Morgunblaðið - 15.12.2020, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020
✝ Rut PetersenSigurhannes-
dóttir fæddist á
Vesturgötu í
Reykjavík 11. ágúst
1927. Hún lést á
heimili sínu í Kópa-
vogi 2. desember
2020. Foreldrar
hennar voru Sig-
urhannes Petersen
Ólafsson, f. 26.3.
1905, d. 21.8. 1936,
sjómaður í Reykjavík, ættaður af
Álftanesi, og k.h., Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, f. 3.6. 1904, d. 16.6.
1971, húsmóðir og verkakona,
frá Ámundakoti í Fljótshlíð.
Alsystur Rutar voru Þórunn f.
1928, d. 2010, húsfreyja í Banda-
ríkjunum; Sigurbjörg, f. 1931, d.
2001, húsfreyja í Reykjavík; og
Eiríka, f. 1936, d. 1988, iðjuþjálfi
í Reykjavík. Hálfsystir Rutar,
sammæðra, er Sigrún Eliseus-
dóttir, f. 1943, fyrrverandi heil-
brigðisritari, búsett í Kópavogi.
Rut giftist 1946 Jóni Guð-
mundssyni, f. 1925, d. 2013, raf-
virkjameistara og flugmanni.
Þau skildu. Dóttir Rutar og Jóns
er Sigríður Nanna, f. 13.6. 1947,
býr í Reykjavík og stundaði lengi
viðskipti í Flórída, maður henn-
ar er William K. Wright og eru
börn hennar Wendy, f. 1967, Jón,
f. 1970, maður hans er Ágúst
Stefánsson, og Patricia, f. 1978,
en maður hennar er Svavar Þór-
isson. Börn Wendyar eru Erik,
Nanna Rakel og Viktor, sonur
Nönnu Rakelar er Kaynalu
Thor. Börn Patriciu eru Ava
Jennifer og Jax David.
Rut var trúlofuð Steinþóri
Sigurðssyni myndlistarmanni og
Elí og Eldey Katrín. Börn Krist-
jönu eru Lovísa María Emils-
dóttir, f. 1980, börn hennar eru
Ívar Uggi og Sunna María, og
Ívar Emilsson, f. 1984. Sonur
Bjarna og Kristjönu er Sigurður
Stefán, f. 1995.
Börn Ingibjargar og Victors
eru Sunneva Mist, f. 1987, mað-
ur hennar er Kristján Óli Em-
ilsson og sonur þeirra Óliver
Stormur, og Sigurður Victor, f.
1991.
Börn Ásdísar eru Íris Tanja f.
1989 og eiga Íris og Valur Hrafn
Einarsson börnin Aron Þór og
Kolbrá Sögu; Þór Örn, f. 1992,
og Sigurður Stefán f. 1994, sam-
býliskona hans er Sofie Weng-
ander.
Rut ólst upp í vesturbæ og
Þingholtunum í Reykjavík. Hún
var í Miðbæjar-, Austurbæjar-,
og Laugarnesskóla.
Rut sinnti afgreiðslustörfum
við bókabúð Stellu í Bankastræti
á unglingsárunum og vann síðan
á saumastofu Belgjagerðarinn-
ar, hún var annáluð saumakona.
Hún var síðan heimavinnandi á
meðan börnin uxu úr grasi,
starfaði síðan við barnafataverl-
unina Bangsa og við leikskólann
Sólbakka.
Rut var einn af stofnendum
Klúbbs 44 sem var skemmti- og
góðgerðarfélag eiginkvenna
pípulagningameistara, og tók
virkan þátt í starfi þess um ára-
bil. Hún tók þátt í starfi Leik-
félags Kópavogs og saumaði
leikbúninga fyrir félagið. Þá lék
hún golf um árabil.
Útför Rutar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, 15. desem-
ber 2020, kl. 15 og verða aðeins
nánustu aðstandendur við-
staddir.
Stytt slóð á streymi:
https://tinyurl.com/yxcmjzzv
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á
https://www.mbl.is/andlat
eignuðust þau
dóttur, Sigrúnu
Eddu, f. 30.7.
1953, d. 1983, flug-
freyju. Rut og
Steinþór slitu sam-
vistum.
Rut giftist 19.1.
1957 Sigurði Stef-
áni Bjarnasyni, f.
11.1. 1932, d. 1983,
pípulagn-
ingameistara. Þau
bjuggu lengst af í Kópavogi.
Börn Rutar og Sigurðar eru: 1)
Birna Björk, f. 25.3. 1957, starf-
ar í hugbúnaðarfyrirtæki í
Danmörku, en maður hennar
er Guðmundur Rúnar Heið-
arsson. 2) Bjarni Þór, f. 4.9.
1958, markaðsstjóri í Reykja-
vík, en kona hans er Kristjana
Arnarsdóttir. 3) Ingibjörg, f.
8.10. 1963, ferðafræðingur í
Reykjavík en maður hennar er
Victor Pétur Kiernan. 4) Ásdís
Guðrún, f. 20.12. 1965, sál-
fræðimennuð, ráðgjafi hjá
Reykjavíkurborg en maður
hennar er Björn Már Bollason.
Börn Birnu og Guðmundar
eru Ragnar, f. 1983, dóttir hans
er Sarah Isabellé, Ragnar er
trúlofaður Emmu Seiding, hún
á einn son; Stefanía Katrín, f.
1989, maður hennar er Sharooz
Hooshyar og eru synir þeirra
Benjamin Rúnar og Lucas Val-
ur.
Börn Bjarna Þórs eru Mel-
korka Rut, f. 1989, en maður
hennar er Hafþór Gunn-
laugsson og dóttir þeirra Arney
María; Baldur Þór, f. 1992, en
kona hans er Berglind Hönnu-
dóttir og eru börn þeirra Cýrus
Maður er aldrei undirbúinn
þegar dauðann ber að garði og
tekur frá manni þá sem við
elskum og eru kærastir. Það er
sárt að missa ástvin og sökn-
uðurinn er mikill. Eina stundina
hvarflar hugurinn að góðum og
hlýjum minningum æskunnar,
sem ylja og hjálpa til við að tak-
ast á við sorgina og söknuðinn.
Hina stundina hellist yfir sorg
og eftirsjá.
Sorgin kvaddi snemma dyra
hjá mömmu. Pabbi hennar lést
þegar hún var aðeins níu ára.
Ingibjörg amma varð ekkja með
fjórar stelpur. Mamma var elst
og sú yngsta tveggja mánaða.
Öryggisnet samfélagsins eins og
við þekkjum var ekki til staðar
og við tók fátækt og erfiðleikar
ungrar móður.
Mamma var fædd á Vestur-
götunni og ólst upp í miðbæn-
um. Hún sagði mér oft frá sam-
heldni bæði móður- og
föðurfjölskyldu og vinskap
systkinabarna Sigurhannesar
afa.
Foreldrar mínir byggðu sér
hús sem var æskuheimili mitt
og systra minna. Það stóð við
Nýbýlaveg í landi Snælands í
Kópavogi. Fjöldi barna var í
hverju húsi og ævintýri á hverju
strái fyrir börn. Móðir okkar
var alltaf til staðar fyrir okkur
og lagði sig fram við að þekkja
krakkana í hverfinu.
Ég veit að hún þurfti að hafa
mikið fyrir mér og ég náði ein-
hvern veginn alltaf að koma
heim blautur og óhreinn. Hún
þakkaði fyrir að systur mínar
voru ekki eins fyrirferðarmikl-
ar. Hún þurfti oft að fara með
mig á slysavarðstofuna. Ein-
hvern veginn náði ég reglulega
að slasa mig. Fá gat á hausinn
sem þurfti að sauma, fara úr lið
eða brjóta bein. Og alltaf fór
elsku mamma með litla stákinn
sinn á slysó. Þegar ég var ellefu
ára slasaðist ég illa, braut báðar
hendur og fótbrotnaði og ég
man hvað þetta var óumræð-
anlega sárt. Mamma sat hjá
mér allan sólarhringinn fyrstu
dagana, strauk mér um vang-
ann og hughreysti.
Eftir að ég var orðinn full-
orðinn og hitti vini sem ég hafði
ekki hitt lengi fékk ég nær und-
antekningarlaust spurninguna,
hvernig hefur mamma þín það
og síðan skilaðu kveðju til henn-
ar. Fyrir ekki svo mörgum ár-
um hitti ég mann sem ólst upp í
sama hverfi. Hann varð oft fyrir
aðksti þegar hann var lítill.
Hann lýsti því fyrir mér hvað
mamma hefði alltaf verið góð
við hann þegar hann var lítill og
hvað það skipti hann miklu
máli.
Mamma fylgist alltaf vel með
því sem við systkinin vorum að
gera og setti sig inn í áhugamál
okkar. Á unglingsárum mínum
og tveggja yngri systra minna
var Leikfélagið okkar annað
heimili. Fyrr en varði var hún
byrjuð að hjálpa til við að
sauma leikbúninga. Ég veit ekki
hvort hún hafði gaman af pönki,
þegar það helltist yfir okkur
Kópavogsunglingana en hún
hallmælti því í það minnst aldr-
ei eins og flestir fullorðnir.
Árið 1983 var erfitt fyrir fjöl-
skyldu okkar. Sigrún Edda
systir lést í janúar aðeins 29 ára
gömul eftir erfið veikindi. Pabbi
okkar lést fimm vikum seinna
51 árs. Ég sé mikið eftir því að
hafa ekki verið móður minni
meiri stoð og stytta í sorginni.
Ég hafði sótt um skólavist í
París og flutti til Frakklands
þremur mánuðum eftir að pabbi
dó. Mamma kom ári síðar í
heimsókn til mín til Parísar og
við áttum góðan tíma saman.
Hún rifjaði oft upp atvik frá
þessari ferð, margt sem ég
hafði löngu gleymt en hún
mundi eins og gerst hefði í gær.
Ég á ótal góðar minningar
um elskulega móður mína. Ég
hef ekki minnst á fjölmörg
uppátæki hennar. Eins og þegar
hún fór í fallhlífarstökk þegar
hún átti sjötugsafmæli. Eða
þegar hún þeysti um bæinn aft-
an á mótorhjóli þegar hún varð
80 ára. Mamma var dugleg
þrátt fyrir að fæturnir væru að
gefa sig. Það var henni mikils
virði að geta keyrt sinn eigin bíl
alla daga fram í andlátið, það
gaf henni sjálfstæði og frelsi.
Hún reykti aldrei og smakkað
varla vín en hún elskaði að
dansa og fara út á meðal fólks.
Henni fannst verst að geta ekki
dansað þegar hreyfigetan fór
þverrandi. Takk fyrir mig, elsku
mamma mín, ég sakna þín mikið
en ég veit að nú dansar þú á
nýjum stað meðal vina.
Meira: mbl.is/andlat
Bjarni Þór Sigurðsson.
Hún fæddist á Vesturgötunni
1927 í ágústmánuði. Hún lék sér
í Vesturbænum og Þingholtun-
um. Hún missti föður sinn níu
ára gömul og átti þrjár yngri
systur.
Hún hljóp inn til mömmu
sinnar 10. maí 1940 og sagði
henni að það væri búið að her-
nema landið.
Hún var glæsileg Reykjavík-
urdama. Hún giftist, eignaðist
stúlku. Hún skildi. Hún fékk
berkla. Hún var á berklahælinu
á Vífilsstöðum.
Hún trúlofaðist listamanni,
eignaðist aðra stúlku. Hún varð
einstæð móðir og starfaði í
Belgjagerðinni. Hún dansaði á
Borginni.
Hún kynntist föður mínum á
17. júní í Austurstræti. Hún
eignaðist þriðju stúlkuna, mig.
Hún eignaðist son. Hún eign-
aðist tvær stúlkur í viðbót. Hún
var nánast alla okkar barnæsku
heimavinnandi.
Hún tók bílpróf þegar hún
var 47 ára og fór keyrandi sjálf
í prófið.
Hún missti manninn sinn og
næstelstu dóttur sína með fimm
vikna millibili.
Hún saumaði búninga fyrir
Leikfélag Kópavogs. Hún saum-
aði grímubúninga á okkur
systkinin þegar við vorum lítil
sem voru verðlaunaðir.
Hún var vinkona vinahópa
okkar systkinanna.
Hún tók mikið af myndum.
Hún horfði alltaf á handbolta.
Hún passaði börnin mín.
Hún var syngjandi og dans-
andi.
Hún starfaði í vinsælustu
barnafataverslun Íslands
Bangsi fix. Hún starfaði á
barnaheimili. Hún fór í fallhlíf-
arstökk á 70 ára afmælinu sínu.
Hún sendi okkur fjölskyld-
unni í Danmörku pakka í hverj-
um mánuði. Hún kom til Dan-
merkur á hverju ári til okkar.
Hún var keyrð af mótorhjóla-
köppum um miðbæ Reykjavíkur
á 80 ára afmælinu sínu.
Hún var falleg. Hún var
mjúk.
Hún var ákveðin. Hún hafði
sínar skoðanir. Hún fór sínar
leiðir og var fylgin sér.
Hún var á margan hátt á
undan sinni samtíð með svo
margt. Hún elskaði að fara í
kaffihús, veitingastaði, hitta
fólk.
Hún var stríðin og hafði góð-
an og skemmtilegan húmor.
Hún elskaði börnin sín og
barnabörn. Hún vildi helst hafa
okkur allar stundir hjá sér. Hún
talaði við mig í síma til Dan-
merkur á hverjum degi. Hún
sagði sínar skoðanir.
Hún hafði skemmtilegan hlát-
ur. Hún fór ekki út úr húsi
nema setja upp eyrnalokka.
Hún byrjaði að nota munnbindi/
grímu í flugvél þegar hún ferð-
aðist t.d. til Danmerkur fyrir 15
árum. Hún byrjaði að nota
hanska í matvöruverslunum fyr-
ir mörgum árum.
Hún sá um sig sjálf, eldaði
sjálf, þvoði þvottinn sinn sjálf,
keyrði bílinn sinn, allt fram á
síðasta dag.
Hún hlustaði á barnabarn
mitt þriggja ára í símanum
syngja á íslensku „afi minn og
amma mín úti á Bakka búa“ síð-
asta daginn sinn, hún hló og
klappaði fyrir honum.
Hún talaði við mig í símanum
síðasta kvöldið sitt.
Hún var yndisleg. Hún var
glæsileg, frá fæðingu til hinsta
dags. Hún var mín móðir. Hún
verður alltaf hjá mér í hug-
anum.
Birna Björk Sigurðardóttir.
Við vorum lánsamar að alast
upp á þeim tíma sem við gátum
verið með mömmu sem var
heimavinnandi og sinnti heim-
ilinu af alúð. Barnahópurinn frá
unglingum niður í smábörn og
hún dugleg að láta hlutina
ganga vel. Hún hafði heimilið
hreint og snyrtilegt, fór vel með
hlutina sína og átti þá lengi. Var
góð saumakona og saumaði fal-
leg föt á okkur. Jólafötin saum-
aði hún á milli þess sem hún
bakaði jólasmákökurnar og und-
irbjó barnaafmæli, þar sem ég,
Ásdís, á afmæli rétt fyrir jól.
Hún hélt alltaf fallega upp á af-
mælið eins og hún hélt upp á af-
mæli okkar allra þrátt fyrir
miklar annir jólanna.
Mamma var mikill vinur okk-
ar, fylgdist með og tók þátt í því
sem við vorum að gera hvort
heldur sem við vorum litlar
stelpur í dúkkuleik eða í því
sem við vorum að fást við á
unglingsárunum.
Það voru mikil forréttindi að
alast upp í Kópavoginum með
mömmu, pabba og stórum
systkinahópi á þeim tíma þegar
bærinn var enn svolítil sveit. Þá
var gott að vera úti að leika
frjáls í náttúrunni og hafa alltaf
tilfinningu um öryggi að vita af
mömmu innan seilingar.
Hún vildi gleðja fólkið sitt og
þar voru kisurnar okkar systra
ekki undantekning, því þær
fengu einnig jólapakka. Mamma
hafði gaman af að hitta fólk og
fylgdist með mannlífi líðandi
stundar.
Alltaf var hún glæsileg og vel
tilhöfð. Ungleg, bæði í útliti og
anda. Hún fylgdist með því sem
var að gerast og þekkti ungt
tónlistarfólk líðandi stundar, þó
var Haukur Morthens alltaf í
uppáhaldi.
Hún hafði gaman af að dansa
og þegar hún hlustaði á lög í út-
varpinu sem henni fannst
skemmtileg dansaði hún og
söng af innlifun. Í seinni tíð
dillaði hún sér og ljómaði þegar
hún heyrði lög sem hún þekkti.
Það var stutt í hláturinn og það
var gaman að hlæja og grínast
með henni.
Hún var til staðar fyrir okk-
ur í erfiðleikum og fagnaði með
okkur þegar vel gekk.
Dugleg kona hún mamma og
gafst aldrei upp þótt á móti
blési. Hún hafði mikla seiglu,
var þrautseigasta kona sem við
vitum um og góð fyrirmynd.
Eftir að hafa gengið í gegnum
margt á lífsleiðinni stóð hún
alltaf upprétt og var sjálfstæð
eins og hún vildi vera. Mamma
vissi hvað hún vildi og hvað hún
vildi ekki.
Pönnukökurnar hennar voru
frægar í stórfjölskyldunni. Hún
talaði oft um þegar pabbi kom
til hennar í kaffi í fyrsta sinn,
þá bakaði hún pönnukökur sem
honum fannst þær bestu sem
hann hafði smakkað. Hún bak-
aði alltaf pönnukökur fyrir þá
sem áttu afmæli í fjölskyldunni
og keyrði með þær til þeirra á
afmælisdaginn. Hún var lífsglöð
og kraftmikil, eldaði fyrir sig
sjálf og keyrði bílinn sinn til
síðasta dags.
Hún var mikið fyrir mann-
fögnuði og hélt veislur þar sem
börn og barnabörn komu til
hennar. Barnabörnin eiga góðar
minningar um það, því hún fann
upp á ýmsum leikjum og þeim
fannst hún skemmtileg amma.
Athyglin beindist oft að
henni þar sem fólk kom saman
því hún var uppátækjasöm og
hristi upp í stemningunni því
hún hafði ekki mikla þolinmæði
fyrir leiðindum.
Mamma var óhrædd við að
standa með börnum og minni-
máttar þegar þeim var sýnt
óréttlæti, þá var hún fljót að
láta í sér heyra og koma til
hjálpar. Hún var þekkt fyrir
það og núna síðustu daga höf-
um við systurnar heyrt frá
æskuvinum okkar að þeim
fannst hún mikill karekter og
báru virðingu fyrir henni.
Söknuðurinn er mikill en
minningarnar um elsku mömmu
eru gimsteinar sem við munum
alltaf geyma í hjörtum okkar.
Heimilið var höllin hennar og
hún var drottningin.
Elsku fallega, góða mamma
okkar, takk fyrir allt.
Ingibjörg og Ásdís.
Meira: mbl.is/andlat
Elskuleg tengdamóðir mín er
fallin frá.
Það var snemma morguns
hinn 2. desember sem ég fékk
þær fréttir að hún Ruth
tengdamóðir mín væri fallin frá.
Mér brá verulega við þessar
fréttir því þótt hún Ruth hafi
verið orðin 93 ára gömul var
hún alltaf svo hress og full lífs-
orku.
Ég kynntist Ruth þegar ég
og Ingibjörg dóttir hennar
byrjuðum að stinga saman nefj-
um fyrir rúmum 35 árum og frá
fyrstu tíð tók hún mér opnum
örmum og sýndi mér upp frá
því aldrei neitt annað en ást og
elskulegheit.
Ruth var glæsileg kona og
með eindæmum dugleg og sjálf-
stæð í alla staði. Þótt hún hafi
verið komin á þennan háa aldur
tók hún ekki annað í mál en
búa í sínu eigin húsnæði, elda
sinn mat og sinna flestum öðr-
um daglegum störfum sjálf. Ef
henni leiddist heima skellti hún
sér bara út í bíl og keyrði á vit
einhverra ævintýra.
Eitt sinn stakk ég upp á því
við hana hvort hún hefði ekki
gaman af að taka þátt í ein-
hverju tómstundastarfi eldri
borgara. Hún svaraði því til að
þar væri bara gamalt fólk og
hún hefði lítinn áhuga á að sitja
þar allan daginn. „Ég vil geta
hreyft mig og verið á ferðinni,“
sagði hún.
Það lýsir hennar persónu
ansi vel að þegar hún varð sjö-
tug vildi hún fara í fallhlífar-
stökk á afmælisdaginn sem hún
og gerði og sökk út úr flugvél í
10 þúsund feta hæð og hafði
mjög gaman af. Á áttræðisaf-
mælisdeginum vildi hún prófa
alvörumótorhjól sem hún og
gerði og þaut um götur bæj-
arins, leðurklædd, og í fríðu
föruneyti Sniglanna. Já hún
Ruth var engri lík og þvílíkur
kvenskörungur er vandfundinn.
Elsku Ruth, það var heiður
að fá að kynnast þér og verða
þér samferða í lífinu.
Minningin lifir.
Þin tengdasonur,
Victor Pétur Kiernan.
Elsku amma. Það er svo
skrýtið að þú sért farin. Ég sem
var handviss um að þú yrðir 100
ára. Það er erfitt að kveðja en
ég á alltaf minningarnar okkar
sem eru óteljandi að mér finnst.
Rifsberjasaftið.
Ilmvötnin í ísskápnum.
17. júní-boðin.
Pönnukökurnar.
Eldhússpjallið.
Aðfangadagskvöldin.
Spádómarnir.
Rauða spjaldið.
Bíltúrarnir.
Ævintýrin.
Sögurnar.
… og allar hinar minning-
arnar sem ég á með sjálfri mér
núna.
Nokkrum dögum áður en þú
kvaddir dáðumst við saman að
sólarlaginu út um stofuglugg-
ann þinn sem var einstaklega
fallegt þetta kvöld. Þetta reynd-
ist svo vera síðasti dagurinn
sem við eyddum tíma saman.
Þegar ég lít til baka finnst mér
þetta táknrænt augnablik og ég
er glöð að hafa átt það með þér.
Núna ertu loksins komin til
afa og Sigrúnar Eddu. Verk-
irnir eru farnir og þú ert á góð-
um stað. Ég get ekki hugsað
mér betri verndarengil. Sofðu
rótt amma mín.
Þín
Sunneva.
Elsku amma mín. Við vorum
miklar vinkonur og samband
okkar svo dýrmætt. Þú hefur
alltaf átt sérstakan stað í mínu
hjarta, og ég á margar
skemmtilegar minningar um
okkur. Þú passaðir mig þegar
ég var barn, horfðir oft á mig
spila handbolta og varst alltaf
til staðar.
Stjörnumerkið þitt var ljónið
en þú minntir mig líka alltaf á
ljónynju, því þú varst sterk,
sjálfstæð, ákveðin, falleg og þú
hugsaðir alltaf mjög vel um
þinn flokk.
Sumarið 2019 vorum við fjöl-
skyldan í heimsókn á Íslandi, og
var það síðasta skiptið sem ég
sá þig. Í þessari ferð komum við
í heimsókn til þín á hverjum
degi. Við spjölluðum um gamla
daga og þú sagðir mér svo
margt um þig, æsku þína og líf
sem ég hafði aldrei heyrt áður.
Við spjölluðum líka oft saman
í síma og ég sendi þér reglulega
myndir af strákunum mínum,
þér fannst svo gaman að geta
fylgst með. Benjamin Rúnar
talaði við þig í símann kvöldið
áður en þú kvaddir þennan
heim. Hann söng fyrir þig:
„Amma mín og afi minn, út’ á
bakka búa, þau eru bæði sæt og
fín og þangað vil ég fljúga.“ Þér
fannst það svo gaman og klapp-
aðir fyrir honum.
Amma mín, þú varst alltaf
sæt og fín, og ég trúi því að þú
sért nú sameinuð honum afa
mínum, og einn góðan dag mun
ég til þín fljúga.
Ég mun aldrei gleyma þér
amma mín, þú varst engri lík.
Stefanía Katrín.
Rut Petersen
Sigurhannesdóttir