Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020 ✝ Skúli Rúnarfæddist á Ísa- firði 6. nóv. 1932. Hann lést 4. des- ember 2020 á Hrafnistu í Hafnar- firði, þar sem hann hafði búið sl. hálft ár. Foreldrar Skúla Rúnars voru Hans- ína Magnúsdóttir, fædd í Svínaskógi á Fellsströnd 1. apríl 1895, d. 3. ágúst 1971 og Guðjón Jónsson, fæddur á Þambárvöllum í Strandasýslu 29. september 1876, d. 11. október 1937. Seinni maður Hansínu var Jón- as Guðjónsson, f. 16. apríl 1906, d. 10. apríl 1981. Systkini Skúla Rúnars voru Ólafía Sigurborg, f. 21.8. 1918, Freyr og Rakel Ýr. 3) Guðjón, f. 24. júní 1962, d. 14. nóvember 1965. 4) Skúli Rúnar f. 23. ágúst 1963, maki Sigríður Bergs- dóttir. Börn þeirra eru Hjördís, Unndís og Guðjón Fannar. 5) Auður, f. 31. maí 1971, maki Magnús V. Magnússon. Barn þeirra er Magnús Skúli og fyrir á Magnús Rakel Sif og Þórhöllu Mjöll. Barnabarnabörn Skúla og Guðrúnar eru 12. Skúli Rúnar ólst upp á Ísa- firði til 17 ára aldurs þegar hann flutti til Reykjavíkur og fór að æfa sund með ÍR. Skúli var mikill keppnismaður og átti Íslandsmet í boðsundi og vann til margra verðlauna. Einnig æfði Skúli knattspyrnu með Þrótti. Skúli vann hjá Landsbank- anum og sem deildarstjóri í af- greiðslu Skattstofu Reykjavík- ur. Útför Skúla Rúnars fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 15. desember 2020, kl. 13. Í ljósi aðstæðna er útförin aðeins fyrir nánustu fjölskyldu. d. 31.12. 2001, Jens Pétur, f. 21.7. 1920, d. 9.8. 2010, Jóna Guðrún, f. 21. apríl 1924, d. 11. jan. 1925, Magnús Guð- berg, f. 24. nóv- ember 1925, d. 16.5. 2015. Skúli Rúnar kvæntist eiginkonu sinni 1. ágúst 1959, Guðrúnu Ingveldi Guðjónsdóttur, f. 13. júní 1930, d. 20. ágúst 2020. Þau eign- uðust fimm börn: 1) Páll, f. 31.1. 1959, maki Agnes Kragh Hansdóttir. Börn þeirra eru Guðrún Íris, Hans Kragh, Anna Margrét og Bryndís Inga. 2) Jónas, f. 12.8. 1960, maki El- ísabet M. Jóhannesdóttir. Börn þeirra eru Anton Rafn, Ágúst Elskulegur faðir minn kvaddi okkur í byrjun desember. Það er margs að minnast og þegar við skoðum myndir þá rifjast upp margar skemmtilegar minningar sem ylja okkur á þessum tíma. Við vitum að pabbi er kominn til mömmu eft- ir stuttan aðskilnað hjá þeim, þar sem mamma kvaddi okkur í lok ágúst. Fyrstu minningar mínar um pabba eru þegar við fórum tvö saman á skíði í Hamragilið á ÍR-svæðinu. Pabbi var alltaf boðinn og búinn að koma með mér, mamma smurði nestið okkar, brauð með slátri, heitt kakó og eitthvað sætt með. Þetta voru yndislegir tímar sem við áttum tvö saman. Pabbi átti það til að vera þrjóskur og hann fór aldrei annað en í Hamragilið og ég hélt á tímabili að það væri ekkert skíðasvæði til í nágrenn- inu. Ástæðan fyrir því að við fórum á ÍR-svæðið er að pabbi keppti í sundi með ÍR á sínum yngri árum og þarna voru gaml- ir félagar hans. Pabbi var góður sundmaður og átti t.d. Íslands- met í boðsundi með félögunum, ásamt öðrum einstaklingsverð- launum. Honum þótti gott að setjast niður með þeim og ræða málin á meðan ég fór nokkrar aukaferðir í brekkunni. Ég er þakklát fyrir þessar ferðir. Pabbi var frábær leiðbein- andi og ég uppgötvaði það ekki fyrr en ég varð eldri. Þegar ég byrjaði að spila knattspyrnu mætti pabbi á völlinn og alltaf var hann að leiðbeina mér hvað ég hefði getað gert betur og ekki var hrósað nema þegar maður átti það skilið. Þarna lærði ég að innantómt hrós skil- ar engum árangri. Pabbi var mjög áhugasamur að vinna í bústaðnum, hugsa um gróðurinn, slá grasið eða laga húsið. Ávallt var Magnús Skúli boðinn og búinn að hjálpa afa sínum og þeir gengu með sláttuvélina saman ófáa hring- ina á túninu og á kvöldin var spilað á spil og allir nutu sam- verunnar. Að ógleymdum rétt- arferðunum á haustin, þá fór pabbi með strákana og fylgdist með þeim við réttargarðinn. Í sumar fór ég ásamt Magga og Magnúsi Skúla með pabba í síðustu dagsferðina hans í sum- arbústaðinn. Því miður komst mamma ekki með okkur vegna heilsubrests. Lagt var af stað um morguninn og að sjálfsögðu var stoppað á pylsubarnum á Selfossi og fengið sér eina með öllu. Í bústaðnum tók Skúli bróðir á móti okkur, heilsu pabba hafði hrakað mikið og átti hann í miklum erfiðleikum með að komast upp tröppurnar en upp fór hann á þrjóskunni. Hann táraðist þegar hann sá hve mikið gróðurinn var búinn að stækka og fóru þeir feðgar stutta ferð út í móann að skoða trén. Ómetanleg ferð á þessu ári, sem við nutum öll saman. Við vorum vön að eiga marg- ar jólahefðir með mömmu og pabba á aðventunni. Við drukk- um saman heitt súkkulaði með rjóma, bökuðum lagkökur, smá- kökur, heitt hangikjöt og fórum í jólaljósabílferðir. Ég hlakka til að halda þessum hefðum um ókomin ár með fjölskyldunni. Við munum öll sakna ykkar mömmu mikið en við vitum að þú hafir dansað til hennar og Guðjóns. Verð ávallt þakklát fyrir þann tíma sem ég átti með ykk- ur og þakklát fyrir að fá að sinna ykkur síðustu ár í veik- indum ykkar. Takk fyrir allt, ykkar dóttir, Auður. Í dag kveð ég pabba og hugsa til alls þess sem við gerð- um saman ásamt mömmu, því þau gerðu allt saman í rúm 60 ár. Þau voru dugleg að ferðast um landið með fjölskyldunni á gamla Landrovernum og árlega voru farnar ferðir vestur á Ísa- fjörð þaðan sem hann pabbi var ættaður. Þá var farið á skíði fyrir vestan og upp í ÍR hér fyrir sunnan. Húsið í Hörgsl- undi 15 var keypt tilbúið undir tréverk og var það að mestu standsett ásamt garðinum af pabba sjálfum en hann var ein- staklega handlaginn og dugleg- ur til verka. Á hverju sumri var farin ferð ásamt vinahópi í stóra símabú- staðinn við Apavatn. Þetta voru hátt í 20 manns og það var ým- islegt brallað og auðvitað farið í sund með allan hópinn en þar komu pabbi, Garðar og Helgi sterkir inn enda fyrrverandi keppnismenn í sundi. Þegar við börnin vorum flog- in úr hreiðrinu hófust ferðalög þeirra með ferðafélaginu Garðabakka en þau ferðuðust næstu árin vítt og breitt um heiminn. Það var einstaklega gaman að hlusta á allar ferða- sögurnar og skoða myndirnar sem hann pabbi tók á ferðalög- unum en hann var mikill áhuga- ljósmyndari og tók ógrynni mynda alla tíð. Eftir að þau hættu að vinna kom sú hugmynd frá pabba og mömmu að við fjölskyldan myndum koma okkur upp sam- eiginlegum griðastað í sveitinni og var því hafist handa við að byggja sumarbústað í landi Stóra-Hofs í Gnúpverjahreppi. Bústaðurinn var þeirra líf og yndi og þau nutu þess að vera þar með fjölskyldu og vinum. Pabbi eyddi löngum stundum úti við í bústaðnum, að rækta og hlúa að trjám og plöntum sem höfðu verið gróðursett. Sérstaka umhyggju fékk lundur sem hann nefndi Skúlalund og var gaman að sjá hvað gróð- urinn þar óx einstaklega vel. Síðustu tvö árin sem þau lifðu gátu þau því miður ekki notið ferðalaga í bústaðinn eins og þau vildu vegna heilsubrests en voru lánsöm að fá að dvelja saman síðustu ævidagana á Hrafnistu í Hafnarfirði. Takk fyrir samfylgdina. Skúli Rúnar Skúlason. Elsku tengdapabbi, Skúli Rúnar, ég kveð þig með sökn- uði. Það er stutt síðan við kvöddum Ingu þína og nú ertu komin til hennar. Þú varst ein- stakur tengdapabbi, ljúfur sem lamb, alltaf glaður og stutt í stríðnina. Ég man þegar ég kom frá Bandaríkjunum sem skiptinemi 1982, þá átti ég ekki til orð þegar sonur þinn hringdi um hánótt til að láta sækja sig, því hann fann engan leigubíl. Ekki sagðir þú nei heldur birt- ist eftir örfáar mínútur. Þegar ég kynntist þér betur sá ég fljótt að það orð var ekki til í þinni orðabók. Alltaf varstu boðinn og búinn að skutla og sækja, hvort sem það vorum við fullorðna fólkið eða barnabörnin þín. Ég gat ekki átt betri tengdapabba og eins og ég sagði við þig í símanum, því ekki máttum við heimsækja þig á Hrafnistu, elskuðum við þig mjög heitt og erum þakklát fyr- ir allar yndislegu minningarnar sem við eignuðumst með ykkur Ingu. Guð geymi þig. Þín tengda- dóttir, Elísabet. Kveðja til tengdaforeldra Hvað er fallegra en að fara í hina hinstu ferð svo til á sama tíma. Rúmir þrír mánuðir eru ekki langur tími þegar hjón hafa ferðast saman í 62 ár, en það er sá tími sem Skúli lét Ingu bíða eftir sér þar til þau sameinuðust aftur. Ég kynntist Ingu og Skúla fyrir 43 árum þegar ég fór að vera með Palla elsta syni þeirra, það er ekki hægt að segja annað en þar hafi verið þau samrýndustu hjón sem ég hef kynnst. Ef Inga sat og prjónaði þá sat Skúli og saumaði út, ef Inga var að elda eða baka, sem var frekar oft, þá sat Skúli henni til samlætis og spjallaði við hana, svo ekki sé minnst á brennandi áhuga á golfi, þó eingöngu frá sjón- varpstækinu. Það sem var gam- an að hlusta á þau tala um hinn og þennan golfspilarann og nöfnin voru ekkert að þvælast fyrir þeim, þvílíkur límheili hjá þeim báðum. Þessi elsku hjón lifðu fyrir fjölskyldu sína, börn, barnabörn og barnabarnabörn, sem var heldur betur að fjölga hjá þeim, maður sá hvað þau voru stolt af ungunum sínum og var alltaf jafn gott að líta til þeirra og fá kaffi og eitthvað nýbakað. Elsku Inga og Skúli, ég vil þakka fyrir yndislegan tíma sem við höfum átt saman og betri tengdaforeldra er ekki hægt að hugsa sér. Agnes Kragh Hansdóttir. Fallinn er frá heiðursmaður- inn Skúli Rúnar Guðjónsson. Ég kynntist Skúla fyrir hartnær áratug þegar við Unndís, son- ardóttir hans, felldum hugi sam- an. Skúli tók mér strax opnum örmum og gátum við rætt um allt milli himins og jarðar. Skemmtilegast þótti okkur þó að ræða sams konar starfsferil okkar, en Skúli starfaði hjá Rík- isskattsstjóra um árabil og voru það ógrynni af sögum sem hann gat rifjað upp sem ungum áhugamanni um skattskil og bókhald þótti jafnan skemmti- legar og áhugasamar í senn. Við Skúli áttum það einnig sameiginlegt að eiga konur sem höfðu skoðanir á hlutunum, en Unndís mín og Inga heitin voru um margt líkar. Mér er það minnisstætt þegar við Unndís vorum í kaffi á Strikinu eitt- hvert skiptið. Inga var að ráð- leggja Skúla hvernig best væri að fara að ákveðnum hlut og á sama tíma var Unndís að leggja til ákveðna aðferðafræði við mig. Okkur Skúla varð litið hvorum á annan, brostum og skynjuðum í senn hversu ynd- islegar konur við ættum. Þetta var lífið. Skúli var barngóður með ein- dæmum og var einstaklega gaman að fylgjast með hvernig hann ljómaði í kringum afa- og langafabörn sín. Það var svo í júní síðastliðið sumar sem við Unndís fórum í heimsókn til Ingu og Skúla sem þá voru komin á Hrafnistu. Tilgangur heimsóknarinnar var að til- kynna þeim hjónum að við Unndís ættum von á okkar fyrsta barni. Gömlu hjónin brostu út að eyrum og það var engu líkara en Skúli hefði feng- ið vítamín beint í æð þar sem hann nánast stökk upp úr stóln- um sínum og faðmaði okkur í bak og fyrir. Þrátt fyrir að heilsu Skúla hafi hrakað mjög þá síðustu mánuði er hann lifði og minnið farið að vefjast fyrir honum spurði hann samt alltaf í þau skipti sem við heyrðum í honum hvernig meðgangan gengi og hvort langafastelpan hans færi nú ekki að koma bráðum. Því miður náði Skúli ekki að lifa til þess að sjá lang- afastelpuna sína fæðast en það er þó von mín og trú að litla stúlkan okkar muni erfa alla þá frábæru eiginleika sem ein- kenndu þann heiðursmann sem Skúli var. Farðu í friði elsku Skúli. Þinn vinur, Arnór Kristinn Hlynsson. Elsku afi. Í dag kveðjum við afa okkar og rifjum upp gamlar minningar. Afi var yndislegur og það sem stendur upp úr þeg- ar komið er að kveðjustund eru sumarbústaðaferðirnar. Afi ræktaði kartöflur og við fengum að hjálpa honum að tína upp- skeruna með honum. Við hjálp- uðum honum að slá grasið og taka það saman. Réttarferðirn- ar í sveitinni voru ótrúlega skemmtilegar og afi naut sín í botn að fara með okkur. Kjöt- súpan hennar ömmu eftir rétt- arferðirnar var alltaf mjög góð. Við eigum góðar minningar frá því við fórum í Veiðivötn með ykkur ömmu og áttum góða dagstund með ykkur. Þegar við fórum í bíltúr að skoða jóla- ljósin í bænum var afi alltaf tilbúinn að splæsa í ís. Afi var mjög þolinmóður og keyrði með okkur í bæinn til að ná í póke- mona. Afi kenndi okkur að spila á spil þegar við vorum á ungum aldri. Hann hafði mikinn áhuga á hvernig okkur gekk í skól- anum og í íþróttum og var dug- legur að hrósa okkur. Takk fyrir allt elsku afi, við erum þakklátir fyrir árin með þér en nú ert þú kominn til ömmu og Guðjóns. Þínir afastrákar, Guðjón Fannar og Magnús Skúli. Elsku afi minn. Nú er komið að kveðjustund og við það vakna til lífsins ótal góðar minn- ingar um tímann sem við höfum átt saman í gegnum árin. Minn- ingarnar tengjast flestar þeim stundum sem ég átti með ykkur ömmu Ingu enda voruð þið tvíeyki sem sást sjaldnast í sundur. Nú eruð þið aftur sam- einuð eftir stutta stund hvort frá öðru og það veitir mér huggun að hugsa til þess. Það sem er mér minnisstæð- ast þegar ég hugsa um afa er góða skapið hans sem virtist ávallt vera til staðar. Það var alltaf stutt í brosið og glens og grín. Þegar maður var með ömmu og afa var afi einhvern veginn alltaf á ferðinni, hvort sem það var að sækja hluti fyrir ömmu, vinna í garðinum eða að vaska upp eftir matinn. Amma hafði hið mesta dálæti á að segja sögur frá gömlu dögunum og fréttum dagsins, oft í miðjum sögum var afi fenginn til að sækja eitthvað til að sýna okkur og þegar við buðumst til að sækja í staðinn fyrir hann var hann löngu lagður af stað. Það var nefnilega þannig að hann afi gerði allt fyrir ömmu. Ég og systir mín vorum heppnar að fá að eyða góðum tíma með þeim á bernskuárum okkar þar sem við bardúsuðum mikið saman. Við höfðum ein- staklega gaman af því að spila með þeim tígulsjöu, leggja kap- al, horfa á spólur frá því við vorum litlar á Apavatni og svo síðast en ekki síst að fá að kúra á milli þeirra þegar við gistum heima hjá þeim. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma öllum ferðunum okkar í sumarbústað- inn. Þar eyddum við tímanum með afa úti að vinna í beðunum eða að skoða uppskeruna og amma sá um að kalla okkur inn í mat og kaffi með reglulegu millibili. Seinasta stundin okkar sam- an var í ágúst þar sem við sát- um og töluðum um hvað væri í gangi í okkar lífi. Þegar kom að kveðjustund tók hann ekki ann- að í mál en að labba með mér að dyrunum þar sem við kvödd- umst með knúsi. Takk fyrir allt elsku afi og amma mín, ég er ótrúlega hepp- in að hafa fengið ykkur sem afa og ömmu. Ykkar barnabarn, Hjördís Skúladóttir. Elsku besti afi okkar. Það var ekki fyrir svo löngu sem við skrifuðum minningargreinina hennar ömmu og ekki var það auðvelt. Þú hefur verið til stað- ar fyrir okkur svo ótrúlega lengi og eru það viðbrigði að hafa þig ekki lengur í lífi okkar. Allar þessar yndislegu stundir sem við áttum saman í Hörgsl- undi, á Strikinu og á Stóra-Hofi. Þú gast sagt okkur ótrúlegustu sögur frá því þú varst ungur og frá öllum ferðalögunum ykkar ömmu. Við höfum margoft sagt að þú værir yndislegur afi, ljúf- ur með mikla þolinmæði. Amma gat verið þrjósk og ákveðin en alltaf trítlaðir þú í kringum hana með þitt ljúfa bros og svo léttur á fæti. Það er skrítin tilhugsun að vita af því að við fáum aldrei aftur lagköku eða spesíur frá þér, enda voru þær það allra besta. Þú hugsaðir fyrst um aðra áður en þú hugsaðir um sjálfan þig, eins og til dæmis þegar þið amma buðuð okkur í mat þá varstu vanur að láta okkur borða áður en þú fékkst þér meira á diskinn. Þótt það sé virkilega sárt að missa þig veitir það okkur huggun að vita af þér hjá ömmu og Guðjóni og eru þau örugg- lega ánægð að fá þig. Takk fyrir að vera alltaf til staðar og kenna okkur svo margt og sýna ávallt ást og umhyggju. Þangað til næst. Við elskum þig. Guðrún Íris, Hans Kragh, Anna Margrét, Bryndís Inga. Skúli Rúnar Guðjónsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, RUT PETERSEN SIGURHANNESDÓTTIR, lést að heimili sínu í Kópavogi 2. desember. Útförin fer fram í dag, 15. desember, klukkan 15 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Vegna fjöldatakmarkana og í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir útförina sem verður streymt á slóðinni https://tinyurl.com/yxcmjzzv. Sig. Nanna Jónsdóttir William Wright Birna Björk Sigurðardóttir Guðmundur Rúnar Heiðarsson Bjarni Þór Sigurðsson Kristjana Arnarsdóttir Ingibjörg Ragna Sigurðard. Victor Pétur Kiernan Ásdís Guðrún Sigurðardóttir Björn Már Bollason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.