Morgunblaðið - 15.12.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vegagerðin sendi út viðvörun til veg-
farenda í gærmorgun vegna tjöru-
blæðinga á þjóðveginum frá Borgar-
firði, ofan Bifrastar, og allt norður í
Skagafjörð. Bárust allnokkrar til-
kynningar frá bílstjórum sem fengu
tjöruslettur utan á ökutækin. Þá
sendi lögreglan á Norðurlandi vestra
frá sér tilkynningu þar sem fram
kom að tjón hefði orðið á bifreiðum í
gær vegna þessa, sem og eitt um-
ferðaróhapp sem mátti rekja til
þessara aðstæðna. Var því brýnt fyr-
ir ökumönnum að aka varlega og
sýna annarri umferð tillitssemi.
G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi Vegagerðarinnar, segir það
vissulega óvanalegt að blæðingar
sem þessar, sem kallaðar eru vetrar-
blæðingar, komi upp í desember.
Það hafi þó gerst áður, eftir hlýinda-
kafla og bleytu líkt og undanfarið.
„Þetta vill gerast þegar hefur
skipst á frost og þíða á vegunum og
miklar rigningar,“ segir G. Pétur og
bendir á að við umferð, sérstaklega
þyngri ökutækja, í þessum aðstæð-
um sé hætta á að tjara þrýstist upp
úr klæðingunni. Slík blæðing eigi sér
ekki stað í malbiki, aðeins klæðing-
um. Aðspurður segir hann þessa
kafla ekki tengjast gölluðu slitlagi
sem upp kom sl. sumar á Kjalarnesi
og víðar. Sumarblæðingar verði
meira við hita og sól og þunnt tjöru-
lag myndist. Að vetri komist tjaran
upp úr klæðingunni, sem fyrr segir.
„Það hefur verið erfitt að sjá upp-
tökin á þessu og ekki hægt að benda
á einhverja verri vegarkafla en aðra.
Þyngri ökutæki geta hent þessum
klessum af sér og þær dreifst víðar
en ella,“ segir G. Pétur.
Ef tjaran veldur sannanlegu tjóni
á ökutækjum, og ekki hefur verið
varað við ástandinu, þá bætir Vega-
gerðin það. Að sögn G. Péturs er þó
algengast að Vegagerðin fái reikn-
inga fyrir tjöruþvotti og greiði þá
með bros á vör. bjb@mbl.is
Blæðingar í desember
Varað við tjöruklessum frá Borgarfirði í Skagafjörð
Ljósmynd/Aðsend
Blæðing Tjöruklessur á þjóðveg-
inum í Hrútafirði í gær.
Skammt er til jólanna og löngu tímabært fyrir
flesta að huga að því að kaupa jólagjafir.
Heimsfaraldurinn hefur hins vegar sett svip
sinn á jólaverslunina líkt og annað, og er því
brýnt að setja upp grímur, líkt og þessar konur á
Skólavörðustíg gerðu á dögunum.
Morgunblaðið/Eggert
Grímuklædd í jólagjafakaupunum
Fátt hefur verið
um svör við fyrir-
spurnum sveitar-
stjórnar Rangár-
þings ytra síðustu
1-2 ár um hvort til
standi að endur-
nýja eða fjarlægja
tvær vindmyllur í
Þykkvabæ, að
sögn Ágústs Sig-
urðssonar sveitarstjóra. Önnur myll-
an skemmdist í eldi fyrir rúmum
þremur árum.
Málið var rætt á síðasta sveitar-
stjórnarfundi í Rangárþingi ytra og
var lögð fram fyrirspurn um hvort
búið væri að fara fram á eða sækja
um leyfi fyrir niðurrifi vindmyllunnar
sem eyðilagðist í bruna og hver bæri
ábyrgð á vindmyllunum í dag.
Í svari sveitarstjóra segir m.a.:
„Haft hefur verið samband við skráða
eigendur og óskað eftir upplýsingum.
Jafnframt hefur eigendum verið bent
á að standi ekki til að koma myllunum
í nothæft stand þá sé nauðsynlegt að
fjarlægja þær. Eigendur hafa ekki
sótt um leyfi til endurnýjunar eða nið-
urrifs þrátt fyrir umleitanir sveitar-
stjóra og byggingarfulltrúa um að svo
verði gert.“
Fram kemur í svarinu að þing-
lýstur eigandi samkvæmt þjóðskrá og
ábyrgðaraðili sé Elýsa ehf. Þegar
greint var frá bruna í annarri myll-
unni í Þykkvabæ í júlí 2017 kom fram
að eigandi mannvirkjanna væri fyrir-
tækið Biokraft. aij@mbl.is
Endurnýjun
eða niðurrif?
Tjón Eldur í vind-
myllunni 2017.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Hagstofan ætlar að ráðast í töku
manntals og húsnæðistals 1. janúar
næstkomandi. Þetta kemur fram í
bréfi sem Hagstofan hefur sent
sveitarstjórnum á landinu þar sem
óskað er eftir að sveitarfélögin veiti
ýmsar upplýsingar um búsetu ein-
staklinga o.fl.
Framvegis tekið á hverju ári
Manntöl eru viðamikil verkefni
hagstofa, og var síðast unnið mann-
tal á árinu 2011. Þá hafði ekki verið
ráðist í manntal í 30 ár en það var
gert á árinu 1981.
Manntalið árið 2011 var í fyrsta
sinn gert með rafrænum hætti. Nú
er ráðgert að framvegis verði tekið
manntal á hverju ári.
Í bréfi Hagstofunnar til sveitar-
félaga kemur fram að manntalið
muni gefa upplýsingar um íbúa-
fjölda, menntun, atvinnuþátttöku
og stöðu mannfjöldans á vinnu-
markaði, sem og um fjölskyldur og
heimili. „Auk þess verða birtar yfir-
gripsmiklar tölur um húsnæði
landsmanna, fjölda íbúða, sumar-
húsa, íbúðarhúsnæði sem stendur
autt og annað um húsnæðisaðstæð-
ur landsmanna á manntalsdegi.
Nær allar þessar upplýsingar verða
birtar fyrir hvert og eitt sveitarfé-
lag en ekki aðeins stærri land-
svæði,“ segir í bréfinu.
Bent er á að vel heppnað manntal
verði ómetanlegt gagn í allri starf-
semi sveitarfélaganna og grunnur
að áætlanagerð og ákvarðanatöku
fyrir þau, ríkisvaldið, fyrirtæki og
íbúana.
Við gerð manntalsins ætlar Hag-
stofan að telja fólk til heimilis þar
sem það býr að staðaldri, fremur en
þar sem það er með skráð lögheim-
ili. Nokkuð vanti upp á að hægt sé
að ákvarða búsetu allra hjá íbúða-
skrá Þjóðskrár Íslands. Færst hafi
í vöxt að fólk sé ekki skráð á tiltekið
heimilisfang í sveitarfélögum og
sömuleiðis séu ekki til miðlæg gögn
um heimilislausa eða þá sem eiga í
húsnæðisvanda og sveitarfélögin
hafa auga með.
Manntal tekið meðal
landsmanna 1. janúar
Manntöl voru seinast gerð á árunum 2011 og 1981
Alls var búið að sækja 182.872 ferða-
gjafir til Íslendinga 9. desember sl.
eða um 914 milljónir kr. af þeim 1,5
milljörðum kr. sem gert var ráð fyrir
til ferðagjafar í fjáraukalögum árs-
ins. Þar af var búið að nýta 657 millj-
ónir kr. til kaupa á þjónustu hjá
þeim fyrirtækjum sem geta tekið við
ferðagjöf skv. lögunum sem sett
voru í júní sl. sem hluti af aðgerða-
pakka stjórnvalda. Þetta kemur
fram í nefndaráliti atvinnuvega-
nefndar við frumvarp ferðamála-
ráðherra um framlengingu á gildis-
tíma ferðagjafa til 31. maí
næstkomandi. Nefndin leggur til að
frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
omfr@mbl.is
657 milljónir nýttar
Morgunblaðið/Ómar
Við Seljalandsfoss Lagt er til að hægt verði að nýta ferðagjöfina til 31. maí.