Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 32
Þjóðleikhúsið stendur fyrir listamannaspjalli á netinu með leikaranum heimskunna Jonathan Pryce á fimmtudaginn, 17. desember, kl. 13. Verður spjallið um 90 mínútur. Pryce er velskur og virtur fyrir leik sinn bæði á sviði og í sjónvarpi og kvikmyndum og hefur hlotið fjölda virtra verðlauna á ferli sínum. Pryce var gestaleikari í uppfærslu Vesturports á Rómeó og Júlíu og kynntist Gísli Örn Garðarsson leikstjóri honum þar og mun hann stýra spjallinu á fimmtudaginn. Pryce fór einnig með lítið hlutverk í Borgríki frá árinu 2011. Þjóðleikhúsið býður leikhúsáhugafólki sem hefur áhuga að taka þátt í spjallinu sér að kostnaðarlausu og geta áhuga- samir sent beiðni um þátttöku á net- fangið midasala@leikhusid.is. Þar er einnig velkomið að senda inn til- lögur að spurningum fyrir leik- arann. Þátttakendur fá svo senda rafræna slóð til að fylgja og taka þátt. Gísli Örn stýrir netspjalli við velska leikarann Jonathan Pryce Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Félagarnir Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stefánsson halda áfram að kynna landið í máli og myndum á skemmtilegan og fróðlegan hátt, nú með bókinni Hjarta Íslands – Frá Eldey til Eyjafjarðar, sem Veröld gefur út. Fyrir tveimur árum sendu þeir frá sér bók um hálendið og á næsta ári loka þeir hringnum með þriðju bókinni. Gunnsteinn er reyndur leið- sögumaður og tónlistarmaður og nýtur þess í bókinni, segir frá landslaginu og sögunni sem því tengist, lífríkinu og þjóðtrúnni að ónefndri menningunni. Samspili manns og náttúru. „Ég reyni að tína það til sem skiptir mestu máli,“ segir hann og vísar meðal annars til þess að hann hafi lagt sig eftir því að segja frá þjóðlagatónlist á umrædd- um svæðum, tónskáldum, ljóð- skáldum, tónlistarmönnum og rit- höfundum. Páll segist hafa lagt áherslu á að mynda landið eins fallegt og það er á öllum árstímum. „Bækurnar eru hugsaðar fyrir allan almenning og myndirnar lýsa því sem fyrir augu ber á almennan hátt.“ Í harmóníu við náttúruna Gunnsteinn segist hafa aflað víða fanga og gætt þess að koma efninu til skila á eins kjarnyrtan hátt og hann gat í bók sem hann vildi lesa sjálfur. „Ég ætlaði að skrifa spennu- bók, að það yrði aldrei dauður punktur, alltaf eitthvað nýtt og fróð- legt, og vildi að hún yrði við alþýðu hæfi,“ útskýrir hann. Mikil vinna liggur að baki og Gunnsteinn segir að hann hafi til dæmis verið þrjá mánuði að lesa sér til og skrifa um Hornstrandir og Jökulfirði. „Að skrifa um lífið á Hornströndum er eins og að kynnast stórbrotinni menningu sem leið und- ir lok,“ upplýsir hann. „Á Ströndum segi ég einnig frá miskunnarlausum örlögum Höllu og Fjalla-Eyvindar þegar hún eignast barn í hellisskúta og tekst ekki að halda í því lífinu vegna vosbúðar og kulda. Hann leggur áherslu á að þessi afskekktu svæði eigi það öll sammerkt að þar lifði fólk og dó í harmóníu við náttúr- una. „Þessi harmónía er nánast horf- in nema hjá sérstökum stéttum eins og bændum og sjómönnum sem og öðrum sem haga störfum sínum eftir árstíðum.“ Talandi um sjómenn bendir Gunn- steinn á að í lok 19. aldar hafi menn siglt með farm frá Breiðafjarðar- eyjum til Bergen í Noregi og sýnt að Íslendingar gætu verið sjálfstæð þjóð með eigin útflutning. „Eins var merkilegt að komast að því að þar sem byggð er farin í eyði voru rík- ustu jarðir á Íslandi, jarðir sem lágu best við samgöngum til sjós.“ Mikil stéttaskipting var lengi við lýði og Gunnsteinn segist alls staðar hafa rekist á hana. „Á Breiðafjarðar- eyjum voru konur ekki hærra skrif- aðar en heimilisdýrin og börn urðu að vinna myrkranna á milli og höfðu engan tíma til þess að vera börn,“ segir hann. Engu að síður hafi ótrú- legustu menningarafrek verið unnin við þessar aðstæður og til dæmis hafi Júlíana Jónsdóttir, vinnukona í Breiðafjarðareyjum, skrifað ljóða- bók fyrst íslenskra kvenna 1876. Páll segist hafa farið hringinn nokkrum sinnum vegna bókarinnar, meðal annars tvisvar í mars og apríl, þegar kórónuveirufaraldurinn hafi verið í hámarki. „Það var skrýtið að keyra daglangt og mæta ekki bíl eða standa einn í fáránlega sérstakri birtu við Jökulsárlón. Þá var Palli einn í heiminum.“ Frá Eldey til Eyjafjarðar Ljósmynd/Páll Stefánsson Eldey Suðvestan við Reykjanes er mesta súluvarp landsins.  Gunnsteinn og Páll kynna landið og menninguna Morgunblaðið/Eggert Höfundarnir Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stefánsson. Enzymedica býður uppá öflugustumeltingarensímin á markaðnum en einungis eitt hylki meðmáltíð getur öllu breytt. Betri melting – betri líðan ● Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og öll efnaskipti líkamans. ● Betri melting, meiri orka, betri líðan! ● 100% vegan hylki. ● Digest Basic hentar fyrir börn Gleðilega meltingu Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 350. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Það var erfitt að koma til baka eftir að hafa misst út nokkrar vikur í æfingum. Síðustu vikur hef ég samt sem áður náð að æfa nokkuð vel og ég náði að komast í fínt stand fyrir mótið og það gekk vel sem betur fer,“ segir Jónas Ingi Þórisson sem komst í úrslit á Evrópu- móti unglinga í fimleikum þrátt fyrir erfiðleika í undir- búningi. »26 Komst í fínt stand fyrir mótið ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.