Tölvumál - 01.01.2018, Page 24
UTmessan 2018
Upplýsingatæknimessan var haldin í áttunda skiptið 2. og 3.
febrúar í Hörpu í formi ráðstefnu og sýningar á föstudegi fyrir fagfólk
í upplýsingatækni og sýningu sem var opin öllum á laugardegi.
Hvað er UTmessan og fyrir hverja?
UTmessan er einn stærsti viðburður ársins í
tölvugeiranum og hefur verið haldin árlega frá árinu
2011. Tilgangurinn er ekki síst til að sýna almenningi
hversu stór og umfangsmikil þessi grein er orðin
hér á landi. Á UTmessuna mæta öll helstu tölvu-
og tæknifyrirtæki landsins og taka þátt með einum
eða öðrum hætti og hvetja þannig fólk til að kynna
sér um hvað tölvuiðnaðurinn snýst.
Á UTmessunni sést fjölbreytileiki upplýsinga-
tækninnar og þar sést svart á hvítu að allir hafa
möguleika á að starfa í tölvugeiranum. Starfssviðið
er bæði breitt og fjölbreytt og hentar bæði konum og
körlum. Tilgangur UTmessunnar er að sjá aukin fjölda ungs
fólks velja sér tölvugeirann sem framtíðarstarfsvettvang. Einnig
viljum vekja áhuga almennings á upplýsingatækni og mikilvægi hennar á
öllum sviðum daglegs lífs.
Að UTmessunni 2018 stóðu Ský í samstarfi við Háskólann í
Reykjavík, Háskóla Íslands, og Samtök iðnaðarins með dyggum
stuðningi Platinum styrktaraðilanna Sensa, Origo, Opinna kerfa
og Deloitte.
Yfir 1.000 manns voru á ráðstefnu UTmessunnar á
föstudeginum og var það mál manna að
fjölbreyttir og góðir fyrirlestrar hafi verið í boði
fyrir alla. Yfir 50 fyrirlestrar voru í boði á 10
þema línum ráðstefnunnar og voru sérstaklega
áhuga verðir lykilfyrirlestrar í Eldborg.
Rúmlega 11 þúsund manns mættu á opið hús
á laugardeginum og sem þýðir að um 4%
landsmanna mættu á UTmessuna. Stemming
var mjög góð að venju og ungir sem aldnir
gengu um og fengu að sjá nýjustu tækni.
Undrabarnið Tanmay Bakshi hélt einn af lykil-
fyrirlestrunum og var ráðstefnan einstaklega
fróðleg og fjölbreytt. Hönnunarkeppni iðn- og
vélaverkfræðinema HÍ laðaði marga að ásamt
glæsilegu sýningarrými háskólanna í Norður-
ljósum og Silfurbergi. Mikið var um að vera í
sýningarbásum fyrirtækjanna sem skörtuðu sínu
fegursta á messunni. Gaman var að sjá
fjölbreytileika gesta sem kíktu á UTmessuna
þennan dag og það er óhætt að segja að
UTmessan hefur stimplað sig inn hjá
Íslendingum og lítur út fyrir að viðburðinn muni
vaxa og dafna enn meira á næstu árum.
Undirbúningur fyrir næstu UTmessu er farin af stað
og er það von okkar að enn fleiri taki þátt í henni og
við getum þannig sýnt Íslendingum hve mikill hugur er í fólki í
tölvugeiranum.