Morgunblaðið - 09.12.2020, Side 14

Morgunblaðið - 09.12.2020, Side 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020 Grein sem ég skrifaði hér í blaðið sl. fimmtu- dag (Aðför að sam- keppni, verzlun og neyt- endum) hefur kallað á athugasemdir frá nokkrum talsmönnum landbúnaðarins. Þau svör gera gott betur en að staðfesta það sem ég skrifaði um þrýsting hagsmunaafla á stjórn- völd að bregðast við bú- sifjum vegna kórónuveiru- faraldursins með sértækum aðgerðum sem hygla einni atvinnu- grein umfram allar aðrar. Grein- arhöfundarnir eru sammála um að samkeppnishömlur og tollahækk- anir séu þjóðráð. Rétt er að halda nokkrum atrið- um til haga í framhaldi af þessum skrifum. Augljós hagur af tollasamningi Ingvi Stefánsson, formaður Fé- lags svínabænda, segir að tolla- samningurinn við Evrópusambandið og nýtt útboðsfyrirkomulag á toll- kvóta hafi rýrt afkomu bænda án þess að neytendur njóti þess í lægra verði. Ingvi gleymir að geta þess að svínabændur hafa sjálfir talsverð áhrif á verðlag á innfluttu svína- kjöti; frá því að tollasamningurinn tók gildi hafa íslenzkir bændur og afurðastöðvar boðið hátt í ESB- tollkvóta og flutt inn 80-90% kvót- ans fyrir svínakjöt. Ingvi hefur heldur ekki verið búinn að lesa nýja skýrslu Al- þýðusambandsins um þróun verðlags á bú- vörum á árinu. Sú skýrsla var unnin samkvæmt samningi við atvinnuvegaráðu- neytið og hafði að markmiði að fylgja eftir breytingum sem gerðar voru á út- hlutun tollkvóta um áramót og ætlað var að myndu gagnast neytendum. Niðurstöður ASÍ (sjá töflu) sýna að verð á innfluttum kjöt- og mjólk- urvörum, þar sem ESB-tollkvótar hafa stækkað og er úthlutað með nýrri aðferð, hækkaði mun minna en 20% veiking krónunnar gagnvart evrunni gaf tilefni til og í sumum til- vikum minna en á innlendum vörum. Þetta þarf að skoðast í því samhengi að yfirleitt felst vörn fyrir innlenda framleiðslu í veikingu gengis, því að innfluttar vörur hækka þá í verði. Innflutt grænmeti hækkar tals- vert meira en kjöt- og mjólkurvörur og meira en innlent grænmeti. Það skýrist annars vegar af gengisveik- ingu og hins vegar af hærra inn- kaupsverði vegna vandkvæða við tínslu, pökkun og flutninga græn- metis vegna kórónuveirufaraldurs- ins. Ekki hafa hins vegar orðið hag- stæðar breytingar á tollum á græn- meti til mótvægis, heldur þvert á móti. Er minni samkeppni hagur neytenda? Margrét Gísladóttir, fram- kvæmdastjóri Landssambands kúa- bænda, segir í sinni grein að undan- þága mjólkuriðnaðarins frá sam- keppnislögum hafi skilað mikilli hagræðingu, sem undanþága í kjöt- iðnaðinum myndi líka gera, í þágu neytenda. Hún spyr hvernig sé hægt að vera á móti því. Því er til að svara að t.d. Hagfræðistofnun Há- skóla Íslands komst að þeirri niður- stöðu, þegar atvinnuvegaráðuneytið bað hana að meta stöðuna á mjólk- urmarkaði, að sameiningar afurða- stöðva hefðu vissulega skilað hag- ræðingu, en þyngra vægi hagur neytenda af samkeppninni. Þess vegna lagði Hagfræðistofnun til að undanþágan yrði afnumin og tollar lækkaðir á mjólkurvörum til að efla samkeppni. Sama hefur Samkeppn- iseftirlitið gert, en sú stofnun fer ekki í neinar grafgötur um að undanþága kjötiðnaðarins væri hvorki bændum né neytendum í hag. Framkvæmdastjóri LK og tveir Framsóknarþingmenn sem stungu niður penna vísuðu til undanþága landbúnaðar í ESB frá samkeppnis- reglum vegna kórónuveirukrepp- unnar. Þar er um að ræða sex mán- aða undanþágur fyrir mjólkur-, blóma- og kartöfluframleiðslu, sem háðar eru ströngum skilyrðum, svo sem að hamla ekki virkni innri markaðarins. Kröfur hagsmunaaðila um undanþágu kjötiðnaðarins frá samkeppnislögum ganga hins vegar út á að hún verði varanleg. Kröfur þeirra um hærri tolla myndu koma niður á viðskiptum á innri markaði EES. Þessu er því ekki saman að jafna. Hvernig stuðningur við landbúnaðinn? Rétt er að undirstrika að ekki er ágreiningur um að styðja skuli við hefðbundinn landbúnað á Íslandi. Hins vegar eru mismunandi skoð- anir á formi stuðningsins. Þegar gerð síðustu búvörusamninga stóð fyrir dyrum sameinuðust samtök fyrirtækja í verzlun, Neytenda- samtökin og ASÍ um tillögur sem gengu m.a. út á að tryggja rekstrar- grundvöll landbúnaðarins, lækka matarverð, að styrkgreiðslur færð- ust frá markaðstruflandi búgreina- stuðningi í átt að almennari jarð- ræktarstuðningi, að stuðla að aukinni samkeppni á búvörumark- aðnum og lækka tolla. Ekki er heldur neinn ágreiningur um að landbúnaðurinn eigi að fá stuðning stjórnvalda vegna kórónu- veirukreppunnar eins og aðrar at- vinnugreinar. Skoðanamunur t.d. Félags atvinnurekenda og hags- munaaðila í landbúnaðinum liggur í því að við teljum að styðja eigi við atvinnulífið með almennum aðgerð- um sem ekki hamla samkeppni. Rekstraraðilar í landbúnaði hafa þannig aðgang að styrkjum og lán- um eins og fyrirtæki í öðrum grein- um ef þeir uppfylla skilyrði sem fyrir þeim stuðningi eru sett, svo sem um tekjufall vegna heims- faraldursins. Minnkandi spurn eftir innlendum búvörum er fyrst og fremst vegna samdráttar á veitingahúsamarkaði. Það er alveg fráleitt að afleiðingin eigi að vera sú að stjórnvöld færi vandamálið frá landbúnaðinum yfir á verzlunina og sendi svo neytend- um reikning í leiðinni í formi hærra matarverðs í búðunum – á sama tíma og tugir þúsunda þiggja atvinnuleysisbætur. Meira um landbúnað, samkeppni og tolla Eftir Ólaf Stephensen » Við teljum að styðja eigi við atvinnulífið með almennum aðgerð- um sem ekki hamla samkeppni Ólafur Stephensen Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Þróun verðlags á búvörum á árinu Verðbreyting frá desember 2019 til september 2020 skv. könnun ASÍ Vöruflokkur í könnun Innfluttar vörur Innlendar vörur Nautakjöt 2,2% 1,6% Svínakjöt 7,9% 3,7% Alifuglakjöt -1,3% 3,3% Unnar kjötvörur 4,8% 5,1% Ostar 9,0% 6,5% Vöruflokkur í könnun Innfluttar vörur Innlendar vörur Tómatar 15% -1% Gulrætur 26% 5% Sveppir 10% 1% Paprikur 19% -3% Íslenskar rófur – -11% Um þessar mundir berast okkur fregnir af átökum í norður- hluta í Eþíópíu. Orð- um eins og uppreisn- armenn og stjórnarher er reglu- lega fleygt fram þrátt fyrir að þau segi okk- ur lítið um raunveru- legt ástand í landinu. Það er því ekki úr vegi að spyrja: Hverjir eru að berjast í Eþíópíu og hvernig lenti þeim saman? Eþíópía er sambandsríki líkt og Bandaríkin og samanstendur af tíu fylkjum. Hvert fylki hefur heima- stjórn og landið er svo undir alrík- isstjórn. Þrátt fyrir að hafa verið til sem ríki frá 13. öld, þegar Am- lak keisari sameinaði eldri kon- ungsríki í eitt eþíópískt keis- aradæmi, er Eþíópía eins og hún er í dag tiltölulega nýtt ríki sem var sameinað af Menelik II, sem var keisari Eþíópíu frá 1889-1913. Eftir fall seinasta keisarans Haile Selassie 1974 var landinu stjórnað af herforingjastjórn. Herforingjastjórninni var síðan hrundið frá völdum 1991 og sam- steypustjórn byltingarmanna tók við völdum. Þessir byltingarmenn komu úr fjórum flokkum, Frels- isflokki Tígra, Lýðræðisfylkingu Amhara, Lýðræðisfylkingu Oró- móa og Suðureþíópísku lýðræð- ishreyfingunni. Í þessum flokkum voru fulltrúar stærstu þjóðarbrota Eþíópíu; Orómóa, Amhara og Tígra. Saman mynduðu þessir flokkar alríkisstjórnina sem eins flokks stjórn. Tígrinn Meles Zenawi var forseti nýja ríkisins og skipaði Tígra í mörg helstu embætti innan alríkisstjórnarinnar og eþíópíska hersins, sem er undir stjórn alrík- isstjórnarinnar. Eþíópíski herinn er hins vegar ekki eini herinn í landinu. Hvert fylki hefur einnig yfir að ráða heima- varnarliði sem er und- ir stjórn fylkisstjórn- arinnar. Yfirráð yfir alrík- isstjórninni þykja gefa vel af sér. Stór hluti Eþíópíumanna lifir undir fátækt- armörkum og landið fær mikla þróun- araðstoð frá erlendum ríkjum. Yfirráð yfir þessum fjármunum, sem oft hafa talið meira en 450 milljarða íslenskra króna á ári, gera alríkisstjórninni kleift að stjórna hvert peningarnir renna. Alríkisstjórnin notaði hluta þessara peninga til að verðlauna stuðningsmenn sína og fjármagna uppbyggingu í heimahéruðum sín- um. Auk þróunaraðstoðarinnar tók nýja stjórnin stór lán frá Kínverj- um til að fjármagna uppbyggingu innviða svo sem með nýjum lest- arteinum milli höfuðborgarinnar Addis Ababa og Djibútí, sem höndlar sjóflutninga til og frá Eþí- ópíu. Deilur urðu um það innan flokkabandalagsins hvernig ætti að ráðstafa tekjum ríkisins og hvernig ætti að borga kínversku lánin til baka. 2018 brutust út mót- mæli meðal Orómóa og Amhara gegn ítökum Tígra í alríkisstjórn- inni og Tígrinn Hailemariam Desalegn sagði af sér sem for- sætisráðherra. Í hans stað kom Orómóinn Abiy Ahmed. Árið 2019 ákvað nýi forsætisráð- herrann Abiy Ahmed að brjóta upp gamla flokkabandalagið. Lýð- ræðisfylking Amhara, Lýðræð- isfylking Orómóa og Suðureþíóp- íska lýðræðishreyfingin stofnuðu nýjan flokk, Velmegunarflokkinn, með því að sameinast fimm minni stjórnarandstöðuflokkum. Mark- miðið var að færa völd alrík- isstjórnarinnar frá Tígrum og veita öllum þjóðarbrotum aðgang að alríkisstjórninni. Frelsisflokkur Tígra neitaði að ganga til liðs við Velmegunar- flokkinn og varð stjórnarand- stöðuflokkur. Frelsisflokkurinn hélt hins vegar völdum í fylk- isstjórn Tígra (Tigray). Hin nýja alríkisstjórn Velmeg- unarflokksins hófst tafarlaust handa við að minnka völd gamla Frelsisflokksins. Andstæðingum flokksins sem sátu í fangelsi var sleppt. Áætlanir voru gerðar um að einkavæða ríkisfyrirtæki þar sem Tígrar voru í meirihluta stjórnarmanna og yfirmenn eþíóp- íska hersins og eþíópísku leyni- þjónustunnar, báðir Tígrar, voru leystir frá störfum. Frelsisflokkurinn var skilj- anlega lítt hrifinn af þessum ráð- stöfunum og þegar alríkisstjórnin frestaði fylkis- og alríkiskosn- ingum vegna kórónufaraldursins sökuðu þeir Velmegunarflokkinn um landráð og heimavarnarlið Tígrahéraðs gerði árás á stöðvar eþíópíska hersins í fylkinu. Alrík- isstjórnin svaraði með því að gefa út handtökuskipanir á hendur yf- irmönnum Frelsisflokksins og eþí- ópíski herinn gerði innrás í Tígra- hérað studdur af heimavarnarliði Amharahéraðs. Eins og sést er því ekki rétt að tala um að Eþíópía standi á barmi borgarastyrjaldar. Borgarastríðið er nú þegar hafið, milli fylg- ismanna Frelsisflokks Tígra og Velmegunarflokksins. Hversu lengi það mun standa á eftir að koma í ljós en ólíklegt er að það muni auka frelsi Tígra eða vel- megun Eþíópíumanna. Hverjir eru að berjast í Eþíópíu? Eftir Elvar Ingimundarson »Nú þegar óljósar fréttir berast af átökum í Eþíópíu er rétt að spyrja: Hverjir eru að berjast? Elvar Ingimundarson Höfundur er mag. theol., MLitt og höfundur hlaðvarpsins Nýlendusögu Afríku. Reglubundið rama- kvein hefur verið rekið upp vegna hugmynda yfirvalda um að skatt- leggja sykraðar mat- vörur umfram hollari matvörur. Hæst heyr- ist í sælgætis- og gos- drykkjafamleiðendum og er það afar skilj- anlegt. Hugmyndin er sú að vörur þeirra verði dýrari án þess að meira renni í þeirra vasa. Það er eðlilegt að mót- mæla slíkum áformum sem hags- munaaðili. Það er ekki endilega rétt að hlusta of mikið á þær raddir. Undirrituð er almennt á móti skattahækkunum. Skattar á Íslandi eru of háir hvert sem litið er. Virð- isaukaskattur með því hæsta sem gerist í heiminum og það eitt er hvetjandi fyrir svarta hagkerfið. En hvernig má þá réttlæta aukna skatt- heimtu sem þessa? Rannsóknir á fleiri hundruð þús- und manns með eftirfylgni í 16-34 ár hafa sýnt bein tengsl aukinnar gos- drykkjaneyslu við aukna dánartíðni og þá sérstaklega vegna hjarta- og æðasjúkdóma. Hár líkamsþyngd- arstuðull hjá fullorðnum á Íslandi hefur hækkað frá því að vera fjórði algengasti áhættuþáttur fyrir aukna dánartíðni og hreyfiskerðingu yfir í að vera annar algengasti áhættuþátt- urinn, á eftir reykingum. Hlutfalls- legur fjöldi þeirra sem eru í ofþyngd og offitu á Íslandi er með því hæsta í Evrópu. Þekkt er að mikil neysla sykraðra drykkja eykur líkur á hækkaðri líkamsþyngd. Hækkaður líkamsþyngdarstuðull er sterkur áhættuþáttur sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki af tegund tvö og krabbameina. Hvað þýðir það ef fleiri og fleiri einstaklingar eru haldnir þessum sjúkdómum? Fyrst og fremst þýða það skert lífsgæði fyrir viðkomandi einstakling, en einnig aukið álag á heilbrigðiskerfið, sem að mestu leyti er kostað af sameiginlegum sjóðum. Sameiginlegu sjóðirnir sem myndast þegar við borgum skattana. Það er því eðlilegt að setja vöru, sem hefur sann- anlega svo neikvæð áhrif á heilsu í hærra skattþrep en t.d. græn- meti og ávexti. Með samstilltu átaki og fræðslu auk leiðinda skattlagningar höfum við séð hvernig hægt var að ná tökum á tóbaksnotkun Íslendinga. Eftir því hefur verið tekið á heimsvísu. Á sama hátt getum við tekist á við stóraukna gosdrykkjaneyslu ungs fólks með fræðslu og hefur mikið áunnist í þeim efnum. Betur má þó ef duga skal. Það hefur (því miður) sannast að stýring með verðlagningu hefur enn meiri áhrif. Tal um frekju og frelsisskerð- ingu á ekki við, enda er ekki verið að banna neinum neitt. Hærra verð ætti þó að skila auknum tekjum í ríkissjóð sem ætti með réttu að skila sér til heilbrigðiskerfisins. Ekki veitir af. Lágkúrulegast finnst mér þó þegar því er haldið fram að það sé verið að meina tekjulægstu hópunum eilítinn munað með því að hækka gosdrykki úr lægra skattþrepi í það hærra. Með sömu rökum ættum við að gauka síg- arettupökkum að þessum hópum og telja okkur trú um að slíkt sé gert af góðmennsku. Best færi á því að allir þjóðfélagshópar, óháð tekjustöðu, slepptu bæði tóbakinu og gosdrykkj- unum. Það verður allt vitlaust Eftir Kristínu Heimisdóttur Kristín Heimisdóttir »Reglubundið rama- kvein hefur verið rekið upp vegna hug- mynda yfirvalda um að skattleggja sykraðar matvörur umfram holl- ari matvörur. Höfundur er stjórnarformaður Lýðheilsusjóðs og lektor við tannlæknadeild Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.