Morgunblaðið - 09.12.2020, Side 17
mýrin þar sem alltaf var líf og
fjör, pakkafhending á aðfanga-
dag þar sem Valur vaktaði rjúp-
urnar, Ford Bronco í bílastæð-
inu, skíðastúss í Hamragili svo
eitthvað sé nefnt.
Valur var einn af þeim sem eru
afskaplega vel liðnir og þægilegir
í umgengni. Þekktum við hann
ekki öðruvísi en glaðan og með
létt bros á andlitinu.
Sá eiginleiki var kostur í starfi
hans fyrst hjá Hafskip og síðar
Eimskip þegar leysa þurfti úr
ýmsum vanda hjá innflytjendum
þess tíma þegar landið bjó við
ýmiss konar höft og ekki var eins
auðvelt að flytja vörur til og frá
landinu og nú.
Þessir kostir urðu m.a til þess
að hann var kjörinn formaður
skíðadeildar ÍR, embætti sem
hann gegndi með miklum sóma
frá 1976-1985. Á þessum tíma
voru miklar framkvæmdir í
Hamragili, skíðasvæði ÍR, stór-
huga menn sem keyptu og settu
upp lyftur, keyptu troðara, ráku
skíðasvæði og allt var þetta gert í
sjálfboðavinnu. Hverjum myndi
detta slíkt í hug í dag! Magnaður
tími.
Á efri árum tók hann til við að
læra leiðsögumanninn og leiða
erlenda ferðamenn um landið
sem honum líkaði vel og systir
hans Marta hafði þá þegar gert
um nokkra hríð. Áhugavert að
þau systkin skyldu bæði leiðast á
þá braut en kannski ekki ef haft
er í huga að afi þeirra Halldór var
einn af landpóstum fyrri tíma.
Genginn er góður maður.
Erla og Páll Þór.
Nú er kóf og kveðjutíð. Veiran
klukkar einn en krabbinn annan.
Og svo eru aðrir einfaldlega sótt-
ir af svefninum langa, líkt og Val-
ur Pálsson.
Í jarðarför pabba sat hann
ásamt Ernu sinni og sonum. Að
athöfn lokinni ræddumst við
stuttlega, innilega, við. Þrátt fyr-
ir aðstæður var maðurinn hress
að vanda og við kvöddumst
ánægjulega vel. Sjö vikum síðar
sitjum við jarðarför hans.
Valur var ein af stoðum lífsins,
aukafaðir í Álftamýri, bisness-
maður á blágrænum Bronco, sígl-
aður maður og lífskátur. Hann
var Hafskipsmaður, síðan Eim-
skipsmaður og loks leiðsögumað-
ur af óvæntri snilld, en hóf sinn
feril sem eigin herra: Valur Páls-
son & co.
Verslun hans, Luktin, stóð í
kjallara og tilheyrði Snorrabraut
44, en á efri hæð í sama húsi var
íbúðin og tilheyrði Njálsgötu 87.
Á efstu hæð bjuggum við. Páll
Einarsson faðir Vals hafði starf-
að sem rakari í síldarævintýrinu
en kom suður með Sigló-gróðann
og keypti þennan stigagang í
austurborginni.
Nær allir íbúar hússins tengd-
ust austur á land, ættartengslin
voru drjúg þegar að húsnæði
kom. En eftir sex ár voru ná-
grannar orðnir að vinum og fjar-
skyldir náskyldir. Samgangurinn
var mikill og miðpunkturinn var
Valur, ungur maður með sjálfs-
traust og auglýsingar í öllum
helstu blöðunum: Zanussi-
þvottavélar og -kæliskápar.
Fjölskyldur okkar urðu að
tvennd og þegar stækka þurfti
við sig fluttu þær auðvitað í sama
hverfið, með eina götu (Safamýri)
á milli.
Samgangurinn var áfram mik-
ill og samanburðurinn líka. Allt
var flottara og betra hjá Val og
Ernu. Það var veldi á þeim, nýj-
ustu græjur og mannmargar
veislur, strákar í þremur sérher-
bergjum og Creedence Clear-
water á fóninum, uppáhaldið
Vals.
Á vetrum var farið á skíði, í
Hamragil á Hengilssvæðinu, en á
sumrum í bústað, í Stóra-Langa-
dal á Snæfellsnesi.
Tvíburafjölskyldurnar lumuðu
á mörgum tvíburum, ekki bara
„Knold og Tot“ heldur einnig
ömmu Möllu og ömmu Hermínu,
Helga og Val, Margréti og Ernu,
fjórum systkinum þar, fjórum
hér, og appelsínugulum Wago-
neer og grænum Wagoneer. Það
var hins vegar aðeins einn kóng-
ur: Sigurður Valur Valsson var
yngstur í hópnum, fæddur 1973,
og varð snemma stjarna, upplyft-
ari með Downs.
Hann var stærsta áskorun
Vals og Ernu og enginn fær
nokkru sinni toppað þá stærð og
það manngæsku-elskunnar-vit
sem þau sýndu honum Sigga sín-
um.
Í stað þess að vera vandamál
varð hann kóngur frá fyrsta degi,
elskaður og dáður umfram alla
aðra. Af þeim sökum varð Valur
ein af stoðum lífsins, og ein mín
helsta fyrirmynd, föðurlega séð.
Valur Pálsson var glettinn,
stríðinn og hláturmildur. Hann
var á röngum stað í pólitík, við-
skiptanna vegna, en hélt sínum
málstað stöðugt og hlæjandi að
okkur herstöðvaandstæðingum
og samfylkingarfólki, stríddi okk-
ur og hæddi, en reytti þó aldrei til
reiði. Til þess var hann einfald-
lega of kátur.
Við Agla sendum Ernu og
strákunum, og öllu þeirra liði,
innilegar samúðarkveðjur og
biðjum Val, ef hann les þetta, að
skila kveðju til pabba. Þið farið
kannski saman á Himnavöllinn
að sjá Maradona spila fyrsta
heimaleikinn í efra
Hallgrímur Helgason.
Fyrir um það bil fjörutíu árum
varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi
að kynnast Vali Pálssyni en þá
urðum við Kalli sonur hans skóla-
félagar sem leiddi síðar til mik-
illar og traustrar vináttu. Að
koma á heimili Vals og Ernu í
Álftamýri var ánægjulegt því þar
ríkti einstök glaðværð og ég fann
mig sérstaklega velkominn. Ekki
komst maður hjá því að þiggja
veitingar jafnvel þó að heimsókn-
in væri stutt því gestrisni og
rausnarskapur var þeim hjónum
báðum í blóð borinn. Það var
áberandi hversu samhent þau
hjónin voru og hve mikla rækt
þau lögðu við fjölskylduna.
Fyrsta sem ég tók eftir í fari
Vals var hversu lifandi, alúðlegur
og skemmtilegur hann var. Ólíkt
mörgum mönnum af hans kyn-
slóð gaf hann sig á tal við okkur
strákana og umræðuefnin teygðu
sig um heima og geima. Kyn-
slóðabilinu var ekki fyrir að fara
á þeim bænum. Aldrei vantaði
umræðuefnin enda maðurinn
áberandi fróður og stálminnugur.
Stutt var í bjartan og smitandi
hláturinn.
Hann fylgdist vel með því sem
gerðist í samfélaginu og hafði
sterkar skoðanir á málefnum.
Jafnframt var áhugi hans einlæg-
ur á því sem við vinir strákanna
vorum að fást við.
Valur var gæfumaður, góð fyr-
irmynd, sístarfandi. Það kom því
ekki á óvart þegar hann lét af
störfum sem viðskiptafræðingur
eftir farsælt áratuga starf að
hann skyldi hefja nám að nýju til
að skapa sér annan starfsgrund-
völl.
Að setjast í helgan stein var
ekki til í orðabókinni. Hann lauk
leiðsögumannsprófi og starfaði í
kjölfarið ötullega um árabil við að
ferðast með hópa manna um
landið eða vel fram á níræðisald-
ur.
Það er víst að í þeim ferðum
hefur gleðin ríkt og engum leiðst
fremur en öðrum þeim sem nutu
þeirra forréttinda að eiga góða
stund með honum.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að kynnast Vali. Minning
um góðan mann mun lifa.
Ég votta Ernu, Karli, Páli,
Hermanni, Sigga, fjölskyldum
þeirra og öðrum ástvinum mína
dýpstu samúð.
Missir þeirra er mikill.
Einar Örn.
Fleiri minningargreinar
um Val Pálsson bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020
✝ Erlendur Har-aldsson, pró-
fessor emeritus,
fæddist 3. nóv-
ember 1931 á Völl-
um á Seltjarnar-
nesi. Hann lést á
Hrafnistu 22. nóv-
ember 2020.
Foreldrar hans
voru þau Anna Eli-
mundardóttir hús-
móðir og Haraldur
Erlendsson verkamaður.
Að loknu stúdentsprófi frá
MR árið 1954 stundaði Erlendur
nám í sálfræði við háskóla í
Freiburg og München í Þýska-
landi 1964-1969. Hann lauk dr.
phil.-gráðu frá Háskólanum í
Freiburg árið 1972. Erlendur
starfaði sem rannsóknarmaður í
Bandaríkjunum og stundaði sér-
fræðinám í klínískri sálfræði við
Virginíuháskóla 1970-71.
lendar voru þýddar á 14 tungu-
mál.
Á meðal íslenskra bóka hans
eru Með uppreisnarmönnum í
Kúrdistan (1964), Þessa heims
og annars (1978), Sýnir á dán-
arbeði (1979), Látnir í heimi lif-
enda (2005) og Indriði Indr-
iðason, merkasti íslenski
miðillinn (2019). Endurminn-
ingar Erlendar, Á vit hins
ókunna, sem hann skrifaði
ásamt Hafliða Helgasyni, komu
út árið 2012.
Eftirlifandi sambýliskona Er-
lendar er Björg Jakobsdóttir,
Mið-Austurlandafræðingur.
Hann eignaðist tvö börn, Harald
geðlækni, sem búsettur er
ásamt fjölskyldu sinni á Íslandi,
og Önnu Elísabetu verkfræðing,
sem býr ásamt fjölskyldu sinni í
Þýskalandi.
Útför Erlendar fer fram frá
Neskirkju í dag, 9. desember
2020, klukkan 13. Hann verður
jarðaður frá Strandarkirkju
daginn eftir.
Steymi á útför
https://youtu.be/mX52wqD7MJ4
Virkan hlekk á slóð má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Erlendur var
blaðamaður á Al-
þýðublaðinu 1960-
1962 og starfaði
sem sálfræðingur
við American Soc-
iety for Psychical
Research í New
York 1972-1974.
Hann varð lektor
við Háskóla Íslands
1974, dósent 1978
og prófessor 1974.
Erlendur var talsmaður upp-
reisnarmanna Kúrda í Írak árin
1964-1969 meðan hann dvaldi í
Þýskalandi og var varaforseti
International Society Kurdistan
1965-1970.
Erlendur var frumkvöðull á
sviði dulsálfræði og rannsakaði
mikið það sem kallað er dulræn
fyrirbæri. Ritaskrá hans frá ár-
unum 1960-2018 telur um 360
titla greina og bóka. Bækur Er-
Látinn er frændi minn Erlend-
ur Grétar Haraldsson, prófessor
emeritus, 89 ára að aldri. Við vor-
um náskyldir, systrasynir. Mæður
okkar, Anna og Guðrún, voru af
Hellissandi á Snæfellsnesi, komn-
ar af sægörpum þar og bændum.
Þær komu ungar á sumrin að
sækja sér vinnu við fiskverkun á
Seltjarnarnesi, farandverkakon-
ur. Komu hingað sjóleiðina hvert
vor. Á Nesinu kynntust þær verð-
andi eiginmönnum sínum, þeim
Haraldi og Guðmundi, föður mín-
um. Föðurafi minn, Kristinn
Gíslason smiður, og amma mín,
Kristín Guðmundsdóttir, bjuggu
þarna í húsi sem nú er horfið og
hét Hæðarendi en Haraldur og
Anna, foreldrar Erlends, byggðu
sér hús á Nesinu, skammt þar frá,
sem hét Vellir og bjuggu þar alla
tíð. Þar eignuðust þau tvö börn,
Erlend og Elínu Sigurlaugu, sem
lést í október 2018. Falleg, góð og
vel gefin stúlka. Nú eru því bæði
látin þessi frændsystkini mín.
Lífið á Hellissandi var erfitt á
þessum tíma. Stúlkurnar sóttu
vinnu á nærliggjandi bæi eða til
Reykjavíkur en karlmennirnir
sóttu sjóinn, sem var erfitt og
hættulegt starf. Hafnaraðstaða
var svo gott sem engin og varð
jafnan að taka land í fjörunni, oft
innan um háa kletta og varasama.
Skipskaðar voru tíðir og mann-
skæðir. Minnist ég þess að móð-
urbræður mínir lýstu því hvernig
gengnar voru fjörur, stundum í
marga daga eftir að óhapp hafði
orðið við lendingu. Mannlífi á
Sandi hefur verið vel lýst af öðrum
frænda okkar, Karvel Ögmunds-
syni, í sjálfsævisögu hans, Sjó-
mannsævi. Afi okkar, Elimundur,
var þarna formaður, fengsæll og
lánsamur. Amma okkar, Sigur-
laug Sýrusdóttir, var góð kona,
trúuð og hjálpsöm og hagmælt og
eru eftir hana mörg ljóð. Bústaður
ömmu og afa á Sandi hét Dverga-
steinn og þar í túni var og er stór
klettur. Þar bjuggu álfar. Fólk af
þessum slóðum var harðgert og
duglegt.
Erlendur var eilítið eldri en ég,
sem var hins vegar jafnaldri syst-
ur hans. Ég kom oft að Völlum
með móður minni. Haraldur, faðir
þeirra, var prýðilega vel gefinn,
bókhneigður, batt inn bækur,
safnaði frímerkjum og átti grasa-
safn. Erlendur gat stundum kom-
ið manni spánskt fyrir sjónir með
því hann laðaðist snemma að
grænmetisfæði, borðaði það síðar
alfarið og hugleiddi dulræn fræði.
Hann gerðist hálærður í þeim
fræðum, stundaði nám í sálfræði
við merka háskóla í Þýskalandi og
Bandaríkjunum og lauk doktors-
prófi frá háskólanum í Freiburg
árið 1972. Hann varð síðan lektor,
dósent og prófessor við HÍ árið
1974. Árin 1964-1969 vann hann
sér til frægðar að fara í hættuför
til héraða Kúrda í Írak og heim-
sækja uppreisnarmenn þar. Þeirri
för lýsti hann vel í bók um það efni
og gegndi eftir það einnig fyrir þá
ábyrgðarstörfum í Evrópu. Hann
varð heimsþekktur sérfræðingur
á sviði dulsálarfræði, afkastamik-
ill rithöfundur og eftirsóttur fyr-
irlesari víða um heim. Dáðumst
við, aðstandendur hans, oft að elju
hans og úthaldi í þeim efnum.
Nú er hann frændi vor allur,
horfinn á vit hins ókunna, sem
hann reyndi svo mikið að kanna á
vísindalegan hátt. Eftirlifandi
sambýliskonu, Björgu Jakobs-
dóttur, og börnum og barnabörn-
um biðjum við Guðs blessunar.
Anna og Kristinn.
Góður vinur, dr. Erlendur Har-
aldsson, er horfinn af sjónarsvið-
inu eftir stutta sjúkralegu.
Fyrstu kynni mín af Erlendi
voru er hingað til lands kom ind-
versk menningarnefnd sem var á
ferð um heiminn til að kynna ind-
verska menningu. Á kynningar-
fundi hennar annaðist Erlendur
Haraldsson túlkun fyrirlestranna.
Tveim árum síðar kynntist ég Er-
lendi betur er við vorum í litlum
hópi á Evrópuráðstefnu Theo-
sophical Society sem haldin var á
herragarði í Swanwick á Eng-
landi. Auk þess að vera þá í námi
við háskólann í Freiburg í Þýska-
landi hafði hann kynnst ungum
kúrdískum námsmönnum í Berlín.
Í stuttu máli tók Erlendur þá
djörfu ákvörðun að fara til Íraks
og hitta þar uppreisnarmenn
Kúrda sem börðust fyrir tilveru-
rétti þjóðar sinnar. Þar hitti hann
sjálfan foringjann, Barzani, og tók
að senda þaðan greinar í vestræn
blöð um þessi átök. Þarna var til-
vera heillar þjóðar í hættu. Hann
var leiðandi meðal örfárra blaða-
manna sem þetta gerðu. Í raun-
inni má segja að þar hafi hann
hætt lífi sínu til að kynna málstað
Kúrda. Þetta opnaði sjóndeildar-
hring minn við að kynnast glögg-
skyggni Erlendar: þarna átti heil
þjóð í vök að verjast. Um þetta má
lesa í bók hans, Með uppreisna-
mönnum í Kúrdístan.
Næst kynntist ég Erlendi er
hann hafði ákveðið að sérhæfa sig
í dulsálarfræði (parapsychology),
sem enn sýndi djarfa ákvörðun
hans, en þá naut þessi grein
hvorki skilnings né stuðnings
hefðbundinna vísindamanna. Að
loknu námi í Freiburg fór Erlend-
ur til Bandaríkjanna, þar sem
hann starfaði með þekktustu
mönnum á þessu sviði, þeim dr.
J.B.Rhine og dr. Ian Stevenson.
Með hinum fyrrnefnda tók Er-
lendur þátt í rannsóknum á ESP
(extra sensory perception) og með
Stevenson tók hann að rannsaka
börn sem töldu sig muna fyrri líf.
Mestar voru rannsóknir hans á
því sviði á Sri Lanka og í Líbanon.
Mér er kunnugt um, að hann naut
mikillar virðingar fyrir strangvís-
indaleg vinnubrögð. Um þetta
liggja margar bækur hans erlend-
is og má lesa um þetta nánar í ævi-
minningum hans, Á vit his
óþekkta (2012). Í mörg ár var Er-
lendur eftirsóttur fyrirlesari í há-
skólum bæði austan hafs og vest-
an.
Í allmörg ár var lítið um að við
hittumst, en sl. 15 ár tókum við að
hittast á ný, helst á vettvangi Líf-
spekifélagsins. Það gladdi mig
mjög er með Erlendi og frænku
minni, Björgu Jakobsdóttur Mið-
Austurlandafræðingi, tókust náin
kynni. Var hún honum mikill
stuðningur í veikindum hans að
undanförnu.
Við hjónin sendum Björgu og
Haraldi okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Halldór Haraldsson.
Þrátt fyrir mikinn áhuga þjóð-
arinnar á dulrænum fyrirbærum
eru þeir örfáir sem hafa lagt fyrir
sig strangvísindalega ástundun
þeirra í fræðigrein sem kallast
dulsálarfræði á íslensku, „parap-
sychology“ á ensku. Nú er fallinn í
valinn frumkvöðull þessarar
greinar á Íslandi og nánast hinn
eini að heita má, Erlendur Har-
aldsson.
Iðkun kerfisbundinna aðferða
var höfð við hönd hér á landi
fyrstu áratugi 19. aldar og kölluð-
ust þá sálarrannsóknir, „psychical
research“ á ensku. Að svo búnu
lognaðist hún út af og varð upp úr
því enginn greinarmunur sjáan-
legur á sálarrannsóknum og spír-
itisma sem byggir á trúarlegri af-
stöðu. Um miðja öldina varð
merkileg endurnýjun á rannsókn-
um erlendis með tilurð dulsálar-
fræðinnar þar sem strangar kröf-
ur voru gerðar til varkárni og
ályktana, tölfræðilegum útreikn-
ingum var beitt þar sem því varð
við komið og lýsing á athugunum
eins nákvæm og hugsast gat.
Rannsóknamenn fengu aðhald í
ritrýndum tímaritum og miskunn-
arlausar umræður fóru fram á al-
þjóðlegum þingum dulsálarfræð-
inga.
Erlendur
Haraldsson
SJÁ SÍÐU 18
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Okkar ástkæri
ÁSMUNDUR JÓHANNSSON,
Ási,
byggingafræðingur,
Brúnavegi 9, Reykjavík,
lést á Hrafnistu, Laugardal, miðvikudaginn
2. desember. Útförin fer fram frá Áskirkju í Reykjavík
föstudaginn 11. desember klukkan 16.
Útförinni verður streymt á https://youtu.be/Kb6Bs-kq9Eo
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins.
Rúna Didriksen
Jóhann Ásmundsson Sigrún Júlía Kristjánsdóttir
Eva Ásmundsdóttir Jóhann Smári Karlsson
Sif Ásmundsdóttir Sigurjón Örn Ólason
Hanna Kristín Didriksen Ovidijus Zilinskas
Dagmar Ásmundsdóttir Geir Brynjar Hagalínsson
Ragnheiður Ásmundsdóttir Áslaugur Andri Jóhannsson
Sonur minn, bróðir, mágur og frændi,
VALUR HÖSKULDSSON,
Gvendargeisla 17,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn
24. nóvember. Útför hans verður gerð frá
Fossvogskirkju föstudaginn 11. desember klukkan 13.
Sent verður út í streymi.
Höskuldur Guðmundsson
Eiríkur Örn Höskuldsson Eyrún Guðnadóttir
Guðmundur Höskuldsson Sigrún Víglundsdóttir
Höskuldur R. Höskuldsson Sigríður Herdís Pálsdóttir
og fjölskyldur