Tölvumál - 01.01.2018, Qupperneq 18
18
Traust er undirstaða allra góðra samskipta, bæði persónulegra og faglegra.
Traust er grunnur góðra viðskipta og ástæða þess að við getum fengið
lán og fyrirgreiðslu. Allir vita að traust þarf að ávinna sér og það er ekki
gert á einni nóttu. Eins og oft hefur verið sagt þá tekur áraraðir að vinna
sér inn traust, nokkrar sekúndur til að glata því og heila eilífð að byggja
það upp.
Í lánaviðskiptum og þegar kemur að því að veita fólki eða fyrirtækjum
fyrirgreiðslu gera lánveitendur yfirleitt kröfu um góðar tryggingar fyrir
lánveitingu. Á síðari tímum hefur notkun á gögnum bæst við sem leið til
að meta lánshæfi. Oftast hafa verið um eigin gögn lánveitanda að ræða
í bland við gögn frá fjárhagsupplýsingastofum (e. credit bureau), þ.e.
fyrirtækjum sem sérhæfa sig í miðlun fjármálaupplýsinga milli banka og
annarra lánveitenda líkt og Creditinfo. Það er nefnilega að ýmsu að huga
þegar kemur að því að taka ákvörðun um hvort veita eigi einstaklingi eða
fyrirtæki lán. Lánveitandi þarf að spyrja sig hversu mikið hann getur lánað,
hver á að fá lánið, gegn hvaða skilmálum á lánið að vera veitt og hver
áhættan er fyrir lánveitandann. Góðar og traustar upplýsingar um
lántakann skipta höfuðmáli til að taka ákvarðanir um lánveitingu.
En hvað þarf til þess að taka góða ákvörðun byggða á upplýsingum? Í
fyrsta lagi þurfa upplýsingar að vera viðeigandi. Það er til lítils að taka
ákvörðun um t.d. bílafjármögnun ef þú hefur bara upplýsingar um hvað
viðskiptavinur eyðir miklu í grænmeti á hverjum mánuði. Upplýsingar
þurfa í öðru lagi að vera réttar og áreiðanlegar. Það segir sig sjálft að
rangar upplýsingar leiða af sér rangar ákvarðanir. Í þriðja lagi þurfa
upplýsingar að vera aðgengilegar. Það þýðir ekki aðeins að það sé
tæknilega fært að nálgast upplýsingarnar heldur líka að réttu leyfin séu
fyrir hendi svo hægt sé að nota þær.
GÓÐ GÖGN TRYGGJA GÓÐAR
ÁKVARÐANIR
Á síðustu árum hefur þrennt gerst sem hefur haft mikil áhrif á hvernig
hægt er að taka upplýstar ákvarðanir í krafti gagna. Í fyrsta lagi þá hafa
komið fram lög og reglugerðir frá Evrópusambandinu sem hafa verið
innleiddar eða stendur til að innleiða bæði hérlendis og í þeim ríkjum sem
við berum okkur saman við. Tilgangur þessara laga er m.a. að búa til
umgjörð í kringum meðhöndlun persónuverndaðra gagna í tilviki GDPR
reglugerðarinnar og að opna fyrir gagnaflæði í greiðslumiðlun í tilviki
PSD2. Í öðru lagi hafa tækniframfarir síðustu ára gert það af verkum að
magnið af fáanlegum gögnum hefur stóraukist og í þriðja lagi höfum við
færi á mun betri aðferðum og tólum til að greina gögn.
Eins og áður sagði þá þurfa góðar ákvarðanir að vera byggðar á góðum
gögnum. Í gegnum tíðina hafa til dæmis ákvarðanir um lánveitingu verið
byggðar á tiltölulega hefðbundnum fjárhagsupplýsingum um lántakann.
Lánveitendur hafa yfirleitt horft til eignastöðu, greiðsluhegðunar og
lánshæfiseinkunnar svo dæmi séu tekin þegar kemur að því að taka
ákvörðun um hvort veita eigi einhverjum lán. En hvað ef lántakandinn
hefur ekki slíkar upplýsingar fyrir hendi? Þó að við séum að stofna til nýs
samband við lánveitanda þá erum við ekki fædd í gær og eigum okkur
kannski langa sögu annars staðar frá. Af hverju ættum við ekki að geta
tekið með okkur upplýsingar um orðspor okkar og nýtt okkur í nýju
sambandi?
TÆKNIN TEKUR VÖLDIN
Nú er svo komið að tækniframfarir hafa ekki aðeins veitt okkur aðgang
að auknum gögnum og betri leiðum til að greina þau – heldur er hægt í
auknum mæli að taka ákvarðanir út frá þeim gögnum án þess að
mannshöndin komi nærri. Sjálfvirk ákvarðanataka er farin að gegna stærra
og stærra hlutverki í daglegu lífi fólks og mun koma til með að breyta því
verulega hvernig við stundum viðskipti og tökum ákvarðanir.
Ágætt dæmi um skilvirka notkun gagna til að taka sjálfvirkar og upplýstar
ákvarðanir er ferlið við afgreiðslu bílafjármögnunar hjá Lykli. Áður fyrr
krafðist þetta ferli töluverðs tíma og vinnu fyrir hverja og eina lánaumsókn.
Viðskiptavinir þurftu að skila inn pappírum sem manneskja þurfti að
yfirfara til þess að geta svo tekið ákvörðun um það hvort hægt væri að
veita viðkomandi lán. Í dag tekur þetta ferli nokkrar mínútur vegna þess
að Lykill hefur gert gagnaöflunina og lánaákvörðunina sjálfvirka.
ÓHEFÐBUNDIN GÖGN
En líkt og minnst var á hér að ofan þá er möguleiki á að taka upplýstar
ákvarðanir um lántökur með öðrum gögnum en hefðbundnum
fjármálagögnum og það er hægt að taka þær ákvarðanir með sjálfvirkum
hætti. Gott dæmi um svæði þar sem aðgangur að fjármagni hefur verið
takmarkaður vegna gagnaskorts eru ýmis lönd í Afríku. Skortur á
fjármálagögnum hefur verið alvarlegt vandamál á því svæði þegar kemur
að því að veita fyrirgreiðslu og því er mikil þörf á að finna óhefðbundnar
leiðir til að liðka fyrir því ferli. Í Afríku hafa sprottið upp mörg fyrirtæki sem
veita lán til einstaklinga og smærri fyrirtækja svo þau geti stækkað við
starfsemi sína. En til þess að taka ákvarðanir um slíka lánveitingu er ekki
hægt að sækja upplýsingar til hefðbundinna fjármálastofnanna þar sem
lítið er um að fólk hafi yfir höfuð bankareikning. Fjártæknifyrirtækið Shika
í Kenía hefur t.d. boðið upp á þjónustu þar sem ákvarðanir um lántöku
eru teknar sjálfvirkt í gegnum smáforrit. Til þess að afla upplýsinga um
lánshæfi einstaklinga er stuðst er við gögn frá fjártæknifyrirtækinu M-Pesa
sem sérhæfir sig í millifærslum í gegnum farsíma auk þess sem allur sími
notenda er skrapaður af gögnum, t.d. símaskráin, hvaða smáforrit
viðkomandi notar, hringimynstur og fleira. Þannig geta einstaklingar sótt
sér fjármögnun jafnvel þótt þeir hafi aldrei á ævi sinni átt bankareikning.
Önnur fyrirtæki nýta samhliða hefðbundin og óhefðundin gögn í sjálfvirkri
ákvarðanatöku. Coremetrix, fyrirtæki í eigu Creditinfo Group, hefur t.d.
þróað sérstakt persónuleikapróf sem dregur fram líkurnar á því að
einstaklingar fari í vanskil út frá því hvernig persónugerð þeirra er. Slík
gögn geta gefið færi á því að fleiri einstaklingar geti sótt sér fjármögnunar
og lánveitendur nálgast dýpri gögn til að geta tekið upplýstari ákvarðanir
en ella.
Traust er, eins og áður sagði, lykilatriði í öllum viðskiptum. Með tilkomu
nýrrar tækni og fjölbreyttari gagna er nú hægt að ávinna sér traust með
mun skjótari hætti en áður. Þessi þróun er enn á frumstigum og því verður
spennandi að sjá hvernig sjálfvirkar og upplýstar ákvarðanir út frá
fjölbreyttri flóru gagna munu koma til með að breyta fjármálaheiminum
á næstu árum.
SJÁLFVIRKAR ÁKVARÐANIR
UM ALLAN HEIM
Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo Lánstrausts og svæðisstjóri
Creditinfo Group í NEvrópu