Lögmannablaðið - 2018, Síða 4

Lögmannablaðið - 2018, Síða 4
4 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 EVA HALLDÓRSDÓTTIR LÖGMAÐUR RITSTJÓRI ORÐRÆÐAN UM FULLVELDIÐ Það kennir ýmissa grasa í efnismiklu síðasta tölublaði ársins. Þórunn Guðmundsdóttir lögmaður er í forsíðuviðtali að þessu sinni. Þessi reyndi og farsæli lögmaður segir í áhugaverðu viðtali frá sinni reynslu af lögmennsku, sem hún hefur stundað samfleytt í um það bil 35 ár. Hefur hún á þeim tíma þurft að takast á við mál af ýmsum toga og segir einnig frá því hvernig tækniþróun undafarin ár hefur breytt störfum stéttarinnar. Þórunn komst í sögubækur Lögmannafélags Íslands þegar hún varð fyrsti kvenkyns lögmaðurinn sem var kjörinn formaður þess. Þetta var árið 1995 og á þeim tíma var mikill meirihluti félagsmanna karlmenn. Þórunn gegndi stöðunni til ársins 1997 en frá þeim tíma hefur konum fjölgað umtalsvert í félaginu og hlutfall kynjanna jafnast. Eins merkilegt og það nú er liðu hins vegar rúm 20 ár þar til annar kvenmaður tók við forystu í félaginu þegar Berglind Svavarsdóttir var kjörin formaður á aðalfundi síðastliðið vor. Það má velta fyrir sér hvað valdi því að ekki hafi fleiri konur gegnt formennsku. Þar koma til margir þættir og þessi leiðari er of stuttur til að kryfja öll sjónarmið í því sambandi. Þó má segja að til framtíðar litið sé hins vegar mikilvægt að huga að sjónarmiðum um jafnrétti kynjanna þegar kemur að því að kjósa forystu félagsins. Í blaðinu er einnig að finna einkar áhugaverð grein Dr. Davíðs Þórs Björgvinssonar um fullveldi en líkt og kunnugt er fögnuðum við aldarafmæli fullveldis Íslands 1. desember sl. með pompi og prakt. Á þeim degi voru 100 ár liðin frá því að sambandslagasamningurinn tók gildi og Ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Í grein sinni leggur Dr. Davíð Þór út af fullveldi í lögfræði­ legum skilningi. Greining hans á einkar vel við um þessar mundir enda hafa umtalsverðar deilur átt sér stað á opinberum vettvangi um svokallaðan þriðja orku pakka Evrópusambandsins sem Ísland þarf að innleiða vegna aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu. Í grunninn er um að ræða innleiðingu regluverks um flutning á orku milli landa og stofnun orkustofnunar Evrópu (ACER). Sú skoðun hefur verið nokkuð óumdeild hér á landi, undanfarin ár hið minnsta, að innganga Íslands í EES hafi verið gæfuspor. Í tilefni af innleiðingu þessa þriðja orkupakka hafa hins vegar þær raddir verið háværar að innleiðing regluverksins feli í sér einhvers konar framsal á fullveldi Íslands. Þessi orðræða og þessar fullyrðingar standast ekki skoðun, líkt og fræðimenn á sviðinu hafa vitnað um í viðtölum og greinarskrifum. Felur hún raunar í sér afbökun á staðreyndum málsins og viðurkenndum sjónarmiðum um eðli fullveldisins, því eins og fram kemur í grein Dr. Davíðs Þórs neytir íslenska ríkið þvert á móti fullveldisréttinda sinna með því að taka þátt í alþjóðasamstarfi. Orðræðan um framsal fullveldis í þessu sambandi virðist því fremur sett fram í þeim tilgangi að gera alþjóðlegt samstarf tortryggilegt. Virðist þannig raunverulegur tilgangur þeirra sem halda henni á lofti vera sá að koma því á dagskrá hvort rétt sé að Ísland segi sig frá EES­samningnum.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.