Morgunblaðið - 09.12.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 09.12.2020, Síða 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020 Meistaradeild karla E-RIÐILL: Chelsea – Krasnodar................................ 1:1 Rennes – Sevilla ....................................... 1:3 Lokastaðan: Chelsea 14, Sevilla 13, Krasnodar 5, Ren- nes 1.  Chelsea og Sevilla í 16-liða úrslit, Kras- nodar í Evrópudeildina. F-RIÐILL: Lazio – Club Brugge ................................ 2:2 Zenit Pétursborg – Dortmund................ 1:2 Lokastaðan: Dortmund 13, Lazio 10, Club Brugge 8, Ze- nit Pétursborg 1.  Dortmund og Lazio í 16-liða úrslit, Club Brugge í Evrópudeildina. G-RIÐILL: Barcelona – Juventus............................... 0:3 Dynamo Kiev – Ferencváros................... 1:0 Lokastaðan: Juventus 15, Barcelona 15, Dynamo Kiev 4, Ferencváros 11.  Juventus og Barcelona í 16-liða úrslit, Dynamo Kiev í Evrópudeildina. H-RIÐILL: París SG – Istanbúl Basaksehir ... leik hætt  Haldið áfram kl. 17.55 í dag. RB Leipzig – Manchester United........... 3:2 Staðan: RB Leipzig 12, París SG 9, Manchester United 9, Istanbul Basaksehir 33.  Leipzig og París SG í 16-liða úrslit, Man- chester United í Evrópudeildina. England B-deild: Millwall – QPR ......................................... 1:1  Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill- wall á 64. mínútu og skoraði jöfnunarmark liðsins á 71. mínútu. Staða efstu liða: Bournemouth 17 8 7 2 29:16 31 Norwich 16 9 4 3 21:15 31 Watford 17 8 6 3 21:12 30 Swansea 17 8 6 3 19:10 30 Reading 16 9 3 4 26:19 30 Stoke 17 8 4 5 24:20 28 Brentford 16 7 6 3 24:15 27 Bristol City 16 8 3 5 19:16 27 Cardiff 17 7 5 5 23:14 26 Ítalía B-deild: Cremonese – Brescia .............................. 2:2  Birkir Bjarnason var á varamannabekk Brescia allan tímann en Hólmbert Aron Friðjónsson er frá vegna meiðsla. Katar Al-Arabi – Al Rayyan.............................. 1:1  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið sem er í 9. sæti af tólf í deildinni.  EM kvenna A-riðill í Herning: Svartfjallaland – Slóvenía ................... 26:25 Frakkland – Danmörk ......................... 23:21 Lokastaðan: Frakkland 3 3 0 0 74:61 6 Danmörk 3 2 0 1 79:65 4 Svartfjallaland 3 1 0 2 68:77 2 Slóvenía 3 0 0 3 65:83 0  Staðan í milliriðli 1: Frakkland 4, Rúss- land 4, Danmörk 2, Svíþjóð 1, Spánn 1, Svartfjallaland 0. C-riðill í Kolding: Serbía – Króatía ................................... 24:25 Holland – Ungverjaland ...................... 28:24 Lokastaðan: Króatía 3 3 0 0 76:71 6 Ungverjaland 3 1 0 2 84:78 2 Holland 3 1 0 2 78:80 2 Serbía 3 1 0 2 79:88 2  Staðan í milliriðli 2: Noregur 4, Króatía 4, Holland 2, Þýskaland 2, Ungverjaland 0, Rúmenía 0. Evrópudeild karla B-riðill: Presov – Kristianstad ......................... 22:27  Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein- arsson eitt. C-riðill: Alingsås – Montpellier........................ 25:33  Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir Alingsås. Magdeburg – Nexe.............................. 28:23  Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir Magdeburg en Ómar Ingi Magnússon ekkert. D-riðill: Tatabánya – GOG................................ 32:35 Viktor Gísli Hallgrímsson varði 8 skot í marki GOG. Þýskaland B-deild: Wilhelmshavener – Gummersbach ... 28:30  Elliði Snær Viðarsson skoraði 4 mörk fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfar liðið. Aue – Eisenach .................................... 30:25  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 14 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfari Aue.   Bæði A-landsliðin í knattspyrnu eru nú án þjálfara en í gær komust Knattspyrnusambandið og Jón Þór Hauksson að samkomulagi um að hann láti af störfum sem þjálfari kvennalandsliðsins. Samningur Eriks Hamrén með karlalandsliðið rann út á dögunum eins og fram hefur komið. Jón Þór fundaði í gær með fráfar- andi vinnuveitendum sínum hjá KSÍ en fram að því hafði hann verið í heimkomusóttkví eftir ferðalagið til Slóvakíu og Ungverjalands. Í yfirlýs- ingu KSÍ í gær var haft eftir Jóni að hann hafi óskað eftir því að láta af störfum. Eftir samtöl við landsliðs- konur hafi hann komist að þeirri nið- urstöðu. „Með sigri á Ungverjalandi náði ís- lenska kvennalandsliðið því markmiði sínu að tryggja sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins 2022. Ég er stoltur af því og þakklátur fyrir að hafa komið að þessum góða árangri sem þjálfari liðsins síðustu tvö ár. Eftir sigurinn á Ungverjalandi var EM-sætinu fagnað af liðinu, starfs- mönnum og fulltrúum KSÍ. Við þetta tilefni var boðið upp á áfengi. Ég hef alltaf lagt áherslu á að koma hreint og beint fram við þá leik- menn sem ég hef þjálfað, að hrósa og gagnrýna með það að markmiði að hjálpa þeim að gera enn betur og styrkja þannig liðið. Slík samtöl eiga hins vegar ekki heima í fögnuði sem þessum og alls ekki undir áhrifum áfengis. Þarna brást ég sem þjálfari liðsins og hefði ekki átt að ræða frammistöðu og þjálfun einstakra leikmanna undir þessum kringum- stæðum. Það voru mistök sem ég tek fulla ábyrgð á og hef beðið liðið og einstaka leikmenn afsökunar. Undanfarna daga hafa samtöl mín við leikmenn liðsins leitt mig að þeirri niðurstöðu að erfitt verði að endur- heimta nauðsynlegt traust á milli mín sem þjálfara og einstakra leikmanna. Liðið og árangur þess er það sem skiptir öllu máli og nú stendur það frammi fyrir mikilvægum undirbún- ingi fyrir EM. Við slíkar aðstæður er skynsamlegast fyrir alla aðila að nýr þjálfari taki við og hefji undirbúning fyrir þetta mikilvæga mót. Ég hef því óskað eftir og gert samkomulag við KSÍ um að láta af störfum sem lands- liðsþjálfari. Ég óska liðinu og leik- mönnum þess velfarnaðar og trúi því að liðið geti náð góðum árangri á EM.“ Þegar haft var samband við Guðna Bergsson, formann KSÍ, sagði hann málið vera leiðinlegt en á því hafi þurft að taka vegna uppákomunnar í Búdapest sem Jón Þór vísar í og fjallað hefur verið um undanfarna daga. „Við hefðum að sjálfsögðu vilj- að vera án þessarar uppákomu en við tókumst á við hana og þetta er búið og gert. Við þurfum fyrst og fremst að byggja ofan á þennan góða árang- ur sem náðst hefur og við hlökkum til að taka þátt í úrslitakeppninni í Eng- landi 2022,“ sagði Guðni. sport@mbl.is  Ítarlega umfjöllun um málið síð- ustu daga má finna á mbl.is/sport. Jón Þór tekur fulla ábyrgð  A-landsliðin eru bæði án þjálfara Morgunblaðið/Hari KSÍ Ian Jeffs fráfarandi aðstoðarþjálfari, Jón Þór og Guðni. Landsliðsmennirnir Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ólafur Andrés Guðmundsson voru í stórum hlut- verkum hjá liðum sínum, Magde- burg og Kristianstad, þegar þau unnu góða sigra í Evrópudeildinni í handknattleik í gærkvöld. Gísli var markahæstur hjá Magdeburg þeg- ar liðið sigraði Nexe frá Króatíu á heimavelli, 28:23, en hann skoraði 6 mörk í leiknum. Ólafur var marka- hæstur hjá Kristianstad ásamt Adam Nyfjäll en þeir gerðu 5 mörk hvor í útisigri gegn Tatran Presov í Slóvakíu, 27:22. Gísli og Ólafur markahæstir AFP Góður Gísli Þorgeir Kristjánsson lék vel gegn Nexe í gærkvöld. Ísland byrjar undankeppni heims- meistaramóts karla á útileik gegn fjórföldum heimsmeisturum Þýska- lands eftir þrjá og hálfan mánuð. Leikurinn fer fram 25. mars. Þaðan fer íslenska liðið til Armeníu og leikur þar 28. mars og loks 31. mars í Liechtenstein. Eftir það er hlé á keppninni fram í september en þá taka við heimaleikir gegn Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi, og heimaleikir gegn Armeníu og Liechtenstein í október. Loks er leikið úti gegn Rúmeníu og Norður- Makedóníu í nóvember. Fyrsti leikurinn í Þýskalandi Morgunblaðið/Eggert HM 2022 Baráttan hefst á úti- leiknum gegn Þjóðverjum. afreksstigi og efsta deild, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.“ Á næstunni má því gera ráð fyrir að sérsamböndin hjá ÍSÍ sæki um slíkar undanþágur. Ofuráhersla á efstu deildir „Ég er mjög ánægður með þetta skref sem var tekið í dag,“ sagði Hannes Sigurbjörn Jónsson, for- maður KKÍ, í samtali við mbl.is í gær. „Við höfum lagt ofuráherslu á að koma æfingum í gang fyrir efstu deildir karla og kvenna sem og ung- menni sem eru fædd 2004, 2003 og 2002. Það er frábært að efstu deild- ir karla og kvenna geti hafið leik að nýju en auðvitað er leiðinlegt að aðrar deildir og yngri flokkar geti ekki hafið æfingar,“ sagði Hannes. Eftir stendur að íþróttaiðkendur á framhaldsskólaaldri geta ekki haf- ið æfingar og hafa verið lengi í kyrrstöðu. Morgunblaðið hafði sam- band við Óskar Bjarna Óskarsson, þjálfara hjá handknattleiksdeild Vals, í gær. Óskar hefur á sínum ferli starfað með iðkendum á öllum aldri af báðum kynjum í yngri flokkum og hann hefur áhyggjur af stöðunni hvað varðar þennan hóp. „Að sjálfsögðu er ekki hægt að hleypa öllu af stað en þetta er orðið allt of langur tími fyrir fólk á aldr- inum 16-20 ára. Við þurfum að gera eitthvað fyrir þau og verðum að finna lausnir fyrir þennan við- kvæma aldur. Þau eru bara fyrir framan tölvu og síma. Ég er ekki að fara fram á að þau æfi sex sinn- um í viku í stórum hópum. En við verðum að reyna að gera eitthvað og getum hjálpast að við að finna lausnir. Kannski væri hægt að leyfa þeim að æfa tvisvar í viku og í minni hópum en vanalega. Kröfur um sóttvarnir yrðu gerðar og fólk myndi gæta sín,“ sagði Óskar. Félagslegi þátturinn Óskar segir að brottfall gæti orð- ið úr íþróttum hjá þessum aldurs- hópum en bendir einnig á að staðan sé orðin þannig að þetta sé líka spurning um félagslega þáttinn hjá þessum aldurshópi. „Þarna erum við bæði með fólk sem er í íþróttum sér til ánægju en einnig landsliðs- fólk í yngri landsliðum. Þessar vangaveltur mínar snúast ekki bara um afreksþáttinn því þetta er einn- ig félagslegt. Sérstaklega þar sem þetta fólk kemst ekki í skólana. Hvenær á að hugsa um fólkið á framhaldsskólaaldri? Er það ekki fyrr en 12. janúar? Eða er það í næstu viku? Við stöndum saman í íþrótta- hreyfingunni og gerum að sjálf- sögðu eins og okkur er sagt en mér finnst þetta vera orðinn ansi langur tími varðandi þennan aldur. Mér fannst þessar skilgreiningar á íþróttunum koma svolítið seint. Ég hefði alla vega viljað sjá þær miklu fyrr,“ sagði Óskar Bjarni og tók fram að hann væri ánægður með að íþróttastarfið færi af stað að ein- hverju leyti og hafi skilning á því að í stórri hreyfingu þurfi að setja starfið af stað í skrefum.  Á mbl.is/sport er að finna fleiri fréttir af málinu og viðtöl. Verðum að finna lausnir  Æfingar á afreksstigi að hefjast eftir um tveggja mánaða stopp Morgunblaðið/Íris Handbolti FH-ingar geta hafið æfingar á ný í ljósi tíðinda gærdagsins. FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kris@mbl.is Talsverð tíðindi urðu í gær hvað varðar íþróttastarfið í landinu á tímum kórónuveirunnar. Afreks- íþróttafólki og íþróttafólki sem leikur í efstu deildum í hóp- íþróttum verður heimilt að hefja æfingar á ný frá og með morg- undeginum. Æfinga- og keppnisbann hefur verið í gildi hér á landi síðan í október en bæði íþróttaæfingar með og án snertingar verða heim- ilaðar frá og með morgundeginum og gildir reglugerðin að óbreyttu til 12. janúar. Æfingar sem krefjast snertingar innan bardagaíþrótta verða þó ekki heimilaðar. Þótt þessar áherslur hafi verið í forgrunni þegar tilkynnt var um breytingarnar þá er sá möguleiki fyrir hendi að lið í næstefstu deild- um í hópíþróttum geti einnig hafið æfingar. Í 8. grein reglugerðar heilbrigðisráðuneytisins er í það minnsta undanþáguákvæði. Þar stendur: „Ráðherra getur veitt undanþágu frá banni við íþrótta- starfi fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppn- isleikja hér á landi eða vegna æf- inga í næstefstu deild sérsambands Íþrótta- og ólympíusambands Ís- lands ef hún er skilgreind á sama

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.