Morgunblaðið - 04.12.2020, Síða 33

Morgunblaðið - 04.12.2020, Síða 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020 arsson, svo nokkrir séu nefndir.“ Drífa segist hafa mjög breiðan tón- listarsmekk og hlusti á Skálmöld, Dimmu og óperur og allt þar á milli, nema kannski rapp. Þegar hún er ekki að syngja er hún að sinna skátastarfi eða á kvenfélagsfundi. „Ég tók upp á því þegar börnin mín fóru í skátana að vinna með þeim og svo hef ég verið síðustu tíu ár í Kvenfélaginu hérna á Króknum, og það er góður fé- lagsskapur. Fjölskylda Eiginmaður Drífu er Björn Jóhann- es Sighvatz, f. 21.2. 1957, framhalds- skólakennari. Foreldrar hans eru hjónin Herdís Margrét Gunnfríður Pálmadóttir, f. 5.9. 1922, d. 29.3. 2002, húsmóðir og Sighvatur Pétursson Sig- hvatz, f. 12.9. 1915, d. 30.11. 1991, sjó- maður. Börn Sigurdrífar og Björns eru 1) Gunnfríður Björnsdóttir, f. 15.7. 1982, viðskiptafræðingur gift Ólafi Helga Þorkelssyni, f. 19.12. 1980, framkvæmdastjóra í Reykjavík. Börn þeirra eru Natalia, f. 2009, og Elísabet, f. 2011. 2) Jónatan Björnsson, f. 22.4. 1991, vélvirki, kvæntur Tinnu Ósk Agnarsdóttur, f. 13.2. 1995, nema. Þau búa á Sauðárkróki. Systkini Sigurdrífar eru Daði Hálf- dánsson, f. 28.3. 1950, rafvirki á Ak- ureyri; Rúnar Hálfdánsson, f. 28.12. 1951, bóndi í Borgarfirði; Kristján Háldánsson, f. 13.júní 1953, járniðnaðarmaður í Hafnarfirði; Brynjar Bragason, f. 28.4. 1955, tæknifræðingur í Garðabæ; Ólafía Jónatansdóttir, f. 16.11. 1963, húsmóðir í Reykjavík og Rögnvaldur Jónatansson, f. 19.10. 1966, leigubílstjóri í Hafnarfirði. Foreldrar Sigurdrífar eru hjónin Sigrún Sigurdríf Halldórsdóttir, f. 9.9. 1930, og Jónatan Ólafsson, f. 24.1. 1925, d. 15.9. 2019. Þau bjuggu á Ak- ureyri og Sigrún býr þar enn. Sigurdríf Jónatansdóttir Hálfdán Einarsson b. á Hvítanesi og Hesti í Hestfirði Daðey Steinunn Elísabet Daðadóttir húsfreyja í Hesti í Hestfirði Hálfdán Ólafur Hálfdánsson bóndi og sjómaður í Bolungarvík María Rögnvaldsdóttir húsfreyja í Tröð og Meirihlíð í Bolungarvík Jónatan Ólafsson múrari, bóndi í Meirihlíð í Bolungarvík og iðnverkamaður á Akureyri Rögnvaldur Guðmundsson b. á Uppsölum í Seyðisf. og víðar Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja á Svarfhóli í Álftaf. og Uppsölum í Seyðisfirði Guðmundur Pálmason vinnumaður í Vigur og víðar Guðrún Bjarney Guðmundsdóttir vinnukona víða í Eyrarsókn í Seyðisf. Halldór Guðmundsson verkamaður í Súðavík Sigrún Jensdóttir húsfreyja í Súðavík, síðar bús. á Akureyri Jens Haraldur Þorkelsson bóndi í Mjóafirði Karólína Guðbrandsdóttir var í Súðavík, húsfreyja í Mjóafirði, fór til Vesturheims 1884 Úr frændgarði Sigurdrífar Jónatansdóttur Sigrún Sigurdríf Halldórsdóttir húsmóðir á Akureyri og síðar verkakona Mest selda liðbætiefni á Íslandi LIÐEYMSLI, STIRÐLEIKI EÐA BRAK Í LIÐUM? Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. „Nutrilenk Gold hefur gert mér kleift að æfa og keppa í hjólreiðum undanfarin 4 ár með óvæntum árangri. Ég hef notað Nutrilenk í fjölda ára., mér finnst svo magnað að efnið fjarlægir óþægindi í hnénu ef ég tek það inn daglega. Hef prófað koma einkennin aftur í ljós. Ég var búinn að afskrifa mig sem keppnismann í átaksíþróttum fyrir 10 árum síðan.“ Jón Arnar Sigurjónsson (60 ára). a 2-3ja mánaða skammtur í hverju glasi „HÆTTU AÐ SEGJA „JÁ”. ÞÚ ERT SVARAMAÐURINN.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að geyma fallegu skilaboðin frá honum. ÉG ER EKKI AÐ SEGJA AÐ ODDI SÉ HEIMSKUR… EN ÞEGAR HANN SPAN- GÓLAR AÐ TUNGLINU… ÞÁ BÝST HANN VIÐ SVARI AÚÚÚÚ ÚÚÚÚÚÚ FINNST ÞÉR ÞÚ STUNDUM EINN Í HEIMINUM? ALDREI! ÉG KEM HEIM TIL YNDISLEGUSTU, BRÚNEYGÐU ELSKU SEM NOKKUR MAÐUR GETUR ÓSKAÐ SÉR! ERTU AÐ GRÍNAST? HUNDAR KUNNA EKKI AÐ ELDA! ER HÚN LÍKA GÓÐUR KOKKUR? „RISTILSPEGLUNIN GEKK ÁGÆTLEGA FYRIR UTAN VINDGANGINN.” Þórarinn Eldjárn skrifar á feis-bók vísuna „Hálfverk“: Aldrei náði hann upp á topp eigraði í fjallshlíðinni. Annarri rasskinn kom á kopp klikkaði á hinni. Ég fékk á þriðjudag gott bréf frá Agnari J. Levy, Hrísakoti, Vatns- nesi. Þar segir að í Vísnahorni sé þessi vísa sögð eftir Hjallalands- Helgu: „Mæðan stranga mjög er skörp, mér finnst langur skaðinn. Ólafur svangur étur Jörp, ég má ganga í staðinn.“ Það telur Agnar ekki rétt. Auð- björg Guðmundsdóttir frá Ill- ugastöðum hefði kennt sér þessa vísu fyrir mörgum árum. Hún var fædd á Vatnsnesinu og bjó þar alla tíð, og var mjög minnisgóð og áhugasöm um eldri tíma. Hafði hún fyrstu línuna öðruvísi, en hitt eins: „Mig vill stanga mæðan skörp“ fyrir „Mæðan stranga mjög er skörp“. Agnar heldur áfram: „Auðbjörg sagði að vísan væri eftir skáldkon- una í Hvítabæ, er svo var kölluð, Guðbjörgu Árnadóttur, er var þar í kringum 1850, þá 53 ára. Maður hennar hét Ólafur Þorsteinsson, 54 ára, og voru þau frekar fátæk, eins og kemur líka fram í vísunni, þar sem minnst er á að maður hennar, Ólafur, sé að éta reiðhestinn, líklega þann eina sem til var, sem var í raun merkilegt, því að á þeim tíma var hrossaketsát ekki vinsælt hér, hvorki af Guði né mönnum. Guðbjörg var það skáldmælt, að hún fékk viðurnefnið skáldkona. Gerði hún fjöld af vísum, sem eru víst flestar tapaðar. Ég man þó eina í viðbót eftir hana: „Þórðar niður, Níels minn. Náðar, bið ég foringinn, andann friðar sendi sinn, sitt með lið í huga þinn.“ Hvítibær var smábýli í Vesturhóp- inu, rétt utan við Ytri-Þverárbæina, nú fyrir löngu komið í eyði og sést ekkert nema grænn blettur og ein- hverjar rústir á hól.“ Ólafur Stefánsson yrkir á Boðn- armiði og kallar „Nóg er nóg er nóg“: Ég þoli ekki fleiri vísur um veiru Víði, Þórólf og kó. Af öllu þessu og ýmsu fleiru aldeilis fengið hef nóg. Ingólfur Ómar Ármannsson orti á miðvikudag: Nú er úti norðanátt nístingskaldi stinnur. Krummi soltinn krunkar hátt hvergi æti finnur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hálfverk og nóg er nóg er nóg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.