Tölvumál - 01.01.2018, Page 6

Tölvumál - 01.01.2018, Page 6
6 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að þungur rekstur flugfélaga hefur mikið verið í umræðunni undanfarin misseri. Eldsneytiskostnaður og launakostnaður eru þeir liðir sem vega hvað þyngst. Einnig hafa almenn flugfargjöld verið að lækka gríðarlega, í sumum tilfellum þannig að þau standa varla undir kostnaði, og samkeppnin hefur verið að aukast á öllum mörkuðum. Þetta kallar vissulega á að allir leiti leiða til þess að búa til tekjur en ekki síður til að lækka rekstrarkostnað. Annars gengur dæmið einfaldlega ekki upp. Við sjáum sífellt sparneytnari flugvélar koma á markað og stöðugt er verið að vinna að úrbótaverkefnum til þess að minnka sóun og straumlínulaga vinnuferla. Þótt slík verkefni skili vissulega mikilli hagræðingu í rekstri er freistandi að hugsa hvort við gætum ekki mögulega gert enn betur. Getum við til dæmis aukið sjálfvirkni nú þegar ferlar hafa verið bestaðir? Getum við kannski sett völdin í auknum mæli í hendurnar á viðskiptavinum okkar og leyft þeim að afgreiða sig sjálfa að mestu leyti um allar helstu vörur og þjónustu? Gætum við þá mögulega minnkað sóun enn meira og hagrætt enn frekar í rekstri, en á sama tíma veitt viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu þegar á reynir í stað þess að láta þá bíða meðan við afgreiðum einföld mál? Væri þetta ekki raunverulegur ávinningur fyrir báða aðila og göfugt markmið? HVAÐAN KOMUM VIÐ? Icelandair er eitt stærsta fyrirtækið á Íslandi með rúmlega 80 ára sögu. Við störfum á alþjóðamarkaði þar sem samkeppnin er gríðarleg og því skiptir miklu máli að við séum snjöll í okkar rekstri og höldum rétt á spilunum. Við erum að keppa við risastór flugfélög í flugi yfir Atlantshafið og erum því stöðugt að leita leiða til þess að hagræða í rekstri okkar sem gefur okkur möguleika á að bjóða viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustuna á sanngjörnu verði. Fyrir þremur árum lögðum við af stað í þá vegferð að innleiða stafræna umbyltingu (e. Digital Transformation) í fyrirtækinu og stofnuðum deild sem ber ábyrgð á stafrænni þróun fyrirtækisins, Digital Business Development. Mikilvægara er þó að við bjuggum til samfélag sem við köllum Digital Labs, sem leiðir saman Digital Business Development og fólk úr hinum ýmsu deildum og sviðum í fyrirtækinu og á það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á að því að gera fyrirtækið okkar ennþá betra og beitir til þess nýjustu tækni og aðferðum. Hver einasti meðlimur í þessu samfélagi er frumkvöðull, sem sér tækifæri í hverju horni, og saman leiðum við stafræna umbyltingu Icelandair. Árangur í stafrænni umbyltingu næst nefnilega ekki með tækninni einni, heldur með fólkinu sem drífur hana áfram. HVERT ERUM VIÐ AÐ FARA? Okkar markmið hefur frá upphafi verið að skara framúr í stafrænni notendaupplifun. Við viljum hjálpa fólki að búa til minningar og lágmarka þá streitu sem oft fylgir ferðalögum. Við viljum skara fram úr í þjónustu gegnum allt ferðalagið, frá upphafi til enda. Við viljum einnig leggja okkar af mörkum svo að vinnustaðurinn okkar verði framúrskarandi og starfsfólk okkar hafi alltaf þau tól sem þarf til að veita bestu þjónustuna. Þar kemur sjálfvirkni og sjálfsafgreiðsla sterk inn og er einn af lykilþáttum þess að ná árangri. Með því að endurskoða alla ferla hjá okkur, straumlínulaga þá og beita svo tækninni til þess að minnka handavinnu færumst við nær okkar markmiðum, skref fyrir skref. Það er einnig mikill ávinningur fólginn í því að sjálfvirknivæða verkefni sem krefjast mikillar nákvæmni og sérstaklega þar sem gögn eru flutt á milli kerfa, sjálfvirkni minnkar hættu á villum og öðrum mannlegum mistökum. Með innleiðingu á nútímalegu og samþættu viðskiptastjórnunarkerfi (e. CRM system) höfum við á síðustu 18 mánuðum náð miklum árangri með starfsfólki okkar í framlínu í sjálfvirknivæðingu og einföldun á viðskiptaferlum sem snúa að úrlausn frávikamála. Afköst hafa aukist til mikilla muna, starfsfólk okkar er ánægðara því þetta auðveldar þeim vinnuna og síðast en ekki síst fá viðskiptavinir okkar hraðari og betri þjónustu. Allir vinna. Að þekkja viðskiptavininn og veita honum réttu þjónustuna á réttum tíma er einnig eitt af okkar megin markmiðum. Það getur reynst flókið í nútímasamfélagi þar sem erfitt er að flokka fólk í hópa, enda eru þarfir og væntingar einstaklinga sífellt að verða sértækari og flóknari. Gögnin skipta hér megin máli, en það er ekki nóg að hafa þau - gæði gagnanna þurfa að vera góð, um leið og allir í fyrirtækinu þurfa að vera meðvitaðir um þau og kunna að hagnýta sér þau. Við fundum mikla þörf fyrir þetta á vegferð okkar sem varð til þess að nýlega stofnuðum við sérstaka gagnaeiningu sem vinnur hörðum höndum að því að búa til samþættaða gagnagrunna og vöruhús gagna eftir nýjustu aðferðum. Gagnaeiningin okkar hefur einnig það hlutverk að styðja við aðrar deildir og kenna þeim að skilja og nota gögnin á snjallan máta og jafnvel finna í þeim ný sannleikskorn. Þetta gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar í auknum mæli upp á þjónustu sniðna að þeirra þörfum og opnar á gríðarlega mörg ný tækifæri. Icelandair Hotels hafa verið að innleiða hugbúnaðarþjarka-tækni (e. Robotics) og náð miklum árangri við sjálfvirknivæðingu einfaldari viðskiptaferla. Við erum spennt fyrir að halda áfram á sömu braut og beita þessari tækni á fleiri ferla hjá okkur og minnka þannig endurtekna handavinnu. Þannig getum við einbeitt okkur að því sem skiptir máli en látið tæknina sjá um afganginn. Kynslóðir sem nú eru að vaxa úr grasi og hafa alist upp við tæknina, munu í auknum mæli gera kröfu til sjálfsafgreiðslu. Þessi kynslóð hefur litla þolinmæði og gerir ráð fyrir framúrskarandi þjónustu, á methraða - allan sólarhringinn. Fyrirtæki eins og Amazon hafa sett viðmiðið nokkuð hátt og það mun vera áskorun fyrir okkur hin að standast væntingar, nú þegar tónninn hefur verið gefinn. Fyrirtæki þurfa að halda rétt á spilunum ætli þau sér að lifa af og því nauðsynlegt að leita allra leiða til þess að hagræða í rekstri sínum. Þetta verður að gerast án þess að það komi niður á þjónustunni; þjónustan þarf meira að segja að vera ennþá betri. Tækifærin leynast í sjálfvirkni. TÆKIFÆRIN LEYNAST Í SJÁLFVIRKNI Valeria Rivina, forstöðumaður stafrænnar viðskiptaþróunar, Icelandair Upplýsingatækni í áskrift Sérsniðnar lausnir að þínum þörfum Upplýsingatækni í áskrift er samningsform og leið fyrir fyrirtæki til að stíga næstu skref í áttina að stafrænni framtíð. Við viljum eiga samtalið, skoða leiðir og aðferðir til að leysa þær áskoranir sem liggja fyrir. Þannig finnum við áskriftarleiðina sem hentar þínum rekstri, kostnaður verður þekktur og ekkert sem kemur á óvart.

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.