Morgunblaðið - 04.12.2020, Síða 15

Morgunblaðið - 04.12.2020, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020 Bílatónleikar Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson tróð upp á óvenjulegum tónleikum í bílastæðakjallara Hörpu í gærkvöld. Gestir hlýddu á Jón úr bílum sínum og virtust njóta tónleikanna vel. Eggert Það kann að vera nokkuð stórfenglegt að spyrja þeirrar spurningar sem felst í fyrirsögninni. Það er því rétt að svara spurningunni strax. Svarið er einfaldlega nei. Lífeyrissjóði varð- ar ekkert um þjóðar- hag. Lífeyrissjóðir eru ekki hækjur við hag- stjórn. Lífeyrissjóðir hafa aðeins einn til- gang en hann er að tryggja sjóð- félögum lífeyri þegar starfsævi er lokið eða örorkulífeyri ef örorku ber að höndum. Það gerist oft í umræðu um mál- efni og vandamál óskyld lífeyris- sjóðum, að það sé talið verðugt eða viðeigandi að lífeyrissjóðir taki þátt í úrlausn vandamáls. Þannig varð hagvöxtur eitt sinn umræðuefni á Alþingi. Umræðan tengdist auknum heimildum lífeyr- issjóða að fjárfesta í óskráðum verð- bréfum, einkum verðbréfum tengd- um fyrirtækjum með óþekkta viðskiptasögu. Þá taldi þingmaður nokkur það siðferðilega skyldu lífeyrissjóða að standa undir hagvexti á Íslandi á komandi árum. Annar þingmaður taldi það vera kröfu skattgreiðenda að lífeyrissjóðir stæðu undir hag- vexti og stunduðu áhættufjárfest- ingar. Áhættufjárfestingar í fyrir- tækjum eða starfsemi með óþekkta rekstrarsögu er nákvæmlega það sem lífeyrissjóðir skulu forðast. Lífeyrissjóðir verða fyrst hættulegir þegar ákvarðanir um fjárfestingar eru teknar af þeim sem ekki hafa vit til. Peningamálastjórn og lífeyrissjóðir Nú er svo komið að ýmsir minni háttar menn hafa skyndilega orðið vit á peningamála- stjórn. Það er rétt að rifja upp grunnþætti pen- ingamálastjórnar. Seðlabankar víða um lönd beita tækjum sín- um á fjármálamarkaði til að viðhalda stöðug- leika. Seðlabankar hafa fyrst og fremst áhrif á vexti af skammtímalánum. Peningamálastefna getur tæpast ráðið við að ná fullri nýtingu framleiðsluþátta, eins og að koma í veg fyrir atvinnuleysi. Seðlabanki getur stutt við að halda aftur af verðbólgu með verðstöðugleika og að viðhalda traustu fjármálakerfi. Í sumum löndum geta seðla- bankar ekki ráðið við að viðhalda verðgildi gjaldmiðils gagnvart öðr- um myntum. Með verðgildi gagn- vart örðum myntum er átt við fast gengi gjaldmiðils. Ef viðskipti og inngrip seðlabanka á gjaldeyris- markaði er helsti áhrifaþáttur um gengi gjaldmiðils, þá kann það að vera vísbending um gjaldmiðilinn sjálfan. Það er langsótt að verkfæri seðlabanka, þ.e. vextir á skamm- tímamarkaði, peningamagn eða við- skipti með ríkisvíxla og ríkisskulda- bréf, eigi að valda greiðsluerfið- leikum fyrirtækja og einstaklinga vegna langtímalána. Fyrirtæki og einstaklingar geta ekki borið ábyrgð á árangri pen- ingamálastefnu seðlabanka. Fyrir- tæki og einstaklinga varðar ekkert um þjóðarhag. Fyrirtæki og ein- staklinga varðar um eigin hag, en verða að vera viðbúin eðlilegum að- gerðum seðlabanka. Lífeyrissjóðir og gengi gjaldmiðla Lífeyrissjóðir geta ekki borið ábyrgð á gengi gjaldmiðla. Sem fyrr segir ber lífeyrissjóðum að tryggja sjóðfélögum lífeyri. Hluti af áhættustýringu lífeyrissjóða er að koma í veg fyrir eignabólu á heimamarkaði. Stærðar sinnar vegna verða lífeyrissjóðir því að festa umtalsverðan hluta eigna sinna í erlendum verðbréfum, því í gríðarstórum heimi er lítil hætta á eignabólu í samanburði við íslensk- ar eignabólur. Seðlabanki getur því aldrei vænst þess að lífeyrissjóðir hagi fjárfestingum sínum að geðþótta seðlabanka. Það að heimila ekki líf- eyrissjóðum að fjárfesta í erlendum verðbréfum sýnir annaðhvort veik- leika í peningamálastefnunni eða veikleika gjaldmiðilsins, nema hvort tveggja sé. Eindregin tilmæli eru sama eðlis. Eitt sinn þegar hér voru gjald- eyrishöft sögðu ungir menn í riti: „Lífeyrissparnaður í erlendri mynt er forsenda þess að halda stöðugleika á smærri myntsvæðum þar sem hlutdeild innflutnings er tiltölulega mikil af neyslu og sjóða- söfnun er ráðandi lífeyrisform. Hægt er að leiða út þá einföldu þumalfingursreglu að lífeyrissparn- aður eigi að hafa sömu mynt- samsetningu og almenn einka- neysla viðkomandi lands sem fyrir Ísland er um 40-50%. Hægt er að líta á þetta hlutfall sem lágmarks- hlutfall erlendra eigna í safni ís- lenskra lífeyrissjóða.“ Nú virðist sem gjaldeyriseign Seðlabankans sé um 98% af nið- urstöðutölu efnahagsreiknings Seðlabanka Íslands. Fjárfestingarheimildir seðla- banka og lífeyrissjóða erlendis eru mismunandi og eru heimildir seðla- banka til muna þrengri. Erlendar eignir lífeyrissjóða eru einnig gjaldeyrisvarasjóður. Samkomur seðlabankastjóra með stjórnendum lífeyrissjóða geta aldrei orðið annað en saklausir kaffifundir því seðlabanki hefur ekki boðvald yfir lífeyrissjóðum. Ef seðlabankastjóri boðar til fundar um peningamálastefnu með lífeyrissjóðum, þá er það annað- hvort til almennrar kynningar eða þá að það kann að vera merki þess að veikleiki sé í stjórn peningamála og að lífeyrissjóðir verði að vera hækja. Lífeyrissjóðir og kaupmáttur Liðin þrjátíu ár hafa verið mikið hagsældarskeið. Með því að leggja mælikvarða kaupmáttar launa á hagsæld kemur eftirfarandi út, sjá töflu: Á lengri tímabilunum var böl og alheimsstríð með hruni fjármála- kerfisins. Þá töpuðu lífeyrissjóðir sennilega um 15% af eignum sín- um. Ungu mennirnir segja einnig í riti sínu: „Ef Íslandi er alvara að ætla að tengj- ast aftur alþjóðahagkerfinu verða þessi þægindi mögulega að víkja tímabundið á meðan unnið er að því að opna aftur gjaldeyrismarkaðinn. Íslendingar verða líka að horfast í augu við það að með lítinn frjálsan gjaldmiðil er erfitt að lofa stöðugum kaupmætti, lágri verðbólgu og fyrirsjáanlegri greiðslubyrði hús- næðislána.“ Ekki er víst að lífeyrissjóðir hafi endurheimt tjón á eignum við hrun bankanna. Kaupmáttur launa mið- að við neysluverðsvístölu hefur endurheimst og vel það. Lækkun kaupmáttar á hrunárum hefur end- urheimst á árunum eftir hrun. Greiðslur úr lífeyrissjóðum verða aldrei samkomulagsatriði milli „að- ila vinnumarkaðarins“. Því er það enn ríkari skylda stjórnenda líf- eyrissjóða að verja eignir lífeyris- sjóða og réttindi sjóðfélaga svo sem nokkur kostur er. Það er flókið mál að reikna út kaupmátt greiðslna úr lífeyris- sjóðum. Forsendur iðgjalda gera ráð fyrir einhverjum kaupmáttar- breytingum launa til að tekjufall lífeyrisþega verði takmarkað við starfslok. Með því að nota smiðsauga virð- ist sem þróun kaupmáttar lífeyris- greiðslna sé ekki jafn glæsileg og þróun kaupmáttar launa. Og ekki síst vegna þess þá geta eignir lífeyrissjóða ekki verið skiptimynt í kjarasamningum, ekki fremur en að eignir lífeyrissjóða geti orðið hækja peningamála- stefnu. Lífeyrissjóðir og kærleikur Lífeyrissjóðir eru ekki kærleiks- eða góðgerðarstofnanir. Það eru engir varasjóðir í lífeyrissjóðum, því allar eignir lífeyrissjóða eru skuldbindingar við sjóðfélaga um greiðslu lífeyris. Lífeyrissjóðir geta ekki verið stuðningur við peninga- málastefnu og gjaldmiðil og þaðan af síður verið skiptimynt í kjara- samningum. Því eins og lögmaðurinn sagði: „Kærleikinn til míns náunga er fögur kenning barnið gott. Og rétt. En í lífs- háska ræður það lögmál að hver hjálpi sér.“ Eftir Vilhjálm Bjarnason » Svarið er einfaldlega nei. Lífeyrissjóði varðar ekkert um þjóð- arhag. Lífeyrissjóðir eru ekki hækjur við hagstjórn. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Hvað varðar lífeyrissjóði um þjóðarhag? 1990 2,07% 1993 2,37% 2013 4,46% 2017 3,20% Heimild: Hagstofa Íslands launa á ári síðan Kaupmáttarbreyting Útreikningur: V.Bj.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.