Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020 ✝ Rut PetersenSigurhannes- dóttir fæddist á Vesturgötu í Reykjavík 11. ágúst 1927. Hún lést á heimili sínu í Kópa- vogi 2. desember 2020. Foreldrar hennar voru Sig- urhannes Petersen Ólafsson, f. 26.3. 1905, d. 21.8. 1936, sjómaður í Reykjavík, ættaður af Álftanesi, og k.h., Ingibjörg Guð- mundsdóttir, f. 3.6. 1904, d. 16.6. 1971, húsmóðir og verkakona, frá Ámundakoti í Fljótshlíð. Alsystur Rutar voru Þórunn f. 1928, d. 2010, húsfreyja í Banda- ríkjunum; Sigurbjörg, f. 1931, d. 2001, húsfreyja í Reykjavík; og Eiríka, f. 1936, d. 1988, iðjuþjálfi í Reykjavík. Hálfsystir Rutar, sammæðra, er Sigrún Eliseus- dóttir, f. 1943, fyrrverandi heil- brigðisritari, búsett í Kópavogi. Rut giftist 1946 Jóni Guð- mundssyni, f. 1925, d. 2013, raf- virkjameistara og flugmanni. Þau skildu. Dóttir Rutar og Jóns er Sigríður Nanna, f. 13.6. 1947, býr í Reykjavík og stundaði lengi viðskipti í Flórída, maður henn- ar er William K. Wright og eru börn hennar Wendy, f. 1967, Jón, f. 1970, maður hans er Ágúst Stefánsson, og Patricia, f. 1978, en maður hennar er Svavar Þór- isson. Börn Wendyar eru Erik, Nanna Rakel og Viktor, sonur Nönnu Rakelar er Kaynalu Thor. Börn Patriciu eru Ava Jennifer og Jax David. Rut var trúlofuð Steinþóri Sigurðssyni myndlistarmanni og Elí og Eldey Katrín. Börn Krist- jönu eru Lovísa María Emils- dóttir, f. 1980, börn hennar eru Ívar Uggi og Sunna María, og Ívar Emilsson, f. 1984. Sonur Bjarna og Kristjönu er Sigurður Stefán, f. 1995. Börn Ingibjargar og Victors eru Sunneva Mist, f. 1987, mað- ur hennar er Kristján Óli Em- ilsson og sonur þeirra Óliver Stormur, og Sigurður Victor, f. 1991. Börn Ásdísar eru Íris Tanja f. 1989 og eiga Íris og Valur Hrafn Einarsson börnin Aron Þór og Kolbrá Sögu; Þór Örn, f. 1992, og Sigurður Stefán f. 1994, sam- býliskona hans er Sofie Weng- ander. Rut ólst upp í vesturbæ og Þingholtunum í Reykjavík. Hún var í Miðbæjar-, Austurbæjar-, og Laugarnesskóla. Rut sinnti afgreiðslustörfum við bókabúð Stellu í Bankastræti á unglingsárunum og vann síðan á saumastofu Belgjagerðarinn- ar, hún var annáluð saumakona. Hún var síðan heimavinnandi á meðan börnin uxu úr grasi, starfaði síðan við barnafataverl- unina Bangsa og við leikskólann Sólbakka. Rut var einn af stofnendum Klúbbs 44 sem var skemmti- og góðgerðarfélag eiginkvenna pípulagningameistara, og tók virkan þátt í starfi þess um ára- bil. Hún tók þátt í starfi Leik- félags Kópavogs og saumaði leikbúninga fyrir félagið. Þá lék hún golf um árabil. Útför Rutar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 15. desem- ber 2020, kl. 15 og verða aðeins nánustu aðstandendur við- staddir. Stytt slóð á streymi: https://tinyurl.com/yxcmjzzv Virkan hlekk á streymi má nálgast á https://www.mbl.is/andlat eignuðust þau dóttur, Sigrúnu Eddu, f. 30.7. 1953, d. 1983, flug- freyju. Rut og Steinþór slitu sam- vistum. Rut giftist 19.1. 1957 Sigurði Stef- áni Bjarnasyni, f. 11.1. 1932, d. 1983, pípulagn- ingameistara. Þau bjuggu lengst af í Kópavogi. Börn Rutar og Sigurðar eru: 1) Birna Björk, f. 25.3. 1957, starf- ar í hugbúnaðarfyrirtæki í Danmörku, en maður hennar er Guðmundur Rúnar Heið- arsson. 2) Bjarni Þór, f. 4.9. 1958, markaðsstjóri í Reykja- vík, en kona hans er Kristjana Arnarsdóttir. 3) Ingibjörg, f. 8.10. 1963, ferðafræðingur í Reykjavík en maður hennar er Victor Pétur Kiernan. 4) Ásdís Guðrún, f. 20.12. 1965, sál- fræðimennuð, ráðgjafi hjá Reykjavíkurborg en maður hennar er Björn Már Bollason. Börn Birnu og Guðmundar eru Ragnar, f. 1983, dóttir hans er Sarah Isabellé, Ragnar er trúlofaður Emmu Seiding, hún á einn son; Stefanía Katrín, f. 1989, maður hennar er Sharooz Hooshyar og eru synir þeirra Benjamin Rúnar og Lucas Val- ur. Börn Bjarna Þórs eru Mel- korka Rut, f. 1989, en maður hennar er Hafþór Gunn- laugsson og dóttir þeirra Arney María; Baldur Þór, f. 1992, en kona hans er Berglind Hönnu- dóttir og eru börn þeirra Cýrus Maður er aldrei undirbúinn þegar dauðann ber að garði og tekur frá manni þá sem við elskum og eru kærastir. Það er sárt að missa ástvin og sökn- uðurinn er mikill. Eina stundina hvarflar hugurinn að góðum og hlýjum minningum æskunnar, sem ylja og hjálpa til við að tak- ast á við sorgina og söknuðinn. Hina stundina hellist yfir sorg og eftirsjá. Sorgin kvaddi snemma dyra hjá mömmu. Pabbi hennar lést þegar hún var aðeins níu ára. Ingibjörg amma varð ekkja með fjórar stelpur. Mamma var elst og sú yngsta tveggja mánaða. Öryggisnet samfélagsins eins og við þekkjum var ekki til staðar og við tók fátækt og erfiðleikar ungrar móður. Mamma var fædd á Vestur- götunni og ólst upp í miðbæn- um. Hún sagði mér oft frá sam- heldni bæði móður- og föðurfjölskyldu og vinskap systkinabarna Sigurhannesar afa. Foreldrar mínir byggðu sér hús sem var æskuheimili mitt og systra minna. Það stóð við Nýbýlaveg í landi Snælands í Kópavogi. Fjöldi barna var í hverju húsi og ævintýri á hverju strái fyrir börn. Móðir okkar var alltaf til staðar fyrir okkur og lagði sig fram við að þekkja krakkana í hverfinu. Ég veit að hún þurfti að hafa mikið fyrir mér og ég náði ein- hvern veginn alltaf að koma heim blautur og óhreinn. Hún þakkaði fyrir að systur mínar voru ekki eins fyrirferðarmikl- ar. Hún þurfti oft að fara með mig á slysavarðstofuna. Ein- hvern veginn náði ég reglulega að slasa mig. Fá gat á hausinn sem þurfti að sauma, fara úr lið eða brjóta bein. Og alltaf fór elsku mamma með litla stákinn sinn á slysó. Þegar ég var ellefu ára slasaðist ég illa, braut báðar hendur og fótbrotnaði og ég man hvað þetta var óumræð- anlega sárt. Mamma sat hjá mér allan sólarhringinn fyrstu dagana, strauk mér um vang- ann og hughreysti. Eftir að ég var orðinn full- orðinn og hitti vini sem ég hafði ekki hitt lengi fékk ég nær und- antekningarlaust spurninguna, hvernig hefur mamma þín það og síðan skilaðu kveðju til henn- ar. Fyrir ekki svo mörgum ár- um hitti ég mann sem ólst upp í sama hverfi. Hann varð oft fyrir aðksti þegar hann var lítill. Hann lýsti því fyrir mér hvað mamma hefði alltaf verið góð við hann þegar hann var lítill og hvað það skipti hann miklu máli. Mamma fylgist alltaf vel með því sem við systkinin vorum að gera og setti sig inn í áhugamál okkar. Á unglingsárum mínum og tveggja yngri systra minna var Leikfélagið okkar annað heimili. Fyrr en varði var hún byrjuð að hjálpa til við að sauma leikbúninga. Ég veit ekki hvort hún hafði gaman af pönki, þegar það helltist yfir okkur Kópavogsunglingana en hún hallmælti því í það minnst aldr- ei eins og flestir fullorðnir. Árið 1983 var erfitt fyrir fjöl- skyldu okkar. Sigrún Edda systir lést í janúar aðeins 29 ára gömul eftir erfið veikindi. Pabbi okkar lést fimm vikum seinna 51 árs. Ég sé mikið eftir því að hafa ekki verið móður minni meiri stoð og stytta í sorginni. Ég hafði sótt um skólavist í París og flutti til Frakklands þremur mánuðum eftir að pabbi dó. Mamma kom ári síðar í heimsókn til mín til Parísar og við áttum góðan tíma saman. Hún rifjaði oft upp atvik frá þessari ferð, margt sem ég hafði löngu gleymt en hún mundi eins og gerst hefði í gær. Ég á ótal góðar minningar um elskulega móður mína. Ég hef ekki minnst á fjölmörg uppátæki hennar. Eins og þegar hún fór í fallhlífarstökk þegar hún átti sjötugsafmæli. Eða þegar hún þeysti um bæinn aft- an á mótorhjóli þegar hún varð 80 ára. Mamma var dugleg þrátt fyrir að fæturnir væru að gefa sig. Það var henni mikils virði að geta keyrt sinn eigin bíl alla daga fram í andlátið, það gaf henni sjálfstæði og frelsi. Hún reykti aldrei og smakkað varla vín en hún elskaði að dansa og fara út á meðal fólks. Henni fannst verst að geta ekki dansað þegar hreyfigetan fór þverrandi. Takk fyrir mig, elsku mamma mín, ég sakna þín mikið en ég veit að nú dansar þú á nýjum stað meðal vina. Meira: mbl.is/andlat Bjarni Þór Sigurðsson. Hún fæddist á Vesturgötunni 1927 í ágústmánuði. Hún lék sér í Vesturbænum og Þingholtun- um. Hún missti föður sinn níu ára gömul og átti þrjár yngri systur. Hún hljóp inn til mömmu sinnar 10. maí 1940 og sagði henni að það væri búið að her- nema landið. Hún var glæsileg Reykjavík- urdama. Hún giftist, eignaðist stúlku. Hún skildi. Hún fékk berkla. Hún var á berklahælinu á Vífilsstöðum. Hún trúlofaðist listamanni, eignaðist aðra stúlku. Hún varð einstæð móðir og starfaði í Belgjagerðinni. Hún dansaði á Borginni. Hún kynntist föður mínum á 17. júní í Austurstræti. Hún eignaðist þriðju stúlkuna, mig. Hún eignaðist son. Hún eign- aðist tvær stúlkur í viðbót. Hún var nánast alla okkar barnæsku heimavinnandi. Hún tók bílpróf þegar hún var 47 ára og fór keyrandi sjálf í prófið. Hún missti manninn sinn og næstelstu dóttur sína með fimm vikna millibili. Hún saumaði búninga fyrir Leikfélag Kópavogs. Hún saum- aði grímubúninga á okkur systkinin þegar við vorum lítil sem voru verðlaunaðir. Hún var vinkona vinahópa okkar systkinanna. Hún tók mikið af myndum. Hún horfði alltaf á handbolta. Hún passaði börnin mín. Hún var syngjandi og dans- andi. Hún starfaði í vinsælustu barnafataverslun Íslands Bangsi fix. Hún starfaði á barnaheimili. Hún fór í fallhlíf- arstökk á 70 ára afmælinu sínu. Hún sendi okkur fjölskyld- unni í Danmörku pakka í hverj- um mánuði. Hún kom til Dan- merkur á hverju ári til okkar. Hún var keyrð af mótorhjóla- köppum um miðbæ Reykjavíkur á 80 ára afmælinu sínu. Hún var falleg. Hún var mjúk. Hún var ákveðin. Hún hafði sínar skoðanir. Hún fór sínar leiðir og var fylgin sér. Hún var á margan hátt á undan sinni samtíð með svo margt. Hún elskaði að fara í kaffihús, veitingastaði, hitta fólk. Hún var stríðin og hafði góð- an og skemmtilegan húmor. Hún elskaði börnin sín og barnabörn. Hún vildi helst hafa okkur allar stundir hjá sér. Hún talaði við mig í síma til Dan- merkur á hverjum degi. Hún sagði sínar skoðanir. Hún hafði skemmtilegan hlát- ur. Hún fór ekki út úr húsi nema setja upp eyrnalokka. Hún byrjaði að nota munnbindi/ grímu í flugvél þegar hún ferð- aðist t.d. til Danmerkur fyrir 15 árum. Hún byrjaði að nota hanska í matvöruverslunum fyr- ir mörgum árum. Hún sá um sig sjálf, eldaði sjálf, þvoði þvottinn sinn sjálf, keyrði bílinn sinn, allt fram á síðasta dag. Hún hlustaði á barnabarn mitt þriggja ára í símanum syngja á íslensku „afi minn og amma mín úti á Bakka búa“ síð- asta daginn sinn, hún hló og klappaði fyrir honum. Hún talaði við mig í símanum síðasta kvöldið sitt. Hún var yndisleg. Hún var glæsileg, frá fæðingu til hinsta dags. Hún var mín móðir. Hún verður alltaf hjá mér í hug- anum. Birna Björk Sigurðardóttir. Við vorum lánsamar að alast upp á þeim tíma sem við gátum verið með mömmu sem var heimavinnandi og sinnti heim- ilinu af alúð. Barnahópurinn frá unglingum niður í smábörn og hún dugleg að láta hlutina ganga vel. Hún hafði heimilið hreint og snyrtilegt, fór vel með hlutina sína og átti þá lengi. Var góð saumakona og saumaði fal- leg föt á okkur. Jólafötin saum- aði hún á milli þess sem hún bakaði jólasmákökurnar og und- irbjó barnaafmæli, þar sem ég, Ásdís, á afmæli rétt fyrir jól. Hún hélt alltaf fallega upp á af- mælið eins og hún hélt upp á af- mæli okkar allra þrátt fyrir miklar annir jólanna. Mamma var mikill vinur okk- ar, fylgdist með og tók þátt í því sem við vorum að gera hvort heldur sem við vorum litlar stelpur í dúkkuleik eða í því sem við vorum að fást við á unglingsárunum. Það voru mikil forréttindi að alast upp í Kópavoginum með mömmu, pabba og stórum systkinahópi á þeim tíma þegar bærinn var enn svolítil sveit. Þá var gott að vera úti að leika frjáls í náttúrunni og hafa alltaf tilfinningu um öryggi að vita af mömmu innan seilingar. Hún vildi gleðja fólkið sitt og þar voru kisurnar okkar systra ekki undantekning, því þær fengu einnig jólapakka. Mamma hafði gaman af að hitta fólk og fylgdist með mannlífi líðandi stundar. Alltaf var hún glæsileg og vel tilhöfð. Ungleg, bæði í útliti og anda. Hún fylgdist með því sem var að gerast og þekkti ungt tónlistarfólk líðandi stundar, þó var Haukur Morthens alltaf í uppáhaldi. Hún hafði gaman af að dansa og þegar hún hlustaði á lög í út- varpinu sem henni fannst skemmtileg dansaði hún og söng af innlifun. Í seinni tíð dillaði hún sér og ljómaði þegar hún heyrði lög sem hún þekkti. Það var stutt í hláturinn og það var gaman að hlæja og grínast með henni. Hún var til staðar fyrir okk- ur í erfiðleikum og fagnaði með okkur þegar vel gekk. Dugleg kona hún mamma og gafst aldrei upp þótt á móti blési. Hún hafði mikla seiglu, var þrautseigasta kona sem við vitum um og góð fyrirmynd. Eftir að hafa gengið í gegnum margt á lífsleiðinni stóð hún alltaf upprétt og var sjálfstæð eins og hún vildi vera. Mamma vissi hvað hún vildi og hvað hún vildi ekki. Pönnukökurnar hennar voru frægar í stórfjölskyldunni. Hún talaði oft um þegar pabbi kom til hennar í kaffi í fyrsta sinn, þá bakaði hún pönnukökur sem honum fannst þær bestu sem hann hafði smakkað. Hún bak- aði alltaf pönnukökur fyrir þá sem áttu afmæli í fjölskyldunni og keyrði með þær til þeirra á afmælisdaginn. Hún var lífsglöð og kraftmikil, eldaði fyrir sig sjálf og keyrði bílinn sinn til síðasta dags. Hún var mikið fyrir mann- fögnuði og hélt veislur þar sem börn og barnabörn komu til hennar. Barnabörnin eiga góðar minningar um það, því hún fann upp á ýmsum leikjum og þeim fannst hún skemmtileg amma. Athyglin beindist oft að henni þar sem fólk kom saman því hún var uppátækjasöm og hristi upp í stemningunni því hún hafði ekki mikla þolinmæði fyrir leiðindum. Mamma var óhrædd við að standa með börnum og minni- máttar þegar þeim var sýnt óréttlæti, þá var hún fljót að láta í sér heyra og koma til hjálpar. Hún var þekkt fyrir það og núna síðustu daga höf- um við systurnar heyrt frá æskuvinum okkar að þeim fannst hún mikill karekter og báru virðingu fyrir henni. Söknuðurinn er mikill en minningarnar um elsku mömmu eru gimsteinar sem við munum alltaf geyma í hjörtum okkar. Heimilið var höllin hennar og hún var drottningin. Elsku fallega, góða mamma okkar, takk fyrir allt. Ingibjörg og Ásdís. Meira: mbl.is/andlat Elskuleg tengdamóðir mín er fallin frá. Það var snemma morguns hinn 2. desember sem ég fékk þær fréttir að hún Ruth tengdamóðir mín væri fallin frá. Mér brá verulega við þessar fréttir því þótt hún Ruth hafi verið orðin 93 ára gömul var hún alltaf svo hress og full lífs- orku. Ég kynntist Ruth þegar ég og Ingibjörg dóttir hennar byrjuðum að stinga saman nefj- um fyrir rúmum 35 árum og frá fyrstu tíð tók hún mér opnum örmum og sýndi mér upp frá því aldrei neitt annað en ást og elskulegheit. Ruth var glæsileg kona og með eindæmum dugleg og sjálf- stæð í alla staði. Þótt hún hafi verið komin á þennan háa aldur tók hún ekki annað í mál en búa í sínu eigin húsnæði, elda sinn mat og sinna flestum öðr- um daglegum störfum sjálf. Ef henni leiddist heima skellti hún sér bara út í bíl og keyrði á vit einhverra ævintýra. Eitt sinn stakk ég upp á því við hana hvort hún hefði ekki gaman af að taka þátt í ein- hverju tómstundastarfi eldri borgara. Hún svaraði því til að þar væri bara gamalt fólk og hún hefði lítinn áhuga á að sitja þar allan daginn. „Ég vil geta hreyft mig og verið á ferðinni,“ sagði hún. Það lýsir hennar persónu ansi vel að þegar hún varð sjö- tug vildi hún fara í fallhlífar- stökk á afmælisdaginn sem hún og gerði og sökk út úr flugvél í 10 þúsund feta hæð og hafði mjög gaman af. Á áttræðisaf- mælisdeginum vildi hún prófa alvörumótorhjól sem hún og gerði og þaut um götur bæj- arins, leðurklædd, og í fríðu föruneyti Sniglanna. Já hún Ruth var engri lík og þvílíkur kvenskörungur er vandfundinn. Elsku Ruth, það var heiður að fá að kynnast þér og verða þér samferða í lífinu. Minningin lifir. Þin tengdasonur, Victor Pétur Kiernan. Elsku amma. Það er svo skrýtið að þú sért farin. Ég sem var handviss um að þú yrðir 100 ára. Það er erfitt að kveðja en ég á alltaf minningarnar okkar sem eru óteljandi að mér finnst. Rifsberjasaftið. Ilmvötnin í ísskápnum. 17. júní-boðin. Pönnukökurnar. Eldhússpjallið. Aðfangadagskvöldin. Spádómarnir. Rauða spjaldið. Bíltúrarnir. Ævintýrin. Sögurnar. … og allar hinar minning- arnar sem ég á með sjálfri mér núna. Nokkrum dögum áður en þú kvaddir dáðumst við saman að sólarlaginu út um stofuglugg- ann þinn sem var einstaklega fallegt þetta kvöld. Þetta reynd- ist svo vera síðasti dagurinn sem við eyddum tíma saman. Þegar ég lít til baka finnst mér þetta táknrænt augnablik og ég er glöð að hafa átt það með þér. Núna ertu loksins komin til afa og Sigrúnar Eddu. Verk- irnir eru farnir og þú ert á góð- um stað. Ég get ekki hugsað mér betri verndarengil. Sofðu rótt amma mín. Þín Sunneva. Elsku amma mín. Við vorum miklar vinkonur og samband okkar svo dýrmætt. Þú hefur alltaf átt sérstakan stað í mínu hjarta, og ég á margar skemmtilegar minningar um okkur. Þú passaðir mig þegar ég var barn, horfðir oft á mig spila handbolta og varst alltaf til staðar. Stjörnumerkið þitt var ljónið en þú minntir mig líka alltaf á ljónynju, því þú varst sterk, sjálfstæð, ákveðin, falleg og þú hugsaðir alltaf mjög vel um þinn flokk. Sumarið 2019 vorum við fjöl- skyldan í heimsókn á Íslandi, og var það síðasta skiptið sem ég sá þig. Í þessari ferð komum við í heimsókn til þín á hverjum degi. Við spjölluðum um gamla daga og þú sagðir mér svo margt um þig, æsku þína og líf sem ég hafði aldrei heyrt áður. Við spjölluðum líka oft saman í síma og ég sendi þér reglulega myndir af strákunum mínum, þér fannst svo gaman að geta fylgst með. Benjamin Rúnar talaði við þig í símann kvöldið áður en þú kvaddir þennan heim. Hann söng fyrir þig: „Amma mín og afi minn, út’ á bakka búa, þau eru bæði sæt og fín og þangað vil ég fljúga.“ Þér fannst það svo gaman og klapp- aðir fyrir honum. Amma mín, þú varst alltaf sæt og fín, og ég trúi því að þú sért nú sameinuð honum afa mínum, og einn góðan dag mun ég til þín fljúga. Ég mun aldrei gleyma þér amma mín, þú varst engri lík. Stefanía Katrín. Rut Petersen Sigurhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.