Lögmannablaðið - 2016, Side 17
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16 17
UMFJÖLLUN
háskólamenntaðra starfsmanna var
launamunurinn 8,4%.2
Starfsreynsla og vinnutími
ekki skýringin
Þegar svo mikill launamunur er í
könnunum er reynt að finna líklegar
skýringar, til dæmis að konur vinni
minna en karlar eða að þær séu með
styttri starfsreynslu. Með því að skoða
þessa þætti sérstaklega, að gefnum
þeim forsendum að meðallaun séu
350 þúsund o.s.frv., kemur í ljós að
minnstur munur meðallauna milli
kynja er í þeim hópi sem er með
innan við þriggja ára starfsreynslu,
eða 5,7%, og mestur munur milli karla
og kvenna sem eru með sex til tíu ára
starfsreynslu, eða 11,5%. Vísbendingar
eru um að fleiri karlar en konur í hópi
þeirra sem eru með sex til tíu ára
starfs reynslu vinni meira en 50 tíma
á viku og sömuleiðis vinni minna en
40 tíma á viku. Sé hins vegar skoðað
hverjir vinni meira en 41 tíma á viku
kemur í ljós að 92% (12 af 13) kvenna
og 87% (13 af 15) karla falla í þann
flokk.
Athyglisvert er að alls 16% kvenna
og 19% karla vinna innan við 40 tíma
á viku. Þá vinna 22% karla meira en
50 tíma á viku á móti 12% kvenna svo
það getur aðeins að litlu leyti skýrt
launamuninn. 16% (22 af 138) fulltrúa
vinna meira en 50 tíma á viku að
jafnaði, 67% (93 af 138) vinna 4150
tíma á viku og 12% (5 af 138) vinna
3140 tíma á viku.
Fleiri karlar sáttir við laun sín
Fjórir af hverjum tíu fulltrúum (55 af
138) eru sáttir við kjör sín en fimm
af hverjum tíu (62 af 138) eru ósáttir.
Þess má geta að fleiri karlar eru sáttir,
eða 44% (31 af 71) á móti 36% (24 af
67) kvenna.
Nokkrar niðurstöður um laun,
konur og karla
• 40% (56 af 138) fulltrúa fá greitt fyrir
unna yfirvinnu á meðan 39% (54 af
138) fá það ekki. Mun algeng ara
að karlar fái greidda yfir vinnu en
konur, eða 46% karla (33 af 71) á
móti 34% (23 af 67) kvenna.
• 77% (106 af 138) fá greidda desem
beruppbót en einungis 48% (66 af
138) fá greidda orlofs uppbót. Svipað
hlutfall er hjá báðum kynjum.
• 49% (68 af 138) fá árangurstengdar
greiðslur (bónus), þar af eru þær
talsvert algengari hjá körlum en
konum, eða 55% (39 af 71) á móti
43% (29 af 67). 31% (43 af 138)
fulltrúa fá ekki bónusgreiðslur.
• 17% (23 af 138) fulltrúa fá skerðingu
á yfirvinnu/bónusgreiðslu við
veikindi sín og barna sinna.
• Þá fær 31% (43 af 138) yfirvinnu/
bónusgreiðslur óháð því hvort
lögmannsstofan fái greitt fyrir þá
tíma sem fulltrúinn vinnur.
• Alls 74% (102 af 138) fulltrúa eru
með skriflegan ráðningarsamning,
34% (47 af 138) hafa skrifað undir
ákvæði um launaleynd og 23% (32
af 138) fara árlega í launaviðtal.
Aldur og kyn
Þeir sem tóku þátt í könnuninni voru
flestir undir fertugu, eða 86% (118 af
137) en samkvæmt félagatali LMFÍ
eru 77% fulltrúa á þeim aldri. 5%
(7 af 137) voru 4049 ára gamlir en
samkvæmt félagatali LMFÍ eru 10%
2Sjá nánar: http://vr.is/kannanir/launakonnun-2015/launamunur-kynjanna/
Ef miðað er við að meðallaun þeirra sem eru með milli 301-400 þúsund krónur í mánaðarlaun séu 350
þúsund o.s.frv. kemur í ljós talsverður launamunur á milli kvenna og karla.
Laun miðað við starfsreynslu