Tölvumál - 01.01.2018, Qupperneq 3

Tölvumál - 01.01.2018, Qupperneq 3
3 EFNISYFIRLIT VILTU GANGA Í SKÝ? Skýrslutæknifélag Íslands, í daglegu tali nefnt Ský, er félag einstaklinga, fyrirtækja og stofnana á sviði upplýsingatækni. Ský er rekið án hagnaðarmarkmiða og starfa tveir starfsmenn hjá félaginu. Aðild er öllum heimil og bjóðum við ungt fólk í tölvugeiranum sérstaklega velkomið. Starfsemi félagsins er aðallega fólgin í, auk útgáfu Tölvumála, að halda fundi og ráðstefnur um sérhæfð efni og nýjungar í upplýsingatækni. Félagið á og heldur UTmessuna sem er einn stærsti viðburður í tölvu­ geiranum á Íslandi. Einnig veitir félagið Upplýsingatækniverðlaunin árlega frá 2010. Ský sér um að halda Bebras tölvuáskoruninia árlega í skólum landsins en það er alþjóðlegt verkefni sem hvetur krakka til að nota hugsunarhátt forritunar við lausn á skemmtilegum verkefnum. Félagið stóð að ritun og samantekt á „Sögu tölvuvæðingar á Íslandi 1964­2014“ og er hún á vef Ský auk þess sem sagan kom út í bókarformi í apríl 2018. Ýmis önnur starfsemi tengd tölvu­ og tæknigeiranum fer fram hjá Ský enda félagið óháð öllum. Tilgangur Ský er að miðla þekkingu milli þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á upplýsingatækni. Hlutverk Ský er að bjóða uppá fjölbreytta og metnaðarfulla viðburði í formi fræðslufunda og ráðstefna um upplýsingatækni og hlúa að því öfluga þekkingar­ og tengslaneti sem myndast hefur innan félagsins og veita þannig félagsmönnum sínum virðisauka og vegsemd. MARKMIÐ SKÝ ERU: • að breiða út þekkingu á upplýsingatækni og stuðla að skynsamlegri notkun hennar • að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna • að koma fram opinberlega fyrir hönd fólks í upplýsingatækni • að stuðla að góðu siðferði við notkun upplýsingatækni • að styrkja notkun íslenskrar tungu í upplýsingatækni INNAN SKÝ ERU FJÖLMARGIR FAGHÓPAR OG GETUR FÓLK SKRÁÐ SIG Í ÞÁ SEM HENTA: • Faghópur um vefstjórnun • Faghópur um rafræna opinbera þjónustu • Faghópur um öryggismál • Faghópur um fjarskiptamál • Faghópur um hugbúnaðargerð • Faghópur um rekstur tölvukerfa • Faghópur um menntun, fræðslu og fræðistörf í UT • Fókus, faghópur um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu • Öldungadeild, ætlaður þeim sem hafa starfað lengur en 25 ár í UT geiranum ÁVINNINGUR AF FÉLAGSAÐILD: • Lægri ráðstefnugjöld á ráðstefnur félagsins fyrir félagsmenn • Áskrift að Tölvumálum, fagtímariti með efni tengdu tölvunotkun og upplýsingatækni • Leið að faghópastarfi innan félagsins • Hafi félagsmenn áhuga á að stofna faghóp eða tengslanet myndi félagið aðstoða við það • Félagsmönnum er gefið tækifæri til að starfa í/með undirbúningsnefndum ráðstefna og funda félagsins • Tengslanet, fræðsla, tengslanet, fræðsla, tengslanet ... NÁNARI UPPLÝSINGAR ER AÐ FINNA Á WWW.SKY.IS OG HJÁ SKRIFSTOFU SKÝ. 2 Ritstjórnarpistill 3 Efnisyfirlit 3 Viltu ganga í Ský? 4 Búum til tækni sem er mikils virði Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarstjóri 6 Tækifærin leynast í sjálfvirkni Valeria Rivina, forstöðumaður stafrænnar viðskiptaþróunar, Icelandair 8 Verður atvinnuleysi vandamál vegna aukinnar sjálfsafgreiðslu og sjálfvirknivæðingar? Snæbjörn Ingi Ingólfsson, viðskiptastjóri hjá Origo 9 Ekki láta plata þig í viðskiptum á netinu Ólafur Kristjánsson hjá Netkynningu 10 Stafræn umbreyting snýst ekki um tækni Viðtal við Ólaf Örn Nielsen, framkvæmdastjóra Kolibri og handhafa verðlaunanna „Bylting í stjórnun 2018“ 14 Security training at your own pace Steindór S. Guðmundsson, Chief Product Officer at Syndis 16 Sjálfvirknivæðing veitna Hendrik Tómasson, MSc í rafmagnsverkfræði og þróunarstjóri snjallkerfa hjá Kerfisþróun og stýringu 17 Breytngar á flugi beint í símann þinn Heiðar Örn Arnarson, vefstjóri hjá Isavia 18 Sjálfvirkar ákvaðanir um allan heim Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo Lánstrausts og svæðisstjóri Creditinfo Group í N­Evrópu 20 Roboadvisors: The future of financial advice? Stefan Wendt, Assistant Professor of Finance, Reykjavik University, Matthias Horn, Department of Finance, Bamberg University Andreas Oehler, Full Professor and Chair of Finance, Bamberg University 21 Forritarar framtíðarinnar 22 Borgarbókasafnið og framtíðarsýn þjónustuþróunar Ásta Þöll Gylfadóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunar, Borgarbókasafn Reykjavíkur 24 UTmessan 2018 Yfirlit og myndir 26 Tæknin eykur aðgengi að hjálp Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi Köru Connect 27 Áhrif tölvuleikjaspilunar á heilastarfsemi Fjóla Baldursdóttir, nemandi við Háskólann í Reykjavík 29 Tölvumál þá og nú Viðtal við Grétar Snæ Hjartason. Viðtalið tók Ásrún Matthíasdóttir 30 Vélmennin taka yfir Guðmundur Vestmann, verkefnastjóri hjá Rafrænni þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar 31 Getur meðferð i gegnum vefinn lagað svefnleysi á árangursríkan hátt? Erla Björnsdóttir sálfræðingur og doktor í svefnrannsóknum 32 Tækjabyltingin Guðmundur Jóhannsson, samskiptafulltrúi hjá Símanum 33 Babel fiskur Kolbeinn Páll Erlingsson, nemandi við Háskólann í Reykjavík 34 Stelpur, látið ekki staðalímyndir hrekja ykkur frá tæknigreinum Dr. Ásrún Matthíasdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík 36 Nýir heiðursfélagar í Ský 39 Eyður 40 Síðan síðast... 42 Tölvunarfræði Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Verðlaunahafar upplýsingatækniverðlauna Ský 2018 44 Fréttir af starfsemi Ský Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský 46 50 ára afmæli Ský

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.