Lögmannablaðið - 2016, Qupperneq 6
6 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16
AF VETTVANGI FÉLAGSINS
Félagsmönnum fjölgar um 2,5
% milli ára
Í lok febrúar 2016 voru félagsmenn í
Lögmannafélagi Íslands 1084 talsins
og hefur þeim fjölgað um 27 frá sama
tíma árið 2015 eða um 2,5%. Eru
héraðsdómslögmenn 775 talsins og
hæstaréttarlögmenn 309.
Alls eru 501 lögmenn, eða 46%,
sjálfstætt starfandi og 231 lög mað
ur starfar sem fulltrúi sjálfstætt starf
andi lögmanns en það er um 21%
félagsmanna. Þá voru innan húss
lögmenn hjá ýmsum fyrirtækjum og
stofnunum 307 talsins, eða 29%. Af
þessum 307 innanhússlögmönnum
störfuðu 93 hjá ríki eða sveitarfélögum
og 214 hjá fyrirtækjum og félagasam
tökum. Fjöldi lögmanna sem ekki
stunda lögmannsstörf sökum aldurs
eða sjúkleika var 43 eða 4% af heildar
fjölda félagsmanna.
Konur í lögmannastétt
Alls eru 342 konur félagsmenn í Lög
mannafélaginu sem svarar til 31,5%
félagsmanna. Hefur þeim fjölgað
hlutfallslega frá sama tíma árið 2015
þegar þær voru 319 talsins eða 30,2%
félagsmanna. Konum í félaginu hefur
fjölgað jafn og þétt á undanförnum
Tölfræði um félagsmenn LMFÍ
Samsetning (%) félagsmanna í LMFÍ eftir því hvar þeir starfa.
Fjölgun félagsmanna í LMFÍ á tímabilinu 2006-2016.
Skipting (%) kvenna í LMFÍ eftir því hvar þær starfa.
FÉLAGSMÖNNUM FJÖLGAR UM
2,5% á milli ára, konur eru 31,5%
þeirra en voru 22,3% fyrir tíu árum. Þá
eru 31% kvenna í félaginu sjálfstætt
starfandi lögmenn á móti 53% karla
og 28% kvenna eru fulltrúar á móti
18% karla. Ingimar Ingason rýndi í
félagatalið.