Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur alltaf verið gefandi að
kynnast mönnum og málefnum, þótt ekki
væri nema bara til að forðast stöðnun.
Reynið að vera raunsæ og vænta ekki of
mikils fyrir of lítið.
20. apríl - 20. maí
Naut Varastu að láta draga þig inn í ann-
arra deilur um málefni sem koma þeim
einum við.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér líður meiri háttar vel! Fáðu
vinina í lið með þér. Reyndu af fremsta
megni að skemmta þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Manneskjan sem ýtir undir létt-
lyndi þitt og óbælda hegðun er svo sann-
arlega góður vinur. En það sem skiptir þig
máli er að gefa.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það reynir á trúnaðinn og ákveðnina,
þegar taka þarf ákvarðanir í viðkvæmum
málum. Vertu í samvinnu með öðrum því
núna er ekki rétti tíminn til að vinna einn
að hugðarefnum þínum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Er ekki skrýtið hvernig þú laðar að
þér athygli einmitt þegar þú vilt vera í
friði? Notfærðu þér það.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er stundum gaman að hlaupa á
eftir einhverri hugdettunni án þess að
skeyta nokkuð um tilefni eða tíma. Mundu
að það er ákveðið frelsi fólgið í því að
sleppa tökunum á hlutunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur næga þolinmæði til
að læra eitthvað nýtt í dag. Varaðu þig á
fólki með takmarkaða sýn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það kostar sitt að halda sér í
toppformi bæði andlega og líkamlega.
Sýndu þolinmæði og stjórnkænsku.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Kipptu þér ekkert upp við það
þótt einhverjar breytingar verði á ferðum
þínum í dag. Skilningarvit þín eru svo
skörp að það er eins og þú getir lesið
hugsanir fólks.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur tíma til að gera akk-
úrat það sem þú vilt, en bara með því að
sleppa einhverju sem einhver annar vill.
19. feb. - 20. mars
FiskarMiklar líkur eru á því að atburðir
dagsins verði mistúlkaðir, en til allrar
hamingju er jafnvel hægt að leiðrétta hinn
argasta misskilning.
S
ævar Helgason fæddist 9.
desember 1960 í Kópa-
vogi, þar sem hann ólst
upp. „Þetta var mikil
sveit þegar ég var að
alast þarna upp á Fögrubrekkunni.
Þverbrekkan er þarna og Álfa-
brekkan hinum megin og hún var
eiginlega endinn á Kópavogi þá, því
fyrir austan hana var bara sveita-
bær og þangað fórum við að sækja
egg fyrir mömmu. Síðan var allt
ómalbikað. Ef einhver keyrði upp
Fögrubrekkuna, þar sem ég bjó, þá
sást ekki á milli húsa því rykið
þyrlaðist allt upp.“
Hann rifjar upp að annað
hænsnabú hafi verið fyrir neðan
Nýbýlaveginn, en svo var Lundur
þar, eina stórbýlið í Fossvogs-
dalnum, fyrir neðan þar sem Byko
var til húsa áður á Nýbýlaveginum
og stóru blokkirnar þar fyrir neðan
eru í landi Lundar og nefndar eftir
býlinu. Sævar rifjar upp búskap
sem var enn í Fossvoginum og
Reykjavík sjöunda áratugarins lifn-
ar við í minningunni.
Sævar gekk í Víghólaskóla en
hann var nokkur sumur hjá móð-
urömmu sinni á Norður-Reykjum í
Mosfellssveit og hjálpaði til. „Þetta
var í fyrsta skipti sem ég fer í
burtu af æskuheimilinu og er að
aðstoða í gróðurhúsinu, mest við
tómataræktunina. Það voru engin
sjálfvökvandi kerfi þá, heldur
þurfti að vökva a.m.k. tvisvar á dag
og svo tíndi maður tómatana á
morgnana og aftur seinnipartinn.
Ég ætlaði að verða vélstjóri og
var byrjaður að læra vélvirkjun, en
var samt alltaf að þvælast sem há-
seti úti á sjó á sumrin. Svo lenti ég
í stórslysi 1981 og missi höndina.
Eftir það þurfti ég að breyta um
kúrs og ég fór í Stýrimannaskól-
ann. Ég var alltaf ákveðinn í því að
láta ekki slysið stoppa mig í því
sem ég vildi gera.“
Sævar starfaði í mörg ár sem
stýrimaður en hætti á sjónum árið
1989 og fór í lausamennsku hjá
Hafrannsóknastofnun og Fiski-
stofu, en fór svo í Iðnskólann á
tölvubraut til að ljúka við stúdents-
próf, en gömlu stýrimannaprófin
skiluðu ekki stúdentsprófi á þess-
um tíma. Sævar var orðinn mjög
áhugasamur um tölvur, vann í dos-
umhverfinu og vildi læra meira.
Þaðan fór hann í Háskólann í
Reykjavík og lauk tölvufræði þaðan
2005.
„Þá byrja ég að vinna hjá Fram-
tíðarsýn, sem breyttist í Mylluset-
ur eftir hrun. Ég þurfti að fara í
50% vinnu í hruninu og ég ákvað að
fara í meistaranám í stjórnun og
stefnumótun til að hafa nóg fyrir
stafni.“ Sævar var fljótt kominn
aftur í fulla vinnu en gat hliðrað til
og lokið náminu á aðeins lengri
tíma.
Sævar hefur ritstýrt íslenska
sjómannaalmanakinu frá árinu
2006, en hann byrjaði á því hjá
Fiskifréttum. Núna vinnur hann
hjá Viðskiptablaðinu, sem rekið er
af útgáfufélaginu Myllusetri, sér
um almanakið og tölvumálin og er
einnig í söludeildinni hjá VB, svo
það er alveg nóg að gera. Síðan er
hann virkur í Nýrri lífssjón, félagi
sem aðstoðar þá sem missa útlimi
og aðstandendur þeirra.
„Mín helstu áhugamál síðustu
15-20 árin eru skíði og skotveiðar.
Ég hef alveg ofboðslega gaman af
því að vera á skíðum og dóttir mín
hefur verið mikið á snjóbretti með
mér. Hún hefur dregið mig mikið
með, en það þarf eiginlega ekkert
að draga mig neitt. Ef minnst er á
fjallið er ég bara kominn af stað.“
Sævar fer líka í árlegar veiðiferðir,
bæði til að veiða hreindýr fyrir
Sævar Helgason kerfisstjóri - 60 ára
Þarf ekki að draga hann á fjöll
Feðgar Hér er Sævar að kenna syni sínum, Halldóri
Gauta, sumarið 2006 í Teigsskógi við Þorskafjörð.
Skíðalífið Hér eru dóttirin, Sylvía Rut, Sævar og eigin-
konan Sigríður í skíðaferð í Lungau í Austurríki árið 2018.
Hjónin Hér eru hjónin Sævar og
Sigríður við Loch Ness-vatnið í
Skotlandi árið 2017.
30 ára Sara Dögg
ólst upp í Eyjum en
býr núna í Reykjavík.
Hún starfar sem inn-
anhússhönnuður en
er núna í fæðing-
arorlofi. Helstu áhuga-
málin eru allt sem
tengist heimili & hönnun og svo málar
hún í frístundum.
Maki: Hjálmar Ragnar Agnarsson, f.
1988, læknir.
Börn: Nóel, f. 2015, og Erin, f. 2020.
Foreldrar: Guðjón Hjörleifsson, f. 1955,
betur þekktur sem Gaui bæjó, fv. bæj-
arstjóri og þingmaður, nú fasteigna- og
tryggingasali, og Rósa Elísabet Guðjóns-
dóttir, f. 1959, stuðningsfulltrúi í Grunn-
skóla Vestmannaeyja.
Sara Dögg
Guðjónsdóttir
Til hamingju með daginn
Þorlákshöfn Aron Darri Númason
fæddist 16. janúar 2020 kl. 7.14. Hann
vó 3.700 g og var 51 cm langur. For-
eldrar hans eru Númi Snær Jóhann-
esson og Tara Ósk Jóhannsdóttir.
Nýr borgari
30 ára Brynja Hödd
ólst upp á Skagaströnd
en býr á bænum Kú-
skerpi í Skagafirði. Hún
vinnur á skrifstofu KS á
Sauðárkrók og er í við-
skiptafræði í Háskól-
anum á Akureyri en er
núna í fæðingarorlofi. Helstu áhugamálin
eru ferðalög og samvera með vinum og
fjölskyldu.
Maki: Sigurður Ingi Einarsson, f. 1988,
bóndi.
Börn: Diljá Daney, f. 2016, og Salka Mán-
ey, f. 2020.
Foreldrar: Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir, f.
1969, vinnur hjá Hjallastefnunni, og
Ágúst Óðinn Ómarsson, f. 1969, skip-
stjóri. Þau búa á Skagaströnd.
Brynja Hödd
Ágústsdóttir