Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 8

Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 8
8 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 stressuðum eiginmönnum sem hlupu eins og hauslausar hænur að finna eitthvað nógu gott handa konunni fyrir lokun. Logi hafði séð um önnur matarinnkaup, eftir excel­ skjali sem ég hafði sett nákvæmlega upp, með magni og vöruflokkum. Hann hélt reyndar að ég væri klikkuð þegar ég sendi honum þetta en hefur fyrir löngu viðurkennt að þetta sé eina leiðin til að kaupa inn fyrir jólin. Þessi listi, ásamt álíka nákvæmum leiðbeiningum frá mömmu um jólamatargerð, hefur oft bjargað okkur frá stórslysum í jólahaldi síðan. Þessi jól voru sem sagt ekki vandlega undirbúin með löngum fyrirvara, en þau redduðust samt. Mér finnst hátíðlegt að hafa ekki allt á haus þegar jólin ganga í garð, enda alin upp af einstökum snyrtimennum. Pabbi bónaði alltaf bílskúrsgólfið þangað til hann flísalagði það og ég held að það hafi ekki eitt rykkorn lifað af jóla­ hrein gerningu mömmu. Við systurnar höfðum okkar skyldur og í minningunni tengist Þorláksmessa og þrif á baðskáp órjúfanlegum böndum. En þegar maður er með sex börn á ýmsum aldri inn og út af heimilinu, ásamt vinum, heimilisköttum og gestaköttum, lærist manni að gera minni kröfur. Svo geri ég mér grein fyrir því að það er sennilega meiri hjálp í köttunum við þrifin en börnunum mínum. Þess vegna er ég löngu búin að ákveða að jólin komi þótt baðskápurinn sé í rugli og jafnvel ýmislegt fleira. Jólaföt? Þau eru höfuðverkur. Ég fæ aldrei aftur alla þá klukkutíma sem hafa farið í að finna jólabuxur, jólaskyrtur, jólakjóla og jólaskó á öll mín börn. Þessi sömu börn hafa Ég held að við höfum öll í kollinum hugmynd um hin fullkomnu jól. Jól, þar sem allar jólagjafir eru keyptar tímanlega og fyrir skynsamlegar upphæðir. Þar sem haustið hefur farið í að grynnka jafnt og þétt á draslinu á heimilinu, sem bíður svo bara eftir að maður renni létt yfir það á Þorláksmessu með dyggri hjálp barnanna. Þessi sömu börn eru auðvitað löngu búin að eignast viðeigandi spariföt og skó ­ sem þau vilja vera í. Svo rennur aðfangadagur upp í mjúkri logndrífu, eftir notalega, rólega og hlýlega aðventu og allt er eins og það hefur alltaf verið, af því að jól eru jú hátíð hefðanna. Einmitt. Ímyndið ykkur að hér komi hljóð eins og verið sé að rispa hljómplötu. Ekki af því að jól geti ekki verið fullkomin. Ég held að flest mín jól hafi stappað nærri einhvers konar fullkomnun, en það er hugsanlega meira tengt hugarástandi og ákveðinni nægjusemi en því að þau hafi verið svona fullkomin lífstílsbloggaraglansmyndajól. Fyrstu jólin okkar Loga vann ég fram á Þorláksmessukvöld og rétt náði að skjótast í Kringluna að kaupa gervijólatré og allt á það fyrir lokun. Fór svo heim og skreytti tréð meðan Logi sofnaði í sófanum. Það má kannski nefna að ég er með ákveðna áráttu sem brýst heiftarlega út við jólaskreytingar og gerir það að verkum að það að skreyta tréð er aldrei undir þriggja tíma verki. Morguninn eftir fór ég svo aftur í Kringluna til að kaupa hamborgarhrygginn og var þar með ALLSKONAR JÓL JÓLAHUGVEKJA SVANHILDUR HÓLM VALSDÓTTIR

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.