Morgunblaðið - 09.12.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 09.12.2020, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 9. D E S E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  290. tölublað  108. árgangur  15 dagartil jóla Jólaleikir eru á jolamjolk.is HORFT TIL FRAMTÍÐAR HJÁ NORLANDAIR FÓLK GRÉT AF GEÐS- HRÆRINGU DÍLASKARFA OG TOPPSKARFA FJÖLGAR VIÐ LANDIÐ NÝ PLATA TRÍÓS STÍNU 24 BETRI FÆÐUSKILYRÐI 10VIÐSKIPTAMOGGINN „Við erum afskaplega ánægð og stolt með þessa miklu viðurkenningu á okkar góða starfi, en við höfum starfrækt húsbíladeild hjá okkur um langt skeið, eða í 45 ár,“ segir Stein- grímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar. Fyrirtækið mun um áramótin taka við umboði á Íslandi fyrir hús- bílakeðjuna Touring Cars, sem er í hópi þeirra stærstu á húsbílamark- aðnum. Fyrri umboðsaðili hefur ver- ið með 80-90 húsbíla, sem bætast við þann 150 bíla flota sem Bílaleiga Akureyrar hefur yfir að ráða. Steingrímur segir að forsvars- menn Touring Cars hafi að fyrra bragði haft samband og óskað eftir viðræðum um samstarf. Þeim lauk svo með undirritun á samningi, sem gildir að minnsta kosti til næstu fimm ára. Touring Cars er ein af stærri hús- bílakeðjum heims, með starfs- stöðvar í 12 löndum. „Fyrirtækið hefur verið starfandi um langt skeið og starfsfólk býr yfir mikilli al- þjóðlegri reynslu sem við fáum að- gang að,“ segir Steingrímur við Morgunblaðið og bætir við að um þekkt vörumerki sé að ræða, einkum í Evrópu. Með samstarfinu náist einnig innkaupasamband varðandi varahluti og viðhald, sem og kaup á bílum. Steingrímur reiknar með að þegar eftirspurn eykst aftur í ferðaþjón- ustunni þurfi bílaleigan að fjölga starfsfólki. Íslendingar hafi einnig verið duglegir að leigja húsbíla sl. sumar. Áður hafi erlendir ferða- menn nær eingöngu leigt bíla. »6 Bæta við sig 90 húsbílum  Bílaleiga Akureyrar tekur við umboði fyrir húsbílakeðju Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ferðalög Húsbílum mun fjölga verulega hjá Bílaleigu Akureyrar. „Ég hef eiginlega ekki gert annað en að lesa og svara skilaboðum síð- ustu vikuna,“ segir grínistinn Ari Eldjárn. Vika er nú liðin frá því þáttur með uppistandi hans, Pardon My Icelandic, kom inn á streymisveit- una Netflix. Þátturinn er aðgengi- legur áhorfendum í 190 löndum og hafa mörg hundruð manns haft samband við Ara beint í gegnum samfélagsmiðla til að hrósa honum. Þessir nýju aðdáendur eru frá yfir 40 löndum. „Þetta eru lönd þar sem manni hefði aldrei í sínum villtustu draumum dottið í hug að ná til fólks, Brasilía, Óman og Ísrael svo fáein séu nefnd,“ segir Ari en gagn- rýnendur hafa auk þess tekið þætt- inum vel. „Það er ómetanleg auglýsing fyr- ir uppistandara að komast þarna inn,“ segir Ari sem undirbýr nýja sýningu á ensku sem hann hyggst ferðast með á næsta og þar næsta ári. »4 Morgunblaðið/Eggert Vinsældir Ari Eldjárn hefur slegið í gegn með uppistandi sínu á Netflix. Aðdáendur í yfir 40 löndum Tvær fréttir stóðu upp úr í Bretlandi í gær. Önnur var sú að hin níræða Margaret Keenan frá Coventry, hér til vinstri, varð í gærmorgun fyrst meðal almennings til þess að fá við- urkennt bóluefni við kórónuveir- unni, en hin að heilbrigðisráðherr- ann Matt Hancock var ausinn lofi í þinginu, en það hefur ekki gerst síð- an faraldurinn gaus upp síðastliðinn vetur. Fyrsti karlinn til þess að fá bólu- efnið var William Shakespeare, 81 árs alnafni skáldsins sem einnig er frá Stratford-upon-Avon. Bretar gera mikið úr þessum áfanga og nefndu gærdaginn V-dag, sama heiti og sigurdagurinn í heims- styrjöldinni síðari. Bretar eru grátt leiknir eftir far- aldur kórónuveirunnar, en þar hafa að minnsta kosti 1,7 milljónir manna veikst af veirunni og liðlega 62 þús- und manns látist af hennar völdum. Markmiðið nú er að bólusetja þorra þjóðarinnar, en Bretar eru um 67 milljónir talsins. »2, 4, 11 og 12AFP Bólusetn- ing hafin í Bretlandi Yfirtökutilboð, sem fjárfestahópur undir forystu Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar hefur gert í hlutabréf Skelj- ungs, mun ósennilega leiða til af- skráningar félagsins úr Kauphöll Íslands. Stórir hluthafar í félaginu hyggjast ekki selja hluti sína, jafn- vel þótt þeir eigi á hættu að lenda í minnihluta gagnvart fjárfestahópn- um sem er á góðri leið með að tryggja sér meirihluta hlutafjár. Gæti stefnt í langa störukeppni á vettvangi félagsins milli fjárfesta- hópsins sem vill losna við aðra hlut- hafa út úr félaginu og þeirra sem áfram vilja halda í hluti í félaginu. Heimildir ViðskiptaMoggans herma að ýmsar ástæður séu fyrir mótstöðunni en ein þeirra er sú að í félaginu kunni að felast dulin verð- mæti sem hluthafarnir séu ekki til- búnir að láta af hendi á því verði sem boðið hefur verið í hluti þeirra. Í nýju verðmati Jakobsson Capital er félagið metið 25% verðmætara en yfirtökutilboðið gerir ráð fyrir. Yfirtökutilboðið rennur út í upphafi nýs árs. Kalt stríð í Skeljungi  Óljóst um yfirtöku Baldur Arnarson baldura@mbl.is Blað verður brotið í sögu íslensks fasteignamarkaðar í vikunni þegar fyrstu hlutdeildarlánin verða veitt. Með þeim lánar ríkið tekjulágum fjármuni vaxtalaust fyrir kaupum á hagkvæmu húsnæði. Með þeim þarf mun minna eigið fé og gæti til dæmis dugað að leggja fram 1,75 milljónir til að kaupa 35 milljóna króna íbúð. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) úthlutar lánunum. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS, segir 129 umsóknir hafa borist um lánin á höf- uðborgarsvæðinu og 62 umsóknir á landsbyggðinni. Á næsta ári verði lánunum úthlutað sex sinnum. Fyrstu viðbrögð benda til mikils áhuga á nýju lánunum sem koma á markað er vextir eru sögulega lágir. Elvar Árni Lund, fasteignasali hjá Nýhöfn fasteignasölu, segir áhugann á nýjum íbúðum á Laugavegi 145 hafa aukist mikið eftir að það spurð- ist út að fimm af 11 íbúðum í húsinu uppfylltu skilyrði HMS um lánin. Er nú aðeins ein íbúð óseld í húsinu. Þá hafa þegar selst 11 íbúðir af 14 á Grensásvegi 12 sem uppfylltu skil- yrði um hlutdeildarlán. Alls hafa þar selst 14 af 24 íbúðum á einni viku. Hlutdeildarlánin eftirsótt  Fyrstu lánunum úthlutað í vikunni  Með lánunum þarf mun minna eigið fé  Nýjar íbúðir í Reykjavík sem henta fyrir lánin seljast eins og heitar lummur MViðskiptaMogginn Teikning/Teiknistofa arkitekta Laugavegur 145 Eftirspurnin jókst þegar hlutdeildarlánin voru í boði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.