Lögmannablaðið - 2016, Qupperneq 8
8 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16
AF VETTVANGI FÉLAGSINS
árum og til samanburðar má nefna
að hlutfall þeirra var 22,3% fyrir
tíu árum og 17,7% fyrir fimmtán
árum. Má fastlega gera ráð fyrir að
þessi þróun haldi áfram sé horft
til kynjahlutfalls í lagadeildum
íslenskra háskóla og samsetningu
þátttakenda á námskeiðum til
öflunar málflutningsréttinda fyrir
héraðsdómstólum.
Af þeim 342 konum sem í dag hafa
virk málflutningsréttindi eru 47 með
réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti
en þær voru 41 á sama tíma árið
2015. Sjálfstætt starfandi konur í
lögmannastétt eru 106 talsins og 97
konur starfa sem fulltrúar sjálfstætt
starfandi lögmanna. Hjá ýmsum fyrir
tækjum og stofnunum starfa 137 konur
sem innanhússlögmenn, þar af 45
hjá ríki eða sveitarfélögum og 92 hjá
fyrirtækjum og félagasamtökum. Þá
eru 2 konur hættar störfum.
Karlar í lögmannastétt
Alls eru 742 karlar í Lögmannafélaginu,
þar af 309 hæstaréttarlögmenn. Af
þessum 742 körlum eru 395 sjálfstætt
starfandi lögmenn og 134 eru fulltrúar
sjálfstætt starfandi lögmanna. Sem
innanhússlögmenn hjá ýmsum
fyrirtækjum og stofnunum starfa
170 karlar, þar af 48 hjá ríki eða
sveitarfélögum og 122 hjá fyrirtækjum
eða félagasamtökum. Þá eru 43 karlar
hættir störfum.
Aldur lögmanna
Athyglisvert er að skoða aldurs dreif
ingu félagsmanna í ljósi þeirrar þróunar
sem orðið hefur á síðustu tæpum
tveimur áratugum bæði hvað varðar
fjölgun félagsmanna almennt og ekki
síður fjölgun kvenna í lögmannsstétt.
Þannig eru 710 þeirra 1086 sem eru
félagsmenn í Lögmannafélaginu 49 ára
Hlutfall karla og kvenna í LMFÍ 2006-2016.
Skipting (%) karla í LMFÍ eftir því hvar þeir starfa.
Hlutfall kynja í LMFÍ eftir aldri á árunum 2006-2016. Hlutfallslega flestir lögmenn eru
á aldrinum 30-39 ára eða 34,2%. Hlutfall karla á þessum aldri er 29,1% og kvenna
45,3%. Á aldursbilinu 40-49 ára er 26,4% karla samanborið við 27,2% kvenna.