og að henni lokinni voru þrjár íslenskar dægurperlur fluttar. Jónatan Garðarsson fjölmiðla- maður hlaut heiðursverðlaun dagsins, Lítinn fugl, fyrir fram- úrskarandi störf í þágu íslenskrar tónlistar í gegnum tíðina og þá meðal annars vandaða og metn- aðarfulla dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. „Jónatan hóf að skrifa um popptónlist í dagblöð ár- ið 1977 og um líkt leyti byrjaði hann að gera útvarpsþætti um tónlist. Seinna bættist sjónvarps- og heimildarþáttagerð við. Hann var einn af stofnendum Jazzvakn- ingar og formaður þess félags á upphafsárunum. Hann vann við hljómplötuútgáfu frá 1978 til 1987 og var formaður Sambands flytj- enda og hljómplötuframleiðenda lengi vel. Jónatan hefur gegnt for- mennsku hjá Tónlistarsjóði og verið framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra hljómplötuútgefenda. Jón- atan hefur komið að íslenskri tón- list á margvíslegan hátt í rúma fjóra áratugi. Hann var lengi far- arstjóri íslenska Eurovision- hópsins, hefur skrifað fjölmargar greinar um tónlistarmenn, hljóm- plötur og íslenskt tónlistarlíf, komið að bókarskrifum um ís- lenska tónlist, kennt rokksögu í Tónlistarskóla FÍH og Mennta- skóla í tónlist og haldið fyrirlestra um íslenska tónlist um árabil. Hann tók þátt í að setja Rokksafn Íslands á laggirnar og skrifaði all- an texta safnsins. Undanfarin ár hefur hann starfað hjá Rík- isútvarpinu meðal annars við þáttagerð,“ segir í tilkynningu. Sinfóníuhljómsveit Norður- lands hlaut hvatningarverðlaun Dags íslenskrar tónlistar fyrir „öfluga og metnaðarfulla dagskrá undanfarin ár, m.a. kvikmynda- rtónlistarverkefnið Sinfon- iaNord“, eins og segir í tilkynn- ingu og voru það stofnendur SinfoNord-verkefnisins, tón- skáldin Þorvaldur Bjarni Þor- valdsson og Atli Örvarsson, sem veittu viðurkenningunni viðtöku. Fyrir aukna innlenda dag- skrárgerð, miðlun tónlistar í samkomubanni og atfylgi við ís- lenska tónlist í sjónvarpi hlaut Sjónvarp Símans viðurkenn- inguna Gluggann og Íslenska bylgjan hlaut nýsköpunarverð- laun Dags íslenskrar tónlistar. Boðið var upp á tónlistaratriði sem hæfðu tilefninu og voru þrjár söngperlur fluttar í dag- skránni auk þess sem grunn- skólabörn, fyrir tilstilli tón- menntakennara um allt land, tóku þátt í því og sungu með. Söngperlurnar þrjár voru „Esj- an“ með Bríeti Ísis Elfar, „Tunglið, tunglið taktu mig“, við ljóð Theodóru Thoroddsen, sem Diddú og Ljósin í bænum gerðu vinsælt árið 1978, og „Lítill fugl“ eftir Sigfús Halldórsson. Ljósmyndir/Hörður Sveinsson Heiðraður Jónatan Garðarsson hlaut Lítinn fugl við hátíðlega athöfn. Jónatan hlaut Lítinn fugl  Viðurkenningar veittar á Degi íslenskrar tónlistar  Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hlaut hvatningarverðlaun Ánægðir Atli Örvarsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tóku við hvatn- ingarverðlaunum sem Sinfónuhljómsveit Norðurlands hlaut að þessu sinni. Góðar minningar og vitnis-burður um líf í góðu jafn-vægi er rauði þráðurinn íbókinni Raddir – Annir og efri ár sem nýlega er komin út. Þar segja 28 manns, gjarnan þekkt fólk og mikilsvirtir borgarar, frá ævi sinni og störfum og hvernig tilveran kemur þeim fyrir sjónir á efri árum. Kafl- arnir eru gjarnan skrifaðir af fólkinu sjálfu, en þau sem leggja orð í belg eru á aldrinum 69-103 ára. Hafa öll lifað tímana tvenna, eiga ólíka reynslu að baki og sjá veröldina hvert með sínum augum. Að því leyti er bókin merkilegur vitnisburður um samfélagsþróun á 20. öld. „Ef tala mætti um einhverja niður- stöðu af þessum 28 köflum er hún kannski þessi; að eiga góða elli er hluti af því að lifa góðu lífi,“ segir Ólafur Páll Jónsson heimspekingur í formála bókarinnar. Þar fjallar hann vítt og breitt um um þann tíma í lífi fólks sem er oft kallaður þriðja ævi- skeiðið. Tímabil þar sem fólk er ofast laust undan oki brauðstrits eða annarra skyldu- starfa og hefur frjálsar hendur. Lýsa má köfl- unum í Röddum sem litlum ævisög- um þar sem fólk fer yfir megindrætt- ina á lífsins leið. Segir undan og ofan frá störfum sínum og viðfangsefnum, eftirminnilegu samferðafólki og fleiru slíku. Þá segja margir höfundar líka frá tómstundastörfum sínum og fé- lagsmálum á efri árum, kórsöng, sundlaugaferðum, bóklestri og brasi í húsfélagsstjórn. Og ekki má gleyma sjúkrahússögunum, sem margir hafa svo undursamlega gaman af því að segja og alltaf er nokkur áhugi fyrir. Allt er þetta gott og blessað. Hins vegar skortir nokkuð á skýrt inntak eða boðskap í hverjum kafla. Að frá- sagnirnar verði með skýru móti leið- arvísir um hvernig gera má efri árin að innihaldsríku æviskeiði. Ræðst þetta sjálfsagt að nokkru af því að hver og einn sögumaður skrifar yfir- leitt kaflann sinn – og fyrir vikið vantar fókus. Og svona almennt tal- að; það er alltaf gaman að rabba við og fræðast um fólk og líf þess og störf. Í Röddum eru fínar frásagnir en í heildina er bókin fremur bragð- lítil. Ritstjórar Kristín Aðalsteinsdóttir og Jón Hjartarson ritstýra bókinni þar sem 28 manns segja frá ævi og störfum í „litlum ævisögum“. Ævisögur Raddir – Annir og efri ár bbbnn Ritstjórar eru Jón Hjartarson og Kristín Aðalsteinsdóttir. Skrudda, 2020. Innbundin, 362 bls. SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BÆKUR Orð í belg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.