Tölvumál - 01.01.2018, Side 17

Tölvumál - 01.01.2018, Side 17
17 eða rigning kemur inn. Veðurgögnin gætu einnig hjálpað okkur að sjá fyrir mögulegan vatnsskort ef vatnsborðsmælingar væru fullkomnar eða gerlamengun væri yfirvofandi, þ.e.a.s. þær verða við sérstakar aðstæður. Þá væri t.d. hægt að undirbúa svæðin áður en vandræðin koma. RAFVEITA Við snjallmælingu rafmagns á heimilum mun sýn notanda og veitukerfis batna til muna. Notandinn gæti séð nákvæmlega hversu mikið rafmagn hefur verið notað og hversu mikið það kostar hann. Hann gæti auðveldlega borið saman kostnað milli tímabila og séð hvort rafmagnsreikningurinn væri að hækka óeðlilega. Einnig væri hægt loka fyrir rafmagn á ákveðnum stöðum t.d. í tengslum við eldsvoða eða jarðskjálfta. FRAMTÍÐIN Stefna Veitna í dag hefur breyst, nú er lögð áhersla á að boða framsækna hugsun þar sem við ætlum alltaf að hafa heitt vatn, kalt vatn, rafmagn og hreinar strendur, þar sem stefnan er að lágmarka sóun, tryggja auðlindir og dreifingu. Stór þáttur í því að ná þeim markmiðum verður að bæta yfirsýn kerfa og fyrsta skrefið er að safna fleiri gögnum. Meiri og betri upplýsingar upp úr búnaði og svæðum geta gefið til kynna hvar gallarnir eru eða hvar við getum bætt kerfið, hvort sem það eru upplýsingar úr dreifistöð, dælu, hverfi eða auðlind. Hvernig komast Veitur áfram í þessum málum? spyr einn af ungu verkfræðingunum sig. Þurfum við ekki bara að stíga svolítið út fyrir þægindaramman og hrista boxið, opna okkur meira? Gera gögnin okkar aðgengilegri og starfa betur með háskólasamfélaginu, stuðla að meiri þróun í veitugeiranum. Byggja upp stemningu og þekkingu fyrir meiri sjálfvirkni og snjallheitum. Stækka net skynjara og upplýsinga sem hægt er að mylja með einhverjum ofurtölvum sem eru í boði í dag. BREYTINGAR Á FLUGI BEINT Í SÍMANN ÞINN Þeir sem þurfa að skipuleggja tíma sinn vel í kringum flug frá Kefla- víkurflugvelli s.s. farþegar og ferðaþjónustuaðilar, geta nú fengið upplýsingar um breytingar á flugi sendar beint til sín á Twitter og Facebook Messenger. Þetta er meðal þeirrar þjónustu sem er í boði á nýjum vef Isavia www.isavia.is, en þar má nálgast upplýsingar um alla áætlunarflugvelli á Íslandi auk flugleiðsöguþjónustu. BOTTI BIRTIR UPPLÝSINGAR ÚR FLUGKERFUM ISAVIA Þjónustan lýsir sér þannig að farþegar geta fengið upplýsingar um breytingu í rauntíma á sínu flugi allt frá því hlið opnar og þar til vélin lendir á áfangastað. Þetta getur komið sér sérstaklega vel þegar fólk skipuleggur tíma sinn t.d. ef rask verður á flugi. Gott er að nota þjónustuna í ýmsum aðstæðum, t.d. til að áætla hvenær sækja skal farþega út á völl. Þá er ekki slæmt að geta setið eða verslað í rólegheitum í flugstöðinni vitandi að maður fær tilkynningu í símann sinn um hvenær halda skal að hliði. Þjónustan sem er rekin af írska fyrirtækinu BizTweet byggir á svokallaðri „botta“ gervigreind sem nýtt er til að koma upp- lýsingum úr flugkerfum Isavia til notenda í gegnum ofangreinda samfélags miðla. Margir af stærstu flugvöllum heims eru farnir að nýta sér þessa þjónustu, þar á meðal alþjóða flugvellirnir í Melbourne í Ástralíu og Dubai sem og London City- flugvöllur. Isavia vill vera hluti af góðu ferðalagi farþega með því að veita greiðan aðgang að þeim upplýsingum sem þeir þurfa að fá, þegar þeim hentar og með þeim hætti sem þeir vilja. Til þess viljum við nýta nýjustu og bestu tækni. Okkar reynsla af þjónustunni er mjög góð og veitir flugvallarrekendum einstakt tækifæri til að veita skilaboð sem byggja á raungögnum. Þetta þýðir að viðskiptavinir Isavia, þ.e. farþegarnir, fá upplýsingar sem eiga beint erindi við þá. 46 ÞÚSUND SKRÁNINGAR FYRSTU 6 MÁNUÐINA Frá því þjónustan fór í loftið þann 5. apríl sl. hafa u.þ.b. 46.000 skráningar átt sér stað á vef Keflavíkurflugvallar bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn. Við erum auðvitað hæstánægð með þetta fljúgandi start og vonum að sem flestir nýti sér þjónustuna áfram. Við viljum ekki síður þjónusta innanlandsfarþega okkar vel og því er nú unnið að innleiðingu þjónustunnar á stærstu innanlandsflugvöllum okkar þ.e. á Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Frekari upplýsingar um þjónustuna og notkun hennar má finna á www. isavia.is/flugtilkynningar. Heiðar Örn Arnarson, vefstjóri hjá Isavia

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.