Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020 Danmörk OB – Midtjylland...................................... 1:1  Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður hjá OB í hálfleik. Aron Elís Þrándarson er meiddur.  Mikael Anderson lék fyrstu 64 mínút- urnar með Midtjylland. Staðan: Midtjylland 12 7 3 2 20:13 24 Brøndby 12 8 0 4 24:18 24 AGF 12 6 3 3 23:16 21 SønderjyskE 12 6 3 3 21:16 21 Randers 12 6 1 5 20:12 19 København 12 6 1 5 21:20 19 AaB 12 5 4 3 15:15 19 Nordsjælland 12 4 4 4 21:16 16 OB 12 4 3 5 17:19 15 Vejle 12 4 2 6 18:24 14 Horsens 12 1 3 8 9:22 6 Lyngby 12 0 3 9 12:30 3 Ítalía Reggina – Venezia................................... 1:2  Bjarki Steinn Bjarkason og Óttar Magn- ús Karlsson sátu allan tímann á vara- mannabekk Venezia. C-deild: Padova – Triestina .................................. 0:0  Emil Hallfreðsson lék fyrstu 83 mínút- urnar með Padova. Spánn Celta Vigo – Cadiz .................................... 4:0 Staðan: Real Sociedad 13 7 5 1 23:6 26 Atlético Madrid 11 8 2 1 21:4 26 Real Madrid 12 7 2 3 19:12 23 Villarreal 13 5 7 1 16:12 22 Sevilla 11 6 1 4 13:9 19 Granada 12 5 3 4 15:20 18 Cádiz 13 5 3 5 11:17 18 Barcelona 11 5 2 4 21:11 17 Celta Vigo 13 4 4 5 17:20 16 Real Betis 13 5 1 7 15:24 16 Eibar 13 3 6 4 9:10 15 Valencia 13 3 5 5 19:19 14 Athletic Bilbao 12 4 2 6 14:14 14 Elche 11 3 5 3 9:11 14 Alavés 13 3 5 5 11:14 14 Getafe 12 3 4 5 9:14 13 Real Valladolid 13 3 4 6 14:20 13 Levante 12 2 5 5 13:16 11 Huesca 13 1 8 4 12:20 11 Osasuna 12 3 2 7 10:18 11  EM kvenna Milliriðill 2 í Kolding: Holland – Þýskaland ............................ 28:27 Ungverjaland – Rúmenía .................... 26:24 Staðan: Noregur 4 4 0 0 138:93 8 Króatía 4 3 0 1 101:103 6 Holland 4 2 0 2 106:110 4 Þýskaland 4 2 0 2 104:114 4 Ungverjaland 4 1 0 3 97:108 2 Rúmenía 4 0 0 4 83:101 0 Danmörk GOG – Ringsted ................................... 28:22 Viktor Gísli Hallgrímsson varði ellefu skot í marki GOG. Tvis Holstebro – SönderjyskE........... 32:29  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki fyr- ir Tvis Holstebro.  Sveinn Jóhannsson skoraði tvö mörk fyrir SönderjyskE.  Efstu lið: GOG 28, Aalborg 25, Tvis Hol- stebro 24, Bjerringbro-Silkeborg 21, Skjern 19, Kolding 17, SönderjyskE 17. Svíþjóð Hallby – Kristianstad.......................... 37:34  Teitur Örn Einarsson skoraði sex mörk fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guð- mundsson var ekki í leikmannahópnum.  Efstu lið: Malmö 23, Ystad IF 23, Alings- ås 21, Skövde 19, Lugi 19, Kristianstad 18, Sävehof 17, IFK Ystad 15.   Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti stórleik í marki GOG þegar liðið fékk Ring- sted í heimsókn í dönsku úrvals- deildinni í handknattleik í gær. Leiknum lauk með 28:22-sigri GOG en Viktor Gísli varði ellefu skot og var með 50% markvörslu. Jafnræði var með liðunum til að byrja með og leiddi GOG með tveimur mörkum eftir fimmtán mínútna leik, 7:5. Þá hrökk Viktor Gísli í gang og hann varði hvert skotið á fætur öðru. GOG leiddi 12:9 í hálfleik og liðið jók forskot sitt jafnt og þétt í síðari hálfleik með landsliðsmarkvörðinn fremst- an í flokki. GOG er með 28 stig í efsta sæti deildarinnar eftir fimm- tán leiki og á leik til góða á Aalborg sem er í öðru sætinu með 25 stig. Viktor lokaði markinu áhöldum og ég er ánægður með að hafa komist í úrslit í stökki líka.“ sagði hann. Erfitt að koma til baka Árangur Jónasar er sérstaklega eftirtektarverður þar sem hann hefur þurft að gera löng hlé á æfingum á árinu vegna sóttvarnaaðgerða hér- lendis, en hann náði þó að æfa ágæt- lega síðustu vikurnar fyrir mótið. „Það var erfitt að koma til baka eftir að hafa misst út nokkrar vikur í æf- ingum. Síðustu vikur hef ég samt sem áður náð að æfa nokkuð vel og ég náði að komast í fínt stand fyrir mótið og það gekk vel sem betur fer. Ég veit ekki hversu mikið hinir hafa fengið að æfa á árinu en ég er mjög sáttur við að ég náði að skila mínu.“ Íþrótta- og ólympíusamband Ís- lands gaf út lista í október með íþróttafólki sem stefndi markvisst að þátttöku í Ólympíuleikunum í Tókýó sumarið 2021. Jónas viðurkennir að það sé langsótt að hann verði með í Tókýó en Ólympíuleikarnir í París 2024 séu raunhæft markmið. Ætlar sér á stærstu mótin „Lokamarkmiðið er að vera með á Ólympíuleikum og ég mun gera allt hvað ég get til að ná því markmiði. Það verður erfitt að komast til Tókýó þar sem það eru bara tvö sæti eftir og þau fást á Evrópumótinu á næsta ári. Það eru mjög margir góðir fim- leikamenn sem munu berjast um þau sæti. Það er fínn séns á að ég komist á leikana 2024 ef ég er duglegur að æfa. Ég þarf að vera öruggari á öllum áhöldum og svo þarf ég að bæta erf- iðleikastigin líka, en ég er tilbúinn að leggja það á mig,“ sagði Jónas. Hann ætlar sér stóra hluti á næsta ári í flokki fullorðinna þótt Ólympíu- leikarnir í Tókýó séu langsóttir. „Það er Evrópumót í Sviss í apríl og svo er heimsmeistaramót í Japan í október. Ég set stefnuna þangað. Markmiðið þegar kemur að HM snýst helst um íslenska landsliðið. Við viljum standa okkur vel á HM og með því komast á næsta HM eftir það,“ sagði Jónas. Tilfinning sem erfitt er að lýsa  Jónas Ingi Þórisson fyrstur í úrslit í fjölþraut á EM og sjöundi í stökki Ljósmynd/FSÍ Markmið Jónas Ingi Þórisson hefur sett stefnuna á að komast á Ólympíu- leika eftir að hafa náð mjög góðum árangri í Tyrklandi um helgina. FIMLEIKAR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Jónas Ingi Þórisson braut blað í ís- lenskri fimleikasögu um helgina þeg- ar hann vann sér inn sæti í úrslitum í fjölþraut og í stökki á Evrópumóti unglinga í áhaldafimleikum í Tyrk- landi. Er hann fyrsti Íslendingurinn sem fer í úrslit í fjölþraut á slíku móti í unglingaflokki. Jónas hafnaði að lok- um í 17. sæti í fjölþraut með 72.630 stig og í sjöunda sæti í stökki með 13.366 stig. „Ég er mjög sáttur. Þetta var frá- bær upplifun og gekk mjög vel,“ sagði Jónas í samtali við Morg- unblaðið. „Ég er fyrsti Íslending- urinn sem kemst í úrslit í fjölþraut í unglingaflokki. Það var mjög sérstök tilfinning og það er erfitt að lýsa henni,“ bætti hann við. Jónas, sem er 18 ára, var að keppa á sínu síðasta móti í unglingaflokki og var hann staðráðinn í að standa sig vel. „Ég hef vitað í langan tíma að þetta er síðasta mótið í unglingaflokki og ég vissi að ég ætti möguleika á að fara í úrslit, svo ég hef æft vel. Markmiðið var að fara í úrslit í fjölþraut og sem flestum Sigríður Hauksdóttir, landsliðs- kona í handknattleik, hefur fram- lengt samning sinn við HK til ársins 2023. Sigríður er fyrirliði HK og hefur hún verið einn besti leik- maður liðsins síðustu ár en hún hef- ur skorað 31 mark í 14 lands- leikjum. Þegar keppni var frestað í október í Olísdeildinni var Sigríður markahæst hjá HK með 16 mörk í þremur leikjum. Þá skoraði hún 84 mörk í 19 leikjum með HK á síðustu leiktíð en liðið var í fjórða sæti deildarinnar þegar keppni var hætt í mars vegna kórónuveirunnar. Landsliðskona framlengdi við HK Morgunblaðið/Eggert Skot Sigríður Hauksdóttir í lands- leik gegn Spáni síðasta sumar. María Finnbogadóttir og Snorri Einarsson eru skíðafólk ársins 2020, en þetta kom fram í frétta- tilkynningu SKÍ í gær. María keppir í alpagreinum í svigi en hún náði þeim merka áfanga á árinu að vinna sitt fyrsta alþjóðlega FIS-mót í St. Lambrecht í Austurríki. Snorri tók virkan þátt í heimsbikarmóta- röðinni í skíðagöngu á árinu en hann náði sínum besta árangri og besta árangri sem íslenskur skíða- göngumaður hefur náð þegar hann hafnaði í 18. sæti í 30 km frjálsri göngu í heimsbikarnum í Noregi. María og Snorri sköruðu fram úr Skíðaganga Snorri Einarsson er fremsti skíðagöngumaður landsins. Viðureignir stórliðanna Barcelona og París SG eru eitt það áhugaverðasta sem kom upp úr kúl- unum hjá UEFA í gær þegar dregið var til sextán liða úrslita Meistaradeildar karla í fótbolta. Þar koma upp í huga ótrúlegir leikir liðanna í keppn- inni árið 2017 þegar PSG vann þann fyrri 4:0 en Barcelona þann síðari 6:1. Evrópumeistarar Bayern München mæta Róm- verjunum í Lazio og áhugaverður slagur gæti ver- ið í uppsiglingu milli Atlético Madrid og Chelsea. Óútreiknanlegt lið Atalanta mætir brokkgengu liði Real Madrid í öðrum áhugaverðum slag. Þá kemur þýska liðið Leipzig til Englands í þriðja sinn á einu ári og mætir Liverpool eftir að hafa slegið Tottenham út í 16-liða úrslitum Meist- aradeildarinnar snemma á þessu ári og haft betur gegn Manchester United í riðlakeppninni á dög- unum. Leikir og dagsetningar eru sem hér segir: 16. febrúar og 10. mars: RB Leipzig – Liverpool Barcelona – París SG 17. febrúar og 9. mars: Porto – Juventus Sevilla – Borussia Dortmund 23. febrúar og 17. mars: Lazio – Bayern München Atlético Madrid – Chelsea 24. febrúar og 16. mars: Borussia Mönchengladbach – Manchester City Atalanta – Real Madrid Spila Rúnar og Ögmundur? Íslensku landsliðsmarkverðirnir Rúnar Alex Rúnarsson og Ögmundur Kristinsson gætu komið við sögu í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar en einnig var dregið til þeirra í gær. Rúnar lék fjóra leiki með Arsenal í riðlakeppn- inni en lið hans dróst gegn Benfica frá Portúgal. Ögmundur fékk engin tækifæri með Olympia- cos í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en lið hans varð þar í þriðja sæti í sínum riðli og færðist því yfir í Evrópudeildina þar sem það mætir PSV frá Hollandi. Tottenham fer til Austurríkis og Leicester til Tékklands en stórleikir umferðarinnar eru vænt- anlega einvígi Real Sociedad, sem nú er efst á Spáni, og Manchester United. Þessi lið mætast í 32 liða úrslitum. Wolfsberger – Tottenham Dynamo Kíev – Club Brugge Real Sociedad – Manchester United Benfica – Arsenal Rauða stjarnan – AC Milan Royal Antwerpen – Rangers Slavia Prag – Leicester Salzburg – Villarreal Braga – Roma Krasnodar – Dinamo Zagreb Young Boys – Leverkusen Molde – Hoffenheim Granada – Napoli Maccabi Tel-Aviv – Shakhtar Donetsk Lille – Ajax Olympiacos – PSV Eindhoven Leikirnir fara fram 18. og 24.-25. febrúar. Verður sama dramatík og 2017?  Barcelona mætir París SG  Leipzig í þriðja sinn á einu ári til Englands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.