Tölvumál - 01.01.2018, Síða 28

Tölvumál - 01.01.2018, Síða 28
28 Rannsakendur frá Háskóla í Katalóníu á Spáni og sjúkrahúss í Massachusets sýndu fram á breytingu í heilastarfsemi þeirra sem spiluðu tölvuleiki. Þeir sýndu fram á bætta almenna og sértæka athygli. Svæði heilans sem sér um að halda athygli var skilvirkara í þeim sem spiluðu tölvuleiki og krafðist minni virkjunar til að halda athyglinni á krefjandi verkefnum [5]. Í rannsókn sem gerð var á Max Planck Institute for Human Development og Charité University Medicine St. Hedwig-Krankenhaus var sýnt fram á að tölvu leikjaspilun veldur stækkun í svæði heilans sem hefur að gera með myndun minnis, staðbundna stefnumörkun, forsjálni og jafnframt fína hreyfi færni. Rannsakendur segja að þetta sanni það að sérstök svæði heilans sé hægt að þjálfa með tölvuleikjum og þess vegna álykta þeir að tölvu leikir geti verið gagnlegir í meðferðum við hinum ýmsu geðsjúk- dómum, þar sem svæði heilans eru breytt eða minnkuð í stærð svo sem geðklofa, áfalla streituröskun eða taugahrörnunarsjúkdómum eins og Alzheimers [6]. GETA TÖLVULEIKIR GERT OKKUR GÁFAÐRI? Hefur tölvuleikjaspilun einhver raunveruleg og langvarandi áhrif á viðbragðstíma okkar í daglegu lífi? Flestir herkænskuleikir eins og „Call Of Duty“, „Halo“, „Grand Theft Auto“ og hundruð fleiri krefjast þess við spilun að við skynjum og vinnum mjög hratt úr upplýsingum úr þeim. Að þessu leyti ýta þeir við takmörkum okkar á því hversu hratt okkar mennski heili getur unnið úr upplýsingum og tekið ákvarðanir byggðar á þeim. Tölvuleikir neyða okkur til að hugsa og bregðast hraðar við en þarft er í hinu daglega lífi. Þessu er fléttað saman við þá staðreynd að flestir tölvuleikir hvetja spilara til að bregðast enn hraðar við aðstæðum, því í flestum tölvuleikjum leiðir skemmri viðbragðstími til verðlauna. Sagt er að æfingin skapi meistarann og það er óneitanlega rétt. Þegar við gerum eitthvað eru rökrétt raf- eða efnaboð send á milli taugafrumna heilans og því meira sem við gerum af þeim hlut því sterkari verður tengingin á milli þessara taugafrumna og þær geta haft hraðari samskipti. Það sem flýtir fyrir vinnsluhraða verkefnisins. Við vitum öll að æfingar bæta frammistöðu. Það að æfa sig breytir byggingu heilafrumna okkar til að flýta fyrir flæði upplýsinga svo ef þau rök gilda fyrir allt annað sem við gerum ætti það ekki að gilda fyrir tölvuleiki? Gæti það verið að því meira sem viðspilum hraða tölvuleiki, þá gæti viðbragðstími okkar aukist í öðrum daglegum verkefnum? Gæti það verið að því meira sem við vinnum úr upplýsingum og bregðumst við þeim í tölvuleikjum að það hafi áhrif á færni okkar í upplýsingavinnslu og ákvarðanatöku í daglegu lífi? RANNSÓKNIR Á NEIKVÆÐUM ÞÁTTUM TÖLVULEIKJASPILUNAR Neikvæðu afleiðingar tölvuleikjaspilunar geta verið áhrif hennar á umbunarstöðvar í tauganeti heilans. Sýnt hefur verið fram á mun meiri áhrif á þessarar umbunarstöðvar fyrir þá sem kljást við tölvufíkn og ánetjast tölvuleikjaspilun, sem er ekki ólík því sem gerist hjá sjúkum fjárhættu- spilurum. Hjá tölvufíklum leiddi taugamynstrið í ljós að þar væri um að ræða ójafnvægi í umbunarkerfi heilans [7]. Einnig er neikvætt hversu mikið ofbeldi er í flestum vinsælum tölvuleikjum í dag. Sumir rannsakendur vildu meina að líklegt væri að síendurtekin birting ofbeldisfulls efnis gæti orðið þess valdandi að það svæði heilans sem tengt er vinnslu á tilfinningalegum og vitrænum ferlum gæti orðið ónæmara fyrir ofbeldi. Þeir sögðu einnig að um tilgátur væri að ræða en hugsanlega gæti það einnig leitt til minnkaðrar tilfinningalegrar svörunar sem snýr að ofbeldisfullum aðstæðum, komið í veg fyrir samúð og jafnvel leitt til árásargirni [7]. Rannsókn sem var gerð í Háskólanum í Montreal sýndi fram á að þeir sem eyddu miklum tíma í að spila skotleiki eins og „Call of Duty“ höfðu minna af gráa efninu í heilanum, í mikilvægum hluta heilans drekans (hippocampus). Minnisfesting á sér stað í svæði heilans sem kallast drekinn, en þar er um tímabundnar minningar að ræða [8]. AÐ LOKUM Líklegt er að sumir tölvuleikir hafi bæði jákvæða þætti eins og að bæta athygli, sjónminni og fleira varðandi heildaruppbyggingu heilans og svo neikvæða þætti eins og hættu á fíkn, of mikla birtingu ofbeldis eða jafnvel einnig einhver neikvæð áhrif á ákveðin svæði heilans. Eins og með flest alla tölvunotkun þarf að gæta hófs við tölvuleikjaspilun, en einnig þarf að rannsaka betur áhrif tölvuleikjaspilunar á heilastarfsemi í framtíðinni. Það þarf klárlega fleiri rannsóknir og stærra úrtak þátttakenda í þeim, svo að birtar niðurstöður úr þeim í virtum tímaritum séu marktækar og aðrir vísindamenn véfengi þær ekki og komi með niðurstöður úr rannsóknum sem skerast á við þær fyrri. HEIMILDIR: [1]“Video game culture“, En.wikipedia.org, 2018. [Online]. Available: https:// en.wikipedia.org/wiki/Video_game_culture. [Accessed: 17-Sep-2018]. [2] „Video games can change your brain: Studies investigating how playing video games can affect the brain have shown that they can cause changes in many brain regions“, ScienceDaily, 2018. [Online]. Available: https://www.sciencedaily.com/releases/2017/06/170622103824.htm. [Accessed: 17-Sep-2018]. [3] „Action video games to fight dyslexia“,Medicalxpress.com, 2018. [Online]. Available: https://medicalxpress.com/news/2017-12-action-video- games-dyslexia.html. [Accessed: 17-Sep-2018]. [4]“Computer games give seniors balance benefits, study shows“,Cbsnews. com, 2018. [Online]. Available: https://www.cbsnews.com/news/ computer-games-give-seniors-balance-benefits-study-shows. [Accessed: 17-Sep-2018]. [5] „Playing Video Games Shapes Brain And Behaviour: Gamers May Have Better Attention Spans, But Less Self-Control“,Medical Daily, 2018. [Online]. Available: https://www.medicaldaily.com/playing-video-games- shapes-brain-and-behavior-gamers-may-have-better-attention-419654. [Accessed: 17-Sep-2018]. [6] „How video gaming can be beneficial for the brain“,Mpg.de, 2018. [Online]. Available: https://www.mpg.de/research/video-games-brain. [Accessed: 17-Sep-2018]. [7] „Video games can change your brain: Studies investigating how playing video games can affect the brain have shown that they can cause changes in many brain regions“,ScienceDaily, 2018. [Online]. Available: https://www.sciencedaily.com/releases/2017/06/170622103824.htm. [Accessed: 17-Sep-2018]. [8] H. Bodkin, „Playing shooter video games damages the brain, study suggests“,The Telegraph, 2018. [Online]. Available: https://www. telegraph.co.uk/science/2017/08/07/playing-shooter-video-games- damages-brain-study-suggests/. [Accessed: 17-Sep-2018].

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.