Morgunblaðið - 04.12.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.12.2020, Blaðsíða 29
ur og ævintýraland, sem þau hafa skapað í gegnum árin. Steina, Áslaug og Rut voru mjög samrýndar systur og nánar vinkonur. Átti ég því láni aða fagna að verða ein af þeim. Við kölluðum okkur „systurnar“. Einnig er mikill og góður sam- gangur við bræðurna Matthías, Ólaf og fjölskyldur. Nokkrar stelpuferðir voru farnar. Ógleymanleg er 70 ára af- mælisferð Steinu til Kaupmanna- hafnar, þegar við „systurnar“ og dæturnar, Kristín Fjóla, Silja Rún og Heba, þustu með okkur um alla borgina og sýndu okkur allt það markverðasta. Steina var félagslynd og hrók- ur alls fagnaðar, enda frásagnar- gleði hennar mikil sem kitlaði hláturtaugarnar. Steina hélt „konuboð“ í 20 ár, með 20 konum. Var allt lagt undir í fræðslu, kveð- skap og matargerð. Eftirminnileg boð, sem við þurftum að hafa fyrir að mæta í. Hún var ein af okkur stofnfélögum Lionessu- og Lions- klúbbsins Kaldár. Sat hún í stjórnum, sem formaður, ritari og gjaldkeri. Einnig formaður ým- issa nefnda. Hún var alltaf tilbúin að starfa fyrir klúbbinn. Kaldár- konur minnast Steinu með sökn- uði eftir 34 ára samveru. Steina var einnig félagi í Odd- fellow-stúkunni Rannveigu. Lét hún til sín taka þar. Stofnuðum við Gulli og Steina verslunina Ösp, að Strandgötu 11 hér í bæ. Störfuð- um við öll þar ásamt góðu starfs- fólki. Var þetta fyrir daga stór- markaða og verslunarmiðstöðva. Þótti bæjarbúum gott að koma í Öspina og sækja sér vörur, þegar búið var að loka matvöruverslun- um. Það er mikið lán að eignast slíka góða vini eins og Steinu, Gulla og fjölskyldu. Áttum við fjölskylda mín margar skemmti- legar samverustundir í gegnum árin, bæði innanlands og erlendis, sem við þökkum fyrir á þessari kveðjustund. Hvíl í friði, elsku vinkona. Birna Loftsdóttir. Í dag kveðjum við, fjölskylda Sigríðar, tengdadóttur Steinunn- ar Bjarnadóttur, hana með virð- ingu og þökkum fyrir góð kynni á liðnum áratugum. Steinunn átti farsæla lífsgöngu sem einkennist af gjörvileika og glæsimennsku. Þar kom til traustur förunautur og barnalán. Hún hafði bæði vilja og burði til að njóta þess umhverf- is sem til staðar var á göngunni. Heimavöllur Steinunnar var hér í Hafnarfirði, ólst hér upp, sótti nám við Flensborgaskóla og lauk gagnfræðaprófi frá þeim skóla. Að því loknu hóf hún sinn starfsferil, fyrst við verslunar- störf og rak eigið fyrirtæki um tíma, en lauk starfsævi sinni á skrifstofu hjúkrunarheimilis Hrafnistu hér í firðinum. Eftirtektarvert var hvað þau hjónin voru samstiga við að búa sér, börnum sínum og fjölskyldum þeirra fagurt heimili og þá var ekki síður ánægjulegt að heim- sækja þau í sumarhús þeirra. Við- mót sem bar vott um smekkvísi sem gott var að njóta þegar þau voru heimsótt. Þá voru þau hjónin félagslynd og vinmörg og störfuðu bæði í Oddfellowreglunni og Lionsklúbbi hér í Hafnarfirði. Það var sárt að fylgjast með því síðustu árin hvernig sjúkdómur varð smátt og smátt til þess að Steinunn fjarlægðist umhverfi sitt. Hún glímdi við sjúkleika sinn af elju og þrautseigju og þar naut hún viðveru og umhyggju eigin- manns og fjölskyldunnar. Ætla má, þegar svo var komið, að Stein- unn hafi yfirgefið þennan heim fullkomlega sátt við lífið og það sem það gaf henni. Við fjölskylda Sigríðar vottum Gunnlaugi Fjólari, börnum þeirra og fjölskyldum okkar dýpstu sam- úð. Blessuð sé minning hennar. Sigurður Þórðarson. Gengin er mín góða vinkona Steinunn Bjarnadóttir. Við Steina bundumst órjúfan- legum vinaböndum á unglingsár- um og vorum samferða í gegnum lífið. Hún var Hafnfirðingur fram í fingurgóma; dugleg, reglu- og samviskusöm. Þá var hún smá- munasöm og skipulögð enda fædd í meyjarmerkinu eins og við grín- uðumst með. Hún var góður og skemmtilegur vinur en hlátrasköll sem breyttust í vein voru rauður þráður þegar við hittumst. Það var gæfuspor þegar Gulli og Steina felldu hugi saman. Þau eignuðust þrjú dásamleg börn, bjuggu sér fallegt heimili og stóðu saman í lífsins ólgusjó. Þau rækt- uðu fjölskylduna og vinagarðinn. Þau voru samhent hjón enda bæði einstakir fagurkerar og dugnað- arforkar sem voru höfðingjar heim að sækja. Á milli eiginmanna okkar og fjölskyldna ríkir vinátta. Sum- arbústaðir okkar eru í nálægð og því mikill samgangur. Það var ein- stakt að heimsækja Steinu og Gulla í Hreiðrið, sem er réttnefni fyrir þann fallega bústað sem þau gæddu töfrum og fegurð. Steina var grand. Það sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún fal- lega og vel. Kvennaboð Steinu rifu mann úr hversdagsleikanum á ævintýraslóðir þar sem nostrað var við hvert smáatriði. Hún var glæsileg og smart til fara, gjarnan í pastellitum og viss bleikur litur minnir mig alltaf á hana. Þá var hún alltaf með fallega skartgripi og tendraði hún áhuga minn á eð- alsteinum þegar hún vann í Dem- antshúsinu og hjá Guðrúnu gull- smið. Okkur vinkonunum bar gæfa til þess að ferðast mikið saman bæði innan- og utanlands með mökum og fríðu föruneyti. Þar fórum við oft í fatabúðir og oftar en ekki sagði ég við Steinu að hún ætti ekki skilið að vera grönn þeg- ar hún kvartaði þótt flíkin smell- passaði. Á hverju ári hlakkaði ég til að fá fallega skrifað jólakort frá þeim hjónum en Steina sendi persónu- lega kveðju og gjarnan með mynd af okkur á ferðalagi á því ári sem var að líða. Slík minningabrot eru fjársjóður í dag. Þegar sjúkdómurinn ágerðist bar Steina ekki byrðarnar ein. Systur hennar og fjölskylda reyndust henni vel og sýndu hlýju og umhyggju. Gulli vék ekki frá Steinu sinni og sýndi henni ein- staka ást og alúð. Ég hafði vonast til þess að við vinkonurnar gætum orðið sam- ferða á efri árum en nú er komið að kveðju- og þakkarstund. Ég óska þér hinnar bestu ferð- ar í Sumarlandið, elsku vinkona. Guð blessi minningu Steinunnar Bjarnadóttur. Elsku Gulli, Bjarni Þór, Sigga, Kristín Fjóla, Silja Rún og Frið- rik. Við Þorsteinn sendum ykkur og fjölskyldunni allri okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Auður Bjarnadóttir. Kær vinkona, Steinunn Bjarnadóttir, hefur kvatt þetta jarðlíf. Ég kynntist Steinunni og fjölskyldu hennar þegar sonur minn Friðrik hóf sambúð með Silju Rún, yngstu dóttur Stein- unnar og Gunnlaugs. Steinunn var yndisleg kona, elskuleg og hlý í viðmóti. Þau hjónin Steinunn og Gunnlaugur voru einstaklega gestrisin, alltaf tóku þau á móti okkur fagnandi, hvernig sem á stóð. Steinunn var glæsileg kona og alltaf vel tilhöfð og fallega klædd. Heimili þeirra hjóna var einstaklega fallegt, bæði í Mávahrauninu og Skipa- lóni. Sumarbústaður þeirra hjóna fyrir austan fjall var líka sérstak- ur sælureitur og handaverk hús- bóndans og húsfreyjunnar leyndu sér ekki. Mér þótti mjög vænt um Stein- unni og sakna hennar mikið. Hún var óspör á hrósið og alltaf glaðleg og broshýr. Samband þeirra Gunnlaugs var einstaklega ástríkt og hlýtt. Fyrir fáeinum árum greindist Steinunn með ólækn- andi sjúkdóm sem leggst á fólk á ýmsum aldri og annaðist Gunn- laugur hana heima svo lengi sem það var unnt, með góðri hjálp systra hennar og fjölskyldunnar allrar. Síðasta skiptið sem við Stein- unn sáumst var hún komin á hjúkrunarheimilið Sólvang. Hún tók mér fagnandi eins og alltaf og við spjölluðum lengi á léttu nót- unum og áttum góða og glaða stund saman. Vegna Covid-far- aldursins gafst mér ekki kostur á að hitta hana aftur, en geymi minninguna um þessa góðu stund okkar. Allar samverustundir okk- ar Steinunnar voru indælar og ég mun geyma með mér dýrmætar minningar um hana. Ég vil að lokum senda Gunn- laugi og fjölskyldunni allri innileg- ar samúðarkveðjur og þakka alla vinsemd í minn garð gegnum árin. Minningin um góða og mæta konu mun lifa um ókomin ár. Blessuð sé minning Steinunnar Bjarnadóttur. Þrúður Kristjánsdóttir, Búðardal. Það var vaskur hópur ungra kvenna sem stofnaði Lionsklúbb- inn Kaldá í Hafnarfirði 25. febr- úar 1992 og þar á meðal var Stein- unn stofnfélagi. Við höfðum nokkru áður stofn- að Lionessuklúbbinn Kaldá en strax og breytingar urðu hjá Al- þjóðahreyfingu Lions og konur fengu full réttindi sem Lionsmenn þá stofnuðum við Lionsklúbbinn Kaldá. Okkur félögunum varð snemma ljóst að Steinunn var mikill og sannur Lionsmaður. Einstaklega hugmyndarík, ósér- hlífin, dugleg og dreif okkur með sér í verkefnin sem voru af ýms- um toga fyrstu árin. Hún hafði alltaf tíma fyrir Lions og klúbbinn okkar sem hún var svo stolt af og bar mikla umhyggju fyrir. Steinunn gegndi mörgum emb- ættum í klúbbnum, formaður, rit- ari, gjaldkeri og formaður ýmissa nefnda í gegnum árin að ógleymdu embætti ljósmyndara sem hún vann af mikilli alúð og vandvirkni sem og öll sín störf í klúbbnum. Hver man ekki eftir jólafund- unum okkar, allar með hatta og hver var með glæsilegasta hatt- inn? Það var Steinunn alltaf svo glæsileg svo af bar. Afmælisferðin til Kaupmanna- hafnar þar sem við fögnuðum ára- tuga Lionsstarfi og skemmtum okkur saman. Hver gerði þá ferð ógleymanlega með fallegu hefti með myndum og texta? Það var Steinunn sem gerði það og afhenti okkur ferðafélögunum í Kaup- mannahöfn. Já margs er að minnast og þakka fyrir á löngum Lionsferli og mörg eru þau spor sem við skulum minnast með góðum fé- laga sem ávallt lét gott af sér leiða. Innilegar samúðarkveðjur til eiginmanns og fjölskyldu. Fyrir hönd Lionsklúbbsins Kaldár, Jórunn Jörundsdóttir. Steina, kær vinkona okkar og leiksystir, er fallin frá 76 ára að aldri. Við höfum þekkst frá því við munum eftir okkur, allar á Hraunkambinum og nágrenni. Leiðtogahæfileika hafði hún mikla og var hún ekki nema 10-11 ára þegar hún skipulagði skóla- starf fyrir okkur yngri stelpurnar og var Áslaug systir hennar þar með. Hún kenndi okkur lestur, skrift og upplestur. Steina stjórn- aði heilu leikþáttunum með okkur og fórum við t.d. með kvæðabálk, „Gleraugun hans afa“ á stúkuf- undi í Gúttó. Veitingar voru líka af ýmsu tagi, kaldir Royal-búðingar hrærðir á staðnum og við alsælar. Ótrúlegt hvað hún nennti að hafa okkur með í alls konar leiki. Hraunkamburinn og hraunið allt í kring var líka okkar heimur. Árin liðu og alltaf fylgdumst við með hver annarri. Á unglingsárum fór Steina í snyrtiskóla og við horfðum agn- dofa á hvernig ætti að ganga og mála sig. Alltaf var hún líka glæsi- leg bæði í fasi og klæðaburði. Svo komu fullorðinsárin og við fylgd- umst spenntar með þegar Steina og Gulli fóru að vera saman. Fyrir um 20 árum átti Steina frumkvæði að því að við gömlu leiksysturnar hittumst, þá var Guðríður Aðalsteinsdóttir líka í hópnum en hún lést árið 2003. Steina bauð okkur austur í hreiðr- ið þeirra Gulla og höfum við komið saman einu sinni á ári eftir það. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir) Við leiksystur, Áslaug, Ásta, Dódý, Ella Rúna, Guðný, Hall- dóra, Henný og Sigrún, sendum elsku Gulla og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðju. Sigrún Óskarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Steinunni Bjarnadótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020 ✝ GuðmundurGuðmundsson fæddist á Seljavegi í Reykjavík 14. febrúar 1951. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands, Selfossi, 19. nóvember 2020. Foreldrar hans voru Guðmundur Björnsson, f. 13.7. 1914, d. 29.12. 1970 og Ólafía Karlsdóttir, f. 8.12. 1923, d. 11.8. 1998. Systkini Guð- mundar eru: 1) Björn, f. 29.2. 1944, d. 8.6. 2008, 2) Karl Þor- steinn, f. 21.5. 1947, d. 5.12. 1973, 3) Alfreð, f. 31.5. 1948, 4) Ásthildur, f. 31.3. 1953, 5) Guð- rún Margrét, f. 10.4. 1961 og 6) Salóme Þorbjörg, f. 2.8. 1966. Árið 1971 giftist Ólafía Pálma Ingólfssyni, f. 19.8. 1928, d. 24.4. 2013 og gekk hann þeim systk- inum í föðurstað. 14.7. 1975, saman eiga þau 5) Rakel Rós, f. 28.10. 2008. Þegar Guðmundur var sjö ára fluttist hann ásamt foreldrum og systkinum í Kjósina. Hann dvaldi á heimavist við grunnskólann Ásgarð í Kjós og sótti síðar nám við Gagnfræðaskólann í Mos- fellssveit. Guðmundur bjó um tíma í Hafnarfirði en fluttist til Hveragerðis ásamt fjölskyldu sinni árið 1990, þar sem hann bjó allt til dauðadags. Guðmundur lærði bifvélavirkjun og síðar vél- stjórn og vann um tíma sem bif- vélavirki og sem vélstjóri til sjós. Guðmundur vann einnig við vik- urkeyrslu og uppskipun hjá Jarðefnaiðnaði ehf. í Þorláks- höfn. Í seinni tíð var Guðmundur virkur flokksmaður Framsókn- arflokksins á Suðurlandi og einnig virkur í félagsstarfi Lionsklúbbs Hveragerðis. Útför Guðmundar verður gerð frá Hveragerðiskirkju í dag, 4. desember 2020, og hefst athöfnin kl. 13. Streymt verður frá útförinni á slóðinni: https:// www.promynd.is/gudmundur Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat Guðmundur kvæntist Þor- björgu Sigurð- ardóttur, f. 15.9. 1958, d. 25.6. 2005. Synir Guðmundar og Þorbjargar eru: 1) Karl Valur, f. 30.6. 1983, maki Anna Kristín Kristjánsdóttir, f. 20.11. 1982, dætur þeirra eru Þor- björg Ýr og Hugrún Sif, 2) Sig- urður Hrafn, f. 5.4. 1990, 3) Bjarki Þór, f. 12.3. 1991, maki Petra Dagmar Björnsdóttir, f. 16.5. 1991, saman eiga þau son- inn Björn Heiki. Fyrir átti Bjarki soninn Guðmund Marís og Petra dæturnar Hugrúnu Björk, Andreu Dögg og Elínu Diljá, 4) Andri Geir, f. 21.10. 1994. Árið 2019 kvæntist Guð- mundur Ginu Llido Ranara, f. Elsku tengdapabbi. Fimmtudagurinn 19. nóvem- ber heilsaði okkur kaldur en bjartur. Er líða tók að kvöldi minnti veturinn á sig með hríð- arbyl. Hríðarbylurinn var ekki bara fyrir utan gluggann heldur einnig í hjörtum okkar. Þú hafð- ir lagt augun aftur í hinsta sinn. Það er erfitt að skrifa til þín kveðjuorð en um leið gott að ylja sér við minningar. Ég kynntist þér fyrir rúmum 15 ár- um þegar við Kalli fórum að stinga saman nefjum. Þú hafðir þá nýverið misst elsku Tobbu og varst faðir fjögurra ungra drengja sem höfðu misst móður sína. Þetta var ekki auðvelt hlutskipti og missir ykkar mikill, en þú tókst utan um alla eins vel og þú gast og gerðir þitt besta í að halda lífinu í sem föstustum skorðum. Þú tókst mér líka opn- um örmum frá fyrsta degi og ég sá fljótt að undir yfirborðinu, sem stundum virtist hrjúft, leyndist hjartahlýr maður sem gerði allt fyrir fólkið sitt. Þótt erfitt sé að hugsa til þess núna að öll él birti upp um síðir, þá má segja að birt hafi til í þínu lífi þegar þú kynntist Ginu og enn bjartara varð þegar Rakel Rós bættist í barnahópinn og systkinin urðu fimm. Með þeim og okkur öllum hélt lífsins ferða- lag áfram. Enn stækkaði faðmur þinn þegar barnabörnin bættust í hópinn, þau áttu hvert og eitt stóran sess í hjarta þínu og augu þín ljómuðu upp í návist þeirra. Þú hafðir unun af því að ferðast um landið, sérstaklega á sumrin. Þá var stundum for- vitnilegt að sjá hvaða fararskjóti eða ferðavagn varð fyrir valinu í hvert skipti, var það gamli hús- bíllinn, fellihýsi eða „nýr“ gam- all húsbíll. Það fór alla vega ekki fram hjá okkur þegar farar- skjótinn mætti á staðinn, hann var yfirleitt ekki sá hljóðlátasti á svæðinu. Það vantaði mikið þegar þú gast ekki lengur komið með okkur í útilegu í sumar en eftir sitja minningar um Þórs- merkurferðir og útilegur víðs vegar um landið. Ferðalag þitt hefur nú tekið stefnu í Sumarlandið, hvar það mun halda áfram. Þú munt þó áfram verða samferða okkur sem eftir sitjum, bæði í hjörtum og huga og ég lofa að segja afas- telpunum þínum sögur af ynd- islega afa Gutta, minnast hlát- ursins, kímnigáfunnar, hlýjunnar og langa „jáááá-sins“ þegar þú svaraðir í símann. Nóttina eftir að þú lagðist inn á sjúkrahúsið í hinsta sinn dreymdi mig heimsókn okkar fjölskyldunnar til þín. Þegar við komum upp stóðstu stálsleginn við rúmið. Nú veit ég að þótt þú hafir farið veikur inn þá fórstu heilbrigður á vit þeirra ævintýra sem bíða þín í Sumarlandinu. Við söknum þín. Hvíldu í friði elsku Gutti. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þín tengdadóttir, Anna Kristín. Það er alveg sama hversu vel við hugsum um okkur, við verð- um ekki eilíf. Okkur er talin trú um að mjólk sé ofurfæða, ráð- lagður dagskammtur tvö glös. Gutti bróðir drakk tvo lítra af mjólk á dag en ekki vegna holl- ustunnar heldur vegna þess honum þótti hún góð. Einn dag- inn sagði hann okkur að hann væri kominn með mjólkuróþol, þetta þótti okkur ansi skondið og nú var komið nóg af þessu mjólkurþambi. Seinna kom síð- an í ljós að þetta var mun alvar- legra en við héldum og virtust ytri öfl ráða þar ferð. Við fáum víst ekkert um það valið þegar dagur okkar rennur upp en áður en að því kemur erum við svo heppin að njóta þess góða sem lífið hefur upp á að bjóða. Gutti hafði að geyma ótelj- andi mannkosti, hann sá alltaf það fyndna við lífið. Hann var lausnamiðaður, það var einstak- lega gott að sækja vit í hann, vissulega munum við öll sakna hans. Hann hafði alltaf réttu svörin og hvert á nú að leita þegar okkur vantar aðstoð við kaup á nýjum bíl eða hver á að stappa stálinu í börnin hans og hver á að slá á öxlina og segja „þetta reddast“? Hægt er að halda endalaust áfram og verður erfitt að fylla þessi fótspor. Hann náði að laða fram það besta í öllum og hann bar sig aldrei saman við nokkra mann- eskju. Hann sýndi öllum tillits- semi, sama hvar sá einstakling- ur var staddur í lífinu. Gutti var svo heppinn að njóta þess góða sem lífið hafði upp á að bjóða. Hann eignaðist fjóra yndislega drengi með Þor- björgu sem féll frá árið 2005 og var það mikill missir í þeirra lífi. Strákarnir fengu nöfnin Andri Geir, Siggi Hrabbi, Bjarki Þór og Karl Valur og voru þeir allir skírðir í höfuðið á vinum Gutta sem fallið höfðu frá um aldur fram. Fyrir 12 ár- um sendu englarnir Gutta ynd- islega stúlku sem færði þeim gleði og hamingju, hann fann ástina á ný. Gína birtist líkt og í draumi, hún hlúði að strákunum og bjó þeim fallegt og hlýlegt heimili. Hún heillaði alla í fjöl- skyldunni með nærgætni sinni og þægilegri framkomu. Með öllum leiðindum og brostnum draumum í þessum heimi er þetta samt dásamlegur heimur með dásamlegar minningar um dásamlegan mann. Ekki má svo gleyma eftirlif- endum: Geymum ekki til hinsta dags að leggja þeim blómsveig, látum þau fá hann strax. Geym- um ei hrósið, hrósum þeim nú. Geymum ei að breiða yfir brest- ina, gerum það nú. Elsku Gína, Rakel Rós, Andri Geir, Siggi Hrabbi, Bjarki Þór og Karl Valur. Við munum aldrei gleyma þessum mæta manni og hans verður sárt saknað. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir. Guðmundur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.