Tölvumál - 01.01.2018, Síða 2

Tölvumál - 01.01.2018, Síða 2
RITSTJÓRNARPISTILL Dr. Ásrún Matthíasdóttir, ritstjóri Tölvumála Í myndinni Modern Times frá 1936 má sjá mörg skemmtileg myndskeið þar sem Charlie Chaplin er að eiga við sjálfvirkni og sjálfsafgreiðslu. Þegar hann sem starfsmaður í verksmiðju ætlar að taka sér hádegismatarhlé þarf hann að matast með aðstoð Billows Feeding Machine til að missa ekki úr tíma frá vinnu. Rúmum 80 árum seinna erum við á hraðri leið með að auka sjálfsafgreiðslu, ekki endilega við að mata fólk heldur við mörg önnur störf. Sjálfsafgreiðsla er þema Tölvumála á afmælisári og er margar áhugaverðar greinar að finna í blaðinu. Fjallað er um hvernig tæknin eykur aðgengi að ýmiskonar aðstoð og úrræðum, s.s. sálfræðimeðferð og nýtist við mælingar á heitu vatni svo eitthvað sé nefnt. Tækifærin og vandmálin sem leynast í sjálfvirkninni eru dregin fram og áhugaverð viðtöl má finna í blaðinu. Bankar koma strax upp í hugann þegar sjálfsafgreiðsla er nefnd en þar hafa þróast hratt ýmsar nettengdar lausnir, sem hafa um leið fækkað starfsmönnum og útibúum. Notandinn sér um að vinna verk, sem áður voru unnin af starfsmönnum, með aðstoð appa og heimabanka. Skatturinn er annað dæmi þar sem sjálfsafgreiðsla við framtal er einnig orðin þróuð, margt er forskráð og flestir þurfa litlu við að bæta. Verst að við getum samt ekki valið okkur skattprósentuna sjálf. Hvaða prósentu myndir þú velja? Ekki má gleyma öllu því sem hægt er að panta í gegnum netið þegar farið er í ferðalag, s.s. flug, gistingu, akstur, miða á söfn eða sýningar og borð á veitingastað. Við getum líka greitt fyrir ótal hluti á netinu s.s. miða á viðburði, bílastæði og strætó. Síðan er það sjálfsafgreiðsla í búðum. Var kannski IKEA fyrst með þann búnað hér á landi? Ég verð að viðurkenna að í fyrstu var ég óörugg þegar ég var að afgreiða sjálfa mig en svo lærðist þetta, verst að vélarnar í búðunum eru eins ólíkar og búðirnar eru margar. En á ekki að vera svo gott fyrir hugann að vera alltaf að læra eitthvað nýtt? Það nýjast sem ég hef upplifað var á veitingastað í Gautaborg þar sem ég þurfti að taka mynd af skífu á borðinu sem ég settist við til að komast í FB-Messenger til að panta mat og drykk og síðan að greiða í lokin með því að setja kortaupplýsingar á Messenger. Það eina sem þjóninn gerði var að taka til drykkina og bera fram matinn. Ég verð stundum hugsi yfir því hvort þessi tæknivæðing á allskonar afgreiðslu hafi skilað sér í lægra verði á vöru og þjónustu til neytenda því við erum jú oft að vinna vinnu sem starfsfólk þurfti til að vinna áður fyrr. Auðvitað kostar hugbúnaður og rekstur hans sitt, en hefur þessi þróun ekki sparað neitt í rekstri fyrirtækja? Að lokum langar mig að vitna í það sem Chaplin sagði við Gandhi forðum: I grant that machinery with only the consideration of profit has thrown men out of work and created a great deal of misery, but to use it as a service to humanity ... should be a help and benefit to mankind. Tímaritið Tölvumál Fagtímarit um upplýsingatækni. Tölvumál hafa verið gefin út frá árinu 1976 af Skýrslutæknifélaginu. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Ásrún Matthíasdóttir Aðrir í ritstjórn Ágúst Valgeirsson Atli Týr Ægisson Elín Granz Eyjólfur Ingi Ásgeirsson Sigurjón Ólafsson Skýrslutæknifélag Íslands Ský er félag einstaklinga, fyrirtækja og stofnana á sviði upplýsingatækni. Starfsmenn Ský Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Linda Björk Bergsveinsdóttir, verkefnastjóri Stjórn Ský Guðjón Karl Arnarson, formaður Snæbjörn Ingi Ingólfsson Theódór R. Gíslason Birna Íris Jónsdóttir Kristján Ólafsson María Ingimundardóttir Díana Dögg Víglundsdóttir Aðsetur Engjateigi 9 105 Reykjavík Sími: 553 2460 www.sky.is | sky@sky.is Óheimilt er að afrita á nokkurn hátt efni blaðsins að hluta eða í heild nema með leyfi viðkomandi greinahöfunda og ritstjórnar. Blaðið er gefið út í 1.200 eintökum. Áskrift er innifalin í félagsaðild að Ský. Pökkun blaðsins fer fram í vinnustofunni Ás. Prentvinnsla Litlaprent ehf. Tölvumál eru skráð vörumerki hjá Einkaleyfastofu og eru í eigu Skýrslutæknifélags Íslands. Öll notkun og vísun í vörumerkin er óheimil án sérstaks leyfis eiganda.Í því felst m.a. réttur sem settur er í vörumerkjalögum (sjá lög m vörumerki nr. 45/1997 með síðari breytingum) gefur eiganda vörumerkis einkarétt á að nota merkið hér á landi og getur hann þá bannað öðrum að nota í atvinnustarfsemi merki sem eru eins eða lík vörumerki hans. Nánari uppl: http://www.els.is/merki/ vorumerki/ 2

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.