Tölvumál - 01.01.2018, Blaðsíða 36

Tölvumál - 01.01.2018, Blaðsíða 36
36 Á aðalfundi félagsins í febrúar 2018 voru teknir inn 5 nýir heiðursfélagar og óskum við þeim innilega til hamingju. Heiðursfélagar eru tilnefndir fyrir óeigingjarnt starf fyrir félagið og/eða brautryðjendastarf í upplýsingatækni á Íslandi. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa komið að því þrekvirki að taka saman sögu tölvuvæðingar á Íslandi sem kom út þann 6. apríl 2018 auk þess að hafa hvert með sínum hætti verið í tölvugeiranum í áraraðir. Anna Ólafsdóttir Björnsson er sagnfræðingur og tölvunarfræðingur að mennt. Hún lauk BA prófi í sagnfræði og almennri bókmenntasögu frá Háskóla Íslands 1978 og cand. mag. prófi í sagnfræði frá sama skóla 1985. Hún starfaði við blaðamennsku og þáttagerð í útvarpi á árunum 1978-1989 og hefur tekið stök verkefni að sér á því sviði æ síðan. Hún settist á þing fyrir Kvennalistann 1989 og sat þar í sex ár til 1995. Meðal þingmála hennar var þingsályktunartillaga um að þingskjöl og umræður á alþingi yrðu opin almenningi í tölvutæku formi og ókeypis, svo og lög, reglugerðir og alþjóðasamningar. Á þeim tíma er málið var flutt (1994 og 1995) þótti síður en svo sjálfsagt mál að bjóða slíkan aðgang ókeypis og einkaaðilar voru farnir að huga að því að sjá um þessa þjónustu fyrir borgun. Um svipað leyti skrifaði hún sína fyrstu grein í Tölvumál. Hún hefur látið sig varða hlutverk kvenna í tæknisamfélaginu. Á árunum 1995-2000 helgaði Anna sig sagnfræðirannsóknum og skrifaði meðal annars nokkrar bækur, bókakafla og útvarpsþáttaröð á sviði sagnfræði, en samhliða því fetaði hún sig inn á svið upplýsingatækninnar. Frá árinu 2001 til dagsins í dag (febrúar 2018) hefur hún starfað nær óslitið að hugbúnaðargerð, fyrst í stað samhliða námi. Hún útskrifaðist með MSc gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands 2008 og fjallaði lokaverkefni hennar um allumlykjandi tölvutækni (ubicomp/ubiquitous computing) – það hvernig tölvutækni rennur smátt og smátt saman við allt daglegt umhverfi fólks og verður sífellt ósýnilegri. Önnur hugtök, sem leyst hafa ubicomp af hólmi, eru meðal annarra internet hlutanna, (IoT/Internet of Things). Áhugasvið Önnu er allt sem lýtur að samskiptum fólks og tölvu (HCI). Starfsvettvangur hennar í hugbúnaðargerð á Íslandi og erlendis hefur einkum verið á sviði tækniskrifa og hugbúnaðarprófana. Sem tæknihöfundur hefur hún fyrst og fremst lagt áherslu á að auka upplýsinga- flæði innan fyrirtækja og milli forritara og annarra sérfræðinga og hagsmunaaðila, skilgreina og setja upp ferli og miðla tæknilegum upplýsingum. Hún hefur oftar en ekki fengið það hlutverk að móta starfsvið sitt hjá upprennandi fyrirtækjum (og fyrirtækjum í umbreytingarferli) á borð við Betware, INNN, LS Retail, MainManager, Kreditech í Hamborg og Qlik DataMarket. Um mitt ár 2015 fékk Anna það verkefni að taka við ritun sögu tölvuvæðingar á Íslandi á vegum Ský, verkefni þar sem hún gat sameinað sagnfræðirannsóknir og -skrif og brennandi áhuga á tölvu- væðingu í fortíð, nútíð og framtíð. Sagan fjallar ekki síst um þau gífurlegu áhrif sem tölvutæknin hefur haft á allt daglegt líf fólks og hvert einasta svið samfélagsins. Þótt fimmtíu ár séu ekki langur tími í augum sagnfræðinga þá hafa þau umskipti sem orðið hafa á þeim áratugum, sem liðnir eru frá komu fyrstu tölvunnar til Íslands, gjörbreytt svip samfélagsins. Það eru ómetanleg forréttindi fyrir sagnfræðing að fá að fjalla um þetta efni og tala við fólkið sem mótaði þetta tímabil og fyrir tölvunarfræðing að skilja betur grunninn sem nútímatækni hvílir á. Arnlaugur Guðmundsson lauk prófi í útvarpsvirkjun 1966 og í rafmagnstæknifræði frá Københavns Teknikum, nú DTU, árið 1972. Á námsárum sínum starfaði hann m.a. hjá Raunvísindastofnun HÍ og Rafagnatækni við viðgerðir, nýsmíði og einnig uppsetningu fyrsta kerfiráðs Hitaveitu Reykjavíkur. Eftir starf á eðlisfræðideild Landsspítala og hjá Geislavörnum ríkisins lá leiðin til Orkustofnunar þar sem hann vann við landgrunnsrannsóknir og síðan hönnun og smíði á sérhæfðum mælitækjum hjá rafeindastofu Jarðhitadeildar, sem hann jafnframt veitti forstöðu. Árið 1978 stofnaði Arnlaugur, ásamt tveimur félögum sínum, fyrirtækið Örtölvutækni sf. sem hannaði og smíðaði margskonar mælitæki, t.d. fyrir fiskiskip og tók að sér hönnun á ýmsum sértækum rafeindabúnaði. Meðal annars hannaði fyrirtækið og smíðaði fyrsta kerfiráð Hitaveitu Suðurnesja í samvinnu við Verk- og kerfisfræðistofuna. Skýrslutæknifélagið hafði mikil áhrif á starfsferil Arnlaugs. Grein sem birtist í 1. tölublaði 3. árgangs (1978), Tölvumála: „Drög að Íslenskum stöðlum fyrir 7-bita kóða, 8-bita EBCDID kóða og ganaskráningarborð“ lagði grunninn að íslenskun tölvubúnaðar. Byggt á þessum tillögum aðlagaði Örtölvutækni tölvuskjái og prentara að íslensku ritmáli fyrst fyrirtækja á Íslandi. Í framhaldi þess þá vann Arnlaugur að gerð staðla og var í tveimur tækninefndum á vegum Fagráðs í Upplýsingatækni / Staðlaráðs Íslands um íslenskt lyklaborð fyrir tölvur. Megin starfsvettvangur hans var sem forstöðumaður upplýsingatæknimála, fyrst hjá Vatnsveitu Reykjavíkur og síðar Orkuveitu Reykjavíkur eftir sameiningu VR og OR. Með vinnu hefur Arnlaugur stundað ýmiss konar sjálfboðaliðastörf. Innan skátahreyfingarinnar hefur hann auk margvíslegra foringjastarfa gegnt hlutverki framkvæmdastjóra landsmóts skáta, undirbúðastjóra alheimsmóts skáta, verið mótsstjóri á fjölþjóðlegum skátamótum eldri skáta og verið fararstjóri innanlands og utan fyrir hópum skáta auk þess að vera félagsforingi fyrir skátafélagið Landnemar í Reykjavík síðan 1995. Hann var kjörinn í Endurmenntunarnefnd TFÍ árið 1979 og varð formaður hennar tveimur árum síðar. Á þeim árum átti sú nefnd frumkvæði að stofnun sameiginlegrar Endurmenntunarnefndar TFÍ, VFÍ, BHM, HÍ, TÍ og KÍ, nú Endurmenntun Háskóla Íslands. Átti Arnlaugur sæti í fyrstu stjórn þeirrar nefndar. Hann sat í stjórn Undirbúningsfélags rafeinda- iðnaðarins og var í fyrstu stjórn Fagráðs í Upplýsingatækni sem sett var á stofn innan SÍ, nú SKÝ, og fluttist síðar til Staðlaráðs. Arnlaugur átti vinningstillögu að merki fyrir 25 ára afmæli Skýrslutæknifélagsins en tillagan byggði á þáverandi merki félagsins. Arnlaugur gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Tæknifræðingafélag Íslands og sat meðal annars í stjórn Kjarafélags TFÍ. NÝIR HEIÐURSFÉLAGAR Í SKÝ

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.