Morgunblaðið - 04.12.2020, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020
Jólaföndur
ÞRÍVÍDDARPÚSL
FYRIR ALLA UM JÓLIN
augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
VERÐ FRÁ 890 KR.
Vefverslu
n
brynja.is
L
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hvers kyns rannsóknir liggja vel
fyrir þér í dag og geta skilað góðum ár-
angri. Láttu það eftir þér að vera þú
sjálfur og hafðu ekki óþarfa áhyggjur.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er sjálfsagt að sýna öðrum
kurteisi þótt þú sért ekkert á þeim bux-
unum að kynnast þeim nánar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Munið að hvatning er betra
vegarnesti en aðfinnslur. Nú er rétti tím-
inn til að finna réttu lausnirnar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert algjörlega einbeittur á að
komast í gegnum pappírsstaflann á skrif-
borðinu þínu. Líkur eru á einhverju
óvæntu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú kannt að fá merkilegar upplýs-
ingar sem gætu á endanum haft breyt-
ingar í för með sér. Vertu gagnrýninn en
ekki harður við sjáfan þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur misst sambandið við
vissa vini, ekkert persónulegt, lífið færir
bara fólk í sundur. Mundu samt að hafa
allt gaman græskulaust.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sumir hlutir eru sannir af því að
maður gerir þá sanna. Láttu ekki brjóta á
rétti þínum, sæktu það sem er þitt af ör-
yggi og festu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu það ekki setja þig úr
jafnvægi þótt hlutirnir gangi eitthvað
skrykkjótt fyrir sig. Ein leið til að berjast
fyrir lífsreglum þínum er að lifa eftir
þeim.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Oft er auðveldast að læra að
elska sjálfan sig með því að elska aðra.
Nú er kominn tími til aðgerða svo þú
skalt bretta upp ermarnar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Góðu breytingarnar sem þú
hefur verið að reyna að ná í gegn sein-
ustu ár, verða loks að veruleika.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Maður getur látið drauma sína
rætast, ef maður á sér drauma. Slakaðu
á og gerðu það sem þér þykir skemmti-
legast ef þú getur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu undirbúinn fyrir breytingar
því þær eru til góðs þegar til lengri tíma
er litið. Byrjaðu á því að loka á heim-
sóknir málglaðra vinnufélaga.
anum en síðan að vinna á sjúkrahús-
inu og vann þar í mörg ár en fyrir
rúmlega fjórum árum fór hún að
vinna við skjalavörslu fyrir utanrík-
isráðuneytið. Björn vann fyrst í
Steinullarverksmiðjunni sem vél-
virki, en 1994 fór hann að kenna við
Fjölbrautaskólann á Króknum og
gerir það enn. Drífa dreif sig í kirkju-
kórinn og er þar enn. Síðan er hún í
20 manna kór, sem hún er mjög stolt
af, en það er Kammerkór Norður-
lands, en hún er einn af stofnendum
kórsins. „Í Kammerkórnum er fólk
alveg frá Sauðárkróki og austur á
Kópasker og allt þar á milli. Við reyn-
um að hittast eina helgi í mánuði, en
hlíð árið 1977. Geirmundur hefur
örugglega verið að spila og almenni-
leg skagfirsk sveifla á ballinu. Mér
leist bara svona vel á kappann að
hann situr uppi með mig enn þá,“ seg-
ir hún hlæjandi. Björn fór á undan
Drífu suður í Vélskólann í Reykjavík,
en þegar hún kom fóru þau að búa í
Vesturbænum og enduðu með að
vera í tólf ár fyrir sunnan. Í bænum
fór Drífa í Pólífónkórinn og var einnig
í Þjóðleikhússkórnum og svo í söng-
hópum í Tónlistarskólanum og Björn
vann í Vélsmiðjunni Héðni.
Árið 1990 fluttu hjónin til Sauð-
árkróks, heimabæjar Björns. Fyrst
fór Drífa að kenna í Tónlistarskól-
S
igurdríf Jónatansdóttir
fæddist 4. desember 1960
í Bolungarvík og ólst þar
upp til ellefu ára aldurs,
en þá flutti fjölskyldan til
Akureyrar. „Það var mjög gaman að
alast upp í Bolungarvík. Ég man eftir
mér fyrst í þorpinu þar sem ég átti
bestu vinkonu í næsta húsi. Síðan flyt
ég fram í Meirihlíð, líklega 5-6 ára.
Fyrsta minningin úr sveitinni var að
ég var skíthrædd við beljurnar í fjós-
inu og ég þurfti minn tíma til að taka
þær í sátt. En eftir tvo daga tilkynnti
ég öllum heima að ég væri ekkert
hrædd við þær lengur.“
Sigurdríf, sem er alltaf kölluð
Drífa, er mjög hláturmild og oft ískr-
ar í henni þegar hún rifjar upp gamla
tíma. Drífa var afar hænd að föður
sínum, Jónatan, sem lést við háan ald-
ur í fyrra. „Ég elti hann út um allt,
enda var hann alltaf mjög léttur og
kátur og mér fannst ég bara eiga
hann með húð og hári og var alltaf
mikil pabbastelpa.“
Árið 1971 flutti fjölskyldan til Ak-
ureyrar og Drífa segir það hafa verið
mikil viðbrigði. „Fólkið talaði allt öðru-
vísi, næstum eins og það væri annað
tungumál. Mér var boðin mjólk,“ segir
hún með norðlenskum framburði, „og
beðin um að ná í bekkjarýjuna en ekki
borðtuskuna.“ En eins og í sveitinni
nokkrum árum áður, tók það hana
ekki langan tíma að venjast bænum.
„Ég man ekki eftir mér öðruvísi en
syngjandi,“ segir Drífa sem fór í Kór
Barnaskóla Akureyrar og síðar kór
Gagnfræðaskólans. „En þegar ég var
14 ára þá fór ég fyrst í svona „alvöru“
kór, en það var Kvennakórinn Gígjan
á Akureyri. Ég var bara eins og litla
barnið í kórnum og mér fannst ég
eignast þarna 30-40 mömmur á einu
bretti,“ segir hún.
Drífa fór í Tónlistarskólann á Ak-
ureyri og byrjaði að læra klassískan
söng þegar hún var á sextánda ári.
„Svo flyt ég suður til Reykjavíkur
1978 og þá fer ég í Tónlistarskólann í
Reykjavík og Fjölbrautaskólann í
Breiðholti og lauk sjúkraliðanámi auk
stúdentsprófs.“
Áður en Drífa fór suður var hún
komin með kærasta. „Ég kynntist
manninum mínum, Birni, á balli í
Miðgarði, samkomuhúsinu í Varma-
skilyrði fyrir veru í kórnum er að
geta lesið nótur og að læra heima.“
Hún segir það mikilvægt fyrir tón-
listarmenntað fólk úti á landi að hafa
einhvern vettvang til að glíma við
krefjandi verkefni. Kórinn hittist síð-
ast í haust þegar þau tóku upp af-
mælisdiskinn Svartar fjaðrir, en allir
textarnir eru úr ljóðabók Davíðs
Stefánssonar með sama nafni. „Í
fyrra átti ljóðabók Davíðs 100 ára út-
gáfuafmæli og kórinn átti 20 ára af-
mæli, en þaðan kemur hugmyndin.
Mörg laganna eru þekkt, en síðan eru
sum nýsmíðar eftir tónskáld eins og
Hjálmar H. Ragnarsson, Snorra Sig-
fús Birgisson og Guðmund Óla Gunn-
Sigurdríf Jónatansdóttir skjalavörður hjá utanríkisráðuneytinu – 60 ára
Fjölskyldan Hér er fjölskyldan árið 2006, f.v.: Gunnfríður, Sigurdríf, Björn og Jónatan.
Hefur alltaf verið syngjandi
Barnabörnin Sigurdríf og Björn með barnabörnin Nataliu og Elísabetu 2019.
Bolungarvík Pabbastelpan Drífa
sparibúin um jólin í Víkinni.
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurjón Fann-
ar ólst upp á Akureyri
og er Akureyringur í
húð og hár. Hann vinn-
ur hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa. Helstu
áhugamál Sigurjóns
Fannars eru íþróttir,
samvera með fjölskyldunni og ferðalög,
bæði innan- og utanlands.
Maki: Surudwadee Suwanarung, f. 1995,
vinnur hjá Útgerðarfélagi Akureyringa.
Barn: Daníel Leó Sigurjónsson, f. 2020.
Foreldrar: Sigurður Jónsson, f. 1957,
verkstjóri hjá Vegagerðinni og Sólveig
Sigurjónsson, f. 1961, verkstjóri hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa.
Sigurjón Fannar
Sigurðsson
30 ára Hekla Guðrún
ólst upp í Þorlákshöfn
og hefur búið þar alla
tíð. Hún vinnur hjá JCC
ehf. Hekla á þrjú al-
systkini sem eru miklu
eldri en hún, svo hún
ólst upp eins og ein-
birni og fór mikið með foreldrum sínum í
útilegur og núna eru útivist og ferðalög
hennar helsta áhugamál. Fjölskyldan á
ættir að rekja til Önundarfjarðar og á hús
á Flateyri og Hekla hefur mjög gaman af
því að fara vestur.
Foreldrar: María Sigurðardóttir, f. 1953,
vinnur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, og Böðv-
ar Gíslason, f. 1950, fv. múrari, en kominn
á eftirlaun. Þau búa í Þorlákshöfn.
Hekla Guðrún
Böðvarsdóttir
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is