Morgunblaðið - 09.12.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 09.12.2020, Síða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020 Aðventa Fólk er í óðaönn við jólaundirbúninginn, líkt og átti við um þessa fjölskyldu, sem kom í Jólaskóg Skógræktarfélags Reykjavíkur á Hólmsheiði til að höggva sitt eigið jólatré um helgina. Kristinn Magnússon Hvort sem okkur líkar það betur eða verr stöndum við frammi fyrir því að þurfa að auka útgjöld til heilbrigðismála á komandi árum og ára- tugum. En ólíkt því sem margir telja getur það aldrei orðið og má aldrei verða sjálfstætt markmið að auka út- gjöldin – að sífellt stærri hluti þjóð- arkökunnar renni til heilbrigð- ismála. Keppikeflið er öflug heilbrigðisþjónusta og aukin lífs- gæði borgaranna. Sem þjóð stöndum við Íslend- ingar frammi fyrir miklum áskor- unum í heilbrigðismálum á komandi árum og áratugum:  Við erum að eldast sem þjóð og það kallar á aukna fjármuni í heil- brigðisþjónustu. Aukin útgjöld duga hins vegar skammt ef betri nýting fjármuna, vinnuafls, tækja og fasteigna verður ekki tryggð.  Stöðugt fleiri standa utan vinnumarkaðarins. Þeim sem eru á vinnumarkaði og standa undir kostnaði við sameiginleg verkefni fækkar því hlutfallslega.  Fjármögnun heilbrigðisþjón- ustunnar er úrelt og þarfnast upp- stokkunar. Hverfa verður frá föst- um fjárveitingum til helstu stofnana og taka upp samninga á grundvelli unninna verka.  Við stöndum frammi fyrir harðri al- þjóðlegri samkeppni um vel menntað og hæft starfsfólk – lækna, hjúkr- unarfræðinga, sjúkra- þjálfara, líffræðinga, lyfjafræðinga, sál- fræðinga o.s.frv. Ef við verðum undir í þeirri samkeppni hef- ur það ófyrirsjáan- legar afleiðingar fyrir íslenskt sam- félag. Kostnaðurinn verður greiddur með lakari lífsgæðum al- mennings.  Tækniframfarir og ný þekking eru að gjörbylta hugmyndum um skipulag heilbrigðisþjónustu. Engu er hins vegar líkara en að tekin hafi verið ákvörðun um að sigla íslensku heilbrigðiskerfi gegn straumnum og auka stofnanavæðingu og beinan ríkisrekstur. Ekki frítt spil Í gegnum árin hef ég hamrað á því að stjórnvöld og ekki síst Al- þingi standi vörð um samkeppn- ishæfni landsins. Vinni að því að styrkja stöðu fyrirtækja og launa- fólks í harðri alþjóðlegri sam- keppni. Einfalt, gegnsætt og sann- gjarnt regluverk, hófsemd í sköttum og gjöldum, bætir ekki að- eins samkeppnisstöðuna heldur ýtir undir fjölbreytileika atvinnulífsins og fjölgar möguleikum launafólks. Íslenskt heilbrigðiskerfi er ekki með frítt spil þegar kemur að al- þjóðlegri samkeppni og þá ekki síst um vel menntað og hæfileikaríkt starfsfólk. Ef það er eitthvað sem einkennir starfsstéttir innan heil- brigðisþjónustunnar er það alþjóð- legur vinnumarkaður. Læknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og aðrir heilbrigðisstarfsmenn eru eft- irsótt í flestum ef ekki öllum lönd- um heims. Til einföldunar má segja að íslenskt heilbrigðisfólk sé ekki bundið við „heimamarkað“. Heim- urinn allur er þeirra vettvangur. Þessi staðreynd týnist í arga- þrasi um heilbrigðismál þegar tek- ist er á um hversu mikið eigi að auka útgjöld ríkisins vegna heil- brigðismála. Samkeppnishæfni heilbrigðiskerfisins er lögð til hlið- ar þegar barist er fyrir því að út- gjöld til heilbrigðismála skuli vera að lágmarki 11% af landsfram- leiðslu. Slík barátta er auðvitað merkingarlaus og fremur til skrauts í viðleitni til að afla sér og sínum vinsælda. Merkingarlaus þó ekki væri nema vegna þess að veru- legur efnahagssamdráttur getur tryggt að hlutfallið verði 11% á sama tíma og útgjöld til heilbrigð- ismála lækkuðu í raun. Fábreytni og verri þjónusta Ég hef áður haldið því fram að karpið hafi leitt til þess að íslensk heilbrigðisþjónusta sé í pólitískri sjálfheldu frábreytileika og verri þjónustu – sé fangi kröfunnar um sífellt aukin útgjöld, án skýrra mælikvarða um gæði eða kröfunnar um að fjármunum sé varið af skyn- semi. Það hefur verið gæfa okkar Ís- lendinga að eiga fjölbreyttan hóp heilbrigðisstarfsmanna sem sótt hefur sérfræðimenntun, reynslu og þekkingu til annarra landa, en snú- ið aftur heim til starfa. En það er langt í frá sjálfgefið að ungt fólk sem leggur slíkt á sig ákveði að koma aftur og veita okkur þá þjón- ustu sem við þurfum á að halda. Hér ráða launakjör ekki öllu, held- ur starfsaðstaðan sem er í boði en einnig valfrelsi um starfsvettvang. Það er ekki sérlega heillandi til- hugsun eftir margra ára nám og starfsmenntun að eiga þann eina kost að koma til starfa innan veggja ríkisrekstrar. Læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir hæfileikaríkir heilbrigðis- starfsmenn vilja eiga sömu mögu- leika og allir aðrir til að stofna eigið fyrirtæki – verða sjálfstæðir at- vinnurekendur. En andstaðan við einkaframtakið er djúpstæð meðal stjórnmálamanna stjórnlyndis. Svo djúpstæð að það virðist skipta meira máli að leggja steina í götu einkaaðila en að tryggja bestu heil- brigðisþjónustuna og sjá til þess að fjármunum sé vel varið. Og um leið fækkar tækifærum heilbrigðis- starfsmanna. Á síðustu árum hef ég skrifað töluvert um heilbrigðismál. Mik- ilvægi hins sameiginlega trygg- ingakerfis hefur verið rauði þráð- urinn í þeim skrifum. Tryggingakerfi sem byggist á þeirri grunnhugsun að við sameig- inlega fjármögnum öflugt heil- brigðiskerfi svo tryggt sé að allir fái nauðsynlega þjónustu og aðstoð án tillits til efnahags eða búsetu. Samþætting og samvinna opin- bers rekstrar og einkarekstrar í heilbrigðisþjónustu – á grunni sameiginlegs tryggingakerfis – tryggir ekki aðeins betri þjónustu við landsmenn, heldur styrkir stöðu okkar í harðri alþjóðlegri samkeppni um hæfileika. Ríkis- rekstrarhyggjan, þar sem einka- framtakinu er rutt skipulega úr vegi, er hins vegar á góðri leið með að grafa undan öflugri þjónustu og myndar farveg fyrir tvöfalt heil- brigðiskerfi, þar sem hinir efna- meiri geta keypt betri og skjótari þjónustu en við hin. Eftir Óla Björn Kárason » Læknar, hjúkrunar- fræðingar og aðrir hæfileikaríkir heilbrigð- isstarfsmenn vilja eiga sömu möguleika og aðr- ir til að verða sjálfstæðir atvinnurekendur. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Heilbrigðiskerfi í samkeppni um starfsfólk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.