Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 16

Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 16
16 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 Lögmanna blaðið bankaði upp á hjá Þórunni Guðmundsdóttur, hæstaréttar lögmanni og fyrsta kvenkyns formanni LMFÍ, einn kaldan dag í nóvember. Þórunn tók vel á móti útsendurum blaðsins á heimili sínu í miðbænum. „Ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð og ákvað að fara í lögfræðina eftir stúdentspróf. Faðir minn var lögmaður en ég vildi ekki viðurkenna að ég hefði valið lögfræðina vegna pabba, en auðvitað hafði það samt áhrif. Foreldrar okkar systkinanna þriggja hvöttu okkur og studdu til náms. Pabbi sagði við mig að ef ég ætlaði ekki að sætta mig við að vera lægra launuð og í lægri stöðu en karlmennirnir í kringum mig, yrði ég að mennta mig og það myndi ekki duga mér að vera jafnvel menntuð og karlarnir, heldur yrði ég að vera með meiri og betri menntun. Ég ákvað að fara í lögfræði en var jafnframt ákveðin í því að reyna aðeins einu sinni, ef ég félli þá færi ég í íslensku eða sagnfræði. Svo náði ég „almennunni“ og eftir námið hér heima fór ég beint út í framhaldsnám.“ Býr alla tíð að náminu í Bandaríkjunum „Eftirá að hyggja hefði kannski verið skynsamlegra að vera komin með einhverja starfsreynslu áður en ég fór út“, segir Þórunn en hún lauk LL.M. gráðu frá lagadeild Cornell háskólans í New York árið 1983. „Sá skóli er einn af þessum gömlu „Ivy League“ háskólum á austurströnd Bandaríkjanna, stofnaður árið 1865. Þetta var mikið ævin­ týri og rosaleg vinna en ég held að ég búi að því alla tíð að hafa gert þetta. Lagadeildin hér heima var bara eins og barnaafmæli í samanburði, vinnuálagið var svo mikið.“ Þórunn eignaðist góða vini þetta ár sitt í Bandaríkjunum og vinkona hennar frá Jóhannesarborg kom einmitt í heimsókn í sumar. „Við höfðum ekki hist í 35 ár en sá langi tími hvarf á fyrsta klukkutímanum. Það myndaðist sterk vinátta á milli okkar enda bjuggum við saman á stúdentagarði lagadeildarinnar, ásamt um 100 öðrum laganemum. Við bjuggum, lærðum og þjáðumst saman. Þriðja í hópnum var frá Panama og það kom sér vel þegar ég var að vinna í ýmsum málum eftir hrun og álitamál tengd svokölluðum Panamafélögum skutu upp kollinum. Þá var gott að geta bara hringt í gamla vinkonu sem starfaði á lögmannsstofu í Panama, þó ekki á Mossack Fonseca!“ MIKILVÆGAST AÐ VERA HEIÐARLEG VIÐTAL VIÐ ÞÓRUNNI GUÐMUNDSDÓTTUR HÆSTARÉTTARLÖGMANN:

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.