Morgunblaðið - 09.12.2020, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Enn heldurkrýndaveiran sig
við efnið og heldur
heiminum í greip
sinni, þótt slík sjá-
ist ekki á smásjár-
myndum.
Bandarísk lyfjafyrirtæki
eru sögð telja sig hafa náð
snúningi á forseta Bandaríkj-
anna sem hefði haft í hótunum
um að þrengja verulega að
þeim vegna framgöngu þeirra
og óstjórnlegrar græðgi. Til-
kynnt var 5 dögum eftir for-
setakosningar að bóluefni,
sem lofað var að myndi virka í
95% tilvika, væri nú tilbúið og
mætti taka í brúk fljótlega.
Martröðinni væri því að ljúka
um leið og Biden ræki höfuðið
upp úr kjallaraholunni. Allt
var það með nokkrum ólík-
indum. En mörgum þótti þetta
harla gott á Trump sem hefði
óþarflega oft haft í hótunum
við hina og þessa, fengi hann
sitt ekki fram ekki seinna en
strax.
Þegar stundir líða fram þá
verða þetta aukaatriði og ver-
öldin fagnar því heilshugar að
standa ekki lengur varnarlaus
gagnvart veirunni.
Í gær var tilkynnt í Bret-
landi að Margaret Keenan,
sem verður 91 árs gömul í
næstu viku, yrði fyrst Breta til
að fá bóluefnið í sig. Frú
Keenan fékk um leið snert af
heimsfrægð við þetta, en nær
því þó varla að verða eins fræg
og bóluþegi númer tvö. Sá
heitir William Shakespeare og
er ekki annað vitað en að hrein
tilviljun hafi ráðið því hvar sá
lenti í bóluröðinni. „Ég trúi á
Guð, en ekki tilviljanir,“ á
gamli maðurinn
frá Corleone að
hafa sagt á fundi
með blöndu af vin-
um og óvinum ætt-
uðum frá sömu
slóðum.
En á móti kemur, að allt
sem snertir þennan óþverra og
óendanlega faraldur, hefur
verið með miklum ólíkindum.
Og verði þeir dregnir út í
bólulottóinu hér Bólu-Hjálmar
frá Bólu, Skagafirði, Egill
Skallagrímsson í Bólstaðarhlíð
í Húnavatnssýslu og þrjár
systur Sóttólfs sjálfs, sem
hafði ekki bólað neins staðar á
áður, er full ástæða til að trúa
því að það sé ekki minni til-
viljun.
Nokkur umræða hefur orðið
seinustu vikur um það hvort
alvarleg hliðaráhrif kunni að
fylgja bólusetningunni og hef-
ur í því sambandi verið vitnað
til alþjóðlegra fróðleiksmanna
um veirufræði. Og munu
ástæður efasemdanna vera
þær að ónógar upplýsingar
hafi fengist um þróun þessa
efnis, hvernig að verki hafi
verið staðið og hversu um-
fangsmikil og víðtæk rauntil-
raun á áhrifum bólusetningar
hafi átt sér stað og hvort full-
yrðingar varnargetu fái stað-
ist.
Vera má að þessar at-
hugasemdir séu eðlilegar og
gildar. En einnig er hætt við
hinu að löng bið, löskuð þjóð-
félög vegna lokana og hin ríka
þörf og eftirvænting um að
þessu fari senn að linna geri
það að verkum, að menn muni
einfaldlega blása á öll varn-
aðarorð.
Og sjái svo til.
Það djarfar fyrir
nýjum degi og
kórónuveirulausri
veröld.}
Að vera eða vera ekki
bólusett er spurningin
Frá því var sagthér í blaðinu
á dögunum að Ís-
land hefði þann
vafasama heiður
að vera í einu af
neðstu sætum á
lista yfir samkeppnishæfni í
skattheimtu ríkja innan
OECD. Ekki varð myndin
betri við það að Ísland hefði
fallið niður um tvö sæti frá
því í fyrra, úr 28. sæti í það
30. Á lista yfir 36 ríki er 30.
sætið vísbending um að eitt-
hvað hafi farið úrskeiðis og
að full ástæða sé fyrir stjórn-
völd að fara yfir skattkerfi
landsins og finna veikleika
þess og leita leiða til úrbóta.
Þó má benda á að ljósglæta
er í því að þegar kemur að
fyrirtækjasköttum er Ísland
nokkuð undir meðaltali
skattheimtu
OECD-ríkjanna
og lendir í 10.
sæti þegar kemur
að þessari skatt-
heimtu. Staðan er
hins vegar mun
verri þegar kemur að neyslu-
sköttum og eignasköttum, að
ekki sé talað um skatta á ein-
staklinga, en þar vermir Ís-
land 34. sætið og kemst ekki
mikið neðar.
Þetta þarf svo sem ekki að
koma á óvart. Skattar á ein-
staklinga eru háir hér á landi
og jaðaráhrif í skattkerfinu
mikil. Þetta hefur letjandi
áhrif á vinnandi fólk og dreg-
ur mátt úr atvinnulífinu og
hagkerfinu öllu. Úr þessu má
auðveldlega bæta, en til þess
þarf vilja og fátt bendir til að
hann sé fyrir hendi.
Ísland lækkar á
lista yfir sam-
keppnishæfni í
skattheimtu}
Botnsætið nálgast
A
ndstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins fóru mikinn þegar endanleg
niðurstaða Mannréttinda-
dómstóls Evrópu (MDE) var
kynnt í Landsréttarmálinu í
síðustu viku. Meðal annars var kvartað yfir
því að málinu hefði yfir höfuð verið skotið til
yfirdeildar dómstólsins. Flestir sérfræð-
ingar töldu þó að fyrri dómur MDE hefði
skapað mikla réttaróvissu. Sú skoðun var
réttmæt. Átti fyrri dómur við um alla 15
dómara réttarins en ekki aðeins þá fjóra
sem drógu sig í hlé? Hvað með meginregl-
una um endanlegt vald Hæstaréttar til að
skýra og túlka íslensk lög? Þá var dómurinn
klofinn og minnihluti MDE hafði komist að
sömu niðurstöðu og Hæstiréttur í málinu.
Nú, þegar rykið hefur sest, blasir við að
það var tvímælalaust rétt ákvörðun að
skjóta málinu til yfirdeildar MDE. Í niðurstöðu henn-
ar kemur fram að ekki leikur neinn vafi lengur varð-
andi lagalega stöðu Landsréttar. Fyrri dómurinn náði
til fjögurra dómara af 15. Þrír þeirra hafa síðan fengið
skipun að loknu faglegu ferli þar sem matsnefnd hefur
metið þá hæfasta úr hópi fjölmargra umsækjenda.
Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft for-
ystu um að koma upp nýju dómstigi, Landsrétti. Það
var gert í ráðherratíð Ólafar Nordal. Markmiðið var
að efla og styrkja stoðir réttarkerfisins og
það hefur gengið eftir. Landsréttur starfar
á milli héraðsdómstólanna og Hæstaréttar.
Þar fer fram milliliðalaust mat á munnlegri
sönnunarfærslu á áfrýjunarstigi, ef þörf
krefur, bæði í einkamálum og sakamálum.
Þetta er grundvallaratriði og mikil réttar-
bót. Hæstiréttur eflist í kjölfarið sem
stefnumarkandi æðsti dómstóll þjóð-
arinnar.
Stofnun Landsréttar er þó ekki eina
framfarasporið sem stigið hefur verið í
dómskerfinu á síðustu árum. Nefna má
stofnun dómstólasýslunnar sem annast
stjórnsýsluverkefni allra þriggja dómstig-
anna svo og hinn nýja Endurupptökudóm-
stól sem tekur til starfa á næstunni.
Þegar upp er staðið blasir við að staða ís-
lenskra dómstóla hefur styrkst til mikilla
muna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forystu um
framangreindar umbætur og þær tala sínu máli um
það fyrir hvað flokkurinn stendur í málefnum dómstól-
anna. Við viljum öfluga, sjálfstæða dómstóla sem al-
menningur getur treyst og sem veita öðrum greinum
ríkisvaldsins öflugt eftirlit og aðhald.
aslaugs@althingi.is
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Öflugir dómstólar
Höfundur er dómsmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Löngu er kominn tími til aðsetja inn ákvæði um með-gönguorlof frá 36 vikummeðgöngu sem ekki
dregst frá réttindum eftir fæðingu
inn í lögin um fæðingarorlof. Þetta
kemur fram í umsögn Félags ís-
lenskra fæðingar- og kvensjúk-
dómalækna (FÍFK) við fæðingar-
orlofsfrumvarpið, sem nú er til
umfjöllunar í velferðarnefnd. Ljós-
mæður taka í sama streng og legg-
ur Ljósmæðrafélag Íslands til að
lögfest verði að mæður geti tekið
meðgönguorlof frá 36 vikna með-
göngu svo ekki þurfi að koma til
veikindaleyfis í lok meðgöngu.
Þannig sé það t.d. í bæði Danmörku
og Noregi. Konur geti þannig hætt
að vinna undir lok meðgöngu og
þegið meðgönguorlofsbætur án þess
að gengið sé á veikinda- og fæðing-
arorlofsrétt þeirra. FÍFK bendir á
að mikið álag sé á konur á seinni
hluta meðgöngu jafnvel þótt þær
séu í eðlilegri meðgöngu án lækn-
isfræðilegra sjúkdóma eða fylgi-
kvilla og algengt sé að þær leiti til
mæðraverndar og lækna til að fá
veikindavottorð vegna algengra
fylgikvilla meðgöngunnar. Veik-
indaréttindi séu mismunandi og sé
sérstaklega talið að konur af erlend-
um uppruna í láglaunastörfum eigi
erfitt með að fara í veikindaleyfi.
Ekki sé þó ástæða til að gera að
skyldu að konur hætti að vinna á 36.
viku meðgöngu en þær ættu að eiga
rétt á því. „Þess má einnig geta að
til eru sveitarfélög (Hveragerði)
sem hafa ákveðið að þungaðar kon-
ur fari í orlof á launum frá 36 vik-
um.“
Tekjuþakið of lágt
Földi umsagna um frumvarpið
hefur borist velferðarnefnd síðustu
daga. Lýst er mikilli ánægju með að
lengja eigi fæðingarorlofið í tólf
mánuði en skiptar skoðanir eru á
skiptingu mánaðanna á milli for-
eldra og hvort auka ætti svigrúmið.
Ekki eru heldur allir sáttir við þakið
sem sett er, þ.e. að gert sé ráð fyrir
600 þúsund kr. hámarksgreiðslu
fæðingarorlofs. Hún þurfi að
hækka. Það hafi mest áhrif á töku
feðra á fæðingarorlofi. Viðskiptaráð
bendir á að árið 2018 var hlutfall
feðra sem fullnýttu grunnrétt sinn
43% en hlutfall mæðra 96%. Enn sé
til staðar kynbundinn launamunur
körlum í hag og lág hámarks-
greiðsla auki líkur á því að það for-
eldri sem hefur hærri laun nýti ekki
fæðingarorlof sitt til fulls. Í umsögn
BHM kemur fram að hámark mán-
aðarlegra greiðslna úr fæðingar-
orlofssjóði var 535.700 kr. fyrir
efnahagshrunið 2008 en í kjölfar
þess var þakið lækkað og fór lægst í
300 þús. kr. til foreldra barna sem
fæddust árið 2010. „Hámark
greiðslna í fæðingarorlofi er nú 48%
lægra en árið 2007, sé miðað við fast
verðlag,“ segir í umsögn BHM.
Sjö sérfræðingar við Háskóla
Íslands, prófessorar, doktorar og
lektorar, hafa sent frá sér umsögn
með ítarlegum upplýsingum um
fjölda rannsókna. Segja þau ákvæði
frumvarpsins að foreldrar geti nýtt
sex mánuði af orlofinu hvort um sig
en heimilt verði að framselja einn
mánuð á milli foreldra afar jákvæð.
Rannsóknir hafi leitt í ljós mikil-
vægi umönnunar beggja foreldra
fyrir barn. Miklu skipti einnig að
tryggja jafnan rétt barna til umönn-
unar, óháð sambúðarformi foreldra.
Innlendar rannsóknir sýni að frá
því feður öðluðust sjálfstæðan rétt
til töku fæðingarorlofs hafi sá tími
sem feður, sem ekki búa með barns-
móður, verja í umönnun barna sinna
aukist til muna. Einnig hafi verið
sýnt fram á að með tilkomu sjálf-
stæðs réttar til fæðingarorlofs dró
úr skilnaðartíðni á Íslandi.
Vilja að meðgöngu-
orlof verði líka lögfest
Morgunblaðið/Eggert
Umönnun barna Gert er ráð fyrir að rétturinn til fæðingarorlofs skiptist
þannig milli foreldra að sjálfstæður réttur hvors um sig verði sex mánuðir.
Tölur frá fæðingarorlofssjóði
yfir orlofsnýtingu fyrstu níu
mánuði ársins 2019 og 2020
gefa vísbendingar um að leng-
ing á sjálfstæðum rétti foreldra
úr þremur mánuðum í fjóra
hafi orðið til þess að feður nýti
fleiri daga. Þetta kemur fram í
sameiginlegri umsögn sérfræð-
inga við HÍ. Sjálfstæður réttur
hvors foreldris var lengdur úr
þremur mánuðum í fjóra á
þessu ári. Fyrstu níu mánuði
síðasta árs nýttu feður að með-
altali 61 dag en fyrstu níu mán-
uði ársins 2020 nýttu þeir að
meðaltali 70 daga.
Þá segir að sjálfstæður rétt-
ur til orlofs væri lítill hvati til
nýtingar feðra ef greiðslur í
fæðingarorlofi væru ekki tekju-
tengdar. Feður með tekjur yfir
600 þús. kr. þaki fæðingar-
orlofs nýttu að meðaltali færri
daga í orlof í fyrra en feður
með tekjur undir þakinu.
„Tekjulægstu feðurnir nýttu
aftur á móti flesta daga, að
meðaltali.“
Feður nýti
fleiri daga
SÉRFRÆÐINGAR VIÐ HÍ