Morgunblaðið - 04.12.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika
Sími 555 3100 www.donna.is
Heildsöludreifing
Type II 3ja laga
medical andlitsgríma
FFP3 Respirator Comfort
andlitsgríma með ventli
FFP3 High-Risk
andlitsgríma
Andlitshlíf
móðufrí
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma
Fást í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
MÓTORHAUSA
sögur
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Ómar Friðriksson
Skrifa á undir samning Íslands við
framleiðanda bóluefnis Pfizer um
kaup á bóluefni gegn kórónuveir-
unni í næstu viku. Þetta kemur fram
í tilkynningu heilbrigðisráðuneyt-
isins í gær. Þar segir að vonir standi
til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi
frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desem-
ber þegar fjallað verður um hvort
stofnunin geti mælt með því að lyfið
verði tekið í notkun. „Ísland hefur
þegar gert samning við fyrirtækið
AstraZeneca um kaup á bóluefni
sem dugir fyrir 115.000 ein-
staklinga,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að gert sé ráð fyrir
að Lyfjastofnun Evrópu ljúki um-
fjöllun sinni í janúar um bóluefni
AstraZeneka og að 12. janúar verði
fjallað um leyfi fyrir Moderna.
Tryggjum okkur nægt magn
„Vonir vakna um að við sjáum
ljósið við endann á göngunum. Á
fundi Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar nú 26. nóvember var
greint frá því að samtals 47 bóluefni
væru í ferli, fjögur þeirra komin
lengst og talin veita 70-95% vörn,“
sagði Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra í munnlegri skýrslu
um sóttvarnaráðstafanir og bólu-
setningar á Alþingi í gær.
Svandís sagði að af Íslands hálfu
lægi fyrir samningur við Astra-
Zeneca og samningur við Pfizer væri
langt kominn. Samningurinn við
AstraZeneca fæli í sér kaup á tæp-
lega 230.000 skömmtum sem dugi
fyrir um 115.000 einstaklinga. „Frá
Pfizer eigum við kauprétt á 170.000
skömmtum sem duga fyrir 85.000
einstaklinga og með fleiri samn-
ingum sem eru í undirbúningi
tryggjum við okkur nægt magn
bóluefna,“ sagði ráðherrann.
Fram kom í máli hennar að fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
semji um heildarmagn frá hverjum
framleiðanda og ákveði hvernig það
skiptist á milli hlutaðeigandi þjóða
en hver þjóð geri jafnframt beinan
samning við þá framleiðendur sem
hún hyggst kaupa af bóluefni.
Á upplýsingafundi almannavarna
fyrir hádegi í gær sagði Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir ótíma-
bært að gera ráð fyrir því að bólu-
setning hefjist fljótlega eftir áramót.
Hvetur hann til raunhæfrar bjart-
sýni í þeim efnum. Sagði hann jafn-
framt að skammtar frá Pfizer og
Moderna dygðu ekki til að bólusetja
alla þjóðina. Því þurfi að fá bóluefni
frá AstraZeneca eða öðrum.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs-
dóttir, þingmaður Viðreisnar, spurði
heilbrigðisráðherra á fundi Alþingis
í gær hvenær raunverulega væri von
á bóluefni, þar sem útlit væri fyrir að
ekki lægi ljóst fyrir hvenær bólu-
setningar myndu hefjast, í ljósi um-
mæla sóttvarnalæknis. Svaraði
Svandís því til að bólusetning myndi
hefjast á fyrsta ársfjórðungi 2021.
,,Tilefni spurningarinnar var vita-
skuld sú staðreynd að efnahagsbati
helst mjög í hendur við árangur
gegn þessari heilbrigðisvá – og það
hvenær bólusetning hefst. Vænt-
ingar um endurreisn efnahagslífsins
hafa sömuleiðis mikið að segja, eins
og sást á sterkum viðbrögðum á
hlutabréfamarkaði þegar tíðindi af
bóluefni komu fyrst fram,“ segir
Þorbjörg um þessa fyrirspurn í sam-
tali við Morgunblaðið.
Kom fram í máli heilbrigðis-
ráðherra á þingfundinum í gær að til
þess að vinna bug á veirunni þurfi
hjarðónæmi að nást, þ.e.a.s. 60 til
70% einstaklinga þyrftu að hafa
ónæmi gegn veirunni. „Hjarðónæmi
næst vart fyrr en í lok fyrsta fjórð-
ungs fyrsta árs og mögulega síðar,“
sagði Svandís.
14 smit greindust
14 einstaklingar greindust með
kórónuveirusmit innanlands í fyrra-
dag og var aðeins einn þeirra ekki í
sóttkví. Alls voru þá 205 í einangrun
og fjölgaði um einn á milli daga. Af
þeim sem voru í einangrun eru 176
búsettir á höfuðborgarsvæðinu.
Skrifað undir samninga
um bóluefni í næstu viku
Fyrstu skammtar til landsins fljótlega eftir að leyfi fæst
Nýgengi innanlands:
45,5 nýtt smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
14 ný inn an lands smit greindust sl. sólarhring
100
80
60
40
20
0
205 eru með virkt smit og í einangrun
júlí ágúst september október nóvember
Fjöldi inn an lands-
smita frá 30. júní
Heimild: covid.is
75
1416
99
86
21
Svandís
Svavarsdóttir
Þórólfur
Guðnason
„Við fylgjumst grannt með þróun
mála og erum tilbúin í flutninga um
leið og dreifing lyfjanna getur hafist,“
segir Gunnar Már Sigurfinnsson,
framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.
Þess er skammt
að bíða að dreifing
bóluefnis gegn
kórónuveirunni
geti hafist, sem
kallar á umfangs-
mikla flutninga
lyfja til heilbrigð-
isstofnana frá
birgjum. Þeir
hafa verið í sam-
bandi við flug-
félög, enda þótt litlar upplýsingar séu
gefnar og forsendur þess hvernig
staðið verður að málum því enn að
mestu óljósar.
Meðal framleiðenda lyfja gegn kór-
ónuveirunni eru BioNTech og Pfizer.
Frá síðarnefnda fyrirtækinu hefur
heyrst að 1.000 skammtar af bóluefni
verði í hverjum 40 kílóa kassa. Sam-
kvæmt því má ljóst vera að ummál
varningsins sem flytja skal er í raun
ekki mikið, þótt bólusetja skuli þorra
Íslendinga.
„Spurningarnar sem við höfum eru
fremur varðandi flutninginn, til dæm-
is ef flytja þarf lyfin í þurrís. Skv.
reglum má aðeins ákveðið magn af
þeim kælimiðli vera um borð í flugvél
í einu. Við höfum því óskað eftir frek-
ari upplýsingum,“ segir Gunnar Már.
Síðastliðið vor, í upphafi Covid-far-
aldursins, sinnti Icelandair Cargo
flutningum milli Sjanghæ í Kína og
München í Þýskalandi. Flognir voru
tugir ferða þarna á milli, meðal ann-
ars með lækningavörur. Gunnar Már
segir allt eins mega búast við fleiri
verkefnum af þessum toga þegar
bóluefnið kemur á markað. Fyrir-
spurnir hafi borist þó ekkert sé fast í
hendi. Hjá félaginu séu tiltækar vélar
í svona verkefni. Verkefnið núna sé
að undirbúa það sem hægt er út frá
takmörkuðum upplýsingum, en
stökkva svo af stað um leið og kallið
kemur.
Reikna má með því að fyrstu mark-
aðsleyfin fyrir bóluefni verði veitt Ís-
landi fyrir áramót og afhending bólu-
efna geti þá hafist strax á nýju ári.
Náðst hefur samningur milli Íslands
og AstraZeneca og felur hann í sér
kaup á tæplega 230 þúsund skömmt-
um sem duga fyrir um 115 þúsund
manns, sagði Svandís Svavardóttir
heilbrigðisráðherra á Alþingi í gær.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Frakt Starfsemi Icelandair Cargo er umfangsmikil, en félagið gerir út
nokkrar þotur sem fljúga frá Íslandi til og frá Bandaríkjunum og Evrópu.
Eru undirbúin í
flug með bóluefni
Óljósar upplýsingar, segir Icelandair
Cargo Dreifing hefst eftir áramótin
Gunnar Már
Sigurfinnsson
Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrver-
andi lögreglustjóri á Suðurnesjum,
hefur fengið réttarstöðu sakborn-
ings í rannsókn
héraðssaksókn-
ara á embættis-
færslu hans þar
suður með sjó.
Samkvæmt
heimildum Morg-
unblaðsins lýtur
rannsóknin að
gagnaleka, en
auk Ólafs Helga
hafa tveir aðrir
starfsmenn emb-
ættisins hlotið sömu réttarstöðu.
Gagnalekinn mun snúa að birt-
ingu bréfs sem Ólafur sendi dóms-
málaráðuneytinu í sumar, en var
jafnframt lekið til Fréttablaðsins. Í
bréfinu, sem var sent áður en Ólaf-
ur náði samkomulagi við ráðuneytið
um framtíð sína, fór hann meðal
annars fram á rannsókn á veikinda-
leyfi tveggja yfirmannanna við
embættið, en honum þóttu samtíma
veikindi beggja ósennileg í ljósi ill-
deilna þeirra við sig.
Óstaðfestar heimildir bera að
fleiri sakargiftir hafi verið tilkynnt-
ar til saksóknara, en óvíst er hvort
annað sé rannsóknar en hinn meinti
gagnaleki. Nefnt var að athygli
hefði verið vakin á greiðslu á verk-
takareikningi fyrir almannatengsl,
sem Ólafur Helgi óskaði eftir, en
áhöld hefðu verið um heimildina til
þess. Fjármálastjóri embættisins
neitaði að greiða reikninginn, en
uppskar áminningu lögreglustjór-
ans þáverandi fyrir og var reikning-
urinn greiddur. Settur lögreglu-
stjóri í stað Ólafs Helga afturkallaði
áminninguna skömmu síðar.
Þær Súsanna Fróðadóttir sak-
sóknari og Hulda Oddsdóttir,
skjalastjóri hjá embættinu á Suð-
urnesjum, hafa einnig fengið rétt-
arstöðu sakborninga í rannsókn-
inni. Þær voru sendar í leyfi frá
störfum í síðustu viku og var sam-
starfsfólki tilkynnt um það. Ólafur
Helgi mun sömuleiðis hafa verið
sendur í leyfi, líkt og reglan er ef
fólk fær stöðu sakbornings við
sakamálarannsókn.
andres@mbl.is
Með réttarstöðu
sakbornings
Ólafur í leyfi Gagnaleki í rannsókn
Ólafur Helgi
Kjartansson
Samþykkt var á Alþingi í gær, að til-
lögu frá efnahags- og viðskipta-
nefnd, að hækka sóknargjöld frá því
sem gert var ráð fyrir í fjárlaga-
frumvarpi næsta árs.
Meirihluti nefndarinnar lagði til
að föst krónutala sóknargjalda
myndi hækka í 1.080 krónur á mán-
uði á næsta ári fyrir hvern ein-
stakling 16 ára og eldri og var það
samþykkt. Gert hafði verið ráð fyrir
að krónutalan yrði 980 kr. á hvern
einstakling.
Áætlað er að þessi hækkun sókn-
argjalda auki framlögin til þjóð-
kirkjusafnaða og skráðra trúfélaga
um 280 milljónir króna á næsta ári
umfram það sem gert hafði verið ráð
fyrir í upphaflegu fjárlagafrumvarpi.
Eins og fram hefur komið hafa
forsvarsmennn þjóðkirkjunnar
gagnrýnt að til stæði að skerða sókn-
argjöldin þrettánda árið í röð.
Halda þeir því fram að sóknar-
gjöldin ættu með réttu að vera 1.815
kr. á hvern einstakling ef lögum
væri framfylgt. omfr@mbl.is
Sóknargjöld hækka
um 280 milljónir kr.
Neskirkja Söfnuðir munu fá hækkun.