Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 6
6 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18
MÖRG MÁL HJÁ
MANNRÉTTINDA-
DÓMSTÓL EVRÓPU
Tímamót urðu hér á landi þegar Mannréttindasáttmáli
Evrópu var lögfestur árið 1994. Ári síðar var mann rétt
inda kafla stjórnarskrárinnar breytt og réttindavernd
hennar samræmd við þau réttindi sem sáttmálinn veitir.
Á þeim árum sem liðin eru hafa íslenskir lögmenn og
dómarar í sívaxandi mæli litið til dómafordæma Mann
rétt indadómstólsins í sínum störfum, vægi þeirra dóma
hefur aukist og almennt má segja að íslenskir dómstólar
beiti sáttmálanum í samræmi við dómaframkvæmd
Mannréttindadómstólsins.
Fordæmi Mannréttindadómstólsins skipta miklu máli fyrir
lýðræðisþróun og vernd borgaranna og þótt áfellisdómar
frá Strassborg séu vissulega mikið alvörumál þá geta þeir
hins vegar haft mjög jákvæð áhrif á réttaröryggi hér á landi
– eins og dæmin sanna. Það er þó umhugsunarvert ef þeir
áfellisdómar verða of margir. Í þessu ljósi verður því að telja
mjög athyglisvert að samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum
frá skrifstofu MDE voru þann 1. júlí s.l. 47 mál frá Íslandi
sem biðu afgreiðslu Mannréttindadómstólsins, þar af 44
fyrir 7 dómara deild (chamber). Fjöldi mála sem bíða
fyrir þeirri deild frá hinum Norðurlöndunum eru 12 frá
Danmörku (heildarfjöldi mála fyrir dómstólnum 26), 11
frá Svíþjóð (87), 18 frá Noregi (63) og 7 frá Finnlandi (62).
Ísland ber þannig höfuð og herðar yfir hin Norðurlöndin
hvað varðar fjölda þeirra mála sem bíða fyrir 7 dómara
deildinni, og þurfum við ekki einu sinni að styðjast við
hina margfrægu höfðatölu til að sýna fram á yfirburði
Íslendinga.
Þessi staðreynd kemur samt óneitanlega á óvart og vekur
upp spurningar um hvort ástandi mannréttindamála hér á
landi sé í raun svona áfátt og hvort við grundvallarvanda sé
að etja í íslensku lagakerfi og réttarframkvæmd. Niðurstaða
framangreindra mála mun væntanlega gefa okkur nánari
vísbendingar þar að lútandi og er þá mikilvægt að geta átt
gagnrýna umræðu og dregið lærdóm af.
Nú hafa síðustu dómar „gamla“ Hæstaréttar verið kveðnir
upp og má því segja að upptaka millidómsstigsins sé þá
orðin endanleg. Framvegis mun Hæstiréttur gegna því
hlutverki að vera fordæmisgefandi dómstóll og með því að
miklu álagi hefur nú verið létt af réttinum má ætla að það
skapi dómurum betri aðstæður til að sinna veigamiklum
og fordæmisgefandi málum. Þá mun Hæstiréttur framvegis
starfa í einni deild sem jafnframt er til þess fallið að auka
fordæmisgildi dóma réttarins.
Hvaða áhrif framangreindar breytingar munu hafa á
framkvæmd og málsmeðferð fyrir réttinum á eftir að
koma í ljós en í umræðum þar að lútandi hefur meðal
annars borið á góma hvort samning dóma muni taka
einhverjum breytingum frá því sem nú er, og hvort þess
megi vænta að dómar verði eftir atvikum ítarlegri og með
almennari rökstuðningi, sem hafi víðtækt fordæmisgildi.
Þá eru vonir bundnar við breytta afstöðu réttarins til
tímalengdar málflutnings nú þegar fjölda mála fækkar
til muna. Einnig hefur því verið velt upp hvort kæru og
áfrýjunarheimildir til Hæstaréttar hafi verið skilgreindar of
þröngar og aðgengi borgaranna að dómstólnum þar með
skert um of. Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu réttarins
hefur réttinum borist 41 beiðni um málskot og þar af hafa
einungis 8 beiðnir verið samþykktar. Það hlutfall virðist
þó reyndar ekki fjarri því sem gerist á Norðurlöndum.
Miðað við þetta má kannski ímynda sér að fjöldi mála verði
í kringum 50 á ári hverju. Tíminn mun leiða ofangreint
í ljós en í öllu falli er ljóst að töluverð eftirvænting ríkir
til hins nýja fyrirkomulags og hvernig það muni reynast í
framkvæmd.
BERGLIND SVAVARSDÓTTIR LÖGMAÐUR
FORMAÐUR
Records
Mála- og skjalakerfi
Heldur öuga málaskrá - gott yrlit.
Málaskrá, ‘Mín mál’ og tímamörk mála.
Mitt One: Síðustu skjöl sem ég hef lesið,
breytt eða skráð.
10 síðustu vistunarstaðir (mál) þar sem
ég hef vistað skjöl.
Öug leitarvél. - Leitar í innihaldi skjala,
og viðhengjum.
Vista Outlook tölvupósta inn á mál.
Öug samhæng við Microsoft Oce,
Word, Excel og Outlook.
Hægt að ytja inn mörg skjöl í einni
aðgerð inn á mál.
Hægt að ytja öll skjöl úr einni möppu
inn á mál með einni aðgerð.
Hægt að fá iPad lesaðgang.
(spjaldtölvulesaðgangur að kernu)
OneHýsing: ISO vottað umhver.
Dagleg afritunartaka gagna.
ÖFLUGT
mála- og skjalaker
sem hentar vel fyrir
LÖGMANNSSTOFUR
Logos lögmenn, Patice lögmenn,
Draupnir lögmenn, Jónatansson
lögmenn
Meðal viðskiptamanna:
Drag’nDrop
Draga og sleppa
Draga tölvupóst yr í
málakerð á rétt mál með
einni aðgerð.
Draga skjöl á sameiginlega
drinu yr í málakerð
með einni aðgerð.
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
One býður hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi.