Morgunblaðið - 15.12.2020, Page 18

Morgunblaðið - 15.12.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020 ✝ Ásta Marta Ró-bertsdóttir fæddist í Reykjavík 26. september 1973. Hún lést 27. nóv- ember 2020. Foreldrar henn- ar eru Kristjana Guðjónsdóttir, f. 1955, og Róbert Scobie, f. 1954. Fósturfaðir hennar frá fimm ára aldri er Guðlaugur Stefánsson, f. 1952. Eiginkona Róberts er Helena Óskarsdóttir. Systkin Ástu sammæðra eru Ásta námi í margmiðlunar- hönnun frá Borgarholtsskóla og námi í ferðamálafræði frá sér- hæfðum skóla í Brussel. Þá stundaði hún auk þess nám í tölvu- og markaðsfræðum við há- skóla í Árósum í Danmörku og Liverpool á Englandi. Ásta sinnti ýmsum störfum, m.a. tengdum ferðaþjónustu, og vann til dæmis við markaðsstörf hjá Flugfélagi Íslands og Íshest- um. Útför Ástu verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 15. des- ember 2020, klukkan 13 að við- stöddum nánum ættingjum og vinum. Streymt verður frá athöfninni á youtubesíðu kirkjunnar. Stytt slóð á streymið er: https:// tinyurl.com/y6ep8w9q/. Virkan hlekk á streymið má einnig nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat/. Eva Hrund Guð- laugsdóttir, f. 1982, og Guðjón Ingi Guð- laugsson, f. 1987. Systkin Ástu samfeðra eru Lydia Grace Scobie, f. 1993, og Christ- opher Steven Sco- bie, f. 1995. Börn Ástu eru: 1) Guðlaugur Victor Pálsson, f. 30. apríl 1991. Sonur hans er Axel Aron, f. 7. júní 2017. 2) Kristjana Marta Marteinsdóttir, f. 13. maí 2001. Eftir grunnskólanám lauk Ég var 25 ára gamall, nýkom- inn úr háskólanámi í London og þóttist aldeilis kunna á heiminn. Ég fór á ball og hitti þar sæta stelpu sem ég varð skotinn í. Eitt- hvað sá hún líka við mig. Það varð ekki aftur snúið. Við urðum kær- ustupar, giftum okkur, eignuð- umst tvö yndisleg börn og höfum búið saman síðan í yfir 40 ár. En kærastan átti fimm ára dóttur. Stúlkan litla var eitthvert fallegasta barn sem ég hef augum litið. Þannig er hún og verður ávallt í minningunni, fósturdóttir mín, Ásta Marta; falleg utan sem innan. Við urðum fljótt góðir vinir. Hún átti sinn pabba sem hún leit- aði eftir og þótti vænt um. Aldrei datt mér í hug að taka það frá henni. Ég var bara Gulli pabbi og það nægði mér vel. Hún bar ávallt virðingu fyrir mér sem pabba og sýndi mér mikla hlýju. Það væri þó ekki sannleikanum samkvæmt að segja að Ásta hafi ávallt verið auðvelt barn, sérstak- lega ekki þegar kom fram á ung- lingsárin. Hún var opin og þurfti oft mikla athygli, gat verið fyrir- ferðarmikil en í senn tilfinninga- rík. En skemmtileg var hún, hlát- urmild og oft hinn mesti prakkari. Hún var félagslynd, vinmörg og hæfileikarík. Áður en lengra er haldið kýs ég að fara fáeinum orðum um sjúk- dóminn alkóhólisma sem stráfellir fólk í blóma lífsins í tugatali á ári hverju. Ásta háði langa og stranga bar- áttu við sjúkdóminn, fór í ótal meðferðir og náði inn á milli góð- um árangri. Hún var greind og skynsöm, vissi allt um sjúkdóminn og allt það mikla sem hún hafði að lifa fyrir. Hún vildi lifa og ætlaði aldrei að gefast upp, hafði þá von að þegar hún hefði náð tökum á þessum fjanda ætlaði hún að ger- ast ráðgjafi og reyna að hjálpa öðrum. Við foreldrarnir, börn hennar og systkin höfðum líka alltaf von; hún gaf okkur hana. Það sárasta er að nú er vonin slokknuð. Fyrir mér er Ásta, einnig eftir að fullorðinsárum var náð, litla stúlkan með stóra hjartað. Eflaust hefur hún erft frá mörgum gjaf- mildið og hjartahlýjuna. Fyrst kemur mér í hug móðuramman, Ingibjörg Sigurðardóttir. Rétt eins og amman mátti Ásta ekkert aumt sjá og vildi ávallt hjálpa, en sem barn var Ásta augasteinn Ingu ömmu og Guðjóns afa. Þá vil ég sérstaklega nefna Fanneyju frænku, en hún átti eftir að reyn- ast Ástu ómetanlega allt til hins síðasta þegar sjúkdómurinn hafði því miður rænt hana flestum vin- um. Guð blessi þig fyrir það, Fanney mín. Ásta skilur eftir sig svo margt fallegt. Fyrst skulu nefnd yndis- legu börnin hennar, Guðlaugur Victor og Kristjana Marta. Hún gaf þeim lífið, fegurðina, hjarta- lagið og allt það dásamlega í fari þeirra. Ásta var mamman sem átti þessi dásamlegu börn, afreksfólk í íþróttum, sem hún var svo stolt af, vildi og reyndi að gera allt fyrir eftir fremsta megni, en var van- máttug sökum þess sjúkdóms sem hún bar. Gullmolinn hans Guðlaugs Vic- tors, Axel Aron, 3ja ára; fagur sem foreldrarnir og amman, fjör- ugur en prúður, hefur yljað lang- ömmu og langafa á erfiðum tíma. Ásta bjó börnum sínum fallegt heimili bæði í Reykjavík, tvívegis í Danmörku og í Englandi. Þar ríkti gestrisni, hlýja og smekkvísi. Ég minnist margra heimsókna okkar til þeirra þegar þau bjuggu í Árós- um. Ásta mín var falleg utan sem innan. Hún færði mér kærleika. Líf hennar var erfitt og átti hún skilið allt annað og betra. Sárt er að vonin er slokknuð. Við hlýjum okkur við ótal góðar minningar og treystum því að hún sé ekki lengur í kvölinni. Meira: mbl.is/andlat Guðlaugur (Gulli) pabbi. Ásta stóra systir okkar var bæði mikil félagsvera og tilfinningavera. Hún hefði átt auðveldara með þessi skrif heldur en við tvö sem almennt erum hlédrægari, og fengum við stundum að heyra það frá henni fyrir að vera ekki opin eins og hún! Í minningunni var þessi fé- lagslegi þáttur stór hluti af Ástu. Hún var alltaf með vini hjá sér eða í símanum að tala við vini sína. Vin- ir hennar skiptu hana miklu máli. Það var víst þannig að þegar hún var lítil og nýlega byrjuð í skóla þurfti hún svo mikið að segja að hún var sett við hlið kennarans til að hún gæti nú örugglega tjáð sig. Við eigum margar góðar minn- ingar um Ástu, þar á meðal feng- um við að heimsækja sveitina þar sem Ásta átti margar góðar stund- ir, meðal annars var hundur á bæn- um sem gat sungið og vakti mikla kátínu gesta. Ásta bauð okkur líka einu sinni til Kulusuk þar sem við fengum að kynnast grænlenskri menningu og ýmislegt sem kom okkur spánskt fyrir sjónir. Það var í eðli hennar að vera gestrisin, m.a. þegar við komum til Íslands á sumrin í æskunni, en þá áttum við heima í Belgíu. Það er einnig minnisstætt þegar hún bauð okkur í afmæli Kristjönu Mörtu þegar hún átti heima í Danmörku sem og þegar hún bauð okkur að vera hjá sér í Danmörku jólin 2008. Ásta var mikið fyrir tónlist, þ. á m. Wham, Bon Jovi og Celine Dion, og ólumst við upp við að heyra allar helstu perlur níunda áratugarins á háum styrk. Minn- isstæð er sagan um Guðjón þegar hann var pínulítill og bankaði á hurðina hjá Ástu þar sem tónlistin var í botni og kallaði hátt: „Ásta, hækka!“ Það sem hann meinti þó var að Ásta ætti að lækka! Okkur litlu systkinunum þótti Ásta mikill töffari, enda fylgdi hún öllum helstu tískustraumum þess tíma. Jólin skiptu hana alltaf miklu máli og þau munu ekki verða eins án hennar. Hún kepptist við að gefa stærstu og flestar gjafirnar og voru jafnvel fleiri en ein gjöf frá þér undir trénu frá „Sveinka“. Jólakortin voru svo falleg, alltaf eins og ritgerðir og einlægar og fallegar hugsanir á bak við orðin. Þú varst líka alltaf að gefa af þér og settir vellíðan annarra alltaf í for- gang. Eitthvað sem kom svo sterkt fram yfir jólahátíðarnar. Alltaf eig- um við eftir að minnast þín þegar Last Christmas með Wham verður spilað um jólin og hugsa um mesta jólabarnið. Þú varst svo skipulögð og alltaf farin að undirbúa jólin langt á undan öðrum! Við eigum engin orð yfir hve Ásta skilur eftir sig yndisleg börn og barnabarn sem hún dýrkaði út af lífinu. Elsku Ásta, það brýtur okkur í litla mola að þú sért farin frá okk- ur. Við eigum eftir að sakna þín mikið. Minningin um þig mun lifa í tónlistinni, jólunum og börnunum þínum. Við vildum að við gætum gefið þér annað líf. Auðveldara líf. Meiri hamingju og minni sárs- auka því svona góðhjörtuð mann- eskja á betra skilið en þann harða húsbónda fíknisjúkdóms sem stýrði lífi hennar svo mjög og svipti hana öllum lífsgæðum. Við óskum engum að þurfa að ganga í gegnum þessa hörmung. Þú ósk- aðir þess svo heitt að losna úr fíkninni og barðist svo hart en fíknin gleypti því miður alltaf meira og meira af systur okkar. Hvíl í friði, elsku Ásta Marta. Þín systkin, Eva Hrund og Guðjón Ingi. Elsku Ástan mín. Fallegi eng- illinn minn, það eru engin orð sem geta lýst því hversu erfitt það er að sitja hér heima með tárin í aug- unum að skrifa minningarorð um þig. Ég er enn hálffrosin yfir skyndilegu andláti þínu og orðin snúast í hringi í hausnum á mér. Ég vildi óska þess að ég hefði komið með í bústaðaferðina okkar í október með ykkur Láru til að fara enn betur yfir stöðu okkar í lífinu, börnin okkar, barnabörn, líðan okkar, fortíðina, nútíðina og framtíðina. Við fylgdumst ávallt hver með annarri því við náðum þrjár svo vel saman strax í byrjun og slitnaði aldrei sá vinskapur þrátt fyrir að hittast ekki nógu oft. Við unnum saman og sá ég strax hversu mikinn kraft og dugnað þú áttir. Þú varst mjög opinn per- sónuleiki og sýndir alltaf mikla hlýju og kærleika. Ég vildi að ég hefði getað sagt þér hversu góð manneskja þú varst, því ég held að stundum haf- ir þú ekki vitað það, góðmennskan og hjálpsemin alltaf til staðar. Ég hefði viljað segja þér svo margt og það nístir hjarta mitt að hafa ekki tök á því. Minningar okkar í gegnum tíð- ina lifa í hjarta mínu, afmælis- veislur, brúðkaup, Liverpool- heimsóknir, Sálarböll, söngur, þrif, matseld og plön. Það var ynd- islegt að fylgjast með þér þegar eitthvað var fram undan, varst með allt planað upp á hár hvernig hlutirnir áttu að vera. Það sem ég tók fyrst eftir í þínu fari var hversu opin og hreinskilin þú varst og man ég eftir því þegar börnin okkar stækkuðu hversu mikið þau erfðu þann eiginleika frá okkur sem er einn besti eig- inleiki í fólki sem til er. Þú varst svo endalaust stolt af börnunum þínum og barnabarni og talaðir alltaf svo mikið um þau. Lífið er ekki alltaf dans á rós- um, oft tengt erfiðleikum sem erf- itt er að sigrast á, en það eru mörg brostin hjörtu af sorg og stórt skarð sem þú skilur eftir þig sem ekki verður fyllt. Lífið er oft ósanngjarnt en það besta sem við eigum eru minningarnar og mun- um við halda þeim vakandi í hjarta okkar um þig elsku besta Ástan mín. Elsku Gulli, Kristjana Marta og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð vegna fráfalls Ástu Mörtu. Hún er eng- illinn okkar sem vakir yfir okkur öllum og mun án efa hugsa vel um aðra engla í sumarlandinu fallega. Falleg sál nú farin er, bið Guð um hana að geyma. Sorgin situr í hjarta mér, ég aldrei mun þér gleyma. Frið þú finnur loksins nú, mín elsku kæra vina. Á himni uppi ert það þú, sem passar alla hina. (Benjamín Steinarsson) Þín vinkona, Kristrún Kristinsdóttir. Ásta Marta Róbertsdóttir HINSTA KVEÐJA Vertu sæl engill á jörðu. Guð geymi þig. Enginn lái öðrum frekt, einn þó nái falla. Hver einn gái að sinni sekt, syndin þjáir alla. (Skáld Rósa) Stefán S. Steinólfsson. Ástkær móðir okkar, amma og langamma, MARGRÉT GEIRSDÓTTIR frá Hallanda í Flóa, lést þriðjudaginn 1. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu Dagmar Inga Kristjánsdóttir Margrét Geirrún Kristjánsdóttir Eygló Kúld Eiríksdóttir Margeir Kúld Eiríksson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi okkar, RAGNAR JÓHANNESSON sjómaður frá Vestmannaeyjum, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á dvalarheimilinu Hraunbúðum, fimmtudaginn 10. desember. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 19. desember klukkan 11 og verður streymt beint á vef Landakirkju, landakirkja.is. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir í útförinni. Hólmfríður Sigurðardóttir Ragnheiður A. Georgsdóttir Einar Þ. Waldorff Linda Kristín Ragnarsdóttir Miguel Ribeiro Sigurður Ingi Ragnarsson Guðfinna E. Sigurðardóttir Ragnar Þór Ragnarsson Hildur Vattnes Kristjánsdóttir Zindri Freyr Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, STELLA FANNEY GUÐMUNDSDÓTTIR frá Súðavík, lést 10. desember á Hrafnistu í Reykjavík. Útför fer fram frá Súðavíkurkirkju föstudaginn 18. desember. Í ljósi aðstæðna eru einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Jón G. Björnsson Guðbjörg Sigurðardóttir Margrét M. Björnsdóttir Kristín Björnsdóttir Hafsteinn Eiríksson Guðrún S. Björnsdóttir Guðlaugur Valtýsson Steinunn K. Björnsdóttir Kári H. Kristinsson Ástkær móðir okkar, amma, langamma og langalangamma, STELLA SIGURGEIRSDÓTTIR, lést sunnudagskvöldið 12. desember á heimili sínu. Útför hennar fer fram frá Höfðakapellu 21. desember að viðstöddum vinum og fjölskyldu. Gunnar Tryggvason og börn Ingibjörg Tryggvadóttir og börn Erna Björk Guðmundsdóttir og börn Elskuleg móðir mín, RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR frá Deildartungu, Birkigrund 63, Kópavogi, lést föstudaginn 11. desember. Útför hennar fer fram í kyrrþey en minningarathöfn verður síðar þegar fleiri munu geta komið saman. Björn Friðgeir Björnsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR LÁRUSSON rafvélavirki, lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 7. desember. Útför hans verður gerð frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 19. desember klukkan 15 að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum. Streymt verður frá athöfninni, hlekk þess efnis má finna á Facebook-síðu Siglufjarðarkirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort MND-félagsins á heimasíðu mnd.is. Björk Vilhelmsdóttir Lárus Ingi Guðmundsson Vilhelm Már Guðmundsson Karla Garcia Brynjar Guðmundsson Hrönn Ólína Jörundsdóttir og barnabörn Hinsta kveðja frá Hollvinum Húna II. Hollvinir Húna II eru fé- lagsskapur áhugafólks sem hefur það að markmiði að viðhalda og vernda eikarbátinn Húna II. Fé- lagar vinna þar launalaust og var Gunnar Árnason einn þeirra sem lögðu á sig ómælda vinnu og sat jafnframt í stjórn Hollvina Húna Gunnar Árnason ✝ Gunnar Árna-son fæddist 1. mars 1938. Hann lést 13. nóvember 2020. Útför Gunnars fór fram 23. nóv- ember 2020. II, þar til yfir lauk. Áhugi Gunnars og ósérhlífni var okkur hinum hvatning og aldrei baðst hann undan verkum. Gunnar var vinnu- samur og ungur stundaði hann sjó- mennsku, en sneri sér síðan að akstri flutningabifreiða út starfsævina. Við kveðjum þennan góða fé- laga með þakklæti fyrir samveru- stundirnar og handtökin hans öll. Fjölskyldu hans vottum við okk- ar dýpstu samúð. F.h. Hollvina Húna II Þorsteinn Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.