Lögmannablaðið - 2016, Side 4

Lögmannablaðið - 2016, Side 4
4 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16 ÞYRÍ STEINGRÍMSDÓTTIR HRL. LEIÐARI Jafnrétti og jólasveinar SPORTPAKKI STÖÐVAR 2 var aug­ lýstur um helgina. Heilsíða með mynd af hraustu afreksfólki í íþróttum og íþrótta fréttafólki. 24 einstaklingar alls. Þar af voru 4 konur. Afar lýsandi mynd fyrir stöðu kynjanna í íþróttum en ekki síður um stöðu kynjanna þegar kemur að umfjöllun um íþróttir. Í Bandaríkjunum sækjast nokkrir miðaldra karlar eftir útnefningu repú bli kana til að verða forsetaefni flokksins og forystuna hefur Donald Trump með sinn rasíska boðskap. Hjá demókrötum sækir Sanders hart að Clinton sem m.a. sætir harðri gagnrýni fyrir að notfæra sér kynferði sitt eða „playing the gender card“ eins og það útleggst á ensku. Er þar verið að vísa til málefna sem Clinton hefur sett nokkuð á oddinn eins og launamun kynjanna og dagvistunarmál sem samfélagið virðist líta á sem kvenna­ mál, en ekki baráttumál allra. Þá er henni legið á hálsi fyrir hið augljósa baráttumál að konur eigi að kjósa konur til forystu, enda konur líka menn og það eigi að velja hæfasta einstaklinginn. Í þessu blaði og því næsta verður fjallað um niðurstöður könnunar sem Lögmannablaðið gerði meðal fulltrúa með hdl. réttindi á lögmannstofum. Í könnuninni var spurt um starfskjör vítt og breytt en jafnframt um líðan í starfi, afstöðu til stjórnunar á vinnustað, fjölbreytni verkefna o.fl., auk þess að spyrja um samþættingu vinnu og heimilis. Fram kemur að kynbundin launamunur er 8%. Meðaltalið hjá VR í síðustu könnun þeirra (árið 2015) er 9,9%. Þrátt fyrir að lögmanns­ stofur virðist þannig standa sig betur en hinn almenni launamarkaður, er þessi munur óviðunandi. Í fleiri þáttum í niðurstöðu könnunarinnar er marktækur munur milli kynjanna og verður gerð nánari grein fyrir því í næsta blaði. Það eru engin lög á Íslandi sem leyfa mismun vegna kynferðis. Engin. Þvert á móti eru fjölmörg pósitíf laga­ ákvæði sem beinlínis banna slíkt, meira að segja í stjórnarskránni. Ef löggjöfin væri skoðuð eingöngu væri hægt að lýsa því yfir að á Íslandi ríkti fullkomið jafnrétti kynjanna. Raunveruleikinn er hins vegar annar í öllum samfélögum, bæði hér á landi og erlendis. Samfélagið virðir kynin ekki til jafns og sýnir það í verki eins og framangreind dæmi sanna. Sama á við um jólasveina. Það eru engin lög til sem leyfa jólasveina eða leyfa okkur að plata börnin til hlýðni í tvær vikur á hverju ári. Ef bara væri horft á löggjöfina væru jólasveinar ekki til. En samfélagið leyfir þá og sýnir það í verki og þess vegna eru þeir til. Aldagömul hefð og skemmtileg tilbreyting sem innrætir börnum góð gildi – nú eða slæm ef horft er til þessara í sauðskinnskónum sem stálu og stríddu. Ég á bágt með að trúa því að samfélagið vilji skipta um skoðun á jólasveinum og muni vinna að því að snúa öllum gegn þeim eða leggja þá niður. Flestum ef ekki öllum myndi finnast það fáránleg hugmynd. En hvað með jafnréttið, getur samfélagið þá ekki heldur skipt um skoðun á því og sýnt í verki að við séum hætt að þola og leyfa mismunun? Er það jafn fjarlægt og fáránlegt eins og varðandi jólasveinana? Og ef svo er ekki, hvers vegna skiptum við þá ekki um skoðun?

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.