Lögmannablaðið - 2018, Page 15

Lögmannablaðið - 2018, Page 15
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 15 HVER ER TILGANGUR BIRTINGA DÓMA Á NETINU? Lögmannafélag Íslands í samstarfi við Dómarafélag Íslands, Lögfræðingafélag Íslands og dómstólasýsluna efndu til hádegisverðarfundar miðvikudaginn 28. nóvember sl., þar sem fjallað var um drög að frumvarpi til laga um birtingu dóma og myndatökur í dómhúsum. Frumvarpinu er ætlað að koma til móts við þá gagnrýni sem undanfarið hefur komið fram þess efnis að ekki sé nægilega gætt að sjónarmiðum og reglum um persónuvernd og friðhelgi einkalífs við birtingu dóma á netinu. Fundurinn fór fram á Nauthól og var vel sóttur. Fundurinn hófst á orðum Kristínar Haraldsdóttur, lektors við lagadeild Háskólans í Reykjavík, þar sem hún bauð gesti velkomna og reifaði tilefni fundarins. Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, fjallaði því næst um aðdraganda frum varpsins og ástæður þess að það er nú til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Ráðherra sagði nokkur tilvik hafa komið til kasta dómstóla sem sýndu að birting dóma og nafnbirting hafi valdið málsaðilum tjóni. Kallað hafi verið eftir samræmdum reglum um birtingu dóma og dómstólasýslan hafi í kjölfarið lagt til texta í frumvarpið sem dómsmálaráðuneytið vann með. Að loknu ávarpi ráðherra héldu framsöguerindi þau Benedikt Bogason, Hæstaréttardómari og formaður stjórnar dóm stólasýslunnar, Sigurður Tómas Magnússon, Lands réttar dómari og formaður réttarfarsnefndar, Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari og formaður DÍ, Berglind Svavarsdóttir, formaður LMFÍ, og Helga Þóris­ dóttir, forstjóri Persónuverndar. Benedikt fjallaði um tillögur frumvarpsins. Þær felast í því að settar verði samræmdar reglur um birtingu dóma, að þeim málaflokkum þar sem héraðsdómar eru ekki birtir verði fjölgað og ef dómar í slíkum máli gangi til Landsréttar og Hæstaréttar verði niðurstaða æðri dóms eingöngu birt í formi reifunar, að í sakamálum verði ávallt nafnleynd, og að settar verði reglur um myndatökur í dómhúsum. Sigurður Tómas fjallaði um áhrif nýrrar persónuverndar­ löggjafar og sagði að vegna lögfestingar hennar biði löggjafans nú það mikilvæga verkefni að finna jafnvægi og málamiðlun á milli andstæðra sjónarmiða um opinbera málsmeðferð og sjónarmiða um persónuvernd. Ingibjörg kvaðst hins vegar telja umhugsunarverða þá fyrirætlan að draga úr upplýsingum sem almenningi væru veittar enda gæti slíkt sáð fræjum vantrausts. Þá kvaðst hún telja rétt að þær reifanir sem verði birtar séu samdar af dómaranum sjálfum og verði þannig hluti af niðurstöðu dómsins. Að lokum tók Ingibjörg fram að hún teldi varhugavert að afmá öll nöfn úr sakamálum. Sömu persónuverndarsjónarmið ættu ekki við þar og í einkamálum og að nöfn sakamanna ættu oft erindi við almenning. Reifanir og nafnleynd Berglind fór yfir framkvæmdina í öðrum Norðurlöndum. Þar væri notast við reifanir þar sem allt væri undir nafnleynd. Hún sagði skiptar skoðanir vera um þetta meðal lögmanna og að laganefnd LMFÍ hefði skilað umsögn þar sem efast væri um að reifun væri heppileg útfærsla. Þá sagði hún að við vinnslu slíkrar reifunar yrði að vanda mjög til verka og að slík reifun yrði að geyma kröfugerð, málsástæður og forsendur. Helga tók síðust til máls og fjallaði um þau sjónarmið sem Persónuvernd horfir til í frumvarpinu. Anna Lilja Hallgrímsdóttir

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.