Tölvumál - 01.01.2018, Side 23

Tölvumál - 01.01.2018, Side 23
23 rekin af Landskerfum bókasafna, sem öll bókasöfn á Íslandi eru aðili að. Með samvinnu Borgabókasafnsins, Upplýsingatæknideildar Reykjavíkur- borgar og sjóðum sem styðja við nýsköpun, auk Landskerfa bókasafna, var farið í þróunarvinnu með danska forritunarfyrirtækinu Reload, og síðar viðmótsforriturum frá Reon um útlitið, og er stefnt að því að ný heimasíða, sem er beintengd bókasafnskerfinu og safnkosti, fari í loftið á haustdögum. Fyrst um sinn verður vefurinn á tilraunastigi og verða reglulega gerðar notendaprófanir á henni. Áframhaldandi þróun mun svo miða að því að bæta virknina með reglulegu samtali við bæði notendur og starfsfólk. Það er mjög stórt og margþætt verkefni að tengja saman svo ólík kerfi, samhliða því að þróa nýtt útlit, svo verkefnið hefur krafist bæði úthalds og skapandi hugsunar allra þátttakenda til að leysa þau fjölmörgu en mikilvægu smávandamál sem koma upp. Því tók ferlið lengri tíma en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Markmiðið var hinsvegar að móta grunn sem Borgarbókasafnið, og þegar fram líða stundir mögulega fleiri bókasöfn á Íslandi, geta byggt á til framtíðar. VERKEFNI TIL FRAMTÍÐAR Það er ekki nóg að búa yfir nýjustu tækni eða nýrri vefsíðu. Nauðsynlegt er að halda áfram að móta hvernig bókasöfnin geta þróað heildarupplifun með samspili stafrænna miðla, viðmóti og rýmis, sjálfsafgreiðslu og miðlunar á söfnunum. Skref í þá átt er verkefni, sem Borgarbókasafnið er með í gangi, um að innleiða miðlægt kerfi fyrir skjálausnir sem sækir upplýsingar beint í vefumsjónarkerfi. Það einfaldar vinnulag fyrir starfsfólk með því að samnýta vinnu við vefinn, viðburði og bókaútstillingar, en bætir að auki upplýsingaflæði og miðlun til notenda á söfnunum sjálfum umtalsvert. Mikil tækifæri felast í því að þróa þjónustuferlið þegar sjálfsafgreiðsluvélum á söfnunum verður skipt út á næstu tveimur árum, því á sama tíma eru Landskerfi bókasafna að vinna að því að taka upp og innleiða nýtt bókasafnskerfi á landsvísu. Það mun móta framtíðarmöguleika allra safna á að nýta gögn og vefþjónustur enn betur. Verkefni um stafræna þróun innviða og þjónustu er því á byrjunarstigi, en það er mikilvægt að tryggja að stafræn þróun og stöðug endurskoðun séu hluti af grunnstefnu og framtíðarsýn safnsins. HEIMILD https://www.danskernesdigitalebibliotek.dk/nyheder/2017/ddb-indgaar- partnerskabsaftale-med-island/ GAMLAR MYNDIR

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.