Morgunblaðið - 04.12.2020, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
Litur: Svartur/ Dark Ash Walnut
að innan. 2020 GMC Denali,
magnaðar breytingar t.d. 10 gíra
skipting, auto track millikassi,
multipro opnun á afturhlera,
flottasta myndavélakerfið á
markaðnum ásamt mörgu fleirra.
5th wheel í palli.
VERÐ
13.190.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 GMC Denali Ultimate 2500
Litur: Silver/ Grár að innan.
6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of
torque, 4X4, 10-speed Automatic
transmission. 6 manna.
Heithúðaður pallur.
VERÐ
11.290.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 Ford F-350 XLT 6-manna
Litur: Carbon Black/ Walnut að
innan. 2020 GMC Denali, magn-
aðar breytingar t.d. 10 gíra skipting,
auto track millikassi, multipro
opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum
ásamt mörgu fleira. Samlitaðir
brettakantar, gúmmimottur í húsi
og palli.
VERÐ
13.190.000 m.vsk
2020 GMC Denali Ultimate 3500
ATH. ekki „verð frá“
Nú stendur yfir
sýning á verkum
Anne Thorseth
og Þóru Sigurð-
ardóttur í sýn-
ingarsal félags-
ins Íslensk
grafík í Hafnar-
húsinu, hafnar-
megin, og er op-
in daglega frá
kl. 14 til 17 til 6. desember. Á sýn-
ingunni má sjá málverk sem Thor-
seth hefur unnið með egg-
temperu á bómullarpappír og
teikningar á striga sem Þóra hef-
ur unnið, einnig með egg-
temperu, kolum og grafít.
Thorseth og Þóra hafa m.a.
unnið saman að verkefninu My
place / your place og sýnt á sýn-
ingarstöðum í Danmörku og á Ís-
landi, fyrst í Galleri Lars Borella í
Kaupmannahöfn árið 2005, eins
og fram kemur í tilkynningu.
Thorseth býr og starfar í Dan-
mörku og hefur unnið sem mynd-
listamaður frá því hún lauk námi
við Listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn árið 1982. Hún hefur
rekið eigin vinnustofu, sýnt verk
sín reglulega og kennt í lista- og
listaháskólum víðs vegar um Dan-
mörku.
Þóra lauk framhaldsnámi í
myndlist, skúlptúr og rými frá
Det Jyske Kunstakademi í Dan-
mörku árið 1991 og hefur sýnt
verk sín á einkasýningum og sam-
sýningum frá því hún lauk námi
og hefur auk þess sinnt kennslu
og stjórnun við Myndlistaskólann í
Reykjavík, kennt við Listaháskól-
ann og unnið að sýningarstjórnun.
Kalk, kol, litur og
egg á hör og bómull
Þóra Sigurðardóttir
Sýningin Hafnarfjörður - verk úr
safneign var opnuð í aðalsal
Hafnarborgar 1. desember. Á
henni má sjá verk sem tengjast
bænum og eru þau elstu frá því
snemma á síðustu öld.
„Það er ekki bara Hafnfirð-
ingum sem þykir Hafnarfjörður
fallegur, heldur hefur samspil
byggðarinnar og hraunsins í
Hafnarfirði sömuleiðis heillað
marga listmálara í gegnum tíðina.
Í safneign Hafnarborgar eru fjöl-
mörg verk sem tengjast bænum,
þau elstu frá því snemma á 20.
öld. Nú leitum við í þennan fjár-
sjóð og gefum Hafnfirðingum og
gestum þeirra tækifæri til að sjá
hvernig staðarandi bæjarins birt-
ist í myndlistarverkum frá því á
síðustu öld. Hér má sjá bæinn í
gegnum augu listamanna, þar á
meðal helstu meistara íslenskrar
myndlistar. Meðferð þeirra á við-
fangsefninu er hefðbundin, fí-
gúratíf nálgun þar sem þekkja má
fyrirmyndina úr veruleikanum,“
segir í tilkynningu.
Fyrir utan Reykjavík eru fáir
þéttbýlisstaðir á Íslandi myndefni
jafn margra listaverka og Hafnar-
fjörður, segir þar og að verkin
sem nú séu sýnd séu mörg úr
stofngjöf hjónanna Ingibjargar
Sigurjónsdóttur og Sverris Magn-
ússonar sem ráku apótek í hús-
næði Hafnarborgar um áratuga
skeið. Hluti verkanna hefur und-
anfarin ár hangið í fundarsal
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
Meðal listamanna sem eiga
verk á sýningunni eru Nína
Tryggvadóttir, Hörður Ágústs-
son, Jóhannes Kjarval, Jón Gunn-
arsson, Gréta Björnsson og Jón
Engilberts.
Sýningin varð til á stuttum tíma
þar sem ákvörðun var tekin um
að fresta fyrirhugaðri sýningu á
verkum Libiu Castro og Ólafs
Ólafssonar vegna samkomutak-
markana.
Hafnarfjörður Málverk eftir Jón Engilberts sem er á sýningunni.
Bærinn með augum listamanna
Sumardvöl í sveit er skemmti-legt sagnaminni íslenskrarithöfunda. Frásagnirnareru gjarnan sveipaðar ævin-
týraljóma og víst nemur borgar-
barnið margt áhugavert komið í nán-
ast aðra veröld.
Umhverfið er
framandi og takt-
urinn í mannlífinu
hægur. Sú var að
minnsta kosti tíð-
in þegar Sólveig
Pálsdóttir fór
fimm ára gömul í
sveit að bænum
Hraunkoti í Lóni
til hjóna sem þar bjuggu með systur
bóndans. Dagarnir líða einn af öðrum
við bústörf og heimilishald og virðast
fábreyttir, en þegar saga þeirra er
skráð áratugum síðan birtast þeir
einn af öðrum sem perluband fal-
legra minninga.
Í formála bókar sinnar Kletta-
borgin segir Sól-
veig Pálsdóttir að
þegar heimsfar-
aldur kórónuveir-
unnar skall á hafi
hún fundið með
sér sterka þörf til
þess að skrifa um
gott fólk sem hún
kynntist í æsku
og mótaði sig. Þar
er Hraunkotsfólkið efst á blaði, en
einnig foreldrar, kennarar, skóla-
systkini og góður afi: Ásgeir Ásgeirs-
son forseti Íslands. Leiklist, ferðalög
til útlanda og fleira kemur einnig við
sögu. Fátt virðist sömuleiðis dregið
undan; allar fjölskyldur eiga sín
vandamál þótt hið gleðilega sé yfir-
gnæfandi.
Lengi man svo til lítilla stunda sem
barnshugurinn nemur sterkt; eyrna-
verkur í flugvélinni, kökuboð í sveit-
inni, kirkjukórssöngur, æskuástir og
andlát. Úr þessu öllu spinnur Sólveig
einkar fallega, í vel meitluðum,
glettnum og viðfelldnum texta og
stuttum köflum sem gera bókina
þægilega aflestrar. Umfram allt gef-
ur Klettaborgin okkur mynd af höf-
undinum sem hefur átt áhugavert líf
og kann að segja sögu. Góðar myndir
hafa vægi, frágangur er allur hinn
besti en kápan hefði mátt vísa sterk-
ar til þess sem leynist í klettum
minninganna.
Glettni og góðar
minningar
Ævisaga
Klettaborgin bbbbn
Eftir Sólveigu Pálsdóttur.
Salka 2020. Innb., 196 bls.
SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
BÆKUR
Sólveig Pálsdóttir
Þríleikur Sigrúnar Elíasdóttur,
Ferðin á heimsenda, hófst á síðasta
ári með bókinni Leitin að vorinu
þar sem sagt var frá ævintýraferð
þeirra Húgó og Alex að grafast
fyrir um það hví ekki voraði í
Norðurheimi. Önnur bókin í þrí-
leiknum, Týnda barnið, kom svo út
á dögunum.
Sigrún Elíasdóttir er sagnfræð-
ingur og fyrir nokkrum árum kom
út bókin Kallar hann mig, kallar
hann þig sem segir frá Jóhannesi
Arasyni frá Seljalandi í Gufudals-
sveit, afa hennar. Hún segir að
kveikjan að Ferðinni á heimsenda
hafi komið í námskeiði í ritlist í
Háskóla Íslands hjá Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur. „Þar vorum við að
skoða fjölskyldubókmenntir, bækur
sem höfða til sem flestra í fjöl-
skyldunni. Sagan byrjaði sem verk-
efni hjá henni og varð svo loka-
verkefnið mitt í ritlistinni sem heil
bók undir leiðsögn Sigþrúðar
Gunnarsdóttur hjá Forlaginu.
Þannig komst þetta inn á borð hjá
Forlaginu og þau voru tilbúin að
gefa þessu séns sem þríleik.“
Sigrún segist ekki hafa verið
með bækurnar þrjár klárar þegar
sú fyrsta kom út, en útlínurnar hafi
verið klárar frá upphafi, hvert þau
Húgó og Alex myndu fara, hvert
vandamálið væri og hvernig það
myndi enda.
Það dettur innblástur úr ýmsum
áttum inn í bækurnar og Sigrún
segist hafa af að sækja í sagnir
héðan og þaðan. „Sumir þekkja
þær en ekki endilega allar, það er
gaman að kynna svona fyrir krökk-
um.“
— Það má líka sjá innblástur
víða að í teikningunum.
„Já, einmitt. Simmi, Sigmundur
Breiðfjörð Þorgeirsson, á samt all-
an heiðurinn af því. Hann les hand-
ritið og kemur með tillögur að við-
fangsefnum og útliti. Mér hefur
alltaf fundist allt svo frábært sem
hann gerir að að ég hef varla gert
neinar athugasemdir. Hann hefur
mjög gaman af svona furðuskepn-
um líka.“
— Þú ert líka að leika þér með
ólíkar samfélagsgerðir, samanber
„lýðræðið“ í Norat og svo kyn-
þáttamismunun í Ankeró.
„Það koma mörg réttlætismál
upp og gestir sem koma inn í sam-
félög koma oft auga á fáránleika
ríkjandi fyrirkomulags. Ég hef
þurft að passa mig að detta ekki of
mikið inn í predikanir í þeim efn-
um, eða ég vona að ég hafi náð að
passa mig. Þar kemur góður rit-
stjóri sterkur inn.“
— Er lokabókin tilbúin?
„Nei, hún er svona hálfnuð, ég er
búin að lofa að skila henni inn í
janúar. Ætli jólin fari ekki í að
klára þetta.“
— Verður ekki erfitt að skilja við
heiminn sem þú hefur skapað?
„Jú, synir mínir hafa einmitt
sagt mér að ég geti svo gert „spin
off“ sögur héðan og þaðan úr hon-
um, en ég hef svo sem ekki stórar
áhyggjur af því, það er alltaf hægt
að búa til nýja heima og sögur.“
arnim@mbl.is
Alltaf hægt að búa til
nýja heima og sögur
Ný bók í þríleik Sigrúnar Elíasdóttur um Húgó og Alex
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rithöfundurinn Sigrún Elíasdóttir segir innblástur detta inn í bækurnar úr
ýmsum áttum. „Það er gaman að kynna svona fyrir krökkum,“ segir hún.